Morgunblaðið - 26.03.1999, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
R-listinn hlunnfer
16 ára unglinga
R-LISTINN hefur
ákveðið að lækka tíma-
kaup 16 ára unglinga í
unglingavinnunni á
komandi sumri um níu
aura. Með þessari að-
gerð fá þessir unglingar
því ekki þá 3,6-3,65%
launahækkun, sem
sanjið var um á almenn-
um vinnumarkaði, og
kom til framkvæmda
um síðustu áramót.
Pessi kjaraskerðing
verður enn ógeðfelldari
þegar haft er í huga að
flestir hópar hafa fengið
mun meiri launahækk-
anir. Samkvæmt ný-
birtri launakönnun hef-
ur kaupmáttur lágmarkslauna t.d.
hækkað um 11,5% frá síðastliðnu
sumri, kaupmáttur launa opinberra
starfsmanna um 7,5% og á almenn-
um markaði um 6,8%. Þessi aðgerð
R-listans er því ámælisverð og ger-
samlega á skjön við þróun launa í
þjóðfélaginu.
Löglegt en siðlaust
R-listinn notfærir sér að 16 ára
unglingar hafa ekki samningsrétt
eða formælendur og lætur þá sitja
eftir á meðan allir aðrir hópar fá um-
talsverðar launahækkanir. Þessi að-
gerð er því lögleg en afar siðlaus.
Með henni ganga borgarfulltrúar R-
listans blygðunarlaust gegn því
grundvallarviðhorfi að enginn lág-
launahópur skuli sitja eftir þegar
aðrir fá kjarabætur. Þessum ung-
lingum er þannig gefið skýrt til
kynna að þeirra vinna
sé ekki jafn verðmæt
og sú vinna sem jafn-
aldrar þeirra inntu af
hendi í fyrra. Þannig
eru þeir hlunnfamir yf-
ir hásumarið, sem er
jafnframt bjargræðis-
tími þeirra, þar sem
flestir unglinganna
halda áfram námi að
hausti.
Fjölskyldufjandsani-
leg skilaboð
Unglingavinnan er
fyrsta reynsla þúsunda
unglinga af vinnu-
markaði. Sú aðgerð að
taka einn hóp unglinga
út og skerða kjör hans hlýtur að
misbjóða réttlætiskennd þeirra,
sem fyrir skerðingunni verða, og
rýra traust þeirra á vinnumarkaði.
Með þessu fá unglingarnir þau
skilaboð frá hinum svonefndu fé-
lagshyggjuflokkum að vinnuframlag
þeirra sé svo lítið metið að sjálfsagt
sé að lækka launin á milli ára. Eru
það réttu skilaboðin til unglinga
sem eru að stíga sín fyrstu skref á
vinnumarkaði?
Unglingavinnan er eina tækifæri
fjölmargra unglinga til að afla sér
vasapeninga yfir sumarið og fyrir
komandi vetur. Þessi laun skipta
bamafjölskyldur því miklu máli, ekki
síst vegna þess að barnabætur falla
niður við sextán ára aldur. Þessi
kjaraskerðing kemur því verst niður
á barnafjölskyldum eða þeim sem
síst skyldi.
Kjartan
Magnússon
Unglingavinnan
Flestir hefðu að
óreyndu, segir Kjartan
Magnússon, búist við
því að R-listinn gripi til
annarra sparnaðarleiða
en að skerða kjör sext-
án ára unglinga, sem
hafa ekki samningsrétt.
Breiðu bökin í borginni?
Allir vita að fjárhagur borgarinnai-
er erfíður og skuldir hennar hafa
næstum tvöfaldast á valdaskeiði R-
listans. Kjaraskerðing til sextán ára
unglinga er fyrsta sparnaðartillagan
sem komið hefur frá R-listanum um
langt skeið og er talið að hún muni
spara borginni um 1.800 þúsund
krónur. Að undanfömu hafa borg-
arfulltrúar R-listans verið upptekn-
ir við að auka yfirbyggingu borgar-
innar og nú í vikunni var t.d. ráðið í
nýjar stöður Miðborgarstjóra og
Menningarmálastjóra hennar. Var-
lega áætlað nemur kjaraskerðingin
í Unglingavinnunni 3-4 mánaða
launum þessara nýju stjóra.
Flestir hefðu að óreyndu búist við
því að R-listinn gripi tO annarra
sparnaðarleiða en að skerða kjör
sextán ára unglinga sem njóta ekki
samningsréttar. Nú vita Reykvík-
ingar betur. Borgarstjóri og aðrir
borgarfulltrúar R-listans telja sig
greinilega hafa fundið breiðu bökin
í borginni, sem eiga að axla kjara-
skerðingu, mitt í góðærinu.
Höfundur er borgarfulltrúi og situr
í stjóm Vinnuskóla Reykjavíkur.
FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 61
Framhliðar a Nokia sno
Nokia 5110
Ending rafhlöðu allt að 5 klst. í
notkun og 270 klst. í biðstöðu
Upplýstur skjár fyrir 5 línur með
stöfum og táknum
Upplýstir takkar
Númerabirting ásamt nöfnum
efnúmerer í minni
Endurvalsminnifyrir 8 síðustu
númersem valin voru
Val um 30 hringitóna, þarafi3 stef
Möguiegt að skipta umframhlið
KR. 17.980,-
Með GSMFrelsifrá Nokid 5110 Og FrelSI
Símanum f ærðu:
- GSM númer
- talhólfsnúmer
- 2000 kr. inneign Listaverð 25.480,-
-1000 kr. aukainneign
við skráningu
KR. 2O.98O,-
Frelsí
Kostimir eru ótviræðir:
- engir reikningar
- engin mánaðargjöld
- engin binding
TilboBið gildir til 15. april
eða meðan byrgðir endast
SIMINN
Dreifikerfi Símans nær til
95% landsmanna
-fáanlegar sem aukabúnaður
Listaverð 21.980,
*
Ármúli 27 • Kringlan • Landssímahúsið v/Austurvöll • Síminn Internet
ísafjöröur • Sauðárkrókur • Akureyri • Egilsstaðir • Selfoss • Reykjanesbær
PASKATILBOÐ