Morgunblaðið - 09.04.1999, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tíst af
trjátoppi
SUMARDAGURINN fyrsti er
skammt undan og hafa skógar-
þrestir flykkst til landsins að
undanförnu enda hafa veðurskil-
yrði til farflugs verið góð. Brátt
fara þeir að skoða hreiðurstaði
og heija makaleit um miðjan
aprflmánuð.
Fuglinn sem söng af trjátoppi
í Oskjuhlíðinni fyrir skemmstu
hefur þó líklega haldið sig til
hlés í gær, fimmtudag, þar sem
gekk á með éljum á höfuðborgar-
svæðinu, og sparað sönginn uns
birti á ný.
Verð stakra
sundferða barna
hækkar um 54%
VERÐIÐ fyrir barn í sund er nú
100 krónur í Reykjavík en kostaði
65 krónur í síðasta mánuði. Gjaldið,
ef greitt er fyrir einstaka ferð, hef-
ur því hækkað um tæp 54% en
gjald fyrir fullorðna hækkaði um
21%, fór úr 165 krónum í 200.
Að sögn íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur er þetta sumar-
verð, en ekki er þó sjálfgefið að það
lækki á ný í haust, en sú varð raun-
in í fyrra. Tíu miða kort fyrir böm
kostar 400 krónur eins og áður og
10 miða kort fyrir fullorðna 1.300
krónur og 30 miða kort 3.600 krón-
ur þannig að hækkunin nær aðeins
til stakra sundferða.
Morgunblaðið/Ómar
Krafa um táknmálstúlkun á framboðsræðum í Sjónvarpinu
Synjun RÚV á kröf-
unum talin lögmæt
HERAÐSDOMUR Reykjavíkur
álítur með dómi sínum að RUV
hafi með lögmætum hætti synjað
erindi Félags heyrnarlausra þess
efnis að túlka á táknmáli framboðs-
ræður í sjónvarpi vegna alþingis-
kosninganna 8. maí 1999 um leið og
þær fara fram eða gera þær að-
gengilegar á annan hátt fyrir
heyrnarlausa. Sýknaði héraðsdóm-
ur Ríkisútvarpið því af kröfum
Berglindar Stefánsdóttur og Fé-
lags heyrnarlausra í gær þar sem
krafist var þess að synjunin yrði
dæmd ólögmæt.
Stefnendur kröfðust þess einnig
að viðurkennt yrði að stefnda yrði
skylt að láta túlka á táknmáli fram-
boðsræður í sjónvarpi vegna Al-
þingiskosninganna um leið og þær
fara fram eða gera þær aðgengi-
legri á annan hátt fyrir heyrnar-
lausa.
í niðurstöðu dómsins kom fram
að í útvarpslögum væri ekki gert
sérstaklega ráð fyrir túlkun úr ís-
lensku talmáli yfir á táknmál fyrir
heyrnarlausa.
Félag heymarlausra fór þess ít-
rekað á leit við RÚV seint á síð-
asta ári að framboðsræðurnar í
sjónvarpi vegna alþingiskosning-
anna yrðu túlkaðar jafnóðum á
táknmáli. RÚV hafnaði beiðninni
en bauð Félagi heyrnarlausra að
lokaumræðurnar fyrir alþingis-
kosningarnar yrðu endursýndar
rit- og táknmálstúlkaðar í dag-
skrárlok daginn fyrir kjördag eða
nánast í beinu framhaldi þess að
þær færu fram. Hafnaði Félag
heyrnarlausra því boði.
Dómskröfur stefnenda byggðust
m.a. á því að með synjun sinni hefði
stefndi, sem opinbert stjómvald,
brotið gegn mannréttindum þeirra
og þá einkum gegn ákvæði 65. gr.
stjómarskrár lýðveldisins um jafn-
ræði þegnanna.
Jafnræðisreglan tryggir ekki
rétt til að fá talmál túlkað
Dómurinn taldi hins vegar ekki
að í inntaki jafnræðisreglu stjórn-
arskrárinnar fælist réttur til handa
heyrnarlausum til að fá túlkað tal-
mál í útvarpi eða sjónvarpi, í þessu
tilviki framboðsræður og umræður
frambjóðenda til alþingiskosninga,
yfir á táknmál heyrnarlausra jafn-
óðum og útsending færi fram, held-
ur yrði að telja að til þess þyrfti
sérstaka löggjöf. Taldi dómurinn
hina umdeildu synjun því lögmæta.
Markús Örn Antonsson útvai'ps-
stjóri fagnaði því að niðurstaða
væri fengin í málinu:
„Hefðu dómskröfur F élags
heyi’narlausra verið staðfestar
væri réttarstaða löglegra dag-
skráryfirvalda Ríkisútvarpsins
orðin mjög óljós og afleiðingarnar
hefðu orðið mun víðtækari en ætla
mætti í fljótu bragði. Pað hefði að
mínu mati skapað stóralvarlegt
fordæmi ef dómstólar hefðu dæmt
tiltekin efnistök inn í dagskrá Sjón-
varpsins íyrirfram,“ sagði Markús
Örn.
„Á sínum tíma beitti ég mér fyr-
ir því ásamt öðrum, að fréttir á
táknmáli fyrir heyrnarlausa voru
teknar upp í Sjónvarpinu, þó vitað
sé að sá hópur sem verið er að
þjóna með þessum sérstöku að-
gerðum er mjög fámennur. Nú var
kröfugerð Félags heyrnarlausra
óeðlilega mikil, mjög teygjanleg og
óljós. Við höfðum boðizt til að end-
ursýna síðasta framboðsþáttinn
kvöldið fyrir kosningar með tákn-
máli síðar sama kvöld. Það boð
stendur að sjálfsögðu enn.“
Fyrsta konan til að fá þyrlu-
réttindi á Islandi er frönsk
„Ogleymanleg
reynsla“
MARION Henæra er fyrsta kon-
an á Islandi til að ljúka þyrlu-
prófi, en hún flaug í fyrsta skipti
ein á fóstudaginn langa. Hún
sagði að sú reynsla hefði verið
engu lík og hreint ógleymanleg.
Mai-ion, sem er 26 ára og frá
Nice í S-Frakklandi, fluttist til ís-
lands fyrir um þremur árum, en
hún starfar sem tónlistarkennari
við Tónlistarskóla Akureyi-ar og
er hörpuleikari í Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands.
„Þegar ég flýg sakna ég hörp-
unnar, en þegar ég spila sakna ég
flugsins," sagði Marion en bætti
því við að þyrluflugið og hörpu-
leikurinn færu mjög vel saman.
Marion, sem hóf þyrluflugnám-
ið síðasta sumar, sagðist lengi
hafa haft áhuga á flugi, enda hafi
hún lært á flugvél áður en þyrlu-
flugnámið hófst. Hún lærði hjá
Þyrluþjónustunni, sem er eina
fyrirtækið á Islandi sem býður
þyrlukennslu. Marion sagði að
sér hefði þótt þyrlan meira
spennandi og krefjandi farartæki
og því hefði hún ákveðið að hætta
hefðbundnu flugnámi og hefja
þyrluflugnám og hún sagðist ekki
sjá eftir því. Hún sagði að reynd-
ar væri námið nokkuð dýrt því
flugtíminn í þyrlu kostaði um
20.000 krónur og til að ljúka sóló-
prófi þyrftu menn að ljúka a.m.k.
25 tímum.
Ekkert frekar fyrir
karlmenn
Walter H. Ehrat, yfirkennari
Þyrluþjónustunnar, sagði að
Marion hefði verið góður nem-
andi og að sú reynsla sem hún
hefði fengið í listflugi hefði nýst
henni nokkuð vel þar sem mikið
væri um finhreyfmgar í því flugi.
Annars sagði Walter að yfirleitt
væri ekki gott að fljúga til skiptis
flugvél og þyrlu, því handtökin
væru töluvert frábrugðin. Walter
sagði að þyrluflug væri ekkert
frekar fyrir karlmenn heldur en
konur, en að einhverra hluta
:
Mmmamm
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FYRSTA konan til að fá flugréttindi á þyrlu, Marion Herrera, lærði
að fljúga hjá Þyrluþjónustunni á Reykjavíkurflugvelli.
vegna hefðu konur ekki lagt
stund á þetta nám. Hann sagði að
nokkrum sinnum hefðu konur
byrjað að læra en aldrei klárað
fyrr en nú að Marion lauk sóló-
prófi.
Að sögn Marion má hún enn
ekki taka neina farþega með sér
því hún hefur bara lokið sólóprófi,
en hún sagðist stefna að því að
ljúka einkaflugmannsprófi í sum-
ar og að langtímaáætlunin væri
að Ijúka atvinnuflugmannsprófi.
Hún sagði að reyndar væru at-
vinnuhorfurnar hér eða í Frakk-
landi ekkert mjög góðar en að
hana langaði samt til að starfa við
flugið. Hún sagði að ef til vill
væni bestu atvinnuhorfurnar í
Kanada eða á Grænlandi.
MARION Herrera, frá Frakk-
landi, flaug ein þyrlu í fyrsta
skipti á fóstudaginn langa.
I Sérblöð í dag Plnrjgm#lfa|t||>
8 SÉBCIfi....
ÁFÖSTUDÖGUM
Magnús Sigurðsson áfram
hjá Willstátt / C1
Baráttuglaðir FH-ingar
fögnuðu sigri á Fram / C3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
>
S www.mbl.is
E