Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ef sverðið
er of stutt
EF SVERÐIÐ er of
stutt þá gakktu feti
framar. Þetta á við um
þá stöðu sem nú er uppi
aðeins örfáum dögum
fyrir kosningar til Al-
þingis sem verða sögu-
legar hver sem úrslitin
verða. Samfylking fé-
lagshyggjufólks er orð-
in til vegna víðtæks
vilja stórs hluta þjóðar-
innar til þess að til
verði öflug hreyfing
sem stendur fyrir jöfn-
uð, réttlæti, lýðræði og
frjálslyndi. Jöfnuð gegn
þeirri miklu misskipt-
ingu sem ríkir í samfé-
laginu, réttlæti gegn
því óréttlæti sem ríkir t.d. hvað
varðar kvótakerfíð, lýðræði gegn fá-
mennisstjórn hagsmunaaflanna og
frjálslyndi gegn því stjómlyndi sem
því miður einkennir allt of margt í
stefnumótun á öllum sviðum.
Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn-
ai-fiokkurinn og Vinstrihreyfingin -
grænt framboð (VG) eiga það sam-
eiginlegt að hafa öll gert Samfylk-
inguna að höfuðóvini sínum í kosn-
ingabaráttunni. Allir þessir flokkar
hafa vandað sig við að snúa út úr
stefnumálum Samfylkingarinnar.
Allir hafa þeir lagst á eitt að gera
Samfylkinguna tortryggilega. Allir
óttast þeir möguleikann á því að fé-
lagshyggjufólk sjái í gegnum póli-
tiskt moldviðri þeirra og skynji þá
miklu möguleika sem felast í sam-
stöðu vinnandi fólks á Islandi.
Ástæður helmingaskipta flokkanna
eru augljósar en það getur reynst
erfiðara að átta sig á
hvötum VG.
Sósíalískar
fjaðrir
Hvers vegna er ekki
augljóst hvað VG geng-
ur til? Jú, vegna þess
að þar skreyta menn
sig sósíalískum fjöðr-
um. Þar er róið á mið
rómantíkurinnar án
þess þó að menn þori
að kannast við það.
Þessi flokkur sem vill
láta kalla sig vinstri-
sinnaðasta flokk lands-
ins hefur ekki lagt fram
neina hugmyndafræði
fyrir tilurð sinni. Hann
hefur bara sent frá sér upphrópanir
og fyrirsagnir án skýringa og kemst
upp með það.
Stjórnmál
Með sterkri Samfylk-
ingu, segir Heimir Már
Pétursson, gæti kona
orðið forsætisráðherra
á Islandi í fyrsta skipti
í sögunni.
Er það t.a.m. sósíalismi að leggja
það eitt til varðandi kvótakei'fi í
sjávarútvegi að það eigi að skatt-
leggja gróða þess fámenna hóps sem
hefur eignarhald og erfðarétt á
þjóðarauðlindinni í sjónum, en
Heiinir Már
Pétursson
styðja kerfið sjálft? Er það í anda
sósíalisma að hafna fjölþjóðlegu
samstai-fi með hræðsluáróðri um að
með því glati íslendingar yfirráðun-
um yfir sjálfum sér? Hvað varð um
„öreigar allra landa sameinist"? Eða
eru menn fastir í hugmyndum um
„sósíalisma" Framsóknarflokksins í
einu landi?
Hver er munurinn á því að hafa
þá „skýru afstöðu" að Island eigi að
segja sig úr NATO, en það sé
skammlaust að vera í bandalaginu ef
ráðhen-astólar eru í boði - og þeirri
afstöðu að ekki skuli gengið úr
NATO á næsta kjörtímabili? Er
ekki eðlilegt að spurt sé til hvers
þetta er allt saman? Hvers vegna
neita menn sem boða samstöðu á
vettvangi verkalýðshreyfingarinnar
en hafna því að samstaðan sé
sterkasta vopnið á sviði stjórnmál-
anna?
Engin vinstri stjórn
A þeim mikilvægu tímamótum
sem nú eru framundan er brýnt að
félagshyggjufólk svari þeirri spurn-
ingu hverjum klofningstilraun VG
þjónar? Samkvæmt síðustu könnun
Félagsvísindastofnunar hefur hann
þjónað þeim sem ekki vilja að
vinstristjórn taki við að loknum
kosningum. Samkvæmt þeirri könn-
un eru núverandi stjórnai'flokkar
samanlagt með 41 þingmann eða
mjög drjúgan meirihluta. Líkurnar
á að þriggja flokka stjórn Samfylk-
ingarinnar, Framsóknar og VG
verði mynduð þegar þessi kostur er
uppi, eru engar.
Sjálfstæðisflokkurinn gæti hins
vegar átt fleiri kosti í stöðunni. Ef
Samfylkingin heldur áfram að tapa
fylgi í könnunum yfir til Sjálfstæðis-
flokks, Framsóknar og VG gæti
Sjálfstæðisflokkurinn valið að starfa
annaðhvort með Framsókn eða VG.
Enda fara skoðanir þessara flokka
saman í mörgum mikilvægum mál-
um. Það er t.d. aðeins sjónarmunur
á stefnu VG og Sjálfstæðisflokksins
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 43 t
í sjávarútvegsmálum og þeir eru al-
geriega sammála um hálendismálin
og í Evrópumálum. Þar má engum
steini velta og engu breyta. Og þeg-
ar úrsögn úr NATO er ekki úrslitar-
atriði varðandi stjórnarþátttöku
ætti fátt að vera í vegi stjórnar-
myndunar fái þessir flokkar mann-
skap til þess.
Ef sverðið er of stutt þá gakktu
feti framar. Nú ríður á að allir
stuðningsmenn samfylkingar félags-
hyggjufólks, jafnaðarmanna og
kvenréttinda gangi fetið fram til
baráttu á síðustu dögum kosninga-
baráttunnar. Samfylkingin berst
fyrir félagslegu réttlæti og hefur
myndað víðtæka samstöðu um þá
stefnu. Það hefur líka sýnt sig að nú-
verandi stjórnarflokkar hafa þau
mál ekki á forgangslista sínum, þótt
Framsóknarflokkurinn eyði nú öll-
um sínum kröftum í að breiða yfir
syndir sínar í þeim efnum. Hann
reynir að gera Blair úr Halldóri,
nýja miðju úr Framsóknarflokknum
kominn um langan veg frá hægi'i.
Staðan nú er því einstaklega skýr.
Enginn flokkur getur komið í veg
fyrir áframhaldandi stjórnarsetu
Sjálfstæðisflokksins nema Samfylk-
ingin. Kjósendur geta valið um að
ti-yggja honum 12 ára stjórnarsetu
eða félagshyggjustjórn undir for-
ystu Samfylkingarinnar. Með
sterkri Samfylkingu gæti kona orðið
forsætisráðherra á Islandi í fyrsta
skipti í sögunni. Það yrði glæsileg
byrjun á nýrri öld á Islandi. Sam-
fylkingin hræðist hins vegar ekki að
sitja í stjórnarandstöðu. Hún er afl
sem komið er til að vera á móti
Sjálfstæðisflokknum. Atkvæði greitt
Samfylkingunni er lóð á þá vogar-
skál að setja Sjálfstæðisflokkinn í
stjórnarandstöðu. Allir hinir flokk-
arnir styi’þja stöðu Sjálfstæðis-
flokksins. Ágæti kjósandi, valið er
þitt. Ég skora á þig að breyta rétt.
Höfundur skipar 11. sæti Samfylk-
ingarinnar i Reykjavik.
Vinstrihreyfingin -græntframboð
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
Opið í dag frá 12.00 til 18.30