Morgunblaðið - 09.04.1999, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Samanburður á fylgi flokkanna nú og mánuði fyrir kosningarnar 1995
Sjálfstæðisflokkurinn
einn nýtur meira fylgis
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur aðeins meira
fylgis í skoðanakönnunum nú heldur en
í sambærilegum könnunum mánuði fyrir
síðustu aiþingiskosningar. Arna Schram
rýnir í skoðanakannanir þar sem einnig
kemur í ljós að Framsóknarflokkurinn
nýtur svipaðs fylgis í könnunum nú og fyr-
ir fjórum árum en Samfylkingin mælist
með minna fylgi miðað við fylgi flokkanna
fjögurra sem að henni standa.
Úr könnunum Félagsvísindastofnunar
Mars 1995
Mars 1999
Sjálfstæðisflokkur
Framsóknarfl.
Frjálsl. fl. 2,5%
W/
1,0% Aðrirflokkar
Alþýðufiokkur
Alþýðubandal
3
Samfylking
5,2% Kvennalisti /AO Qo/ .. flH
11,3% Þjoðvaki samtals grænt framboð 6,3%
SAMKVÆMT skoðanakönnun
Gallups, sem gerð var fyrir Ríkisút-
varpið um mánaðamótin mars/aprfl
sl., tæpum sex vikum fyrir komandi
alþingiskosningar er fylgi Sjálf-
stæðisflokksins 45,7%. Rúmum
mánuði fyrir alþingiskosningarnar
1995 mældist fylgi Sjálfstæðis-
flokksins í skoðanakönnun Gallups
hins vegar 41,7%. Fylgi flokksins
mælist því fjórum prósentustigum
meira, mánuði fyrir kosningar nú,
en það gerði mánuði fyrir síðustu
alþingiskosningar. Gefur það því
vísbendingu um að fylgi Sjálfstæð-
isflokksins sé aðeins meira nú en
mánuði fyrir kosningamar 1995.
Kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins í síð-
ustu kosningum var hins vegar
37,1%, nokkuð lægra en skoðana-
könnunin gaf til kynna mánuði áð-
ur.
Samanburður á skoðanakönnun
Félagsvísindastofnunar á fylgi
stjómmálaaflanna, sem gerð var
18.-24. mars sl. og annarri könnun
Opnun kosn-
ingamiðstöðv-
ar á Húsavík
SAMFYLKINGIN á Norðurlandi
eystra opnar kosningamiðstöð á
Húsavík mánudaginn 12. apríl nk.
kl. 20 í Snælandi, Árgötu 12 Húsa-
vík.
Frambjóðendur flytja ávöi-p og
kynna metnaðarfull stefnumál Sam-
fylkingarinnar. Kostningamiðstöðin
er kjörinn vettvangur fyrir félags-
hyggjufólk á Húsavík og í Þingeyj-
arsýslum til að hittast og ræða mál-
in.
Frá opnun verður kosningamið-
stöðin opin frá kl. 19 virka daga og
frá kl. 13 um helgar.
sem gerð var mánuði fyrir síðustu
alþingiskosningar segir sömu sögu.
I könnuninni frá mars sl. mældist
fylgi flokksins 41,3% en í byrjun
mars 1995 mældist flokkurinn með
38,1% fylgi. Munurinn er i-úmlega
þrjú prósentustig.
Sé tekið mið af reynslu síðustu
kosninga má búast við að flokkurinn
hljóti minna fylgi í komandi kosn-
ingum en nýjustu skoðanakannanir
gefa til kynna en haldi þó sínum
hlut og jafnvel vel það miðað við síð-
ustu kosningar.
Svipað fylgi Fram-
sóknarflokksins
Samkvæmt fyrrnefndi'i skoðana-
könnun Gallups sem gerð var fyrir
Ríkisútvarpið um síðustu mánaða-
mót mældist fylgi Framsóknar-
flokksins 17,5%. Rúmum mánuði
fyrir alþingiskosningarnar 1995
mældist fylgi flokksins svipað eða
18,4%. Hið sama kemur í ljós þegar
litið er á skoðanakannanir Félags;
vísindastofnunar á sama tíma. I
könnun stofnunarinnar, sem gerð
var 18.-24. mars sl., naut flokkurinn
16,3% fylgis, en í könnun hennar í
byrjun mars 1995, rúmum mánuði
fyrir síðustu alþingiskosningar, var
flokkurinn með 17,5% fylgi. Munur-
inn er lítill en getur gefið til kynna
að Framsóknarflokkurinn hafi örlít-
ið minna fylgi nú en þá. í síðustu al-
þingiskosningum endaði fylgið síð-
an í 23,3% og reyndist því fimm til
sex prósentustigum hærra en skoð-
anakannanir rúmum mánuði fyrir
kosningamar gáfu til kynna.
Fylgi Framsóknarfiokksins virð-
ist vera á uppleið miðað við nýjustu
skoðanakannanir Gallups og Fé-
lagsvísindastofnunar og gæti því
aukist enn frekar sé tekið mið af
fyrri reynslu, sem sýnir að flokkur-
inn fái oftast betri útkomur í kosn-
ingum en kannanir bendi til.
Samfylkingin með
minna fylgi
I skoðanakönnun Gallups um síð-
ustu mánaðamót naut Samfylkingin
29% íylgis og Vinstrihreyfingin -
Grænt framboð 6,5% fylgis. Saman-
lagt fylgi flokkanna fjögurra, Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags, Þjóð-
vaka og Samtaka um kvennalista,
sem standa að Samfylkingunni var
hins vegar 37,9% rúmum mánuði
fyrir alþingiskosningarnar 1995,
samkvæmt skoðanakönnun Gallups,
sem þá var gerð.
Sé fylgi Samfylkingarinnar og
Vinstrihreyfingarinnar frá könnun
Gallups um síðustu mánaðamót lagt
saman kemur í ljós að saman njóta
þessar stjómmálahreyfingar 35,5%
fylgis. Þrátt fyrir það ná þær ekki
því fylgi sem flokkarnir fjórir höfðu
í skoðanakönnun Gallups fyrir
kosningarnar 1995. Munar 2,4 pró-
sentustigum sem gefur vísbendingu
um að samanlagt fylgi Samfylking-
arinnar og Vinstrihreyfingarinnar
sé örlítið minna nú en fylgi flokk-
anna fjögurra í skoðanakönnunum í
mars 1995. Flokkarnir fjórir fengu
hins vegar samanlagt 37,8% at-
kvæða í síðustu alþingiskosningum,
eða rúmum tveimur prósentustig-
um meira en skoðanakannanir mán-
uði fyrir kosningar sýndu.
Skoðanakannanir Félagsvísinda-
stofnunar frá umræddum tíma
segja svipaða sögu. Samanlagt
mældist fýlgi flokkanna fjögurra
mánuði fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar hærra heldur en það fylgi sem
nú mælist hjá Samfylkingunni og
Vinstrihreyfingunni. Þá mældist
það 42,9% en nú síðast 39,8%.
Hver á fylgi óákveðinna?
Þorlákuy Karlsson, rannsóknar-
stjóri hjá ÍM Gallup, bendir á að
alltaf sé einhver hópur sem segist
vera óákveðinn í skoðanakönnun-
um, en í könnun Gallups frá sl. mán-
aðamótum sögðust 22% vera óá-
kveðin eða neituðu að svara. Það er
aðeins hæn’a hlutfall og var óákveð-
ið eða neitaði að svara í könnun
Gallups mánuði fyrir síðustu alþing-
iskosningar sem þá var 18%. Að
sögn Þorláks gefa rannsóknir til
kynna að Sjálfstæðisflokkurinn eigi
fremur lítið fylgi í óákveðna hópn-
um. Slíkt hafi komið í Ijós þegar
kannanir sýni að fylgi Sjálfstæðis-
flokksins minnki um leið og hópur
óákveðinna minnki. Nú sé á hinn
bóginn of snemmt að segja til um
það hver raunin verði að þessu
sinni, þ.e. hvort Sjálfstæðisflokkk-
urinn eigi eitthvað í óákveðna fylg-
inu eða ekki. „Það verður því gaman
að fylgjast með skoðanakönnunum
á næstu vikum og sjá hvort fylgi
Sjálfstæðisflokksins minnkar örlítið
um leið og hópm- óákveðinna
minnkar. Sé svo er kannski hægt að
álykta að íylgi Sjálfstæðisflokksins
sé fullhátt í skoðanakönnunum nú
miðað við raunveruleikann,“ segir
Þorlákur og getur þess að Gallup
hyggist rannsaka fylgi óákveðinna
sérsteklega fyrir komandi kosning-
ar. Óákveðni hópurinn verði þannig
spurður eftir kosningar hvað hann
hafi kosið og á þann hátt verði reynt
að skilgi-eina hópinn betur.
Vimulaus
æska opnar
foreldrahús
VÍMULAUS æska og Foreldra-
hópurinn opnuðu í gær foreldra-
hús í Vonarstræti 4b í Reykjavík. f
húsinu er ætlunin að reka margs
konar starfsemi. Fjölskylduráð-
gjöf verður í umsjón Sigrúnar Hv.
Magnúsdóttur með aðstoðar sér-
fræðinga og foreldra, sem hafa
reynslu af því að eiga börn í
neyslu áfengis og annarra vímu-
efna. Forvarnaverkefnið „Börn
eru líka fólk“ verður rekið í hús-
inu og sömuleiðis verður nám-
skeiðið Agi og uppeldi haldið þar.
Þórdís Sigurðardóttir, Jórunn
Magnúsdóttir og Áslaug Þórarins-
dóttir voru kampakátar þegar for-
eldrahúsið var opnað í gær.
Kosningahátíð
Samfylkingarinnar
Bein út-
sending
á Netinu
SAMFYLKINGIN hefur opn-
að heimasíðu og er slóðin
www.samfylking.is. A heima-
síðunni er m.a. að fmna upp-
lýsingar um frambjóðendur
Samfylkingarinnar í öllum
kjördæmum landsins, upplýs-
ingar um kosningaskrifstofur
og dagskrá kosningabarátt-
unnar. Þá er eru stefnuyfir-
lýsing og verkefnaskrá Sam-
fylkingarinnar birtar á heima-
síðunni ásamt upplýsingum
um utankjörstaði heima og í
útlöndum.
Laugardaginn 10. aprfl kl.
14:00 verður bein útsending á
heimasíðunni frá Kosningahá-
tíð Samfylkingarinnar í Há-
skólabíói. Þar verða frambjóð-
endur úr öllum kjördæmum
kynntir, fjöldi landsþekktra
listamanna kemur fram og
Margrét Frímannsdóttir, tals-
maður Samfylkingarinnar,
ávarpar gesti. Kynnar á hátíð-
inni verða Ragnar Kjartans-
son lífskúnstner og Eva Ósk
Ólafsdóttir leikkona.
Meðal skemmtiatriða verða
atriði úr söngleiknum Oliver
Twist í flutningi söngvara og
leikara úr sýningu Litla
leikklúbbsins á ísafirði. Söng-
leikurinn er nú sýndur á Isa-
firði. Guðmundur Andri
Thorsson rithöfundur flytur
pistil og hljómsveitin Casino
flytur nokkur lög með nýjum
gestasöngvara. Polkasveitin
Hringir og Magga Stína kem-
ur fram og tenórsöngvarinn
Jón Rúnar Arason flytur
nokkur lög.
Kosningahátíðin í Háskóla-
bíói er opin öllum almenningi
og verður sérstök dagskrá
fyrir börnin í anddyri bíósins.
Össur Skarphéðinsson hyggst
þar lesa sögur fyrir börnin.
Akureyri
Ráðstefna
um atvinnu-
og umhverf-
ismál
VIN STRIHRE YFINGIN -
grænt framboð heldur ráð-
stefnu um atvinnu-, umhverf-
is- og byggðamál á veitinga-
húsinu Við Pollinn á Akureyri
laugardaginn 10. aprfl. Ráð-
stefnan hefst klukkan 13 með
setningarræðu Valgerðar
Jónsdóttur garðyrkjutækni-
fræðings sem skipar 4. sætið
á U-listanum í Norðurlands-
kjördæmi eystra.
Framsögumenn verða Stef-
án Ólafsson, prófessor, Bjarki
Jóhannesson, forstöðumaður
Þróunarsviðs Byggðastofnun-
ar, Þorsteinn Gunnarsson, há-
skólarektor, Berglind Hall-
grímsdóttir, forstöðumaður
Atvinnumálaskrifstofu Akur-
eyrarbæjar, Ái-ni Bragason,
foi-stöðumaðm- Náttúruvernd-
ar ríkisins og Steingrímur J-
Sigfússon alþingismaður.
Ráðstefnustjórar verða Þuríð-
ur Backman, hjúkrunarfræð-
ingur og oddviti U-listans í
Austurlandskjördæmi, og Jón
Bjarnason, skólastjóri og odd-
viti U-listans í Norðurlands-
kjördæmi eystra.
Allir ei-u velkomnir og að-
gangur ókeypis.
I