Morgunblaðið - 26.03.1999, Page 59

Morgunblaðið - 26.03.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 59 _________________UMRÆÐAN Vefjagigt og þjálfun Hulda Helga Jeppesen Aspelund VIÐ undirritaðar höfum stjómað vefja- gigtarieikfimi hjá Gigtarfélagi Islands í nokkur ár og höfum mikinn áhuga á með- ferð sjúkdómsins. Okkur langar að miðla af reynslu okkar og þekkingu í stuttu máli í þeirri von að ein- hverjir geti haft gagn af. Orðið vefjagigt er þýðing á orðinu fibromyalgia, sem þýðir verkur í vöðvum og bandvef. Þessi sjúkdómur er ekki nýr af nálinni og líkiegt er að oft hafi verið talað um vöðvabólgu í staðinn. Konur em í meirihluta þeirra sem fá vefjagigt, eða u.þ.b. 85%. Þreyta og verkir era aðalum- kvörtunarefni þeirra sem fá vefja- gigt og líðan þeirra er oft mjög slæm þrátt fyrir að lítið sjáist út- vortis. Niðurstöður nýlegrar bandarískrar rannsóknar era, að þeir þátttakendur, sem vora með vefjagigt töldu h'fsgæði sín slakari en þeir sem vora með liðagigt eða slitgigt. I rannsókninni vora spurn- ingalistar lagðir fyrir þátttakend- ur, þar sem spurt var um ýmis at- riði, sem fólk í Bandaríkjunum tel- ur almennt mikilvæg til að því líði vel. Sjúkdómsgreining Saga um útbreidda verki í a.m.k. þrjá mánuði. Verkir í báðum hliðum líkamans. Verkir bæði fyrir ofan og neðan mitti. 11 af 18 gigtpunktum era hvellaumir við þreifíngu. (Sjá mynd nr.l). Algeng einkenni veQagigtar Einkenni % sjúkl. Verkir í vöðvum 100 Þreyta 96 Svefntruflanir 86 Liðverkir 72 Höfuðverkur 60 Pirringur í fótum (restl. leg) 56 Dofi/náladofi 52 Minnkað minni 46 Einbeitingarskortur 41 Taugaóstyrkur 32 Alvarlegt þunglyndi 20 Orsakir Lítið er vitað um orsakir vefja- gigtar. Byrjun einkenna tengist þó oft sýkingum, slysum, eða langvarandi álagi, t.d. í framhaldi af vökunóttum vegna veikra ung- barna. Oftast er um truflun á svefni að ræða þannig að fólk sef- ur en vaknar ekki endurnært að morgni. Eðhlegt er að svefn sé misdjúp- ur yfir nóttina. Þegar okkur dreymir er svefninn frekar grann- ur og töluverð heilastarfsemi er í gangi. Um miðbik nætur er djúpur draumlaus svefn og heilastarfsem- in í lágmarki. Þessi djúpi svefn er nauðsynlegur til að við hvílumst vel. Rannsóknir hafa sýnt að þessi djúpi svefn er óeðhlega grannur hjá þeim sem hafa vefjagigt. Auk þess hafa rannsóknir bent til óeðlilegs orkubúskapar í vöðv- um og boðefnakerfi vefjagigtar- fólks og lækkaðs sársaukaþrösk- ulds. Hið síðastnefnda hefur í fór með sér að minna áreiti þarf til að það sé skynjað sem sársauki. Vefjagigtarleikfimi Lítið er vitað um, segja Helga Aspelund og Hulda Jeppesen, orsakir vefjagigtar. Meðferð Fræðsla um holla lifnaðarhætti og hvemig megi lifa með sjúk- dómnum. Þjálfun. Lyf til að bæta svefn. Ekki hefur fundist nein einfóld lækning á vefjagigt. Einn stærsti þáttur árangurs í baráttunni gegn vefjagigtinni er hins vegar að læra að þekkja eigin getumörk og finna gott jafnvægi milli hvíldar og lík- amlegs sem andlegs álags. Slökun getur hjálpað í því sambandi. Þá er mikilvægt að hreyfa sig reglulega og borða hollan mat, en sumir hafa góða reynslu af ger- og sykur- skertu fæði. Til að bæta svefn hafa geðdeyfðarlyf, tekin inn að kvöldi, reynst best. Nánar um þjálfun I rannsóknum þar sem bornar hafa verið saman mismunandi þjálfunaraðferðir fyrir fólk með vefjagigt virðist þolþjálfun vera ár- angursríkasta aðferðin. Liðkandi æfingar, teygjuæfingar og slökun gefa ekki eins góða raun einar sér. Ef þolþjálfun er notuð ásamt þess- um æfingaformum eykst hins veg- ar árangurinn. Með þolþjálfun eram við að bæta starfsemi hjarta og lungna og þar með líkamlegt úthald. Einnig eykst framleiðsla eigin verkjastillandi efna líkamans. Til þess þurfum við að ná upp hjartslættinum, hitna og mæðast. Æskilegt er að æfa 3-5 sinnum í viku í 20 mínútur í senn. Dæmi um þolþjálfun er ganga, sund, hjólreiðar, dans og leikfimi sem krefst hreyfingar. Sú hug- mynd að nýta þolþjálfun fyrir fólk með vefjagigt, kviknaði þegar nýj- ar upplýsingar komu fram varð- andi svefn og eymsli í vöðvum á ní- unda áratugnum. Þá kom í ljós að við það að trafla dýpsta svefnstig heilbrigðra einstaklinga, var hægL að framkalla sársauka í vöðvum a^* svipuðum toga og í vefjagigt. Þeir einstaklingar, sem vora með gott úthald, fengu hins vegar ekki þessi einkenni. Vegna þess hve sárs- aukafullt það getur verið fyrir vefjagigtarfólk að hreyfa sig, er oft erfitt að hefja æfingar. En það er þess virði! Mikilvægt er að fara rólega af stað og hafa í huga að þyngd æf- inganna verði ekki of mikil. Eðli- legt er að finna fyrir einhverjum óþægindum eftir æfingar, sérstak- lega eftir fyrstu skiptin. Ef verkrf^ verða mjög miklir er hins vegar ráðlagt að minnka álagið og auka það síðan hægt og rólega, stig af stigi. Okkar reynsla er sú að þeim sem komast yfir fyrsta hjallann líði mun betur en áður. Ymsar rann- sóknir hafa sýnt fram á aukið þol, minni sársaukaupplifun og eymsli, bættan svefn og betri líðan hjá vefjagigtarfólki eftir þjálfun. Hópþjálfun A undanfórnum árum hefur Gigtarfélag íslands boðið upp á fræðslu og sérhæfða hópþjálfun fyrir gigtarfólk. Þar era meðq^, annars vefjagigtarhópar, hryggikt-- arhópur, léttir leikfimihópar, kín- versk leikfimi, jóga og vatnsþjálf- un. Nú er hafin skráning fyrir ný námskeið sem hefjast eftir páska. Allir áhugasamir eru velkomnir í hópana, en oft er visst aðhald og stuðningur að taka einhvern með sér. Helga starfar við heimasjúkraþjálf- un á Sjúkraþjálfunarslöðinni. Hulda starfar á Reykjalundi og HL- stöðinni. Opnum klukkan tólf!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.