Morgunblaðið - 29.04.1999, Síða 8

Morgunblaðið - 29.04.1999, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Við hvað er Halldór hræddur? Það er örugglega rétt mat hjá Halldóri, að það þjónar ekki per- sónulegum hagsmunum hans sem kvótagreifa né hagsmunum Fram- sóknarDokksins að rökræða opin- berlega þessi mál við þá sem vita betur. ÉG er ekkert hræddur um mig, bara um fiskana mína. Iðja vill sameinast Eflingu - stéttarfélagi Félagar yrðu um 15 þusund AKVEÐIÐ var á aðalfundi Iðju, fé- lagi verksmiðjufólks, að óska eftir viðræðum við Eflingu - stéttarfélag um sameiningu félaganna. Stefnt er að því að félögin verði sameinuð um næstu áramót og verða þá ein stærstu launþegasamtök landsins með um 15 þúsund félagsmenn. Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Iðju, segir að þetta hafí fyrst komið til tals þegar sameiningarferill Dagsbrúnar og Framsóknar hófst. „Við byrjuðum reyndar á því fyrir um þremur árum að sameina lífeyr- issjóði Framsóknar, Dagsbrúnar, Iðju, Sóknar og Félags starfsfólks í veitingahúsum ásamt félögum í Hafnarfírði í Lífeyrissjóðinn Fram- sýn. Sameiningarferillinn hélt áfram með því að Dagsbrún og Framsókn sameinuðust og síðan komu Sókn og Félag starfsfólks í veitingahúsum inn í sameininguna og úr varð Efling - stéttarfélag. Við kusum að hinkra við af ýmsum ástæðum en nú höfum við tekið ákvörðun um að sameinast þessu stóra félagi." Um 2.500 manns eru í Iðju en um 12-13 þúsund í Eflingu - stéttarfélagi. Guðmundur segir að stórt sameinað félag bjóði upp á ýmsa sérhæfða þjónustu sem minni félög geti ekki boðið upp á og fjöl- breyttara félagsstarf. „Síðast en ekki síst ættum við að vera sterkari saman í slagnum um kaup og kjör. Það er því ýmislegt sem mælir með því að Iðja sé hluti af þessu stóra fé- lagi,“ sagði Guðmundur. fullkomnu 74620 Þvottahæfni „A“ Þeytivinduafköst „B“ Ljósabretti: Sýnir hvar vélin er stödd í þvottakertinu Vindingarhraði: 1400/1000/800/600/400 sn/mín afgangsraki 50% Mjög hljóðlát Ytra byröi hljóðeinangrað Klukka: Sýnir hvað þvottakerfin teka langan tíma. Hægt að stilla gangsetningu vélar allt að 19tímafram ítímann Öll hugsnaleg þvottakerfi BRÆÐURNIR P1ORMSSON HF Lágmúla 8 • Sími 5332800 Umboðsmenn um allt land! 1400 snuninga vinduhraða Heimsending innifalin f verði. Málþing um skólamál Heildstæður skóli eða skipti við unglingastig? Heildstæður grunnskóli eða skipti við ung- lingastig? er heiti mál- þings sem haldið verður á morgun, föstudaginn 30. apríl. Málþingið er haldið að frumkvæði SAMFOK, sem er sam- band foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskól- um Reykjavíkur. Auk SAMFOK standa að því Fræðslumiðstöð Reykja- víkur, Skólastjórafélag Reykjavíkur og Kenn- arafélag Reykjavíkur. Bergþóra Valsdóttir er skrifstofustjóri SAMFOK. „A málþinginu verður skipst á skoðunum og velt upp kostum og göll- um heildstæðs grunn- skóla frá 1. upp í 10. bekk annars vegar og skipti mDli bamaskóla og unglingaskóla við 8. bekk hins vegar. Aðilar þeir er að málþinginu standa eiga það meðal annars sameiginlegt að vilja stuðla að lifandi umræðu um skóla- og uppeldismál. Það er ljóst að margir foreldrar em uggandi um hag barna sinna þegar þau yfirgefa öryggi barna- skólanna og halda inn í ung- lingaheiminn. Hins vegar fínnst öðmm foreldrum skólagöngu barna sinna sniðinn nokkuð þröngur stakkur í heildstæðum skóla með allt niður í tvær bekkjardeildir í árgangi." Bergþóra segir að önnur ástæða þess að málþing þetta er haldið nú sé að bráðlega þarf að taka ákvörðun um hvers eðlis skólastarf í Grafarholtshverfi verður. „í ljósi þess fannst okk- ur rétt að halda þetta málþing og fá að heyra kosti og galla þeirra leiða sem íyrir eru.“ - Hvort er algengara að skól- ar séu heildstæðir eða að krakk- ar skipti um skóla við unglinga- stíg? „Það er mun algengara að skólar séu heildstæðir. Safnskól- ar á unglingastigi era tvenns konar. Annars vegar hreinir safnskólar eins og fyrirkomulag- ið er til dæmis í Réttarholtsskóla og Hagaskóla. Þar em böm sem hefja nám í unglingadeildum að koma úr nokkmm skólum. Hins vegar höfum við skóla eins og Arbæjarskóla, sem er heildstæður skóli fyrir börn sem búa í Árbæ en hann er einnig safnskóli íyrir Selásskóla og Ár- túnsskóla. Auk þess höfum við Laugalækjaskóla sem tekur við bömum úr einum skóla.“ - Hverjir eru helstu kostir heiidstæðs skóla og á hinn bóg- inn þess að skipta um skóla í 8. bekk? „Fylgismenn heildstæðs skóla halda því fram að með slíku fyr- irkomulagi séu meiri möguleikar en ella á því að halda utanum nemenduma, þ.e. bæði félagslega og námslega vegna þess Bergþóra Valsdóttir ►Bergþóra Valsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1958. Hún stund- aði nám í stjórnmálafræði, Iandafræði og hagfræði við Oslóarháskóla á árunum 1984-1987 og starfaði í Ósló á leikskóla, við grunnskóla og skóladagheimili. Bergþóra tók að sér skrif- stofustjórastarf hjá SAMFOK í september árið 1998. Eiginmaður hennar er Björn Erlingsson hafeðlisfræðingur og eiga þau fjögur börn. ar fjölda námsgreina og hraða í yfírferð. Einnig fá þeir færi á að skipta alveg um umhverfí.“ -En hvað með gaila beggja ieiða? „Um leið og það er kostur að vera í heildstæðum skóla sem veitir nemendum öryggi getur það verið ókostur fyrir þá nem- endur sem víkja frá fjöldanum eða hafa ekki aðlagast í skólan- um. Þegar böm skipta um skóla eftir 7. bekk telja margir að það þurfí að veita nemendunum stuðning, í raun að halda utanum þessi skipti krakkanna eins og gert er þegar þau börn hefja nám í grannskóla. Að þessu leyti telja margir að við höfum ekki staðið okkur nægilega vel.“ I þessu sambandi segir Berg- þóra að það kunni að vera at- hyglisvert að hlýða á reynslu for- eldra af tilraunaverkefni sem verið hefur í vetur í Réttarholts- skóla. Þar hefur bömum í 8. bekk verið fylgt mjög vel eftir námslega og félagslega. - Hverjir koma til með að halda fyrirlestra á málþinginu? „Fræðslustjórinn í Reykjavík, Gerður G. Óskarsdóttir, verður með framsöguerindi og einnig mun Gestur Guðmundsson fé- lagsfræðingur tala á þessu þingi en hann mun fjalla um unglinga- ------------------- menningu og áhrifa- Kostir og gall- þætti hennar. ar þeirra leiða Við fáum foreldra, sem í boði eru kf.nnara+, skólf ___________________ stjora til að ræða galla heild- að nemendur umgangast sömu bekkjarfélaga allan gmnnskól- ann og hafa jafnvel sömu kenn- ara. Þeir telja að heildstæðir skólar hafí meira forvarnagildi. Fylgjendur safnskóla nefna meðal annars að þar sé auðveld- ara að halda uppi öflugri fag- kennslu, að nemendur fái breið- ara námstilboð, bæði hvað varð- kosti og stæðs skóla og safnskóla, hver frá sínum sjónarhóli. Fulltrúar frá meirihluta og minnihluta í borgarstjóm fá tækifæri til að gera grein fyrir stefnu sinni í þessum málum. Þingið fer fram í sal Fræðslu- miðstöðvar í gamla Miðbæjar- skólanum á Fríkirkjuvegi 1 og hefst klukkan 13.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.