Morgunblaðið - 09.04.1999, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ástir og
erfðir
Bíræfinn mál-
verkastuldur
Sankti Pétursborg. Reuters.
ERLENDAR
BÆKUR
Skáldsaga
MENDEL’S DWARF
cftir Simon Mawer. Anchor. London
1998. Fyrsta útg. Doubleday 1997.
304 bls.
ENGINN áttaði sig á mikilvægi
garðyrkjuföndurs austurríska
munksins Johanns Gregors
Mendel, um miðja síð-
ustu öld, jafnvel ekki
margir frægustu líf-
fræðingar nítjándu
aldarinnar sem
Mendel sendi ýtarleg
bréf um grúsk sitt.
Enginn þeirra gerði
sér grein fyrir því
hvaða áhrif tilraunir
munksins með kyn-
blöndun garðertu-
plantna áttu eftir að
hafa, ekki aðeins á vís-
indin heldur og örlög
fjölda fólks. Enginn
gerði sér grein fyrir
því að hann hafði
fundið upp ný vísindi
sem áttu eftir að skaffa eldiviðinn
í gasofna Auschwitz, eins og segir
í skáldsögunni Mendel’s Dwarf,
eftir enska rithöfundinn og líf-
fræðinginn, Simon Mawer.
Mendel er faðir erfðafræðinnar
en hann gerði sér fyrstur manna
grein fyrir lögmálum erfðanna.
Niðurstöður kynblöndunartil-
rauna hans voru birtar 1865 þar
sem sú tilgáta var sett fram að
eiginleikar erfðust með erfðaþátt-
um, það er genum, og að hvert af-
kvæmi erfí frá hvoru foreldri einn
slíkan þátt fyrir hvem arfgengan
eiginleika. Enginn virðist hins
vegar hafa lesið niðurstöðumar,
að minnsta kosti varð mönnum
ekki ljóst mikilvægi þeirra fyrr en
um aldamótin 1900, 35 árum síðaj-.
Heiti skáldsögu Mawers,
Mendel’s Dwarf, vísar til sögu-
manns hennar, dr. Benedicts
Lamberts, sem er dvergvaxinn af-
komandi Gregors Mendels. Hann
er einn af fremstu erfðafræðing-
um Breta og hefur alla ævi glímt
við að finna dvergagenið. Þegar
það loks tekst stendur hann
frammi fyrir erfiðri siðferðilegri
spumingu: Á hann að hafa áhrif á
gang náttúrannar eða á hann að
láta tilviljun ráða því hvort annar
dvergur eins og hann komi í heim-
inn - hann getur þóst vera Guð og
tekið ráðin í sínar hendur eða látið
lögmál lífsins standa eins og Guð
skildi við þau.
í forgranni sögunnar er sem sé
sár og bitur ástarsaga dvergsins
Benedicts. Hann hefur alla tíð
talið sig eiga frekar lítinn sjens í
kvenfólk og sætt sig við að þurfa
að kaupa sér greiða og nýta sér
óvenjulegt sjónarhorn sitt þegar
konur í pilsum era annars vegar.
Ein kona hefur þó allt frá því hann
kynntist henni fyrst veitt honum
meiri athygli en aðrar. Jean er
kannski engin mannvitsbrekka á
við Ben en hún er hjartahlý og
virðist ekki haldin fordómum
gagnvart litlu fólki. Þegar hún
þarf á hjálp að halda vegna ofbeld-
isfulls eiginmanns skýtur Ben því
skjólshúsi yfir hana. Upphefst nú
mikil og dramatísk flétta. Áður en
langt um líður er Jean orðin
bamshafandi eftir Ben. Jean verð-
ur ekki um sel, enda helmings lík-
ur á því að barnið verði eins og
faðirinn. Hún ákveður því að láta
eyða fóstrinu með dræmu sam-
þykki Bens. Skömmu síðar tekur
hún aftur saman við eiginmann
sinn. Ævintýrið með Ben hefur
hins vegar kveikt hjá henni
óslökkvandi löngun til þess að
eignast barn. Þau tormerki era
hins vegar á að eiginmaður henn-
ar er getulaus. Hún ákveður því
að leita aftur á náðir Bens; hún vill
frekar eiga það á hættu að eignast
dverg en að fæða barn ókunns
sæðisgjafa. I millitíðinni hefur
hinum smáa en knáa erfðafræð-
ingi tekist að finna genið sem ræð-
ur dvergvexti. Hann hefur því
möguleika á að grípa
inn í tilviljanakennt
val náttúrannar þeg-
ar sæði hans er notað
til að frjóvga egg Je-
an.
Skáldsaga Mawers
er öðram þræði eins
konar inngangur að
erfðafræði fyrir byrj-
endur. Sögu upphafs-
mannsins Mendels er
fléttað inn í atburða-
rásina af hugkvæmni
þar sem skýrt er frá
tilraunum hans og
niðurstöðum með
hjálp mynda og taflna
af ýmsu tagi. Mendel
og vísindin flækjast þó aldrei fyrir
í sögunni heldur eru eins konar
leiðarvísir. Heiti nánast hvers
kafla bókarinnar era til að mynda
fengin úr orðasafni erfðafræðinn-
ar. Kaflinn þar sem Ben bamar
Jean heitir þannig „Penetrance"
sem í erfðafræði merkir „sýnd,
það hlutfall, sú hundraðstala ein-
staklinga af tiltekinni arfgerð sem
bera viðkomandi einkenni í svip-
gerð“ (sbr. ensk-íslenska orða-
bók), en hefur vissulega einnig
skírskotun til orðsins
„penetration". Það er reyndar
töluverður samhljómur með sög-
um þeirra frænda, Mendels og
Lamberts. Báðir eiga þeir við
nokkrar takmarkanir að stríða í
kvennamálum; Ben vegna
genetískrar óheppni en Gregor
vegna ævilangrar skuldbindingar
sinnar við æðri máttarvöld. Hitt
eiga þeir þó einnig sammerkt að
glíma stöðugt við brennandi losta-
semi í garð kvenna. Báðar era
þessar persónur snilldarvel skrif-
aðar af Mawer, ekki síst Ben sem
fæst við óvilhallar aðstæður sínar
af djúpu æðraleysi og óborgan-
legri kímnigáfu.
Mendel’s Dwarf vekur áleitnar
spurningar um siðferðilega hlið
nútímaerfðafræði. Þetta eru eink-
um spurningar um það til hvers
þekkingin, sem þessi vísindi búa
til, er notuð. Eða kannski öllu
heldur: Til hvers er hægt að nota
hana? Það er kannski írónía sög-
unnar að Mendel skuli hafa verið
hvort í senn trú- og vísindamaður.
Þetta tvennt er ósamrýmanlegt í
huga flestra nútímamanna, þar á
meðal dr. Benedicts Lamberts.
Nútímamaðurinn trúir raunar á
fátt, - ef eitthvað, þá helst vísind-
in. Það væri þó aldrei að Mendel
hafi fyrst og fremst verið upphafs-
maður að einni áhrifamestu trúar-
setningu komandi aldar með
plöntupukri sínu.
Mendel’s Dwarf er feikilega vel
skrifuð bók. Þekking höfundar á
hinu vísindalega unfjöllunarefni
virðist yfirgripsmikil og ekki
skemmir fyrir að það er oftar en
ekki skoðað í húmorísku sam-
hengi. En burt séð frá þeim fróð-
leik sem íslenskir lesendur gætu
aflað sér í bókinni um eitt helsta
umræðuefni dagsins þá er hún
bæði hnýsilegur og skemmtilegur
lestur.
Þröstur Helgason
VOPNAÐIR ræningjar stálu á
þriðjudag tveimur málverkum
úr rússneska ríkislistasafninu í
Sankti Pétursborg, sem saman-
lagt eru talin allt að áttatíu
milljónum íslenskra króna virði.
Mennirnir beittu skotvopnum
Þrír kvenna-
kórar í Hvera-
gerðiskirkju
ÞRÍR kvennakórar halda tónleika
laugardaginn 10. apríl kl. 16 í
Hveragerðiskirkju.
Þetta era Kvennakór Hafnar-
fjarðar, stjómandi: Halldór
Oskarsson. Undirleikari: Hörður
Bragason Raddþjálfun: Elín Ósk
Óskarsdóttir. Jórukórinn á Sel-
fossi, stjórnandi: Helena R. Kára-
dóttir. Undirleikari: Þórlaug
Bjamadóttir. Kvennakórinn Ljós-
brá, stjórnandi og undirleikari:
Jörg Söndermann.
Allir velkomnir.
gegn lögreglunni á flóttanum,
að sögn talsmanns listasafnsins,
en annað verkanna sem ræningj-
amir komust undan með var
málverk listamannsins Vasilys
Perovs „Gítarleikarinn ein-
mana“.
ÓLAFUR Gíslason, sérfræðingur
við Listasafn Islands, flytur fyrsta
af fjóram fyrirlestram um
módemisma í myndlist miðviku-
daginn 14. apríl.
I fyrirlestranum verður fjallað
um tilkomu evrópsks módernisma,
hugmyndalegar forsendur hans og
einkenni, um ólíka strauma innan
módemismans, og hvernig þeir
bárast inn í íslenska myndlist.
Fjallað verður um framúrstefnu-
hugtakið og tengsl þess við sögu-
hyggju og framfaratrú. Þá verður
fjallað um hefðina, andófið gegn
Tónlist fyrir alla
Tónleikar í
Dölum og á
Snæfellsnesi
GUNNAR Kvaran sellóleikari og
Selma Guðmundsdóttir píanóleikari
heimsækja skóla á Snæfellsnesi og á
Dölum næstu daga og leika fyrir
nemendur.
Á 10 skólatónleikum flytja þau öll-
um grunnskólanemendum á svæðinu
fjölbreytta tónlist sem sniðin er
hverju sinni að þeim áheyrendahópi
sem sækir tónleikana.
I fréttatilkynningu segii’: „Gunnar
og Selma eiga að baki tugi skólatón-
leika undanfarin ár. I dagskrá sinni
segja þau frá hljóðfærum sínum,
sögu þeirra og gerð, hvað þau eiga
sameiginlegt og hvað greinir þau að,
bæði hvort frá öðru og frá öðrum
hljóðfærahópum. Þau fjalla um
möguleika hljóðfæranna í tónlistar-
iðkun og tónlistarlífi og segja frá
hvað þurfi til að verða hljóðfæraleik-
ari og listamaður. Þau leika tónlist
sem er nemendum ekki of erfið og
sem hefur einhvern þann bakgrunn
eða skírskotun er megi auðvelda
þeim að fá áhuga og njóta. Um leið
eru nemendur fræddir um ákveðin
tónskáld og tónlist þeirra og tónlist-
arsögu almennt. Dagskrána hafa þau
Gunnar og Selma áður flutt þúsund-
um nemenda á Suðurlandi, Suður-
nesjum og í Kópavogi.“
Almennir tónleikar
Eins og jafnan áður verður efnt til
almennra tónleika í tengslum við
tónlistarheimsóknir í skóla og verða
tónleikar Stykkishólmskirkju sunnu-
daginn 11. apríl kl. 17, Grundaifjarð-
arkirkju mánudag 12. apríl kl. 20.30
og Olafsvíkurkirkju þriðjudaginn 13.
apríl kl. 20.30. Á efnisskrá kvöldtón-
leikanna eru sónötur fyrir selló og
píanó nr. 5 í e-moll eftir Vivaldi og
op. 38 í e-moll eftir Brahms,
Fantasiestiicke op. 73 eftir
Schumann auk vel þekktra smá-
verka fyrir selló og píanó s.s. Ave
Maria eftir Bach-Gounod, Svanurinn
eftir Saint-Saéns og Vocalise efitr
Rachmaninoff.
hefðinni og þá spurningu hvort
módernisminn hafi á endanum
orðið að hefð. Um leið verður leit-
að svara við þeirri spumingu hvort
sérstakar félagslegar og menning-
arlegar aðstæður á Islandi hafi
sett mark sitt á annars alþjóðlegt
eðli nútímahyggjunnar, og hvort
hægt sé að tala um íslenskan
módernisma í því samhengi.
Fyrirlestrarnii’ verða haldnir í
fyrirlestrasal Listasafns Islands á
miðvikudagskvöldum næstu fjórar
vikurnar og hefjast kl. 20.15. Þátt-
takendur í fyrirlestraröðinni fá af-
hent námsgögn og farið verður í
gegnum valdar myndir til frekari
útskýringar. Þátttökugjald er
6.500 kr. og era þátttakendur
beðnir um að skrá sig á skrifstofu
safnsins.
Tónleikar í
Hveragerðis-
kirkju
TÓNLISTAFÉLAG Hveragerðis
og Ölfuss stendur fyiir sínum ár-
legu áskriftartónleikum sunnudag-
inn 11. apríl. Að þessu sinni koma
fram þær Greta Guðnadóttir, fiðlu-
leikari og Helga Bryndís Magnús-
dóttir, píanóleikari.
Þær leika verk eftir Ludwig van
Beethoven, Karol Szymanowski og
Francis Poulenc.
Tónleikarnir hefjast kl. 14.
Fundur Mannverndar
Breskur rithöfundur
talar um gagnagrunn
á heilbrgðissviði
MANNVERND heldur fund í
Háskólabíói á morgun, laugar-
dag, kl. 14. Þar mun breski líf-
fræðingurinn og rithöfundur-
inn Simon Mawer halda fyrir-
lestur um gagnagrannsmálið
og siðfræði erfðafræðinnar en
hann er höfundur nýútkominn-
ar skáldsögu, Mendel’s Dwarf,
sem hefur erfðafræði að um-
fjöllunarefni. (Ritdómur um
bók Mawer er hér til hliðar.)
Mawer birti grein um gagna-
grunninn í New York Times
23. janúar síðastliðinn. Gagn-
rýnir hann þar harðlega sam-
þykkt ríkisstjórnar Islands á
gagnagrunnsfrumvarpinu.
A fundinum munu auk
Mawer taka til máls dr. Har-
aldur Briem, læknir, og sr.
Örn Bárður Jónsson.
AJlir era velkomnir á meðan
húsrúm leyfír.
Simon Mawer
Fyrirlestrar um ís-
lenskan módernisma