Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurapríl 1999næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    28293031123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    2526272829301
    2345678

Morgunblaðið - 09.04.1999, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 09.04.1999, Blaðsíða 68
68 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ MYNPBONP Frábær skemmtun Það er eitthvað við hana Mariu (There’s Something about Mury) Gamanmynd ★ ★★V2 Framleiðendur: F. Beddor, M. Stein- berg, B. Thomas og C.B. Wesser. Leikstjórar: Peter og Bobby Farrelly. Handrit: E. Decter, J. Strauss, P. og B. Farreliy. Aðalhlutverk: Cameron Diaz, Ben Stiller og Matt Dillon. (110 mín.) Bandarisk. Skífan, aprfl 1999. Myndin er öllum leyfð. MARY (Cameron Diaz) er ein- staklega glæsileg og elskuleg stúlka sem óviljandi hefur safnað um sig ótrúlegum fjölda vafasamra von- biðla. Ted (Ben Stiller) er einn þeirra en hann hef- ur elskað Mary síð- an í menntaskóla. Þrettán árum síðar ákveður Ted að leita æskuástina uppi og ræður til þess slímuga einka- spæjarann Pat (Matt Dillon) sem hættir að sinna starfi sínu þegar hann fellur kylliflatur fyrir Mai-y. Þessi bráðfyndna og brösuglega ástarsaga er nýjasta mynd Farrelly- bræðra sem einnig leikstýrðu gam- anmyndunum „Dumb and Dumber“ og „Kingpin". Þær einkenndust öðru fremur af ólystugri kímnigáfu og er myndin um hana Maríu engin und- antekning hvað það varðar. En hún tekur hinum fram í fyndi, því manískur húmor hennar nær ein- ■ ^ hvern veginn að vera góðlátlegur samhliða kvikindisskapum. Myndin er auk þess að öllu leyti vel úr garði gerð. Handritið er efnismikið og morandi af hlægilegum atriðum og útfærsla leikstjóranna á því þétt og örugg. Leikarar fara á kostum og fylla út í skrautlegar persónugerð- irnar af lífi og sál. Heiða Jóhannsdóttir Vandræði í Paradís Brosið þitt (A Smile Like Yours)_ Rómantík/drama ★ Leikstjdrn: Keith Samples. Aðalhlut- verk: Greg Kinnear, Lauren Holly og Joan Cusack. 93 mín. Bandarísk. Sam-myndbönd, mars 1999. Öllum leyfð. ÞETTA er fyrsta myndin sem Greg Kinnear kemur fram í eftir hina vel heppnuðu og geysivinsælu „As Good As It Gets“ og hann hefði ekki getað valið mikið verra hlutverk til að fylgja vinsældun- um eftir. „A Smile Like Yours“ er ömurleg kvikmynd að langflestu leyti. Skásti flötur hennar er heimildar- gildi varðandi erfiðleika tækni- frjóvgunar. Tilraunir til fyndni byggjast á pínlegum aðstæðum þar sem þunnar persónurnar gera sig að fíflum hver á fætur annarri. Jo- an Cusack er eini leikarinn sem nær að hefja hlutverk sitt á nokkuð flug, en persóna hennar er illa skrifuð eins og aðrar, svo hún hrapar fljótt á ný. Annars nýtast hæfileikar þessarar frábæru leikkonu ekki til annars en undir- strika hæfileikaskort Lauren Holly. Síðustu tíu mínúturnar eru með því verra sem sést hefur lengi lengi og það er virkilega erfitt að sitja undir sykursætri vellunni. Guðmundur Ásgeirsson. °íu“oo ytlURS-Ptsg á ÍÖS. ^ Höfðabakki 1 - simi: 587 2022 hej ----- IIIMI RÚNAR JÚLÍUSSON leikur og heldur uppi íjörinu á íöstudags- og laugardagskvöld. Opið til kl. 3.00. Tilvalinn staður fyrir uppákomur af öllu tagi. íþróttaviðburðir í beinni útsendingu á breiðtjaldi. Dansleikur í Asgarði n i yc. c i n G L Æ S I B Æ Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur fyrir dansi í kvöld frá kl. 22.00. Sími 588 2111 og 568 5660. 9{(Zturfla[inn Smiðjuve/ji 14, ‘KópavofjiJ simi 587 6080 í kvöld og laugardagskvöld leikur hinn frábæri Hilmar Sverrisson ásamt Önnu Vilhjálms Opið frá kl. 22—3 Borðapantanir í símum 557 9717 og 587 6080 Næturgalinn — alltaf lifandi danstónlist FÓLK í FRÉTTUM MÁLAREKSTURINN gengur nærri Jan Schlichtmann (John Travolta), kostar hann aleiguna, starfsferilinn og næstum því heilsuna. KVIKMYNDIR/Háskólabíó hefur tekið til sýninga myndina A Civil Action, Málaferli, með John Travolta, Robert Duvall og William H. Macy í aðalhlutverkum. ALLT LAGT UNDIR MEÐAL leik- enda í myndinni eru Tony Shal- houb, Zeljko Ivanek, Mary Mara og William H. Macy. JAN Schlicht- mann (Travolta) á tali við sútun- arverksmiðjueig- anda, sein ber ábyrgð á heilsutjóni (Dan Hedaya). Frumsýning MYNDIN Málaferli er lög- fræðileg spennumvnd, byggð á sannri sögu. I að- alhlutverki er John Travolta, sem leikur Jan Schlichtmann, einka- málalögfræðing, sem nýtur mikill- ar velgengni en flækir sig inn í mál sem næstum því ríður honum að fullu. Málið virðist vera einfalt í fyrstu en út úr því sprettur mikil flækja stórkostlegra málaferla. Þetta er raunveruleg saga um söguleg málaferli sem áttu sér stað í Nýja-Englandi í Bandaríkjunum og snerust um baráttu Schlicht- manns fyrir hönd átta fjölskyldna í Woburn í Massachusetts gegn tveimur stórfyrirtækjum. Fjöl- skyldurnar töldu að eitraður úr- gangur frá fyrirtækjunum hefði borist í drykkjarvatn bæjarins og leitt til þess að böm úr fjölskyldun- um fengu banvænt hvítblæði. Fáir velmetnir bandarískir lög- fræðingar hefðu tekið þá áhættu að dragast inn í málaferli af þessu tagi þar sem sönnunarbyrðin var tor- veld. Sanna þurfti að fyrirtækin hefðu varpað eitruðum úrgangi í jarðveginn og þaðan hafi hann borist í drykkjarvatnið og leitt til dauða. Eitt G-SHQCK meðöllu ÚR & SKARTGRIPIR • KRINGLUNNI MAGNÚS E. BAIDVINSSON Schlichtmann tók ekki bara að sér málið, hann fjármagnaði það sjálfur og lagði um 200 milljónir króna af eigin fé í að afla vísinda- legra og læknisfræðilegra gagna. Hann veðjaði á þennan hest í trausti þess að kviðdómur myndi kveða upp dóm honum í hag og að hann fengi þá umbun erfiðisins með um 40% af þeirri fjárhæð sem dæmd yrði í bætur. Smám saman breyttist málið í persónulega krossferð lögfræðingsins, sem lagði allt undir og hafnaði milljóna dala tilboði um sættir í því skyni að draga sannleikann fram í dags- ljósið. Þrjóska Schlichtmanns kostaði hann starfið, vináttu margra, heimilið; allt sem hann mat mest í lífinu lagði hann að veði vegna málsins. Hið óvenjulega var að meðan málaferlin voru í undirbúningi hafði lögmaðurinn veitt rithöfundi, Jonathan Harr að nafni, fullkom- inn aðgang að lífi sínu án þess að draga nokkuð undan. I upphafi var hann bjartsýnn á auðveldan sigur og ætlaði að hafa rithöfundinn við höndina til að skrásetja afrek sín en þess í stað fylgdist Jonathan Harr með því hvernig málið náði heljartökum á lögmanninum og kostaði hann veraldlegar eigur, velgengni og hrakti hann út á ystu nöf tilfinningalegs svartnættis. Það var bók Harrs um réttar- höldin, málaferlin og lögmanninn Jan Schlichtmann sem er grannur- inn að myndinni. Steve Zaillian, handritshöfundur Schindler’s List og Awakenings, skrifaði handrit eftir bókinni og leikstýrði mynd- inni sjálfur. „Eg hef mikinn áhuga á fólki sem gengst undir mikla þol- raun í máli sem varðar miklu. Jan er ekki fullkominn. Peningar og söfnun veraldlegra verðmæta er það sem dregur hann fyrst og fremst áfram og þannig vill hann hafa það. En þegar til kastanna kemur er hann reiðubúinn til að fórna sjálfum sér í þágu þess sem hann telur að sé rétt,“ segir leik- stjórinn. Það var mikill fengur fyrir fram- leiðendurna að stórleikarinn John Travolta skyldi taka að sér hlut- verk Jan Schlichtmanns. „Það er ánægjulegt að leika mann sem í byrjun er yfirborðskenndur en þroskast og þróast og verður að manni,“ segir leikarinn. „Það góða við söguna er að maður sér ekki skyndilega breytingu á persónu hans en þegar breytingin verður þá er hún raunveruleg,“ segir Tra- volta. I öðrum helstu hlutverkum myndarinnar eru stórleikararnir Robert Duvall og William H. Macy. Þarna eru líka Tony Shal- houb, Dan Hedaya, John Lithgow og fleiri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 79. tölublað (09.04.1999)
https://timarit.is/issue/131599

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

79. tölublað (09.04.1999)

Aðgerðir: