Morgunblaðið - 09.04.1999, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 57
MINNINGAR
+ Kjai-tan Helga-
son fæddist í
Unaðsdal á
SnæQallaströnd 18.
september 1925.
Hann lést á Landa-
koti 26. mars síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Bú-
staðakirkju 8. apríl.
Þau fluttust að Un-
aðsdal frá Strandselj-
um foreldrar hans,
Helgi Guðmundsson
og Guðrún Ólafsdóttir
1922, og þar fæddist þeim sonurinn
Kjartan.
Kjartan ólst upp á fjölmennu
heimili í Dal, bömin mörg og löng-
um margt um manninn að öðru,
verkamenn hjá foreldrum hans, er
var dugmikið athafnafólk og hafði
faðir hans mörg járn í eldi, at-
hafnamaður. Smíðaði heima þar
með mönnum sínum vélbát og stóð
í öðrum stórræðum. Mótaði bú-
skapur foreldra hans og allt um-
hverfi hug hans á ungum aldri og
batt hann sterku bandi til jarðar-
innar, sem síðar bar raun á. Kjart-
an Gunnar tók við búi um 1950 af
móður sinni, er þar hafði búið sem
ekkja eftir lát manns síns 1945,
sköruleg kona og kjarkmikil.
Fljótlega komu í ljós þeir eigin-
leikar, er gera mann að góðum
bónda. Dugnaður hans og áhugi
með afbrigðum og svo sagði mér
múrari er hjá mér var við húsbygg-
ingu hér í Vatnsfirði að röskari
mann hefði hann ekki haft sér til
aðstoðar en hann, en þegar mikill
hugur var í bændum hér við Djúp
um það er sjötti áratugurinn hélt
innreið sína voru reist hér steinhús
á nokkrum jörðum, m.a. í Unaðs-
dal, og er það hagkvæm og snotur
bygging. En þeir tímar fóru nú í
hönd er vélaöld náði hingað og lét
Kjartan heitinn ekki sitt eftir
liggja að nýta sér þá möguleika, er
þar í fólust. Skurðir grafnir og
ræktun hófst í stórum stíl. Varð
tún hans innan tíðar eitt hið
stærsta hér á slóð, grasgefið og
frjótt. Myndarbýli var í Dal risið,
sem bezt gerist. Eiginlega má
segja, að um væri að ræða landnám
öðru sinni, nýr tími með nýjum
vinnubrögðum í búskap, nýjar hug-
myndir. Unaðsdalur
mun jafnan hafa verið
stórbýli, hggur vel í
sveit og veldur þetta
tvennt, að kirkja var
þangað flutt fyrir ára-
tugum frá Stað á Snæ-
fjöllum. Hefur Kjartan
haldið vel í því horfi og
þó betur því verka
hans þar mun lengur
sjá stað en fyrri ábú-
enda, en Unaðsdalur
er landnámsjörð og
mun Ólafi jafnakolli er
þar kom að auðu og
nam land allt að Langadalsá, til
móts við landnám Vatnsfirðinga
hafa þótt byggilegra þai- en innar,
þar sem heitir á Langadalströnd.
Er í nafngiftinni sem speglist við-
horf og hrifning hans á dalnum
með skógi vaxnar hlíðar og sil-
ungsá í miðju - Unaðsdalur.
Eftirlifandi konu sinni Salvöru
Stefaníu Ingólfsdóttur frá Skjald-
þingsstöðum í Vopnafirði kvæntist
hann 1951 og hlaut þar dugmikinn
og tryggan förunaut. Börn þeirra
era Helgi, Elín Anna, Ingibjörg og
Ingólfur, allt vel gert fólk til lík-
ama og sálar. Vora hér í skóla hér-
aðsins, góð til náms og góðir skóla-
þegnar.
Ymis störf í sveitarfélagsins
þágu vora honum á hendur falin,
oddviti Snæfjallahrepps árum sam-
an, sýslunefndarmaður hið sama,
meðan þær vora í stjómsýslunni
hafðar. Þá var hann og mættur á
hina og þessa fundi sem fulltrúi
sveitarinnar, tillögugóður og at-
hugull. I skólanefnd lágu leiðir
okkar oftlega saman svo og á ýms-
um vettvangi öðram. En í sóknar-
nefnd og sem meðhjálpara mörg
hin síðari ár, minnist ég hans með
þökk og fyrir annað það er hann
lagði fram á þeim vettvangi. Var
jafnan mannmargt á heimili þeirra
hjóna Kjartans og Stefaníu eftir
messur í Dal, er kirkjugestir nutu
gestrisni þeirra og þá ekki síður, ef
um var að ræða sérstakar athafnir.
A þá Stefanía mínar og annarra
einnig allar þakkir skilið fyrir sinn
hlut að þeim málum. Raunar var á
sumrum jafnan margt æskufólks
og annarra á þeirra heimili.
Kjartan var maðm’ léttur í skapi
og glaðvær. Návist hans var góð og
þægileg. Hann var ákafur málsvari
stéttar sinnar ef um var að ræða og
verðugur fulltrúi hennar þá litið er
til verka hans og búskapar.
Þessi fáu orð era þakklætisvott-
ur okkar hér í Vatnsfirði fyrir góð
kynni um áratugi. Eg leyfí mér
einnig að þakka honum fyrir hönd
þeirra bænda er samtímis byggðu
Snæfjallaströnd svo og fjölskyldna
þeirra, Engilbei-ts Páls, Jónasar og
ekkju Jens heitins á Efri-bæ, Guð-
mundu.
Við sendum öll okkar kveðjur og
fleiri hér úr Djúpi. Frú Stefaníu,
börnum og barnabömum biðjum
við blessunar Guðs og góðra daga,
sem og systkinum hans og frænd-
garði öllum.
Mér koma í hug línur úr
ævafornu kvæði þjóðarinnar:
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
Baldur Vilhelmsson, Vatnsfirði.
Kveðja frá Lionsfélögum
Kjartan Helgason, fyrrverandi
bóndi, er látinn. Þegar okkur félög-
um hans í Lionsklúbbi Mosfells-
bæjar bárust þær fréttir reikaði
hugurinn til baka til þeirra góðu
stunda sem við áttum með honum.
Kjartan gekk til liðs við klúbbinn
í janúar 1996, þá tæplega 71 árs.
Það þótti mörgum undarlegt að
taka inn nýjan félaga sem kominn
var á þennan aldur. En þrátt fyrir
aldurinn lét Kjai-tan sitt ekki eftir
liggja og mætti manna fyrstur til
flestra þeima verkefna sem klúbb-
urinn tók að sér. Gilti þá einu hvort
um var að ræða blómaræktun og -
sölu eða þökulagningu og girðingar-
vinnu við kirkjugarðinn á Mosfelli.
Kjartan hafði 100% mætingu allt
þar tii veikindin fóra að hrjá hann.
Kjartan var góður félagi, hafði
frá mörgu skemmtilegu að segja og
var fljótur að ná tengslum við fé-
lagana.
Minningin um traustan félaga
sem ávallt hafði markmið Lions-
hreyfingarinnar í hávegum mun
lifa í huga okkar.
Félagar hans í Lkl. Mosfellsbæj-
ar senda eiginkonu hans, Salvöru
Stefaníu, afkomendum þeirra og
öðrum aðstandendum sínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Félagar f Lkl. Mosfellsbæjar.
KJARTAN
HELGASON
+ Þórir Leifsson
fæddist á Akur-
eyri 9. desember
1926. Hann lést á
Landspitalanum 25.
mars síðastliðinn.
Foreldrar lians
voru hjónin Sigur-
björg Þorsteinsdótt-
ir, f. 16. mars 1901,
d. 15. des. 1975, og
Leifur Kristjánsson,
f. 26. sept. 1888, d.
8. júní 1956. Þórir
var íjórði í röð
fimm systkina. Eft-
irlifandi systkini
eru Kristjana Steinunn, f. 25.
júní 1924, gift Þorsteini Sig-
urðssyni, þeirra dætur eru
Bryndís Ósk, Steinunn og Sig-
ríður Þorbjörg; Þorsteinn. f. 2.
ágúst 1925, kvæntur Ólöfu
Hrafnhildi Baldvinsdóttur, börn
þeirra eim Leifur Krislján, Sig-
urbjörg, Jón Rúnar, Sigrún,
Fyrir nærri tuttugu árum gerð-
ist ég félagi í Bridsfélagi Borgar-
fjarðar. Þar ríkir sannur félagsandi
og þar eru allir félagarnir jafnir.
En menn era sjaldan jafnir við
spilaborðið og ég tók strax eftir
knáum en smáum manni sem sýni-
lega kunni meira fyrir sér en aðrir
í salnum. Þessi maður var Þórir
Leifsson. í þá daga starfaði hann
sem vaktmaður í Hvalfirði en vílaði
ekki fyrir sér að keyra tugi kíló-
Sólveig Auður og
Sigurlína Arna;
Þröstur, f. 29. des.
1940, kvæntur Sig-
urbjörgu Guðrúnu
Jóhannesdóttur,
börn þeirra eru
Guðbjörn Þórir,
Birkir, Guðrún
Björk og Sigur-
björn Leifur. Þórir
fékkst við ýmis
störf, svo sem af-
greiðslustörf í kjöt-
verslunum og hjá
fiutningafyrirtæki,
en megnið af
starfsævi sinni starfaði hann
hjá Islenskum aðalverktökum
við lagerstörf og sem vaktmað-
ur. Utför Þóris fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30. Minn-
ingarathöfn um Þóri var haldin
í Vídalínskirkju, Garðabæ, 6.
apríl síðastliðinn.
metra til að eyða kvöldi með félög-
unum. Þórh- var keppnismaður
sem lét illa að tapa en hann var líka
maður uppbyggingarinnar og
kunni að meta ef ungir menn lærðu
handbragðið. Fyrsta kvöldið sem
ég spilaði við Þóri tókst mér að
leika á hann og makker hans. Þórir
sagði nokkur vel valin orð við
makker sinn en leit síðan á mig og
sagði með blik í auga: „Þetta var
ágætt hjá þér en þér skal ekki
takast þetta aftur.“
Nú seinustu ár var Þórir búsett-
ur á höfuðborgarsvæðinu en hann
sinnti hvenær sem kostur var kalli
félagsins um að spila fyrir þess
hönd. Nú síðast kom hann helsjúk-
ur keyrandi úr Reykjavík til að
styi’kja lið félagsins er það atti
kappi við starfsmannafélag Sem-
entsverksmiðjunnar. Það liðsinni
varð til þess að við unnum keppn-
ina en svo reyndi keppnin á Þóri að
hann var fluttur af spilastað í
sjúkrabifreið. Eg heimsótti Þóri á
sjúkrahúsið og sagði eitthvað sem
svo að það væri Ijótt ef þessi spila-
mennska gerði út af við hann. Þá
sagði Þórir og enn brá fyuir bliki í
auga þótt veikt væri orðið: „Ef ég
varð að liði þá held ég það sé þess
virði.“ Af þessum orðum má sjá að
Þórir mat félagið og félagið mat
hann. Þess vegna ákvað félagið að
spila nú á vordögum opið mót hon-
um til heiðurs. Ég ræddi það við
Þóri í haust að ég vildi heldur hafa
hann með á mótinu frekar en að
hafa það til minningar um hann.
Hann varð bæði glaður og hrærður
og sagðist sannarlega skyldu
mæta. Mótið var auglýst í mars en
vegna lasleika Þóris ákváðum við
að fresta því fram á haust. Sá frest-
ur varð helst til langur.
En Þórir verður áfram með okk-
ur þó að í anda sé og minningar um
góðan dreng, sem vildi félagi sínu
vel, lifa meðan brids er leikinn í
Borgarfirði. Heilar þakkir fyi-ir
samstai'fið.
Sveinbjörn Eyjólfsson.
Þórir Leifsson
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTJANA GUÐRÚN GUÐSTEINSDÓTTIR
frá Þingeyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði mið-
vikudaginn 7. apríl sl.
Margrét Guðjónsdóttir, Sigurður Þ. Gunnarsson,
Sigurður G. Guðjónsson, Lára Lúðvígsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SÓLEY M.B. ÞÓRHALLSDÓTTIR,
Karlagötu 20,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 21. mars.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Aðstandendur.
+
Eiginmaður minn,
INGVAR KRISTINN ÞÓRARINSSON
kennari og bóksali á Húsavík,
er látinn.
Björg Friðriksdóttir.
+
Útför
ÞURÍÐAR GUÐBRANDÍNU ÞORSTEINSDÓTTUR,
Hornbrekku,
Ólafsfirði,
verður gerð frá Ólafsfjarðarkirkju, laugardaginn 10. apríl, kl. 14.00.
Aðstandendur.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
sonarsonur, tengdasonur, bróðir og mágur,
JÓN STEFÁNSSON,
Tindum 1,
Kjalarnesi,
sem lést af slysförum laugardaginn 3. apríl,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 12. aprfl kl. 10.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Slysavarnafélag íslands.
Herdis Guðjónsdóttir,
Jón Sveinbjörn Jónsson,
Stefán Atli Jónsson,
Marteinn Helgi Jónsson,
Sigríður Sveinsdóttir, Stefán Jónsson,
Jón Stefánsson,
Nina Schjetne, Guðjón Haraldsson,
Anna Björg Stefánsdóttir, Eiður Kristinsson,
Sveinn Stefánsson, Dagný Arnþórsdóttir,
Súsanna Harpa Stefánsdóttir,
Helga Guðjónsdóttir, Geir H. Geirsson,
Marta G. Guðjónsdóttir, Kristján H. Guðbrandsson,
Haraldur H. Guðjónsson,
Leifur Guðjónsson, Helga Kristjánsdóttir.
+
Faðir okkar,
BENÓNÝ FRIÐRIK FÆRSETH
skipstjóri,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Landakirkju Vest-
mannaeyjum laugardaginn 10. apríl kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Gísli Benónýsson.