Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 15

Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 15 FRÉTTIR Sjálfstæðisflokkurinn birtir kosningayfírlýsingu 1999 Skattar lækki og opinber fyrirtæki einkavædd lögum sem við setjum fram. Vandinn er að komast yfir þennan hjalla, van- trúna á að það sé yfirleitt hægt að gera eitthvað og að við munum kom- ast inn í leikinn," segir hann. Húmanistahreyfingunni hefur yf- irleitt gengið illa að afla sér fylgis í kosningum en hefur þó náð kjöri í borgarstjórn í Torino á Italíu og fengið þingmann kjörinn í Chile. „Hreyfingin hefur hins vegar haft sín áhrif, eins og við höfum haft hér, með málefnaflutningi okkar,“ segir Júlíus. Húmanistar bjóða fram í öllum kjördæmum landsins. Hreyfingin er eingöngu með skipulagða starfsemi í Reykjavík. „Aftur á móti eigum við stuðningsmenn úti um allt, sem eru velunnarar húmanistahreyfingarinn- ar og húmanistaflokksins. Það hefur gert okkur kleift að bjóða fram í öll- um kjördæmum," segir Júlíus. Hann segh- húmanista starfa á milli kosn- inga og vinna að fjölmörgum málum s.s. að umbótum í einstökum hverf- um í Reykjavík. Þrátt fyrir slakan árangur í kosn- ingum bjóða húmanistar nú fram enn einu sinni til að koma hugsjón- um sínum á framfæri, að sögn Júlí- usar, og hann segir að samtökin muni halda þein-i baráttu áfram hver svo sem úrslit kosninganna verða að þessu sinni. „Þörfin fyrir þessa hugsjón hefur ekki farið minnkandi að okkar mati né áhugi okkar á því að vinna að henni. Fá- tækt er að aukast í heiminum þrátt fyrir að tækni og möguleikar til vel- megunar hafi aukist," segir hann. „Við bíðum bara eftir að stíflan bresti, þá eru hlutirnii' fljótir að ger- ast,“ segir Júlíus. Kristilegi lýðræðisflokkurinn Barátta fyrir réttlæti og kristilegu siðferði Kristilegi lýðræðisflokkurinn býð- ur fram í Reykjavík og á Reykja- nesi. Þetta er í annað sinn sem flokkurinn býður fram til þings en 1995 bauð flokkurinn fram lista und- ir nafninu Kristileg stjórnmála- hreyfing í Reykjavík og á Reykja- nesi. Framboðið fékk lítinn hljóm- grunn meðal kjósenda eða samtals 316 atkvæði í kjördæmunum. „Þó að árangur væri ekki mikill í atkvæðum hef ég orðið var við að margt sem við höfum sett fram hefur haft áhrif og verið tekið upp,“ segir Arni Björn Guðjónsson annar maður á lista framboðsins í Reykjavík. Tilurð framboðsins má rekja til þess er Arni Björn var búsettur í Svíþjóð og varð þar fyrir áhrifum af stjórnmálabaráttu kristilegra sam- taka, sem voru áberandi í stjórn- málaumræðunni. Fljótlega eftir að heim kom kynnti hann hugmyndir um stofnun kristilegra stjórnmála- samtaka hér á landi. Viðbrögðin voru ekki mikil í fyrstu en 1993 tók hann þátt í umræðuþætti í útvarpi um samkynhneigð. Eftir þáttinn segir hann að margir hafi haft sam- band við sig og hvatt til stofnunar stjórnmálasamtaka. Þá fóru hjólin að snúast. Meginbaráttumál Kristilega lýð- ræðisflokkins eru fyrir réttilæti og kristilegu siðferði fyrir íslensku þjóðina. Lögð hefur verið fram kosn- ingastefnuskrá í flestum málaflokk- um en áberandi er áherslan á sið- ferðileg efni. Flokkurinn vill t.a.m. að kristinfræði og Biblíusögur verði kenndai' í öllum bekkjum grunn- skóla. Önnur baráttumál eru þó ugg- laust umdeildari en í stefnuskrá flokksins segir m.a.: „Kristilegi lýð- ræðisflokkurinn vill afnema lög sem leyfa fóstureyðingar þar sem fóstur- eyðing er manndráp. En lítur á það sem réttlætismál að hvert barn fái að fæðast og alast upp hjá foreldr- um. Flokkurinn mun sporna gegn lagasetningu í þá veru að skylda grunnskólann til að kenna að óeðli kynvillunnar sé jafn eðlilegt og sjálf- sagt og það eðli sem Guð hefur áskapað hverjum karlmanni og hverri konu.“ Arni Björn segist hafa verið í sam- bandi við ýmsa kristilega stjórn- málaflokka í nágrannalöndunum. Hann bendir á að kristileg stjórn- málasamtök í Evrópu hafi töluverð áhrif á starfsemi annarra stjórn- málaflokka. „Þar bera stjórnmála- menn virðingu fyrir Guðs orði, þótt þeir séu ekki endilega í kristilegum flokkum,“ segir hann. „Eg hef orðið fyrir vonbrigðum með að hafa ekki fengið góð við- brögð forstöðumanna hinna kristnu samfélaga hér, þeir hafa ekki með- tekið þetta í hjarta sínu,“ segir hann. Þátttaka sr. Guðmundar Ai-nar Ragnarssonar er þó undantekning hvað þetta varðar að sögn Arna en Guðmundur skipar efsta sæti á framboðslista flokksins í Reykjavík. „Við teljum að við höfum fengið köllun frá Guði um að gera þetta. Við erum ekki að pota sjálfum okkur af eigin ágirnd. Við teljum bara að þetta sé Guðs forsjá og eigi framtíð fyrir sér. Það besta sem íslenska þjóðin getur fengið er að fá Guðs orð og réttlæti inn í öll þjóðmálin,“ segir hann. á íslandi Anarkistar vilja höfuðlaust og stéttlaust samfélag Anarkistai- á Islandi eru nýtt framboð sem samanstendur aðallega af ungu fólki er býður eingöngu fram lista í Reykjavík. Anarkistar á Islandi urðu til snemma sl. vetur þegar þau Þórarinn Einarsson, Hall- gerður Pálsdóttir og Magnús Egils- son, sem skipa 1.-3. sæti listans, ákváðu að stefna að framboði til Al- þingis. „Sagan nær þó töluvert lengra aftur. Við þrjú höfum öll haft mikinn áhuga á stjórnmálum í mörg ár þrátt fyrir að við séum ekkert sérlega gömul. Þórarinn var í Há- skólapólitíkinni og ég og Magnús vorum í Æskulýðsfylkingu Alþýðu- bandalagsins þegar hún var enn til,“ segir Hallgerður. „I vetur fórum við að hittast reglulega til að ræða stjórnmál. Okkur fannst og finnst reyndar enn íslensk stjórnmál vera á töluverðum villigötum, sér í lagi hvað þau virð- ast vera mikið einkamál atvinnupóli- tíkusa. Við teljum að töluvert skorti á almennan áhuga og þátttöku. Við vorum ósátt við þá flokka sem voru í boði því þeir þykjast allir geta boðið upp á einhverjar heildarlausnir sem við teljum ótrúverðugar. Við vildum koma stefnumálum okkar á dagskrá sem eru að skapa höfuðlaust og stéttlaust samfélag þar sem fólk tekur virkan þátt í ákvörðunum. Gallinn var bara sá að enginn stjórnmálaflokkur virtist hafa það mál á dagskrá. Við hugsuðum því sem svo að ef við gerðum ekki hlut- ina sjálf gerði þá enginn fyrir okk- ur,“ segir hún. Að sögn Hallgerðar bættust svo smám saman fleiri 1 hópinn og öflug- ur kjarni fór að hittast mjög reglu- lega til að ræða stjórnmál. „Hópur- inn er mjög breiður og ólíkar skoð- anir eru innan hans en við höfum sameinast um að stefna að beinna lýðræði og virkari þátttöku og ábyi’gð almennings. Um skipulag hreyfingarinnar er það að segja að við höfum enga stjórn eða formann. Islensk kosningalög krefjast þess að frambjóðendum sé raðað í sæti og við verðum því miður að beygja okk- ur undir það, en hópurinn er höfuð- laus eins og það samfélag sem við viljum byggja. Akvarðanir eru tekn- ar á fundum sem eru haldnir tvisvar í viku. Við höfum ekkert félagatal eða skrifstofu og öll verkaskipting er ákveðin af hópnum. Við rekum vef- síðu og þar er okkar heimili," segir Hallgerður. „SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN leggur áherslu á að tryggja áfram efnahagsbata og stöðugleika þannig að skattar geti haldið áfram að lækka. Fyrirtæki í opinberri eigu verða einkavædd, samkeppni á orkumarkaði innleidd, fjármagns- markaður gerður virkari og opinber efth-litsstarfsemi gerð hagkvæm- ari,“ segir í kosningayfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins, sem birt var í gær. I kosningayfirlýsingunni segir að ná þurfi sátt um fiskveiðistjórnun- arkerfið: „Löggjöf um stjórn fisk- veiða verður í þróun með það að leiðarljósi að ná um hana frekari sátt og hefur Sjálfstæðisflokkurinn sýnt með ótvíræðum hætti vilja sinn til að ná samstöðu meðal þjóð- arinnar um þetta mál. í því sam- bandi þarf að gæta þess að mark- miðum um fiskvernd eða hag- kvæmni sé ekki fórnað né heldur raskað grundvelli rekstrarlegra ákvarðana. Meginmarkmið sjávar- útvegsstefnunnar er að tryggja að arðsemi fiskistofnanna verði sem mest í þágu þjóðarinnar allrar,“ segir í yfirlýsingunni. 10 mánaða fæðingarorlof í kafla yfirlýsingarinnar um utan- ríkismál segir að samstarfið innan EES hafi verið íslendingum heilla- drjúgt. „Sjálfstæðisflokkurinn hafn- ar aðild að Evrópusambandinu, ef í aðildinni felst að Islendingar þurfi að gefa eftir yfirráðaréttinn yfii- fiskimiðunum eða öðrum auðlindum þjóðarinnar," segir m.a. í yfirlýsing- unni. Því er lýst yfir að flokkurinn muni áfram vinna að raunhæfum lausnum til að tryggja jöfn tækifæri kvenna og karla. „Foreldrum á vinnumarkaði verði tryggður réttur til 10 mánaða fæðingarorlofs. A kjörtímabilinu verði hvoru foreldri um sig tryggður réttur til fullra launa í a.m.k. 3 mánuði. Sjálfstæðis- flokkurinn vill að íslenskir stjóm- DAGBOK Fundur með Davíð Oddssyni á Akureyri • OPINN stjórnmálafundur með Davíð Oddssyni verður haldinn í Nýja bíói á Akureyri í kvöld, fimmtudagskvöldið, 29. apríl kl. 20.30. Almenningi gefst á fundinum kostur á að spyrja forsætisráð- herra um þau mál sem efst eru á baugi í kosningabaráttunni. Þing- menn og frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra taka þátt í umræðunni. Fundarstjóri verður Anna Þóra Baldursdóttir lektor. Karlakór Akureyrar-Geysis syngur nokkur lög fyrir fundargesti. Vinstrihreyfingin - grænt framboó Umræðufund- ur um Evrópu- sambandið • UMRÆÐUFUNDUR verður í kosningamiðstöð Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs á Suður- götu 7 í kvöld, fimmtudaginn 29. apríl. Fundurinn hefst kl. 20.30. Frummælandi veröur Anna Ólafs- dóttir Björnsson sagnfræðingur og lýsir hún inntaki framsögunnar svo aö því er fram kemur í fréttatil- kynningu: „Aðild að Evrópusam- endur taki í auknum mæli tillit til nýrra lífshátta og þarfa fjölskyld- unnar,“ segir í kafla um jafnrétti og fjölskyldumál. Séð verður til þess að kjör líf- eyrisþega batni Sjálfstæðisflokkurinn vill umbæt- ur í almannatryggingakerfmu og einfoldun kerfisins. Endurskoða þurfi lífeyristryggingakerf al- mannatrygginga og annan stuðning í samhengi við skattkerfð. „Draga þarf úr skerðingarákvæð- um eftir því sem kostur er. Sjálf- stæðisflokkurinn mun sjá til þess að kjör lífeyrisþega batni í samræmi við almenna velmegun og efnahags- legur árangur þjóðarinnar mun því skila sér til öryrkja og eldri borgara sem annarra. Sveigjanleg starfslok verði tryggð," segir þar einnig. Aðild að Kyotobókun mikilvæg að viðurkenndri sérstöðu Ahersla er lögð á að jafnvægis sé gætt milli nýtingar auðlinda og náttúruverndar. „A hálendinu þarf að fara saman vernd á náttúruperl- um og hófleg nýting til orkufram- leiðslu, beitar og ferðamennsku. Fyrirtæki verða hvött til að marka sér umhverfsstefnu til að draga úr sóun og auka verðmætasköpun. Mikilvægt er að ísland verði aðili að Kyoto-bókuninni, að sérstöðu ís- bandinu yrði ekki aðeins aðför að forsjá okkar yflr fiskimiðunum. Hún fæli einnig í sér óþolandi valdaafsal, frá almenningi og kjörnum fulltrúum hans til skrifræðisvaldsins í Brussel. Hvar viljum við að mikilvægustu ákvarð- anirnar sem varða líf okkar og kjör séu teknar?" Fundarstjóri verður Ragnar Stef- ánsson jarðskjálftafræðingur. Samfylkingin Fiskveiði- stjórnun rædd á Reykjanesi • Samfylkingin, Reykjanesi, held- ur fund um fiskveiðistjórnunarkerf- ið í kosningamiðstöðinni, Hafnar- götu 88, kl. 20.30. Ágúst Einars- son, Sigríður Jóhannesdóttir og Jón Gunnarsson flytja stuttar fram- sögur. Samfylkingin Fundur í Kópavogi um samfélagið • Samfylkingin, Reykjanesi, held- ur fund í Hamraborg 14A í Kópa- vogi klukkan 20.30 í kvöld. Fund- urinn ber yfirskriftina Réttlátt samfélag? Rannveig Guðmunds- dóttir, Guðmundur Árni Stefánsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir flytja stuttar framsögur. lands viðurkenndri," segir í yfiriýs- ingunni. Skatthlutföll fasteignagjalda verði þau sömu á öllu landinu í kafla um byggðarmál segir m.a. að markmiðið sé að ný störf verði til á landsbyggðinni í vaxtargreinum atvinnulífsins í stað þeirra sem hverfa með almennri hagræðingu og breyttum atvinnuháttum. „Að- gerðir til jöfnunar, s.s. vegna náms- kostnaðar og húshitunarkostnaðar verða auknar. Tekjuskiptingu rikis og sveitarfélaga þarf að endur- skoða. Skatthlutföll fasteignagjalda verði fastákveðin þau sömu á öllu landinu. Samhliða verði tryggt að skattstofninn endurspegli með sama hætti raunverðmæti fast- eigna. Sveitarfélögum verði í stað- inn tryggðar a.m.k. óbreyttar tekj- ur, annars vegar með afnámi und- anþága hvað varðar atvinnuhúsnæði hin opinbera og hins vegar með hlutdeild í eignarskatti, sem nú rennur allur í nTdssjóð," segir í yfirlýsingunni. Einnig er boðað sérstakt átak til að efla menntun á háskólastigi og í kafla um heilbrigðisþjónustuna seg- ir m.a að aðskilja þurfi betur hlut- verk ríkisins sem kaupanda og rekstraraðila í heilbrigðisþjónust- unni í þeim tilgangi að efla kostnað- arvitund og aðhald. Samfylkingin í Reykjavík Fundur um málefni öryrkja • MÁLEFNI öryrkja verda í brennidepli í kvöld á fundi sem Samfylkingin í Reykjavík boðar til í kosningamiðstöð sinni í Ármúla 23. Gestgjafar verða Jóhanna Sig- urdardóttir og Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir en Garðar Sverrisson, varaformaður Öryrkjabandalagsins, flytur ávarp. Dúettinn Súkkat kem- ur einnig fram á fundinum sem hefst kl. 20.30. Ræða kynlíf og barneignir • Fundur á vegum Fræðslusam- taka um kynlíf og barneignir og stefnu stjórnmálaflokkanna í þeim málum verður haldinn á Kakóbarn- um í Hinu húsinu kl. 17. Sameiginleg- ur fundur á Akranesi • Sameiginlegur stjórnmálafundur flokkanna sem bjóða fram í Vestur- landskjördæmi verður haidinn í Bíó- höllinni, Akranesi, og hefst kl. 20.30. Upplýsingar á Netinu A UPPLYSINGASIÐU dóms- og kirkjumálaráðuneytisins vegna al- þingiskosninganna 8. maí nk. er nú að finna ýmsar upplýsingar er tengjast kosningunum og fram- kvæmd þeirra. Þar má m.a. finna upplýsingar um kjörskrár vegna kosninganna, leið- beiningar um utankjörfundarat- kvæðagreiðslu sjúki-a og auglýsingu um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á stofnunum og í heimahúsi, upplýs- ingar um ýmsar dagsetningar og fresti vegna kosninganna, upplýsing- ar um listabókstafi stjómmálasam- taka, upplýsingar um landskjörstjórn og yfirkjörstjómir í öllum kjördæm- um auk upplýsinga um formenn þein-a og hvar hægt er að ná í þá. Slóð heimasíðu dóms- og kirkju- málaráðuneytisins er www.stjr.is/dkm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.