Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 46
■3^6 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
(t
%
GARfil )R
S. 562-1200 562-1201
Skipholti 5
%
Nýtt, fullbúið draumarað-
hús til afgreiðslu strax
Vorum að fá í einkasölu nýtt,
stórglæsilegt raðhús á einni hæð m.
innb. bílskúr, samt. 140,8 fm. Húsið er
nýtt, ónotað og lyklarnir bíða eftir nýj-
um eiganda. Skipulag er þannig:
Rúmgóðar stofur, 2 svefnherb. (geta
verið 3), baðherb., eldhús, þvottaherb.
og forstofa. Góður bílskúr. Sérstak-
lega góður kostur fyrir fólk, sem er að
minnka við sig, en vill vera í góðu sér-
býli. Það þýðir ekki að slóra yfir
þessari eign.
Vantar strax
— staðgreiðsla í boði
Fyrir fjársterkan kaupanda sem er með staðgreiðslu í
boði vantar okkur sárlega einbýli, rað- eða parhús á
einni hæð m. bílskúr. Óskastaðsetning er í Hamrahverfi
en önnur hverfi eru skoðuð. Verðbil 12—20 millj.
Upplýsingar gefa Þórarinn í síma 899 1882 eða á Valhöll
í síma 588 4477.
Valhöll, fasteignasala, Síðumúla 27.
LYNGVIK
Fasteignasala - Síöumúla 33 Félag i^^istcignasala
Sími 588 9490 www.lyngvik.is
ÁSTÚN 2JA Falleg 64 fm íbúð á 1-hæð. Stórar svalir. Áhv. 2,0 m.
V. 6,0 m. (21035)
GNOÐARVOGUR 2JA Góð 63 fm íbúð á 2. hæð. Parket. Áhv. 3,3 m.
V. 6,0 (21030)
VESTURBERG 2JA Vel staðsett 64 fm ibúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Frábært útsýni.
V. 5,3 m (21020)
SKIPASUND 2JA Hlýleg og frábærlega vel staðsett rislbúð.Áhv. 3,3 m. V. 5,3
m. (21025)
BARÓNSSTÍGUR 3JA Góð 3ja-4ra herbergja 71 fm risíbúð. Frábær staðsetn-
ing. V. 6,4 m.(3915)
HRÍSMÓAR 3JA Snyrtileg 92 fm íbúð á 2. hæð f lyftuhúsi. (búðin snýr I suður og
vestur. Nýtt á baði. Áhv. 2,2 byggsj. V. 8,1 m. (3973)
HVERAFOLD 3JA Mjög falleg u.þ.b. 90 fm íbúð á 2. hæð 1 litlu fjölbýlishúsi.
Fallegar innréttingar. Áhv. 4,7 m. V. 8,8 m. (31027)
SAFAMYRI 2JA - 3JA Mjög sérstök fbúð á 1. hæð ásamt kjallara (samtals
132,1 fm). Eign sem þarfnast lagfæringar
KAMBASEL 3JA - 4RA Góð 102 fm íbúð á 1. hæð (jarðhæð) Sérþvottaher-
bergi f íbúð. Sérgarður. V. 7,9 m. (31029)
DUNHAGI 4RA Mjög falleg og rúmgóð 107 fm fbúð á 2. hæð I litlu
fjölbýlishúsi. Frábær staðsetning. Þrjú svefnherbergi.Áhv. 5,0 m. (húsbréf)
V. 9,8 m. (41036)
SOGAVEGUR - PARHÚS Nýkomið í söiu 135 fm parhús á einni hæð. Húsið er
timburhús á steyptum grunnl. Tvær fbúðir eru í húsinu. Eignin þarfnast lagfæringar.
V. 11,2 m. (91015)
ATVINNUHÚSNÆÐI
LYNGHÁLS Frábært 139 fm iðnaðarhúsnæði með stórri innkeyrsluhurð, breidd 4
m, hæð 3 m, og lofthæð u.þ.b. 3,2 m. (01023)
UMRÆÐAN
Þegar tilgangurinn
helgar meðulin
SÍRA Ragnar Fjalar
Lárusson, pastor em-
eritus, getur mín í
grein í Mbl. þann 20sta
apríl sl. Tilefnið er
grein mín í blaðinu
þann 14da apríl, þar
sem eg gagnrýni að-
komu og aðgerðir
NATO á Balkanskaga.
Síra Ragnar hefur það
ráð að gera mjer upp
skoðun um málefni,
sem eg fjalla ekki um í
nefndri grein, til þess
að geta birzt sjálfur í
skrúða hins góða,
hrærður af rjettlætis-
kennd og mannkær-
leika. Vel má hann ljóma sem slík-
ur, en það er gagnslítið fyrir um-
ræðu um varðveizlu rjettlætis og
friðar í heiminum að útbúa með
þessum hætti syndahafra til að
svala sjer á með vandlætingu, því
þá er stutt í hatursáróður, af þeim
toga, sem eg gagnrýni raunar í
framhjáhlaupi í áðurnefndri grein.
Eg þakka hins vegar tilefni til að ít-
reka varnaðarorð við framferði
NATO og kalla eftir málefnalegi-i
umræðu um það, hvert framtak
NATO á Balkanskaga muni leiða
heimsbyggðina.
Ófriður NATO gagnvart Serbum
hefur verið rjettlættur með því, að
eitthvað hafí þurft að gera til þess,
að stöðva glæpsamlega og óverj-
andi meðferð þeirra á Kosovo-Al-
bönum, júgóslavneskum borgurum.
Um það er ekki deilt, að eitthvað
þurfti að gera. Agreiningurinn er
um það einkaframtak, að NATO
skyldi beitt án samráðs við SÞ og
án umboðs Öryggisráðsins. Agrein-
ingur er líka um aðferðina, fát-
kenndar og vanhugsaðar hernaðar-
aðgerðir, sem til þessa hafa ekki or-
sakað annað en að fylkja Serbum
um þá glæpamenn, sem ríkinu
stjórna, sem svo að sínu leyti hafa
tekið tilefni af árás NATO og neytt
færis til verstu illvirkja
í Kosovo. Alþjóðasam-
fjelagið hefur verið
seinþreytt til valdbeit-
ingar um innanríkis-
mál sjálfstæðra, full-
valda ríkja þótt enginn
hörgull hafí verið á til-
efni til þess. Kínversk
stjórnvöld hafa staðið
að hryðjuverkum inn-
an landamæra sinna,
svo sem í Tíbet eftir
hernám landsins og
Indónesar á Austur-
Tímor, sem einnig er
hernumið, án þess að
gripið væri til aðgerða.
Súdanir herja á
kristna íbúa landsins. Tyrkir níðast
á Kúrdum. Israelsmenn á Palest-
ínumönnum. Svona má lengi telja.
Það hefur hins vegar óíyrirsjáan-
legar afleiðingar að virða ekki full-
veldi ríkja, hversu glæpsamlega,
Kosovo
Ágreiningurinn er um
það einkaframtak, seg-
ir Geir Waage, að
NATO skyldi beitt án
samráðs við SÞ.
sem stjórnendur þeirra leika fólkið.
Þess vegna er minna að gert en efni
standa til, úrræðin seinvirk og örð-
ugt að koma þeim við, en um vilja
alþjóðasamfjelagsins er ekki að ef-
ast. Menn verða að vanda sig, fara
að settum reglum og forðast það að
setja allt í bál og brand og gera illt
verra, þótt þeim ofbjóði. Þetta hef-
ur NATO hins vegar nú gert austur
á Balkanskaga. Þar hóf NATO
árásarstríð utan við allan alþjóðleg-
an rjett, skóp aðstæður til illvirkja,
sem aldrei verða bætt og hættuá-
stand, sem dregið getur til nýs
Geir Waage
Arnarsmári — glæsil. útsýni
Vorum að fá í einkasölu stórglæsilega ca 80 fm íb. m. sérinngangi
á 3. hæð (efstu) í þessu fallega nýl. fjölb. á fráb. útsýnisstað.
Merbau parket. Þvottaaðst. í íbúð. Stórar suðursvalir, glæsilegt
útsýni. Áhv. húsbr. 4,2 m. Verð 8,6 millj.
Valhöll, fasteignasala, Síðumúla 27, sími 588 4477.
30 ára reynsla
heimsófriðar. Vitaskuld þurfti eitt-
hvað að gjöra. Það þurfti að vanda
sig, hafa fyrirhyggju, taka mark á
reynzlunni, sögunni. Það eitt mátti
ekki gjöra sem gjört var; að ana út í
ólögmætt árásarstríð með aðferð-
um, sem líkja mætti við heilaupp-
skurð með slaghamri og grjót-
meitli. Vel má vera, að meinsemdin
verði í brottu numin, en verður eitt-
hvað eftir af sjúklingnum?
Gætum svo að því, sem snýr að
oss sjálfum, Islendingum. Við end-
urreist sjálfstæðs þjóðríkis á Is-
landi var það lagt til grundvallar
utanríkisstefnu Islendinga, að gætt
skyldi hlutleysis. Landið var án
hervarna. Þetta tvennt varð til
þess, að forystumenn Islendinga
vönduðu mjög samskipti vor við
aðrar þjóðir á viðsjárverðum tímum
í aðdraganda síðari heimsstyrjald-
arinnar. Með stolti minnumst vjer
þess, hversu einarðlega tókst að
varðveita hlutleysi landsins unz
hernám Breta batt enda þar á.
Hernám landsins varð þó ekki til
þess að horfið væri frá áðurnefndu
grundvallarviðhorfi. Islendingar
sögðu Möndulveldunum aldrei stríð
á hendur. Þrátt fyrir samúð Islend-
inga með málstað Bandamanna
gættu stjórnvöld hlutleysisins. Þeg-
ar vjer gjörðumst stofnaðilar að
NATO var það gjört að vandlega
athuguðu máli og í trausti þess, að
ákvæði Atlanzhafssáttmálans
hjeldu um, að bandalagið gæti ekki
hafið ófrið að fyrra bragði, heldur
skyldi öryggisráði SÞ trúað fyrir
umboði alþjóðasamfjelagsins til að
beita valdi til varðveizlu friðar og
stöðva árásarstríð. Þess var líka
gætt, þegar sigurvegararnir í síðari
heimsstyrjöldinni stofnuðu SÞ. ís-
land er ekki stofnaðili að SÞ vegna
þess að fyrir lá umboð handa sam-
tökunum til að beita hervaldi að
fyrra bragði. íslendingar hikuðu
við að eignast aðild að slíku. Eg
undrast það, að hvorki frjettamenn
nje heldur sagnfræðingar skuli
hafa tekið tilefni af því, að grund-
velli utanríkisstefnu hins íslenzka
nútímaríkis hefur verið brugðið, til
þess að rifja það upp fyrir þjóðinni
á hverju hún var reist og hvernig
hún var varðveitt, þar til nú. Menn
þegja, af því að þeir vita sem er, að
hjer brást hyrningarsteinn. For-
ystumenn NATO hafa gengið á þá
grundvallarreglu Atlanzhafssátt-
málans að vera varnarbandalag.
Þeir hafa brotið ákvæði hans um,
að virða sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna. Þeir hafa horfið aftur til
þeirrar aðferðar í alþjóðamálum að
ríki taki sjer sjálfdæmi í málum og
láti hervald skera úr um niður-
stöðu. Þetta er aðferðin sem tvíveg-
is hefur valdið heimsófriði á öldinni,
aðferðin, sem þjóðir heims höfnuðu
með stofnun NATO og SÞ. Eg full-
yrði, að enginn íslenzkur stjórn-
málamaður hefur lagt það til, að út
á þessar gamalkunnu slóðir yrði
lagt. Þeir hafa dregizt með, van-
megna. Og þá hefur skort djörfung-
ina til að standa á móti óráðinu,
standa á Atlantzhafssáttmálanum.
Síra Ragnari Fjalari Lárussyni
er það vel gerlegt að fljúgast á við
nátttröll í ellinni og er sú iðja ólíkt
þjóðlegri norður hjer en að fást við
vindmyllm1. Honum kann að þykja
meinalaust að láta tilganginn helga
meðulin, en sú aðferð ræður vondri
niðurstöðu sje hún höfð þar, sem
ráðast örlög manna og lýða.
Höfundur er sóknarprestur í Reyk-
holti.
Hljóðeinangrunargler
GLERVERKSMIÐJAN
Sam\/et*k
Eyjosandur 2 • 850 Hella
« 487 5888 • Fax 487 5907