Morgunblaðið - 29.04.1999, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
h
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nefnd um sérstakar
rannsóknaraðferðir lögreglu
Lagabreyting og
skýrari reglur
um símahleranir
NEFND, sem dómsmálaráðherra
skipaði til að fjalla um sérstakar
rannsóknaraðferðir lögreglu, legg-
m- m.a. til að lögum um símahler-
anir verði breytt og skýrari reglur
verði settar um þær. Ennfremur
eru lagðar til breytingar á almenn-
um hegningarlögum um vitna-
vernd. Björg Thorarensen, skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu
og formaður nefndarinnar, segir að
mikil tilhneiging sé hjá nágranna-
ríkjunum til að fara yfir heimildir
lögreglu og breyta og reyna að
festa óhefðbundnar rannsóknarað-
ferðir í sessi, sem beitt er í sérstök-
um tilvikum brota.
Það var í kjölfar umræðna á AI-
þingi um að setja þyrfti skýrari
reglur um óhefðbundnar rannsókn-
araðferðir lögreglu að dómsmála-
ráðherra fól ríkislögreglustjóra að
taka þessi mál til athugunar. Ríkis-
lögreglustjóri lagði til að skipuð
yrði nefnd til að kanna rannsóknir
og rannsóknaraðferðir og benti
hann jafnframt á að rannsóknarað-
ferðir lögreglu væru ofarlega á
baugi í flestum nágrannalöndum
okkar.
Skýrari reglur
Nefndinni var ætlað að kanna
rannsóknir og rannsóknaraðferðir
lögreglu í baráttu gegn afbrotum,
sérstaklega í nýjum eða nýlegum
tegundum afbrota. Fara yfir heim-
ildir lögreglunnar til rannsókna og
til að beita óhefðbundnum rann-
sóknaraðferðum og jafnframat að
gera tillögur um reglur um óhefð-
bundnar rannsóknaraðferðir og
lagabreytingar.
„Þetta er tvíþætt, annars vegar
era breytingai- á lögum um með-
ferð opinberra mála og þá sérstak-
lega rannsóknaraðgerðum eins og
símhleranum,“ ságði Björg. „Það
er í raun verið að setja skýrari
reglur um símhleranir heldur en
eru í núgildandi lögum. Til dæmis
er fastákveðið hversu lengi má
hlera síma eða taka myndir og lagt
er til að sérstakur lögmaður verði
skipaður sem tekur til varnar þeim
sem svona beiðni berst um því það
er alltaf leynd yfir þessum aðgerð-
um. Ennfremur era lagðar til
breytingar á almennum hegningar-
lögum til þess að efla vitnavernd
sem er flókið vandamál. Er þá átt
við hótanir gegn vitnum sem ætla
að koma og gefa upplýsingar fyrir
dómi eða hjá lögreglu en það er til-
hneiging í löggjöfum allra ná-
grannaríkja að setja sérstökrefsiá-
kvæði gegn því.“
Reglur um upplýsingagjafa
Björg sagði að í skýrslu nefndar- ||
innar kæmu fram hugmyndir um F
að ríkissaksóknari setti margvís-
legar verklagsreglur fyrir lögregl-
una um rannsóknaraðferðir en ekki
væri talið að sérstakar lagabreyt-
ingar þyrftu þá að koma til en ein-
hverjar reglui' yrðu að gilda. Þar
með taldar reglur um upplýsinga-
gjafa og tálbeitur. Þá er fjallað um
afhendingu undir eftirliti en það er
þegar fylgst er með fíkniefnasend- B
ingum sem upp koma og lögreglan 1
hefur eftirlit með t.d. í alþjóðlegri
samvinnu lögreglu milli landa.
„Það er mikil tilhneiging hjá ná-
grannaríkjum okkar að fara yfír
heimiláir lögreglu og breyta og
reyna að festa í sessi þessar óhefð-
bundnu rannsóknaraðferðir, sem
beitt er í sérstökum tilvikum
brota,“ sagði Björg. „Þetta eru |
nýjar brotaaðferðir sem kalla á
nýjar rannsóknaraðferðir og er |j
nánast verið að endurskoða þessar p
heimildir í öllum nágrannalöndum
okkar.“
í nefndinni sátu auk Bjargar,
Atli Gíslason hrl., Ásgeir Karlsson
lögreglufulltrúi, Bogi Nilsson ríkis-
saksóknari, Bjöm Halldórsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn og Egill
Sthepensen saksóknari. Björn lét
af störfum á síðasta ári vegna lög- |
gæslustarfa erlendis og í hans stað
var skipaður Þórir Oddsson vara- 1
ríkislögreglustj óri.
Jens farinn að keyra á ný
Morgunblaðið/Kristján
SIGURJON Benediktsson, bæjarfulltrúi á Húsavík, og Kristján Þór Júlfusson, bæjarstjóri á Akureyri,
kanna aðstæður á háhitasvæðinu við gangnamannakofann á Þeistareykjum.
Stjórnarformaður Þeistareykja ehf.
við undirritun stofnsamnings í gær
Stjórnvöld
hleypi fleirum
í orkugeirann
Samstarf Borgar-
byggðarlista og
Sjálfstæðisflokks
_
Itarlegur
málefna-
samningur
samþykktur
MÁLEFNASAMNINGUR, sem
samþykktur var í viðræðum full-
trúa Borgarbyggðarlistans og
Sjálfstæðisflokksins í fyrrakvöld,
um myndun nýs meirihluta í Borg-
arbyggð, var lagður fyrir fulltráa-
ráð Sjálfstæðisflokksins og félags-
fund Borgarbyggðarlista í gær-
kvöld. Staða bæjarstjóra verður
auglýst á næstunni.
Viðræðumar leiddu til sam-
komulags um myndun nýs meiri-
hluta með þátttöku fjögurra full-
tráa Borgarbyggðarlista og
tveggja frá Sjálfstæðisflokki. Auk
þess á Framsóknarflokkur þrjá
bæjarfulltráa. Guðrán Jónsdóttir,
fulltrái Borgarbyggðarlista, verður
forseti bæjarstjórnar.
Guðrán sagði í samtali við Morg-
unblaðið að málefnasamningurinn
væri nokkuð ítarlegur og tæki á fé-
lagsmálum, fræðslumálum, menn-
ingarmálum, æskulýðs- og íþrótta-
málum, atvinnumálum og umhverf-
is- og skipulagsmálum.
„Við reiknum með því að sveitar-
félagið hafi umhverfisstefnu sem
hafi að meginmarkmiði sjálfbæra
þróun. Meirihlutinn fyrrverandi
sprakk á því hvort bjóða ætti út alla
þætti sorpmeðhöndlunar eða aðeins
hluta hennar," sagði Guðrán.
STOFNSAMNINGUR einkahluta-
félagsins Þeistareykja ehf. var
undirritaður í gangnamannaskála á
Þeistareykjum í gær. Stofnendur
félagsins era Orkuveita Húsavíkur,
Aðaldælahreppur, Reykdæla-
hreppur, Hita- og vatnsveita Akur-
eyrar og Rafveita Akureyrar.
Tilgangur félagsins er nýting
jarðhita á Þeistareykjum í S-Þing-
eyjarsýslu og önnur starfsemi sem
tengist orkuöflun og orkunýtingu.
Talið er öraggt að á Þeistareykjum
sé öflugt háhitakerfi en þar hafa
ekki farið fram meiriháttar rann-
sóknir til þessa þó svo að Orku-
stofnun hafi kannað svæðið með yf-
irborðsrannsóknum eins og flest
önnur háhitasvæði landsins.
Ódýr orka
Hreinn Hjartarson, veitustjóri á
Húsavík og stjórnaiformaður
Þeistareykja, sagði ráðgert að
hefja frekari rannsóknir á svæðinu
á sumri komanda og lágmarks við-
gerðir á vegslóða að væntanlegu
vinnuslusvæði. Hann sagði að í
fyrstu væri ætlunin að bora eftir
köldu vatni sem væri nauðsynlegt
vegna rannsóknarborana á háhita-
svæðinu og einnig vegna orku-
vinnslu á svæðinu. „Við munum því
í sumar bora tvær til fjórar kalda-
vatnsholur."
Hreinn sagði framhald verkefn-
isins ráðast af þeim niðurstöðum
sem rannsóknir i sumar leiða í ljós
en verði þær jákvæðar standa von-
ir til þess að djúp rannsóknarhola
verði borað árið 2000. Hreinn sagði
áframhaldandi vinnu m.a. ráðast af
orkuþörf en framleiðslukostnaðm-
yrði mjög lítill og með góðri virkj-
un á Þeistareykjum væri hægt að
framleiða hverja kW-stund á rétt
rámlega eina krónu, sem væri t.d.
hálft verð miðað við þann kostnað
sem rætt væri um varðandi vatns-
aflsvirkjum í Skagafirði.
„Þetta er því mjög spennandi
verkefni og aðeins stærstu vatns-
aflsvirlqanir norðan Vatnajökuls
geta keppt í verði við svona virkj-
um. Framhaldið ræðst líka af því
að stjómvöld hleypi fleiri aðilum
en Landsvirkjun inn í orkugeirann.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, lýsti mikilli
ánægju með samninginn og sagði
jafnframt að þeir aðilar sem að
honum stæðu hefðu mikla mögu-
leika á því að vinna enn frekar
saman í framtíðinni.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
JENS R. Pálsson við leigubíl sinn áður en
hann hóf akstur í gærmorgun.
fram á sumar og hætta svo.
Fyrir síðustu þinglok voru
gerðar breytingar á lögum uin
leigubifreiðar og var bifreiða-
stjórum heimilað að
framlengja atvinnu-
leyfi sitt fram til 76.
afmælisdagsins, í stað
þess 75. Þegar Jens
fékk þessar fréttir
hugsaði hann sig ekki
tvisvar um og gekk til
starfa á ný. Hann hef-
ur nú keyrt í viku og
líkar vel. „Mér Iíkar
rnjög vel að vera byrj-
aður aftur. Ég er
ánægður með þessar
breytingar og þær
koma sér vel fyrir
leigubílstjórastéttina í
heild og ég gleðst yfir
því. Það eru tveir aðr-
ir sem eru líka byrjað-
ir að keyra aftur á BSR og þeir
mega keyra fram í ágúst,“ segn'
Jens sem má aka leigubfl sínum
fram í janúar á næsta ári.
LEIGUBÍLSTJÓRINN
Jens R. Pálsson var
kvaddur af starfsfé-
Iögum sínum með
pompi og prakt fyrr á f
þessu ári. Jens lét af
störfum á 75 ára af-
mælisdegi sínum í
janúar á þessu ári en
er nú kominn aftur á
göturnar.
Jens var minnst
sem eins mesta vinnu-
þjarks stöðvarinnar
og hafði keyrt mest
allra bflstjóra á BSR í
þau 54 ár sem hann
hafði starfað í þjón-
ustu stöðvarinnar.
Morgunblaðið leit við
í kveðjuhófinu í janúar sl. og
sagði Jens þá í samtali við blaðið
að hann myndi sakna starfsins.
Helst hefði hann viljað vinna
Nyi viuSrai sumar-
bæklingurinn kominn
Sendið mér nýja
sumarlistann:
Nafn:
Heimilisfang:
Sendið úrklippu eða hringið til:
Útivistarbúðarinnar,
Laugavegi 25, 101 Reykjavík.
við Umferðarmiðstc
Þrír í gæslu-
varðhald
ÞRÍR karlmenn á aldrinum
19-44 ára hafa verið úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald til 11.
maí vegna rannsóknar á
þjófnaðarmáli í kjölfar hús-
leitar í íbúð í Eddufelli á
þriðjudagskvöld.
Við leit fann lögregla
allskyns varning sem var ætl-
að þýfi, jafnvel úr mörgum
innbrotum. Húsráðandi og
tveir aðrir menn vora hand-
teknir og er rannsókn málsins
á frumstigi.