Morgunblaðið - 09.04.1999, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
FJÖLMIÐLAMENN fylgdust með hverri hreyfingu hringanórans þeg-
ar honum var sleppt í sjóinn við Gunnunes í gær.
EKKI liðu nema nokkur augnablik frá því hringanóranum var sleppt
þar til hann var kominn í sjóinn. Hér staldrar hann við örskotsstund
í flæðarmálinu.
Hringanórinn
frelsinu feginn
HRINGANÓRANUM, sem
dvalist hefur sér til heilsubótar
í Húsdýragarðinum undanfarn-
ar vikur, var sleppt í sjóinn við
Gunnunes í gær. Margrét
Dögg Halldórsdóttir, rekstrar-
stjóri Húsdýragarðsins, segir
að selurinn hafi synt hið
snarasta í burtu, enda hafi
hann verið orðinn leiður á vist-
inni í landi. Hann var þó vel
haldinn, hafði þyngst úr ellefu
kflóum í 25 meðan hann bjó í
Húsdýragarðinum. Að sögn
Margrétar var þyngd hans þó
eðlileg miðað við aldur þegar
hann náðist.
Það var í janúar sl. sem
hringanórinn var dreginn upp
úr Reykjavíkurhöfn. Hann hafði
þá stórt kýli á bakinu sem hann
hefur sennilega fengið eftir að
hafa verið bitinn. Gerð var að-
gerð á selnum og kýlið fjarlægt,
„Sárið var ekki alveg orðið
lokað, enda virðast sár á selum
gróa mjög hægt,“ segir Mar-
grét. „Það var samt kominn
tími til að sleppa honum og sár-
ið grær ekkert verr í sjónum
heldur en hjá okkur.“
Hringanórinn var borinn nið-
ur í fjöru í litlu fiskikari sem
síðan var velt. Viðstaddir voru
kafarar sem ætluðu sér að ná
myndum af selnum þegar hann
færi í sjóinn, en að sögn Mar-
grétar flýtti hann sér svo í sjó-
inn að lítið varð úr þeirri fyrir-
ætlan.
Tveir slösuð-
ust í vinnu-
slysum
TVÖ vinnuslys urðu í Kópavogi í
gær. Stálbiti féll á fót manns og ann-
ar lenti undir lyftara og voru báðir
fluttir á slysadeild, en lögreglan taldi
að meiðsl þein-a hefðu ekki verið al-
varleg.
í vélsmiðju í bænum var verið að
brenna í sundur stálbita og þegar
hann fór í sundur féll hann á fót
manns sem vann við verkið.
I hinu slysinu var verið að færa tii
lyftara innandyra og fór hanri á hlið-
ina. Maður lenti undir honum en
meiðsl hans urðu minni en búast
hefði mátt við, enda tók borð mesta
höggið er lyftarinn lagðist á hliðina.
--------------------
Afhenti trún-
aðarbréf
KORNELÍUS Sigmundsson, sendi-
herra Islands í Finnlandi, afhenti í
gær Martti Ahtisaari, forseta Finn-
lands, trúnaðarbréf sitt.
Komelíus er fyrsti sendiherra Is-
lands í Finnlandi sem fast aðsetur
hefur þar í landi. Til þessa hefur
Finnland fallið undir sendiherra Is-
lands í Svíþjóð.
Morgunblaðið/Ómar
Glerskáli með turni
HUGMYND að glerskála í Hljóm-
skálagai-ði sem lögð hefur verið
fram í skipulags- og umferðarnefnd
gerir ráð fyrir um 20-25 metra
löngum skála á vestanverðum
Tjarnarbakkanum neðan við Bjark-
argötu. Gert er ráð fyrir út-
sýnisturni þar sem sjást muni yfir
Hljómskálagarðinn og Tjarnar-
svæðið.
Lagt er til að yfir inngangi verði
glerþak en þegar inn er komið
skiptist skálinn í tvennt með stærri
sal fyrir 150 til 200 manns á aðra
hönd en minni sal á hina. Hugmynd-
in er að skálinn verði að mestu úr
gleri með opnanlegum hurðum sem
bjóða upp á þann möguleika að færa
borð og sæti út á stétt við skálann.
Ætlunin er að skálinn verði rekinn
allt árið og mögulegt verði að leigja
hann út fyrir móttökur og brúð-
kaup.
Gengið verður inn frá göngu-
stígnum sem liggur með Tjörninni
og er ekki gert ráð fyrir að hægt
verði að aka að skálanum. Steyptur
kjallari verður undir skálanum fyrir
eldhús, salerni, aðstöðu starfs-
manna og geymslurými.
Kirkju-
garður
Háskól
Tjarnar-
garður
Tjörnin
Hljómskála- yn:—
garður Hljomskahnn
Leikur í Laugardalnum
HLÝIR loftstraumar hafa leikið
um landið að undanförnu. Ung-
viðið hefur notað góða veðrið til
ieiks. Ljósmyndari rakst á þessa
drengi í Laugardalnum þar sem
þeir Iéku sér glaðir í sinni.
Vélsleðamenn einir síns liðs á hálendi fslands
Engar reglur en ekki
til eftirbreytni
ÞÓR Kjartansson, framkvæmda-
stjóri Langjökuls ehf. og formaður
Suðurlandsdeildar Landssambands
vélsleðamanna, segir aðspurður
vegna frétta af vélsleðamanni sem
fannst einn síns liðs á biluðum
vélsleða við Laugarfell á leið inn að
Kárahnúkum í fyrradag, að engar
reglur séu til sem banni mönnum að
fara einum á vélsleða inn á hálend-
ið.
„Hins vegar má almennt segja, án
þess að ég felli nokkurn dóm um
þetta ákveðna tilvik, að vélsleðaferð-
ir þar sem ökumenn aka einir síns
liðs langt inn á hálendi íslands án
staðsetningar- og fjarskiptabúnaðar
séu ekki til eftirbreytni vegna þess
að vélsleðinn hefur mikla yfirferð og
á skömmum tíma er hægt að aka
honum það langt að illmögulegt get-
ur orðið að ganga eftir hjálp ef sleð-
inn bilar og ennþá alvarlegra getur
málið orðið ef slys á sér stað,“ segir
Þór.
Vélsleði mannsins hafði bilað við
Laugarfell um 80 km suðvestan við
Egilsstaði og fannst maðurinn heill
á húfi eftir u.þ.b. tveggja klukku-
stunda leit alls sex manna úr Hjálp-
arsveit skáta á Héraði og Björgun-
arsveitarinnar Gróar á Egilsstöðum.
Maðurinn var kunnugur á þessum
slóðum og hafði verið í samfloti við
mann á jeppa sem var á leið inn í
Eyjabakka. Vélsleðamaðurinn hafði
talstöð meðferðis, sem hann notaði
og varð honum til happs, að sögn
Guðmundar Steingrímssonar, for-
manns svæðisstjórnar björgunar-
samtakanna á svæði 13.
Ákveðin áhætta í að ferðast einn
„Almennt má segja að menn taki
ákveðna áhættu ef þeir fara einir inn
á hálendið og ef þeir skilja ekki eftir
nægilega skýra leiðarlýsingu og
hafa ekki meðferðis staðsetningar-
og fjarskiptabúnað, þá eru þeir að
bjóða hættunni heim ef eitthvað
kemur fyrir,“ segir Þór Kjartans-
son. „Við höfum reynt að ýta undir
það að óreyndari vélsleðamenn komi
með okkur reyndari mönnum í ferð-
ir inn á hálendið og við höfum þegar
farið eina slíka ferð þar sem menn
geta fengið tilsögn hjá reyndari
mönnum. 1 framhaldinu bjóðum við
vélsleðamönnum í helgarferð þar
sem farið verður langt inn á hálend-
ið. Þannig reynum við að uppfræða
vélsleðamenn sem hafa áhuga á því
að fara inn á hálendið um hvernig
þeir þurfi að bera sig að. Regla
númer eitt er að fara ekki einn, því
ef sleðinn bilar og ökumaður er fjar-
skiptalaus á hann mjög erfitt með að
láta vita af sér eða koma sér til
byggða.“