Morgunblaðið - 29.04.1999, Page 34

Morgunblaðið - 29.04.1999, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ TÖJVLIST Djassdiskar THE DUKE ELLINGTON CENTENNIAL EDITION The complete RCA Victors recor- dings 1927-1973. Hljómsveit Duke Ellingtons auk smásveita undir stjórn Johnny Hodges, Rex Stewards og Barney Bigardsj Esquer all-Americ- an award winners, Metronome all- stars og dúettar með Jimmy Blanton, Billy Strayhorn og Earl Hines. 24 diskar, RCA-Victor/Japis 1998. Disk- ar 1-7: The early recordings (1927- 1934). Diskar 8-13: The early forties recordings (1940-42). Diskar 14-16: The complete mid-forties recordings (1944-46). Diskur 17: The All-star sessions and the Seattle concert (1952). Diskar 18-20: The three sacred concerts (1965/1967/1973). Diskar 21-24: The last recordings (1966-1973). DUKE Ellington hefði orðið hund- rað ára í dag hefði honum enst aldur. Hann lést 24. maí 1974 og var þá liðin tæp hálf öld síðan hann hljóðritaði fyrstu skífuna með hljómsveit sinni, The Washingtonians. Hljóðritanh’nar áttu eftir að skipta þúsundum áður en yfir lauk og fáum sem þekkja sæmilega til tónlistarsögu tuttugustu aldarinnar og eru lausir við fordóma gagnvart annarri tónlist en tónskáld- skap evrópskrar ættar, blandast hug- ur um að Duke Ellington sé einn fi’emsti tónmeistara aldarinnar. Fáir hafa skapað jafn einstakan tónaheim og hann og á það ekki hvað minnstan þátt í því, auk innborinnai’ snilli her- togans, hversu lengi hann starfaði með sömu mönnunum og tókst að virkja þá í sameiginlegri listsköpun. Og það voru engir smákallar, held- ur margir af helstu djassmeisturum sögunnai’: Johnny Hodges, einn mesti altósaxófónleikari aldarinnar ef Charlie Parker er frátalinn, lék með Duke í 33 ár; Harry Carney, faðir barítonsaxófónleiks í djassi, lék með Duke í 47 ár; Cootie Williams, ókrýndur kon- ungur hins urrandi demparatrompetblást- urs, lék með Duke í 23 ár; básúnumeistarinn Lawrence Brown í 19 ár og tenórtryllirinn Paul Gonsalves í 24 ár. Allir blésu þessir menn með Duke til hinstu stundar hans eða þeirra, nema Lawrence Brown, sem settist í helgan stein 1970. Sumir ellington- istarnir urðu skammlíf- ir, en léku þó með hon- um fram í rauðan dauð- ann einsog Joe „Tricky Sam“ Nanton básúnuleikari og Jim- my Blanton bassaleikari. Aðrir léku með Ellington nokkur ár í senn, en töldu sig hirðmenn hans alla ævi einsog konungur hins blíða en grimma tenórblásturs, Ben Webster. Hér eru aðeins taldir fáeinir þeirra snillinga er unnu með Duke þá hálfu öld er hann stjórnaði stórsveit sinni og frumflutti mörg ódauðlegustu djassverk sögunnar. Þó má ekki gleyma einum, Billy Strayhorn, tón- skáldinu og píanistanum, sem var hægri hönd Ellingtons í nær fjóra áratugi. Innan djassins er Duke einstakur, fremstur allra tónskálda og hljóm- sveitastjóra og hefur haft betra lag á því en nokkur annar, nema kannski Miles Davis, að virkja tónlistarmenn sína í eigin listsköpun. Um ævina hljóðritaði Duke Ell- ington fyrir mörg útgáfufyrirtæki og ber þar hæst RCA-Victor, Columbia, Brunswick, Capitol og fyrirtæki Norman Granz, Verve og Pablo. I tilefni aldarafmælisins má búast við margri endurútgáfunni og á af- mælisdaginn sjálfan berst í verslanir sú mik- ilfenglegasta: Heildar- útgáfa RCA-Victors á hljóðritunum Ellingtons fyrir fyrirtækið. Tutt- ugu og fjórir diskar er spanna 47 ár. Að sjálf- sögðu hefur mest af þessu efni verið gefið út áður, en það er ekki minni fengur að útgáf- unni fyrii’ því. Hér má finna helsta hápunkt í tónsköpun Ell- ingtons, upptökurnar fyrir RCA frá 1940-42 með hljómsveit hans er kennd var við Webster og Blanton. Hér eru helstu snilldarverk hans einsog mollblúsinn Koko, fyrirrenn- ari modalisma Miles Davis, Concerto for Cootie þarsem þrefalt blúsþema færir einleikarann, Cootie Williams, upp í hæstu hæðir, Jack the Bear, sem Strayhorn hreinskrifaði fyrir meistarann, ein af helstu mannlýs- ingum hans, Bojangles, og í bónus aukataka tekin upp í Hollywood um leið og meistarasóló Ben Websters í verki meistarans, Cotton tail. Hér má líka finna áður óutgefna töku af Blue goose þarsem Johnny Hodges blæs í sópransax. Annars er megnið af upp- tökunum fi’á 1927 til 1952 að finna á 24 platna útgáfu franska RCA á verkum EUingtons - en trúlega eru ekki margir hérlendis sem eiga þá útgáfu í heild sinni. A þessum diskum ELLINGTON f HEILA ÖLD Duke Ellington Nokkrum ljóðum ríkari BÆKUR L j« ö a b ó k MEÐAN ÞIJ VAKTIR Eftir Þorstein frá Hamri. Iðunn 1999, 54 bls. EF einhverjir héldu að með út- gáfu Ritsafns Þorsteins frá Hamri í fyrra væri verið að setja punktinn aftan við höfundarverk hans verða þeir hinir sömu að hugsa málið upp á nýtt. í nýyfirstaðinni bókaviku kom út glæný ljóðabók Þorsteins, Meðan þú vaktir, sem sýnir svo ekki verður um villst að skáldið er í fullu fjöri og á vafalaust enn margt óort. Hver ný ljóðabók frá Þorsteini frá Hamri telst til mikilla ljóðatíðinda og ljóðaunnendur eru því „nokkrum ljóðum ríkari“ eftir útgáfu bókarinn- ar, svo vlsað sé til eins ljóða hennar, sem hefst þannig: Afvegum sem allir kenndu við erindisleysu náðum við heim nokkrum ljóðum ríkari. (,Afvegum“, bls. 16) Meðan þú vaktir er fjórtánda ljóðabók Þorsteins frá Hamri, en sú fyrsta kom út árið 1960 (hana fékk ég í tannfé). Skáldskaparferill Þor- steins spannar því tæplega fjóra ára- tugi og hefur hann ekki verið ein- hamur á þeim tíma heldur gefið út auk ljóðanna skáldsögur, þætti og þjóðlegan fróðleik. Meðan þú vaktir hefur að geyma 41 ljóð og munu þrjú þeirra hafa birst áður í tímaritum en um frum- birtingu hinna er að ræða. Þótt Ijóð- in kunni að virðast sundurleit við fyrsta lestur leiðir nánari skoðun í ljós endurtekin stef eða minni sem gefur ljóðum bókarinnar samhljóm og styrkir byggingu hennar. Hér má nefna stef sem einnig eru kunn úr fyrri verkum Þorsteins, svo sem hugleiðingar um glataðan tíma, von- ina, ástina, listina og heilindi ein- staklings í viðsjárverðum heimi. Nokkuð áberandi eru ljóð um það fyrstnefnda, glataðan tíma, tapaða fortíð; um: „Undrin forðum / óþrotleg, frjó“ („Vínlandsfari“, bls. 13) eða: „Stúrin andartök /drangaleg, dimm // horfa við lund manns / úr loftsal minninganna“ („Ljósbrot“, bls. 19). Sameiginlegur þráður þessara ljóða er meðal annars sú hugsun að loftsalur minninganna (fortíðin) geymi dýrmæt augnablik sem enn megi gleðjast yfir þótt þau virðist glötuð í fjarskan- um. En skáldið dvelur ekki aðeins í minningum heldur hvetur einnig til að við: „Njótum heil / nýrra daga sem líða“ („Dagar, bls. 26). Þorsteinn slær einnig á létta strengi og dregur jafn- vel dár að sjálfum sér í ljóðinu „Möttull konungur“, sem vísar til einnar skáldsögu hans, segir þar „hvatvíslegustu og barnalegustu /sleggjudóma“ sína „standast líkt og allt / sé að öðru sniðið, / um hrokann, fordómana, / hræsnina, svikráðin, / neyðina, æðið / og hina naumu út- leið ...“ En ljóðið endar í von og bjartsýni: Þó ber að þakka! Meðan gróa, góðu heilli glettan landið og saraveran. („Möttull konungur, bls. 38-9) Eins og oft áður yrkir Þorsteinn urn skáldskapinn, um listina að yrkja, og ekki er hann alltaf mjúk- máll um það málefni. I Ijóði sem ber titilinn „Ljóð vor“ má til að mynda finna hnyttna ádeilu á yrkisefni ljóð- skálda: Ljóð vor, sum Eintóna, andvarpasæt Af ilmi rósa mega vart kallast af moldu alin! Æ, biðjum þeim beiskju og seltu Af bjástri, fysnum og raunum þó ekki væri nema eins misþroska, villuráf- andi dýrs. (bls. 33) Þorsteinn hefur áður ort um „þetta gráa geð- skólp, þessi blævana, bældu lönd“ (Vatns göt- ur og blóðs, 1989) og ef til vill má úr þessu lesa afstöðu hans til skáld- skaparins; ljóðlistin á að vera í tengslum við líf mannsins, túlka mannlega rejmslu, bjástur og fýsnir; sprottin úr jörðu fremur en spunnin úr lofti „andvarpasæt"; öll geðlurða er skáldinu á móti skapi og betra er villuráf en stöðnun. Hitt er annað mál að þótt þetta kunni að vera skáldskaparafstaða Þorsteins frá Hamri er þó ekki um það að ræða að Ijóð þessarar nýju bókar falli undir þá skilgreiningu að vera uppreisnar- gjörn og ádeilurík, eins og nokkuð bar á í eldri ljóðabókum hans. Hér er ekki ort um sveltandi heim, skatta- frádrátt heildsala og órofa tryggð við Atlantshafsbandalagið (væri þó ástæða till). Það er þó síður en svo að ég sé að ásaka skáldið um geð- deyfð eða bældar tilfinningar, en megi sjá á skáldskaparferli Þor- steins „misþroska" hins leitandi sjálfs (í gegnum tíðina) þá veit ljóð- mælandi þessarar bókar að í ljóði má jafnt „svæfa og sefa“ sem og „rista á hol“ og „rjúfa“ (sjá ljóðið „Ti-únað- ur“, bls. 32). Og sumt megnar jafnvel ekki ljóðið að tjá, eða eins og segir í ljóðinu „Sum djásn“: Sum djásn / er dauðasök að snerta. /... / Og villist þau íklædd orðunum / á bók eða blað / þekkja þau sig/ sjaldnast sjálf. (bls. 9). Þessi ljóðmælandi þekkir hverful- leika orðanna og brigðult eðli tungu- málsins. En hann tekst á við það eðli af öryggi og ögun, íhugun og fágun sem einkennir þroskaða sýn og hlýt- ur að teljast til kosta. Soffía Auður Birgisdóttir Þorsteinn frá Hamri eru 24 aukatökur, auk Esquire swamp og Midriff og Gone with the wind með Esquere stjörnubandinu, sem ekki er að finna á frönsku RCA plötunum. Það sem mestu máli skiptir þó er hversu vel hljómur 78 snúninga plöt- unnar hefur náðst á diskunum. Sam- anborið við breiðskífuútgáfurnar er hann ævintýralegur og mun betri en á fyrri geisladiskaútgáfum RCA- Victors. Helst má jafna honum við verk kraftaverkamannsins ástralska, Roberts Parkers, sem hefur fært ýmsar klassískar útgáfur nær nú- tímahlustum en aðrir á BBC diskum sínum. I elstu verkunum er ekki skorið af hærri tíðni og eilítið suð lát- ið halda sér, en bassinn allsterkur. Þetta hefði gömlu djassgeggjurunum líkað. East St. Louis toodle-oo frá 1927 verður enn magnaðara en fyrr í þessari útgáfu. Það eru Orrin Keep- news og Steven Lasker sem eiga heiðurinn af verkinu og gaman til þess að vita að Orrin, sem hóf feril sinn 1954 með því að endurútgefa gamlan Ellington, skuli fá slíkt verk- efni í ellinni. Frá 1953-5 hljóðritaði Ellington fyrir Capitol, en eftir það fyrir Col- umbíu þartil hann réðst aftur til RCA 1965 er fyrirtækið gaf út fyrsta helgi- konsert hans. Helgikonsertarnir urðu þrír, annar hljóðritaður 1968 fyrir Fantasy, en er með í þessari út- gáfu og hinn síðasti hljóðritaður í Westminster Abbey í síðustu tón- leikafór Ellingtons utan Bandaríkj- anna 1973. Kannski er annar konsertinn best heppnaður. Hann var hljóðritaður í hljóðveri og sænska söngkonan Alice Babs flaug til Bandaríkjanna að syngja fyrir djasshertogann vin sinn. Túlkun hennar og Johnny Hodges á Heaven er jafn innvigð og guðsdýrk- un barroksku meistaranna. Síðustu diskar þessa safns bera yf- irskriftina: Last recordings og vísa til fimm breiðskífna: The Far East suite, The popular Duke Ellington, The Duke at Tangelwood, ...and his mother called him Bill og Eastbour- ne performance. The Far East suite er síðasta stór- virkið er Ellington vann í samvinnu við Billy Strayhorn. Þetta eru svip- myndir úr Austurlandafór hljóm- sveitarinnar þarsem leikið var í borg- um jafn ólíkum og Kaíró og Bombay. Allt varð þeim félögum að tónlist og þarna er margur gimsteinn einsog hið undurfagra Isfahan er Johnny Hodges túlkar og Ad lib on Nippon þarsem Duke leikur af einstakri snilli á píanóið. Næsta stórvirki Ellingtons - og það síðasta, var breiðskífan er hann hljóðritaði í minningu vinar síns Strayhorns ... and his mother called him Bill. Strayhorn var mýkri maður en hertoginn. Hann var meistari ball- öðunnar með evrópskum blæ og Johnny Hodges blés þær öðrum bet- ur. Sú nýjasta og sterkasta á þessum diski hafði ekkert nafn er Strayhorn sendi Ellington hana af banabeðnum. Duke nefndi hana Blood Count og Hodges nær að túlka ótrúlegan sárs- auka í einfaldri fegurð í þessum ópusi. Eg hef heyrt marga blása þessa ballöðu vel, allt frá Sigurði Flosasyni til Stan Getz; en hinn sári tregi Hodges er hvergi sem hér. Konsertinn í Tangelwood með Arthur Fielder og Boston dægur- strengjunum verður seint talin til merkari tónhstarviðburða, en á þess- um diskum er einn ópus, sem ekki var á upphaflegu breiðskífunni. Dá- samlegur píanósóló með Ellington, fimmti kaflinn úr svítunni er hann samdi fyrir vinkonu sína, Elísabetu aðra Englandsdrottningu: The single pedal of a rose. Hann er tónleikanna virði. 22. október 1973 hélt Ellington- bandið í síðustu stórtónleikafór sína. Ferðast var um Evrópu og Afríku. Fyrst var haldið til London þarsem þriðji helgikonsertinn var frumflutt- ur og hinn 1. desember var síðasta opinbera hljóðritun Ellingtonsbands- ins gerð í Eastbourne. Þar á milli hafði verið leikið í um 20 borgum m.a. Addis Ababa og Lusaka. 26. október hélt hljómsveitin tvenna tón- leika í tónleikasalnum mikla í Tívolí í Kaupmannahöfn og var ég svo lán- samur að sækja þá báða. Ellington var þá heltekinn krabbameini og baksviðs voru læknar og hjúkrunar- fólk, súrefni og morfín. En magnaðri, glaðari og innblásnari en nokkur annar í bandinu gekk meistarinn á sviðið og spilaði einsog sá sem valdið hefur. „The show must go on,“ enda leið Ellington best í sviðsljósinu. „Draga sig í hlé til hvers," svaraði hann jafnan þegar hann var spurður um eldriborgaralífið. „Tónlistin er mín fylgikona," nefndist sjálfsævi- saga hans og allt lífið var hann á ei- lífu tónleikaferðalagi. „Allur heimur- inn er heimili mitt, en pósthólfið mitt er í New York,“ sagði hann stundum og eitt er víst að þótt hann væri bandarískur negri, fæddur í Was- hington, var heimurinn allur tón- leikahöll hans. Svo lengi sem tónlist er leikin er Ellington einn af meistur- unum. Vernharður Linnet KVENNAKÓRINN í Bolungarvík er eini kvennakórinn á Vestfjörðum. Kvennakórinn í Bol- ungarvík í tónleikaferð KVENNAKÓRINN í Bolungarvík heldur í tónleikaferð á Snæfells- nes um helgina og heldur þar tvenna tónleika. Þeir fyrri verða í Ólafsvíkurkirkju á morgun, föstudag, kl. 20.30 en hinir síðari í kirkjunni á Grundarfirði laug- ardaginn 1. maí kl. 17. Þá heldur kórinn tónleika í Hólmavíkur- kirkju sunnudaginn 2. maí kl. 15. Á söngskrá kórsins eru inn- lend sem erlend Iög sem tengjast annars vegar sumarkomunni, en hins vegar konum, ungum sem öldnum, íslenskum sem erlend- um, jafnt Maríu guðsmóður, sem sfldarstúlkunni Möggu á Siglu- firði og Bellu símamær, segir í fréttatilkynningu. Stjórnendur Kvennakórsins í Bolungarvík eru þær Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir, píanó- kennari og organisti í Bolungar- vík, og Margrét Gunnarsdóttir, píanóleikari og kórstjóri á fsa- firði. Kvennakórinn í Bolungar- vík er skipaður yfir 30 konum og hefur starfað í fjögur ár. Hann er eini kvennakórinn á Vest fjörð- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.