Morgunblaðið - 09.04.1999, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
A
Utgerðarfélag Akureyringa hf.
Nýr samningur
um fískverð
ÚTGE RÐARFÉLAG Akureyringa
hf. og sjómenn á ísfísktogurum fé-
lagsins, Harðbak EA, Kaldbak EA
og Árbak EA, hafa skrifað undir
nýjan samning um fiskverð. Sæ-
mundur Friðriksson útgerðarstjóri
ÚA sagði að samningurinn hefði
verið samþykktur af þorra skip-
verja á skipunum þremur.
Skrifað var undir samninginn
daginn fyrir skírdag og gildir hann
til eins árs. I honum er gert ráð fyr-
ir að þorskverð lækki frá því sem
úrskurðarnefnd sjómanna og út-
vegsmanna hafði ákveðið fyrir
nokkru en sá úrskurður gilti til
þriggja mánaða. Einnig lækkar
verð á ýsu en verð fyrir ufsa hækk-
ar og karfaverðið er óbreytt.
„Við lögðum fram gögn með okk-
ar rökum fyrir þvi að vilja gera
þessar breytingar á fískverðinu og
það er ekki rétt sem komið hefur
fram að sjómenn okkar hafí verið
beittir einhverjum þvingunum til
þess að samþykkja samninginn,"
sagði Sæmundur.
Gylfí Gylfason háseti á Árbak EA
og varaformaður Sjómannafélags
Eyjafjarðar átti sæti í samninga-
nefnd sjómanna. „Ég skrifaði undir
samninginn en gef ekki upp hvort
mér fínnst hann góður eða slæmur,“
sagði Gylfi í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Ekki óeðlilegur þrýstingur
Víðir Benediktsson stýrimaður á
Kaldbak átti sæti í samninganefnd
sjómanna. Hann sagði að þetta
hefði verið niðurstaðan sem menn
Ljósmyndakompan
Kristján Pétur
sýnir ljós-
myndir
KRISTJÁN Pétur Sigurðsson
opnar sýningu á ljósmyndum í
Ljósmyndakompunni á sunnu-
dag, 11. apríl kl. 15, en Ljós-
myndakompan er að rísa úr
vetrardvala og er þetta fyrsta
sýningin þar á þessu ári.
Sýningin ber yfirskriftina
Norðanpiltar og eru myndirnar
af félögum þeirrar hlómsveitar
auk nokkuira aðdáenda. Sýn-
ingin er ekki afrakstur þrot-
lausrar og markvissrar vinnu
heldur dund, fóndur og ánægju-
legt fíkt að sögn höfundar. Kri-
stján Pétur er reyndar af ýmsu
öðru kunnur en ljósmyndum, en
það rímar ágætlega við stefnu
Ljósmyndakompunnar sem
meðal annars er að sýna ljós-
myndir eftir listamenn sem
ekki endilega eru ljósmyndarar.
Við opnun sýningarinnar verða
flutt nokkur lög og ljóð úr smiðju
Norðanpilta. Sýningin verður op-
in næstu vikur írá þriðjudegi til
laugardags frá kl. 14 til 17.
hefðu komist niður á, sú niðurstaða
hefði verið lögð fyrir sjómennina
og þeir samþykkt. „Svo má alltaf
deila um hvort menn koma sáttir
úr kjarabaráttu. Pað var haldinn
fundur með hverri áhöfn og niður-
staða þeirra funda hefur verið túlk-
uð með ýmsum hætti. Ég get þó
ekki sagt að forsvarsmenn UA hafí
beitt sjómenn óeðlilegum þrýst-
ingi.“
Víðir sagði að rekstur félagsins
hafi verið i ákveðinni lægð og
kannski hefði þetta verið hlutur sjó-
manna til að snúa þeim hlutum í
réttan farveg. „Samningurinn er til
eins árs og það er aldrei að vita
hvað gerist eftir þann tíma og ef
staðan hefur batnað verður kannski
hægt að fá eitthvað meira.“
Ekki hægd; að ganga lengra
Ketill Freysson háseti á Harðbak
var einnig í samninganefndinni.
Hann sagði það sitt mat að ekki
hefði verið hægt að ganga lengra og
vissulega mætti deila um hvort
samningurinn væri góður eða slæm-
ur. „Við erum að veiða fleiri tegund-
ir en þorsk og karfí er uppistaðan í
okkar afla. Petta þarf því að skoða í
því samhengi," sagði Ketill, sem
kannaðist ekki við að hafa verið
beittur óeðililegum þrýstingi eða
þvingunum frá forsvarsmönnum
ÚA við samningagerðina.
Harðbakur var á landleið með
fullfermi og kemur til Akureyrar í
kvöld eða nótt. Skipið er með um
200 tonn eftir 8 daga veiðiferð og er
aflinn karfi og þorskur.
Söfnunarátak Lions-
hreyfíngarinnar
Holl hreyfing
fyrir aldraða
SÖFNUNARÁTAK Lionshreyf-
ingarinnar, Rauð fjöður, er helgað
málefnum aldraðra og fer fram á
sama tíma á öllum Norðurlöndum,
en tilgangurinn er að stuðla að
meiri lífsfyllingu á efri árum. Nýt-
ur söfnunin velvilja og stuðnings
þjóðhöfðingja landanna fimm sem
í sameiningu hafa tekið að sér að
vera vemdarar átaksins.
Á næstu dögum munu Lionsfé-
lagar ganga í hús og afhenda upp-
lýsingabækling sem jafnframt er
happdrættismiði ásamt rauðri
fjöður án þess að taka við pening-
um og til að minna á söfnunarátak-
ið sem verður í næstu viku.
Á Norðurlandi hefst átakið með
hollri hreyfingu, en Lionsmenn
bjóða í sund, á skíði og í boccía á
morgun, laugardaginn 10. apríl.
Ókeypis verður í sundlaugarnar á
Dalvík og Akureyri, frítt verður á
skíði í Hlíðarfjalli og á Bjargi verð-
ur kynning á boccía frá kl. 9 til
11.30.
PENTAX
FERMINGARTILBOÐ
PENTAX PC-55 Date
Sjálfvirkur fókus
Sjálvirkt Ijósop og hraði
Einföld filmuþræðing
Dagsetning
Taska fylgir
3 STK. FUJIFILM SUPERIA filmur fylgja
Verð aðeins kr. 7.490
Skipholti 31, Sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, s. 461 2850
Morgunblaðið/Krisyán
STARFSMENN í Vaglaskógi, þeir Sigurpáll Jónsson, Benedikt Karlsson
og Ingimundur Gunnarsson voru á ferðinni um skóginn í gær að sand-
bera, en sú aðferð er notuð í Vaglaskógi til að flýta fyrir því að snjórinn
hverfi. „Ódýrasta og virkasta aðferðin," segir skógarvörðurinn.
Starfsmenn í Vaglaskógi
bera sand á snjóinn
Odýrasta og
virkasta leiðin
STARFSMENN Skógræktar rfkis-
ins í Vaglaskógi hafa sfðustu daga
verið að bera sand yfir snjóinn í
skóginum, en af honum er nóg. I
gærmorgun var uni 1,20 metra
jafnfallinn snjór yfir. „Það munar
geysilega miklu að sandbera,
snjórinn er mun fljótari að fara,
það eru allt að 80 sentímetra skafl-
ar við hliðina á þeim stöðum þar
sem við höfum sandborið. Sandur-
inn vinnur á snjónum hægt og bít-
andi,“ sagði Sigurður Skúlason
skógarvörður, en sandburðuriun
er að jafnaði með fyrstu vorverk-
um starfsmanna skógræktarinnar.
„Þetta er ódýrasta aðferðin og hún
virkar vel.“
Flýtt fyrir fræhöllinni
Þeir Sigurpáll Jónsson, Benedikt
Karlsson og Ingimundur Gunnars-
son voru á ferðinni með sand í föt-
um um skóginn, en nú er verið að
flýta fyrir að snjórinn fari af svæði
við gróðrarstöðina þar sem reisa á
1.000 fermetra og 8 metra háa fræ-
höll. Ætlunin er að hefjast handa
við fyrsta tækifæri, en strax og
hægt er verður byijað á sökklun-
um og 1. júlí í sumar á að hefjast
handa við að reisa grindina.
Sigurður sagði að meiri snjór
hefði verið í skóginum snjóavet-
urna 1989-1991 en frá þeim tíma
hefði ekki komið svo mikill snjór.
Fljótlega í október byijaði að snjóa
og frá þeim tíma hefur mikið bæst
við. „Hann lá mikið í vestan- og
norðvestanáttum í vetur og þá
renuur hér inn í skóginn, en við er-
um í skjóli fyrir norðanáttinni og
sleppum vel þegar sú átt er ríkj-
andi,“ sagði Sigurður.
Gróðurhús á kafi í snjó
Enn er nóg eftir af snjó, tveggja
metra há gróðurhús eru á kafi,
stórir skaflar eru við starfsmanna-
húsið Furuvelli og snjóhengjur
liggja yfir gróðurhúsunum. Hann
kvaðst þó bjartsýnn á að vorið
yrði gott og hægt yrði að hefjast
handa við hefðbundin vorverk og
byggingaframkvæmdir. „Maður
sér það þessa síðustu daga að
snjórinn er á hraðferð burtu,
fjallst indar sem voru alhvítir um
páskana eru að koma í Ijós og mel-
arnir stækka."
Vetraríþróttir
fatlaðra
Námskeið
fyrir leið-
beinendur
NÁMSKEIÐ fyifr leiðbeinendur í
vetraríþróttum fyi-ir fatlaða verður
haldið í Hlíðarfjalli við Akureyri og
á skautasvelli Skautafélags Akur-
eyrar um helgina. Vetraríþróttamið-
stöð Islands og vetraríþróttanefnd
Iþróttasambands fatlaðra standa að
þessu námskeiði.
Námskeið sem þetta hefur ekki
verið haldið hér á landi áður en
nokkrir hafa kynnt sér þessi mál í
útlöndum. Kennarar á námskeiðinu
eru Svava Viggósdóttir, sem starfað
hefur að þessum málum m.a. hjá
íþróttafélagi fatlaðra, Svanur Ingv-
arsson, sem er fatiaður og hefur
stundað vetraríþróttir með góðum
árangri, og Þröstur Guðjónsson,
sem dvaldi um nokkurra mánaða
skeið í vetur í Bandaríkjunum og
sótti námskeið og var þátttakandi í
starfshópi sem kennir vetraríþróttír
í Aspen í Colorado.
Nemendur á námskeiðinu eru frá
Akureyri, Reykjavík, Isafirði, Siglu-
fii'ði, Olafsfirði og Dalvík.
--------------
Samfylkingin
opnar skrifstofu
SAMFYLKINGIN á Norðurlandi
eystra opnar kosningaski-ifstofu á
Ákureyri sunnudaginn 11. apríl kl.
15 að Skipagötu 18, 2. hæð. Við
opnunina verða frambjóðendur
kynntir og ávörp flutt, auk þess
sem skemmtiatriði verða á dag-
skránni.
Kosningaskrifstofan verður svo
opin frá kl. 15-18 jafnt virka daga
sem um helgar. Þar verður jafnan
heitt á könnunni og allir hjartanlega
velkomnir, eins og segir í fréttatil-
kyningu frá Samfylkingunni. Þá hef-
ur Jón Daníelsson verið ráðinn
kosningastjóri í kjördæminu.
--------------
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL: Kyirðar-
stund verður í Grenivíkurkirkju kl.
21 á sunnudagskvöld, 11. apríl.
Tengsl á milli heilsufars og þjóðfélagsstöðu
Heilsufar barna sem búa
við bág kjör verri en hinna
HEILSUFAR barna sem búa við
verstu kjörin er verra en þeirra
sem búa við betri kjör og er í því
sambandi miðað við menntun for-
eldra þeirra, atvinnu og tekjur.
Þetta er niðurstaða viðamikillar
samnorrænnar rannsóknar á
heilbrigði og líðan barna og ung-
linga á Norðurlöndum sem gerð
var árið 1996. Matthías Halldórs-
son aðstoðarlandlæknir kynnti
þær niðurstöður könnunarinnar
sem fyrir liggja í fyrirlestri um
tengsl heilsufars og þjóðfélags-
stöðu með sérstöku tilliti til
barna, sem hann flutti í Háskól-
anum á Akureyri í gær, en hann
sá um framkvæmd könnunarinn-
ar fyrir íslands hönd.
Athygli hefur beinst að því á síð-
ari árum að munur er á heilsufari
fólks eftir stéttarstöðu þess og á
það ekki síður við í hinum norrænu
velferðarríkjum en þeim sem verr
eru á vegi stödd. Rannsóknin sem
um ræðir náði til 15.000 manns
alls, eða 3.000 í hverju landi, og var
spumingalisti um almennt heil-
brigði og líðan bama og foreldra
lagður fyrir foreldrana.
Þrjú atriði, menntun, atvinna og
tekjur, voru notuð til að skipta
svarendum í þjóðfélagshópa og
nokki'ir möguleikar gefnir í hvor-
um flokki fyrir sig. Ástæða þess að
augum var beint að börnum sér-
staklega var m.a. sú að þau hafa
sjálf lítil áhrif á eigin aðstæður og
einnig fýsti menn að vita hvort
samhengi væri á milli þjóðfélags-
stöðu og aðbúnaðar í æsku á sjúk-
dóma síðar á lífsleiðinni. Fræði-
lega væri einnig auðvelt að bæta
úr slæmum aðbúnaði hefði hann
ekki varað mjög lengi.
Einkum voru tvær spurningar
lagðar til gmndvailar í tengslum
við heilbrigði barna, þ.e. hvort þau
ættu við langvinna sjúkdóma að
stríða eða fötlun, og vom gefnir
upp 13 algengir langvinnir sjúk-
dómar og þá var spurt um algeng
einkenni eins og höfuðverk, svima,
svefn- og lystarleysi. Einnig var
athugað hversu stór börnin væru.
Fram kemur í rannsókninni
fylgni milli bágra kjara og þess
að börnin voru lágvaxinn, verra
heilsufar hefur þannig áhrif á
vöxt og þroska barna en vissu-
lega hafa fleiri þættir áhrif þarna
á.
Greinileg stígandi var einnig í
einkennum langvinnra sjúkdóma,
fötlunar og minniháttar kvilla nið-
ur í lægstu þrep þjóðfélagsins en
mestur var munurinn á heilbrigði
barna í þeim fjölskyldum þar sem
menntunin var minnst.
Mikilvægt að draga úr
niun milli þjóðfélagshópa
Matthías sagði mikilvægt að
draga úr þeim mun sem væri milli
þjóðfélagshópa með því að bæta
kjör þeirra verst settu og þá þyrfti
einnig að ryðja úr vegi þeim hindr-
unum sem þeir verst settu byggju
við þannig að þeir hefðu tækifæri
til að breyta lífsstíl sínum. Einnig
væri stefna sjórnvalda í skattamál-
um mikilvæg í þessu samhengi,
þ.e. að neysluskattar á heilnæmt
fæði væru ekki háir, og þá myndi
það verða til heilla ef hægt væri að
efla sjálfsmynd fólks þannig að
það ætti auðveldara með að taka
sjálfstæðar ákvaðanir um líf sitt en
fylgja ekki ávallt straumnum eins
og algengt væri.