Morgunblaðið - 29.04.1999, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 47
UMRÆÐAN
Fordómar nærast
á vanþekkingu
ENGINN veit sína
ævina fyrr en öll er,
Aldrei hefði ég átt
þess von að eiga eftir
að skrifa grein í dag-
blað og síst af öUu
grein um pólitík. Eg
hef að vísu undanfarin
misseri verið virk á
þessu sviði sem próf-
arkalesari fyrir sjón-
dapran eiginmanninn,
Jón Sigurðsson, sem
kenndur hefur verið
við Grundartanga, en
virk þátttaka í umræð-
unni hefur verið mér
fjarri. I þessu starfi
mínu og í gegnum sím-
töl áhugasamra lesenda Mbl., sem
ég hef fylgst með á heimilinu, hef
ég ekki komist hjá því að verða
býsna fróð um afleiðingar kvótaút-
hlutunarinnar, kvótagróðann, lok-
un útgerðar fyrir nýliðun, vanda
sjávarbyggðanna og brottkast á
fiski í hafi, svo eitthvað sé nefnt,
en það eru ekki ástæðurnar, sem
knýja mig til að skrifa þessa grein.
Eg hef orðið þess vör, að fjölda
kvenna og raunar karla líka, finnst
sér ómögulegt að kjósa, hvort
heldur sem er flokk eða lista, sem
Sverrir Hermannsson leiðir. Mér
þykir þetta viðhorf bera vott um
mikla fordóma og það knýr mig til
að leggja þar orð í belg. Sverrir
Hermannsson er að sjálfsögðu um-
deildur maður, rétt eins og vænta
má um hvern þann mann, sem eitt-
hvað kveður að. Á honum hafa
brotið miklar öldur
umtals og hneykslun-
ar og sjálfur hefur
hann viðurkennt,
hvernig hann ekki
gætti sín, þegar hann
kom inn í þá veröld og
þær hefðir, sem fyrir
hans tíma höfðu orðið
til í Landsbankanum.
En þaðan fór hann,
eins og það gerðist, og
þegar upp var staðið
stóð ekkert upp á
hann, að bestu manna
yfirsýn.
Sjálf hef ég nú
þekkt Sverri og konu
hans í hálfan annan
áratug, að mestu að sjálfsögðu fyr-
Málstaðurinn
Illa grundaðir fordóm-
ar gagnvart Sverri
Hermannssyni, segir
Bergljót Jónatansdótt-
ir, eiga ekki að hafa
áhrif á ákvörðun kjós-
enda um hvað þeir gera
í kjörklefanum.
ir milligöngu bónda míns, en í leið-
inni hefur hann orðið persónulegur
vinur okkar hjóna. Eg fylgdist
með því álengdar, hversu vel hann
sem ráðherra iðnaðarmála treysti
Jóni fyrir málefnum járnblendifé-
lagsins. Ég frétti af því jafnharðan
heima á Grandartanga, hvernig
Sverrir og afskipti hans voru lykil-
atriði til að gera Jóni og sam-
starfsfólki hans mögulegt að
bjarga jámblendifélaginu frá
gjaldþroti 1992-93. Við eldhús-
borðið heima á Grandartanga fékk
ég að vita hversu sú vel heppnaða
björgun hafði verið ábatasöm fyrir
Landsbankann, eins og verðugt
var. Sögur af þessu tagi vora fleiri.
Á persónulegu nótunum fylgdist
ég með því hversu mikill vinur
vina sinna Sverrii’ er í smáu sem
stóra. Hann er einstaklega fróður,
minnugur, málsnjall og skemmti-
legur félagi í góðra vina hópi.
Allt skiptir þetta máli, en er ekki
höfuðatriðið. Það er málstaðurinn,
sem Sverrir hefur haft manndóm í
sér og þor til að ganga fram fyrir,
sem öllu skiptir. Allir þeir, sem á
annað borð fylgjast með greina-
skrifum í Morgunblaðinu og hafa
þar lesið það, sem Sverrir, Jón og
aðrir hafa skrifað í þeim sama dúr,
vita hversu vel málstaðurinn, sem
Frjálslyndi flokkurinn stendur fyr-
ir, hefur verið rökstuddur. Illa
grandaðir fordómar gagnvart
Sverri Hermannssyni eiga ekki að
hafa áhrif á ákvörðun kjósenda um
hvað þeir gera í kjörklefanum, þeg-
ar þar að kemur. Sverrir hefur
gengið fram fyrir skjöldu og þannig
búið til farveg fyrir atkvæði okkar,
sem þolum engum stjómmála-
manni það, að gefa fámennum hópi
útvalinna sameign þjóðarinnar í
hafinu til frambúðar. I þessu mikil-
væga starfi á Sverrir skihð stuðn-
ing, en ekki ómæta fordóma.
Höfundur er húsmóðir í Reykjayík.
Austurbrún — Laus strax
Vorum að fá í einkasölu góða ca 80 fm 3ja herbergja íbúð
á jarðhæð með sérinngangi, útgengt út í suðurgarð frá
stofu. íbúðin er öll nýstandsett. V. 7,6 millj.
Lundur fasteignasala, Suðurlandsbraut 10,
Reykjavík, sími 533 1616, fax 533 1617.
DRESS
MANN
LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK
Ath Sendum í póstkröfu. Grænt numer 800-5/30. Sími 562-9730. Fax 562-9731