Morgunblaðið - 26.03.1999, Page 58
58 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
7----------------------
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Aðg’erðir í ljósi nýrrar
byggðastefnu
Kjördæmabreyting
stendur nú fyrir dyrum
til þess að jafna vægi at-
kvæða. Þingmönnum
mun fjölga á höfuðborg-
arsvæðinu en fækka úti
á landi. Hingað til hefur
það ekki verið hægt
nema með því að fjölga
þingmönnum. Nú er sú
leið ekki farin.
Alþingi hefur sam-
^T>ykkt ályktun um
byggðamál á nýjum for-
sendum. I anda hennar
og í samræmi við tillög-
ur kjördæmanefndar-
innar skipaði forsætis- Halldór
ráðherra byggðanefnd Blöndal
15. október sl. með full-
trúum þingflokkanna eins og þeir
voru þá. Formaður var Einar K. Guð-
finnsson. Með honum voru Tómas
Ingi Olrich, Sjálfstæðisflokki, Magn-
ús Stefánsson, Framsóknai-flokki, og
Steingrímur J. Sigfússon, frá þing-
flokki óháðra. Frá Samfylkingunni
voru Svavar Gestsson, Kristján L.
Möller og Jóna Valgerður Kristjáns-
dótth-, en á þeim tíma skiptist hún
upp í þijá þingflokka á
Alþingi. Stjórnarand-
staðan var m.ö.o. í
meirihluta í nefndinni.
Nefndin skilaði til-
lögum sínum í byrjun
mars og eru þær í 11
liðum. Hún lagði
áherslu á að tillögurnar
miðuðust við aðgerðir
sem gætu tekið gildi
tafarlaust. I samræmi
við það var lagt til að
jafna húshitunarkostn-
að, framlög til jöfnunar
námskostnaðar skyldu
aukin og fólki á lands-
byggðinni auðveldaður
aðgangur að sérfræði-
læknisþjónustu. Tillög-
urnar gripu inn á fjölgun starfa á
landsbyggðinni og lagt var til að fara
út í aðgerðir vegna sveitarfélaga þar
sem fólksfækkun hefur orðið mikil.
Nefndin lagði til að flýta vega-
framkvæmdum þar sem íbúaþróun
er alvarleg og vegagerð er líkleg til
þess að hafa áhrif á byggðaþróun.
Atakið skyldi standa í fjögur ár og
nema 500 millj. kr. á ári hverju. Eg
Samgöngur
Það er sorglegt að svo
skuli komið, segir
Halldór Blöndal, að
stöku þingmenn líta
það öfundaraugum ef
ráðist er í framkvæmd-
ir í öðru kjördæmi en
þeirra sjálfra.
hef orðið var við að reynt er að gera
þetta tortryggilegt. Það er sorglegt
að svo skuli komið að stöku þing-
menn líta það öfundaraugum ef ráð-
ist er í framkvæmdir í öðru kjör-
dæmi en þeirra sjálfra. A dögunum
lýsti ég yfir vilja mínum til þess að
ráðist yrði í Sundabraut í Reykjavík
svo fljótt sem kostur er. Verkið gæti
hafist 2002 eða 2003. Fyrsti áfangi
gæti kostað fjóra milljarða króna og
heildarkostnaðnr orðið 9-12 millj-
arðar króna. Þá er miðað við að 2.
áfangi upp í Geldinganes yrði á árun-
um 2004-2006 og 3. áfangi upp á
Alfsnes og inn í Kollafjörð á árunum
2008-2010. Þetta er bjartsýn áætlun
og gæti dregist. En maður verður að
setja sér skynsamleg markmið og
skipta leiðinni þangað niður í senni-
lega áfanga.
Vegagerðin fyrir vestan, norðan
og austan er af öðrum toga. Það
stafar af því að sums staðar eru veg-
ir milli byggðarlaga og inn á hring-
veginn lokaðir svo mánuðum skiptir
eða þungatakmarkanir gera vöru-
flutninga nánast ómögulega. Að ég
ekki nefni það að mörg ár munu líða
áður en lokið er uppbyggingu hring-
vegarins. Það er í ljósi þessa sem sá
sáttmáli var undirskrifaður af full-
trúum allra þingflokka að komið
skyldi til móts við byggðarlög þar
sem íbúarnir búa við óþolandi ástand
í samgöngumálum. Það kemur ekki á
óvart að það skuli einkum vera þing-
menn úr Þjóðvaka og Guðmundur
Arni Stefánsson sem ekki kannast
við sáttmálsörkina. I síðustu viku
vorum við Guðmundur Árni og
Ágúst Einarsson ásamt fleiri þing-
mönnum kjördæmisins að fagna því
með Grindvíkingum að unnt skyldi
að ljúka dýpkun innsiglingarinnar á
þessu ári. Hvorki var gert. ráð fyrir
því í fjárlögum né hafnaáætlun að
svo hratt skyldi farið en öll skynsem-
isrök mæltu með því að flýta fram-
kvæmdunum.
Segja má að byggðatillögurnar
hafi með vissum hætti verið prófraun
fyrir Samfylkinguna. Fulltrúar
hennar tóku þátt í ábyrgðarmiklu
starfi sem varðai- hagsmuni þeirra
sem búa í héruðum og byggðum þar
sem samgöngur eru erfiðar og fjar-
lægðir miklar. Fullt samkomulag
allra þingflokka var um einstök efn-
isatriði tillagnanna og nauðsyn þess
að þeim yrði þegai- í stað hrundið í
framkvæmd. Nú bregðui’ svo við að
einstakir þingmenn Samfylkingar-
innar vilja ekki standa við tillögurn-
ar. Samfylkingin hefur fallið á próf-
inu. Og það mun koma á daginn að
innan hennar finnst engin rödd með
þann styrkleika að á hana verði
hlustað af flokksbrotunum öllum
sem hana mynda.
Höfundur er samg’önguráðfterra.
Stórsvig í Skollahvilft
-
PASKA
mB0ÐSDAGAR
Húfur, hanskar
luffur
-20%
arnakulda
gallar
Skíðahjálmar
skfðagleraugu
-15%
Brettapakki
-25%
SKÍÐAPAKKAR
-20%
Brettafatnaður
-20-40%
SKIÐAGALLAR
3.900 til 7.900
Gönguskíða
TILBOÐ
0Z0N úlpur
og buxur
-30%
frá 14.668
Skíðaskór
-15-30%
ALURAIRWALK
G0TUSK0RA
1.900
^ toppurímv v útwtit
n
i
SKEIFUNNI 6 • Sími 533 4450
Snjóflóðavamimar vom
staðsettar hjá Veður-
stofunni af því að þar
em beztu upplýsingam-
ar að finna varðandi
komandi óveður og snjó-
komu. Þeim var ætlað
að vera yfirstjóm vam-
anna, en glötuðu strax
stjórnun á verkefninu
þegar þeir tóku að sér
að setja Flateyringum
úrslitakosti um að ann-
aðhvort samþykktu þeir
tillögur VST/NGI um
rangt stáðsetta vamar-
garða þar eða ekkert
yrði gert í vömum fyrir
byggðina. Síðan hafa
starfsmenn Snjóflóða-
varna og VST verið uppteknir af að
verja þessi mistök, sem hafa stórspilit
öllu umhverfi Flateyrar til eilífðar.
Morgunblaðið birti 18. mars sam-
eiginlega greinargerð þeirra og VST
um spjóflóðið sem féll úr Skollahvilft
21. febrúar og em þeir þar enn að
reyna að breiða yfir mistökin við gerð
vamanna. Þessi ritsmíð minnir á um-
sögn Njálssögu, að þvi verr gefast
heimskra manna ráð, sem þeir koma
fleiri saman.
Lýsing þeirra á stórsvigi snjóflóð-
anna í Skollahvilftinni er óþarfur
óvitaskapur, því að allir vita að snjó-
flóð á hreyfingu falla eins og vatn og
leita ávallt að lægsta punkti, sem
þama er í lækjarfarveginum í miðri
skálinni. Til beggja hana em tveir há-
ir hjallar, sem engin snjóflóð geta far-
ið yfir, og falla þau því út
út skálinni í fullum bönd-
um fram um Skollagróf-
ina, sem lækurinn úr
sjálfri Hvilftinni hefir
grafið niður í aldanna
rás. (Sjá mynd #3, bls. 4,
#8 og #9. bls. 7. og sér-
staklega # 5, bls. 11, og
#17, bls. 13, en hér er
vitnað til umsagnar
minnar eftir vett-
vangskönnun 23. sept-
ember 1998 að loknum
framkvæmdum við gerð
vamanna, sem send hef-
ir verið öllum ábyrgum
aðilum vamanna, þar
með talið Snjóflóðavöm-
um, VST og NGI.)
Lýsing þeirra á rennsli snjóflóða
neðan Skollagrófarinnar, sem þeh-
kjósa að nefna gilkjaftinn, er vísvit-
andi röng og ber þeim að leiðrétta
þau orð sín. Þá segja þeir að rennsiið
„kunni að einhverju leyti að skýrast
af landmótun í tengslum við efnis-
töku í garðana, en henni var hagað
þannig að snjóflóð stefndu síður til
vesturs á vamargarðana.“ Þetta er
hrein folsun á staðreyndum. Það var
toppurinn eða ávalinn á Hryggnum,
sem klauf snjóflóðin í tvo megin-
strauma, en efsti hluti Hryggsins er
enn óhreyfður og heldur áfi-am að
kljúfa snjóflóðin þarna strax fyrir
neðan Litla-Klett (sjá myndir #15,
bls. 11, og #16, bls. 12). Eg hafði lagt
til (í vettvangsumsögn minni 17. júní
1996) að gerð yrði snjóflóðabraut
Snjjóflóðavarnir
Lýsing þeirra á stór-
svigi snjóflóðanna í
Skollahvilftinni, segir
—n---------*------------
Onundur Asgeirsson,
er óþarfur óvitaskapur.
neðan Skollagrófarinnar með því að
ýta toppnum af Hryggnum til beggja
hiiða og halda þannig snjóflóðunum í
fullum böndum allt til sjávar. Á þetta
hefir ekki verið hlustað, en stað-
reyndirnar tala nú skýrt sínu máli.
Það er óverjandi að beita slíkum
blekkingum í opinberri skýrslu og í
fjölmiðlum.
Ekki er mjög kostnaðarsamt að
gera snjóflóðabraut neðan Skolla-
grófarinnar og ná fram stýringu á
snjóflóðunum, og er ekkert áhorfsmál
að láta vinna það verk. Hafa verður
þó í huga, að enn er bein óvarin lína
úr Skollahvilft og á bátahöfnina, því
að snjóflóðið 21. febrúar sýndi að hún
og e.t.v. fleira er í hættu. Neðsti hluti
eystri varnargarðsins er ófullnægj-
andi vörn, þvi að hann er ekki rétt
staðsettur. Hvorki VST, NGI né
Snjóflóðavamir geta fengi hrós eða
þakklæti fyrir frammistöðuna frá
mér. Þetta er dapurleg staða, en við
hverju er að búast?
Ilöfundur er fyrrverandi forstjóri.
Önundur
Ásgeirsson
I