Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 29

Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 29 Bildt erind- reki SÞ á Balkan- skaganum? Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ENN á ný er nafn Carl Bildts nefnt í tengslum við alþjóðlega stöðu og nú í tengslum við væntanlegt starf erindreka Sameinuðu þjóðanna á Balkanskaganum og í Kosovo. Tveir erindrekar verða skipaðir og í gær var tilkynnt að Eduard Kukan, ut- anríkisráðherra Slóvakíu, verður annar þeirra. Bildt hefur hafnað orðrómnum og hefur sett ofan í við Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svía, fyrir að ala á þessu. Snörp við- brögð hans kölluðu á viðbrögð Görans Perssons, sem í kjölfarið var gagnrýndur fyrir að tala ekki eins og forsætisráðherra sæmdi. Þrátt fyrir að Bildt hafi til þessa vísað vangaveltum á bug sagði Kofí Annan, framkvæmdastjóri SÞ, í gær að hann væri einn þriggja manna er kæmi til greina í síðara starfið. í ræðu á mánudaginn lýsti Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóri SÞ, þvl yfír að hann hygðist skipa tvo erindreka til að sinna ófriðarsvæð- unum í fyrrverandi Júgóslavíu. Annar á að hafa umsjón með Balkanskaganum, hinn vera sátta- semjari í Kosovo. Enn er óljóst í hverju störfin verða fólgin, en hug- mynd Annans er að SÞ gegni virkara hiutverki á Balkanskagan- um en verið hefur. Bildt hefur undanfarið verið í sambandi við Annan, en segir sig einungis vera ráðgjafa hans í mál- efnum Balkanskaga, það verði hann áfram, en engin útnefning sé í aug- sýn. Fyrir helgi voru fréttir um að í viðræðum við Annan hefði Anna Lindh utanríkisráðherra ötullega stutt við hugmyndina um útnefn- ingu Bildts. Af fréttum mátti marka að Lindh liti á þetta sem raunhæfan möguleika. Bildt lét þá nokkuð hörð ummæli falla um að þetta væri að- eins hugarburður sænski-a diplómata og hann væri ekki annað en ráðgjafi fyrir Annan. Lengi hef- ur verið rætt um að Bildt hefði hug á starfi á alþjóðavettvangi, en á hinn bóginn er stöðugur orðrómur í þá veruna ekki þægilegur fyrir hann sem leiðtoga Hægriflokksins og sænsku stjórnarandstöðunnar. „Hann er ekki í jafnvægi,“ voru ummæli Perssons um þessa gagn- rýni Bildts og þau ummæli þóttu mörgum ósmekkleg. Meðal annars hafa ritstjórar sænskra jafnaðar- mannablaða gagnrýnt Persson fyr- ir. Ummælin þykja enn eitt dæmi um að Persson taki ekki alltaf til orða eins og sæmi forsætisráðherra, heldur virðist gleyma stöðu sinni. Síðast notaði hann sömu orð um Erik Ásbrink, er hann sagði nýlega af sér sem fjármálaráðherra. rJlJiíR 3'fURfUKlSfAR 80x80 á kant. Blöndunar- tæki, sturtusett, botn og vatnslás innifalinn. Verð frá 39.600 stgr. við Fellsmúla, s. 588 7332. Opið 9*18, laugard. 10*14. ERLENT WHO nýtir reynslu úr Bosníustríðinu Komið í veg fyrir að rusl sé sent sem hjálpargögn Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. „ÞOTT flóttamenn séu illa á sig komnir er ekki þar með sagt að þeir geti notað það sem við hinir betur settu köllum rusl,“ sagði Jo E. Asvall, svæðisstjóri Evrópuskrif- stofu Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar (WHO), á blaðamanna- fundi í Kaupmannahöfn, er hann kynnti átak WHO til að gera heil- brigðisaðstoð við flóttamenn í Kosovo sem besta. í Bosníustríðinu bar á þvi að send væru ónýt hjálp- argögn og í kjölfar þess samdi WHO viðmiðunarreglur fyrir hjálp- argögn, sem ýmis lönd hafa nú tekið upp til að koma í veg fyrir að gögnin séu send. Asvall nefndi einnig að áhyggjuefni væri að mjólkurduft handa ungbörnum flæddi yfir í flóttamannabúðum, því pelagjöf gæti skapað fleiri vandamál en hún leysti. „Það er enginn vafi á að fyrirtæki munu reyna að losna við ónýtar vör- ur sem hjálpargögn,“ sagði Martin Auton, sem sér um samskipti WHO við lyfjafyrirtæki. I Bosníustríðinu bárust þangað 80 tonn af lyfjum, sem fimmtán lyfjafræðingar voru hálft ár að flokka. A endanum reyndust aðeins 14 prósent lyfjanna nothæf, en auk kostnaðar við mót- töku reyndist síðan dýrt að eyða ónothæfu lyfjunum. Auton bendir á að fyrirtæki geti því miður séð sér hag í að losna við óseljanlegar vörur á þennan hátt, auk þess sem gjafir leiði víða til skattaafsláttar. Aileen Robertson, sérfræðingur WHO um barnamat, skoraði á fjöl- miðla að ýta ekki undir í fréttaflutn- ingi að flóttamenn notuðu mjólkur- duft handa ungbömum. Tilgangur- inn væri vísast göfugur, en rejmslan sýndi að slíkar gjafir græfu undan hefðum fyrir brjóstagjöf, auk þess sem mjólkin væri gróðrarstía sjúk- dóma, þegar hún væri útbúin með menguðu vatni og látin í óhrein ílát. Með þurrmjólk væri mæðrum gert erfiðara að mynda tengsl við börn sín og þau færu á mis við hollustu móðurmjólkurinnar. Það væri auk þess goðsögn að álíta að harðæri flóttamannalífsins gerði konum ómögulegt að hafa börn sín á brjósti. „Mannkynið væri dáið út ef konur þyldu ekki að hafa börn sín á brjósti á stríðstímum eða við erfiðar að- stæður," undirstrikaði Robertson. mbJ.is er lifandi fréttamiðill sem birtir stöðugt nýjar fréttir. HJustendur þessara stöðva fá þvf ávallt ferskar, áreiðanlegar og vandaðar fréttir frá helsta fréttamiðli landsins á Netinu. Fréttimar verða lesnar regluJega á þessum tíma á öllum stöðvunum þannig að þú missir ekki af neinu á meðan. Hlustaðu á góða tónlist og áreiðanlegar og nýjar fréttir á Létt 96,7, Gullinu 90,9 og KJassik 100,7. JCétt 96,7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.