Morgunblaðið - 26.03.1999, Side 71

Morgunblaðið - 26.03.1999, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 71 B f Rýmum fyrir nýjum íþróttaskóm. Nú er tækifærið! ^ AqL afsláttur af eldri gerðum af /u sportskóm. Aðeins 14 daga, miðuilfiirlan lil laimarHanc miðvikudag til laugardags. Barnaskór, kvenskór og karlmannaskór. BATMAN SKÓUERSLUN KÓPftUOGS HAMRABORG 3 • SfMf 554 1754 BRÉF TIL BLAÐSINS TILBOÐSDAGAR afsláttur af öllum skartgripum. 15-50* Guðmundur Andrésson Gullsmíðaversiun Laugavegi 50, sími 551 3769. Hjólastólafólk, kórar og bíóin Laugavegi 30, sími 562 4225 Mjódd, sími 567 4333 Frá Alberti Jensen: ÞAÐ HLÝTUR að vera umhugsun- arefni hvað gæðum lífs er misskipt. Menn eru ríkir, fátækir og allt þar á milli. Þeir eru misvel útlítandi og eins er með andlegt atgervi og heilsu. Óeðlilegt er, að í stórum hluta heimsbyggðarinnar níða menn skó- inn hver af öðrum og eru öllum öðr- um lifandi verum grimmari og sjálf- um sér verstar. Þeir eru að græða á að drepa börn með jarðsprengjum og stórþjóðir láta sér sæma að þrælka böm. Menn um víða veröld gera allt sem þeir geta til að láta sér líða illa, því vandræðin sem þeir vilja öðrum hittir þá sjálfa í lokin. Það er sannarlega illa farið með margrómað vit sem maðurinn telur sig hafa yfir dýrin, þegar hann notar það til að eyðileggja umhverfið og sjálfan sig í leiðinni. Því var það að góðleikinn hlaut aukið vægi þegar nokkrar nágranna- þjóðir okkar áttuðu sig á að mann- vonska stuðlar að misrétti sem svo veldur sundrungu. Balkanlöndin eru nálæg dæmi um eyðileggingarmátt sundrungar og mannvonsku. Brautryðjendaþjóðh' mannvænnr- ai' stjórnunar eru líka farnar að gera sér ljóst að eyðilegging umhverfis, græðgi og afskiptaleysi um náung- ann er undanfari eigin tortímingar. Þessar þjóðh- urðu fyrstar að líta til með þeim sem voru ófærir um að bjarga sér. Talsverður fjöldi íslendinga er bundinn hjóiastól þó ekki komi þar til stríð og önnur illska. Fyrir margra hluta sakir verður stór hluti þessa fólks einmana. Það dregur sig út úr samfélaginu, einangrar sig í bókstaflegri mei'kingu og finnst það allstaðar fyrir og kerfið örvar til flótta. Uppgjöf er oft fylgifiskur slíkra aðstæðna og varla ámælisvert þó þeir sem léttir eru til gangs geti ekki sett sig inn í hugarheim þessa fólks. En manneskjumar í hjólastól- unum hafa langanir eins og hver annar, en bæði stjórnvöld og um- hverfið gerir þeim erfitt fyi'ir. Þetta fólk vill ferðast og skemmta sér eins og aðrh', en séð er um að það hafi ekki efni á því og þröskuldar eru um allt þjóðfélagið, um borg, bæi, í hópbflum og trúlega gleyma t.d. arkitektar hjólastólum við end- urhönnun þjóðminjasafnsins. Ég veit um dæmi þar sem kerfið vinnur gegn því að hjólastólafólk geti haldið heimili og mun ég koma að því síðar og sanna að þetta fólk er í sífelldu varnarstríði. En það eru ekki allir sem gleyma eða láta sér fátt um finnast þegar þessar manneskjur eru annarsvegar. Það er til fólk sem veit að það þarf verulega að hvetja og örva þá sem bundnir eru hjólastól til að þeir láti verða af því sem þá í reynd langar að gera svo framarlega sem þeir komast eða hafa efni. Eig- endur kvikmyndahúsa hafa í langan tíma haft frían aðgang fyrir hjóla- stólafólk að húsunum og sumir eins og Ami Samúelsson hafa gert dýrar ráðstafanh' til að vel fari um fólkið. Kringlu-Bíó ber með sér að eigandi þess er menningarlega sinnaður hugsjónamaður. Menn sem þannig akta eiga heiður skilinn og þakkir og þeh' gleymast ekki. Það eru ekki bara Islendingar sem taka eftir þessum kvikmyndahúsum frum- kvöðla mannvænnrar menningar, út- lendingar bera hróður þeirra með sér. Laugardaginn 13. mars stóðu 7 kórar, einsöngvarar, hljóðfæraleik- arar og kórstjórar fyrir veglegum tónleikum í Langholtskirkju sem til- einkaðir voru fótluðum. Ai'nesinga- kórinn í Reykjavík átti frumkvæðið að hátíð þessari og eiga allir sem að henni komu þakkir skildar. Verkið, Á páskum, eftir Sigurð Bragason, var í lok tónleikanna flutt af öllum kórunum og vakti það verðskuldaða athygli og er Sigurður ekki bara vax- andi söngvari og kórstjóri; hann er iíka framsækið tónskáld og nýtur Árnesingakórinn góðs af. Þrátt fyrir að hátíðin væri tileinkuð fótluðum mættu örfáir í hjólastólum ókeypis og sannar það hvað þetta fólk þarf mikla örvun til að koma sér að því sem það í reynd þráir. Ég vil beina þeirri ósk til sem PANOS EMPORIO Nýkomið Glæsilegur sundfatnaður flestra kóra að þeir taki bíóin sér til fyrirmyndar og hafi frían aðgang fyi'ir hjólastólafólk, það verður þeim til vegsauka og örugglega verður lít- ill aukakostnaður af svo skynsam- legi'i ákvörðun. Engin lítillækkunar- einkenni yrðu á slíku fyrir hvorn sem væri, það yrði, með öðru, gleði- legur menningarauki. ALBERT JENSEN, Háaleitisbraut 129. m* JjjP ^ v VELKOMIN UM BORÐ RED//GREEN Laugavegur1 • Sími 561 7760 Dagar hlnna forsjálu iþróttakappa!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.