Morgunblaðið - 29.04.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Færeyingar
taka tilboði
Norðmanna
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FÆREYSKA landstjórnin hefur
ákveðið að taka tilboði norskrar
skipasmíðastöðvar í smíði nýs strand-
gæzluskips íyrir Færeyinga. Komizt
var að þessari niðurstöðu eftir að fær-
eysku skipasmíðastöðinni sem boðið
hafði í verkið hafði verið gefið færi á
að lækka sitt tilboð.
Landstjórnin bauð út smíði 62 m
langs strandgæzlu- og björgunar-
skips í september sl. og tilboð voru
opnuð í desember. Þetta skip á að
geta sinnt gæzlu og björgunarstörf-
um í allri færeysku lögsögunni og
verður stærsta skip færeysku lang-
helgisgæzlunnar. Lægsta tilboð áttu
aðilar í Noregi, sem buðust til að
smíða skipið fyrir 94,8 milljónir
danskra króna, sem er nálægt einum
milljarði íslenzkra króna. Færeyska
skipasmiðjan bauð upprunalega 109
milljónir danskra króna í verkið og
hið endurnýjaða tilboð hljóðaði upp á
rúmum tveimur milljónum minna.
Jörgen Niclasen, sjávarútvegsráð-
herra landstjórnarinnar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að þetta hefði
verið erfið ákvörðun, en hann hefði
vonazt til að nýja færeyska tilboðið
yrði lægra. Munurinn á því og því
norska hefði einfaldlega verið stærri
en svo að sér hefði verið stætt á því
að taka því. Trúverðugleiki Færey-
inga hefði verið í húfi; þeir yrðu að
halda sig við þær alþjóðlegu reglur
sem gilda um slík útboð, fyrst á annað
borð var efnt til þess.
----------------
Samstaða NATO
kann að bresta
Dallas. Reuters.
GEORGE Bush, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, sagði á þriðjudag að
hætta væri á því að brestir kynnu að
myndast í samstöðu Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) ef Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseti standi
loftárásirnar áfram af sér. Bush
hvatti Bill Clinton Bandaríkjaforseta
til að gera bandarískum hersveitum
markmið herfararinnar í Júgóslavíu
ljós og sagði að Bandaríkin mættu
ekki við „öðru Víetnamstríði“.
Forsetinn fyrrverandi sagði að
ijóst væri að ákveðin merki sundr-
ungar væru að myndast meðal nokk-
urra evrópskra aðildarríkja NATO
um áframhaid loftárásanna á Jú-
góslavíu. „Ef Milosevic heldur stöðu
sinni og verður eins harður í horn að
taka eftir tvo til þrjá mánuði og hann
er í dag, þá tel ég að samstaðan inn-
an NATO muni bresta. Og það
myndi valda mér mjög miklum
áhyggjum.“
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 2 7
RAGNHEIÐUR
ELIN CLAUSEN
lenti i hrika
esum raun
91 Þortferður Gunnarsdóttir U1
ot£ Kristián Arason
1 _ “f- 1 'A f K1 11 þ fl ‘Vcn 1 * ■' ■; ■: •; ■ ■ 'V. ■ ■ ■: m v i \ f I j V
n i b n roii F-í 4 b Yi
GOTI FÓUC • $U