Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 49
UMRÆÐAN
Ný ríkisstj órn
HIÐ nýja pólitíska
landakort Evrópu er
líkast risavöxnu rauðu
rósabeði enda fara lýð-
ræðisjafnaðarmenn
með völd um álfuna
nær gjörvalla.
Kjósendur í stærstu
ríkjum Evrópu, Þýska-
landi, Frakklandi,
Bretlandi og víðar,
treysta forystumönn-
um lýðræðisjafnaðar-
manna best til að leiða
þá inn í nýja öld. Þó
ber skugga á því að í
fámennri verstöð nyrst
við ysta haf hvílir
drungi íhaldsins yfir
líkt og draugur úr forn-
um haug.
Markmið lýðræðisjafnaðar-
manna
Andstætt þjóðernissameignar-
sinnum vinstri og þjóðemisíhaldi
hægra stefna lýðræðisjafnaðar-
menn ekki á alræði eins manns, rík-
is, auðmagns eða flokks heldur
byggja völd sín á sívirku lýðræði.
Markmið lýðræðisjafnaðarmanna
eru því lýðræðisleg. Meginverkefni
lýðræðisjafnaðarmanna eru þjóðfé-
lagslega réttlát skipting eigna og
tekna samfara félagslegum stuðn-
ingi. Lýðræðisjafnaðarmenn telja
að „blandað hagkerfi“ þar sem sam-
an vinna hinn „frjálsi markaður“ og
lýðræðisleg beiting ríkisvalds varð-
veiti lýðræðið best. Þannig er
tryggt að ríkisvaldið verður ekki að
alræðisvaldi og jafnframt að stórir
viðskiptaaðilar eða
fjármagnseigendur
þrengi að lýðræðinu.
Áróður íslenska
íhaldsins um væntan-
lega fjárhagsstjóm lýð-
ræðisjafnaðarmanna er
fabúla og hefur forsæt-
isráðherra nefnt þar
háar tölur án þess að
færa nein rök máli sínu
til stuðnings. Ekki er
hins vegar vitað til þess
að forsætisráðherra
hafi haft á hendi neinn
einkarekstur á sinni
starfsævi en það hafa
hins vegar margir af
liðsmönnum lýðræðis-
jafnaðarmanna gert.
Einnig hafa lýðræðisjafnaðarmenn
farið öruggum höndum um opinber-
an rekstur. íslenskir lýðræðisjafn-
aðaimenn em nefnilega annar hóp-
ur en sá er finna má í meintum
fræðibókum „frjálshyggju" sem
Stjórnmál
Hér er fram kominn,
segir Halldór E. Sigur-
björnsson, fjármálaráð-
herra lýðræðisjafnaðar-
manna.
málar heiminn í tveim stjórnmála-
stefnum: sameignarsinnar til vinstri
- „frjálshyggja" (les: stórkapítal-
ismi) til hægri. Sennilega óttast
íhaldið helst afnám íhaldsbitlinga (á
íhaldsmáli, „stuðningur við einka-
framtakið") og stéttskiptingu: fá-
tækir - ríkir (á íhaldsmáli, „stétt
með stétt“).
Nýr fjármálaráðlierra
Dr. Ágúst Einarsson, þingmaðm-
og hagfræðiprófessor, hefur í anda
þeirrar nútímahagfræði er ryður sér
braut í flestum Evi’ópulöndum og
hljómar nú í kennslusölum hagfræði-
deildar Chicago-háskólans í Banda-
ríkjunum lagt fram gagnmerkar
efnahagstillögur að undanfórnu. í
stuttu máli leggur hann til stórkost-
lega lækkun tekjuskatts einstaklinga
og fyrirtækja sem mætt verður með
m.a. veiðileyfagjaldi. Jafnframt hef-
ur hann uppgötvað og skilgreint nýj-
an meinvætt í íslensku efnahagslífi,
„Krossfiskinn“, sem m.a. leiðir til
óheppilegra krosstengsla andstæðra
hagsmunahópa samfara viðskiptaá-
rekstrum örfán’a stórstjómenda í ís-
lensku samféiagi sem ekki fara sam-
an við kröfur hluthafa um hámarks-
arð. Þessu til viðbótar hefur dr.
Ágúst vakið máls á aukningu at-
vinnulýðræðis í þágu starfsmanna
fyrirtækja og eigenda þeirra. Þá hef-
ur hann komið fram með skýrar til-
lögur um réttláta nýtingu þjóðar-
eignar í hafinu. Hér er því fram
kominn fjármálaráðhen’a lýðræðis-
jafnaðarmanna. Það er kominn tími
til fyrii’ margt löngu að „Héðinn
Valdimarsson" fái að nýju að starfa
af fullum krafti í þágu fólksins í land-
inu.
Höfundur er lögfræðingur.
Halldór E.
Sigurbj örnsson
Styðjum réttar
breytingar
SAMFYLKINGIN
er aflið sem breyta
mun íslensku þjóðfé-
lagi. Hvernig sem
kosningarnar fara
munu áherslur Sam-
fýlkingarinnar í kosn-
ingabaráttunni verða
miðdepill þeirra þjóð-
félagslegu umræðna
sem fram munu fara á
næsta kjörtímabili.
Þeim mun betri sem
árangur Samfylking-
arinnar verður þeim
mun hraðari breyting-
um náum við fram í
þágu þeirra sem Sam-
fylkingin berst fyrir.
Ólund og pirringur
Talsmenn þeirra tveggja alvöru-
flokka, sem bjóða fram gegn Sam-
Samfylkingarinnar sé
heimskulegur, hann
sé tóm vitleysa. Þegar
þeh’ sem hátt hafa
hreykt sér á priki
gera sig bera að svo
alvarlegum hæfileika-
skorti til málefnalegr-
ar umræðu er von að
fólki blöskri. Eru
þetta mennimir sem
eiga að leiða þjóðina
vandrataðan veg inn í
nýja öld?
Jafningi eða ofjarl?
Samfylkingin er
miðdepill yfirstand-
andi kosningabaráttu.
í tilurð hennar vaknar fyrsta hald-
bæra vonin um mótvægi gegn al-
ræði Sjálfstæðisflokksins. Gegn
honum hafa hingað til ekld dugað
Sveinn
Kristinsson
dreifar sundraðra smáflokka. Og
þeir munu enn síður gagnast til af-
reksverka í framtíðinni. Sjálfstæð-
isflokkui'inn skiiur ekkert nema
jafningja sinn eða ofjarl. Hann
kann að beita hnefaréttinum við
hvem þann sem er honum van-
máttugri, enda slík framkoma í fúll-
komnu samræmi við skilning hans
á eðlilegum samskiptalögmálum.
Allir gegn Samfylkingunni!
Við sem aðhyllumst hugsjónir
jafnaðar og félagshyggju höfum
verk að vinna. Allir flokkar sjá
sinn helsta andstæðing í Samfylk-
ingunni. Kosningarnar í vor snúast
því um Samfylkinguna og munu
verða fyrsta prófraun þessarar
miklu hreyfingar fólksins. Hún
mun standast það próf með glæsi-
brag. Þegar vorverkunum lýkur
tekur við gróandinn og síðan upp-
skeran. Það er mín trú að þá komi
í ljós að Samfylkingin hafi græn-
asta fingur.
Samfylkinguna fyrir samtíðina
og framtíðina!
Höfundur er forseti bæjurstjómar
Akraness.
Ár aldraðra
Jenna Jensdóttir
„Vika
bókarinnaru
ÞÓTT blóðugar ógnir í heimi særi sálir aldraðra sem annarra,
hefur verið bjart yfir í vitund þeirra er enn halda óskertri
hugsun sinni. Öllum sem eiga langa ævi að baki er ljóst að bók-
in er einn sterkasti miðillinn. Og þegar Vika bókarinnar kemur
eins og skært ljós inn í eril daganna með gi’ip til allra átta vekur það
ómælda gleði og vonir þeim öldruðum sem enn fýlgjast með í hugsun.
Hér verður aðeins minnst á örlítið brot af því sem þjóðinni barst
þessa menningardaga - og þá frá sjónarhorni þess sem lifað hefur
langa ævi.
Sumargleði Ibby í Norræna húsinu á sumardaginn fyrsta, þar sem
bernska og æska voru leidd fram með furðulega þroskuð og djúphugs-
uð ljóð sín, var einstaklega vel
Hringrás í mati á eigindum
bókmennta og lista er eitt
af undrum lífsins. Sá tími
er nú liðinn að sori og
lægstu hvatir mannskepn-
unnar voru helstu gæluefni
í barna- og unglingabókum.
Svo hart var að kveðið að
reynt var að ýta til hiiðar
þeim bókum er lögðu
áherslu á siðvit í bók-
menntum sem þessum við-
kvæma aldri voru ætlaðar.
heppnuð í tali og tónum, svo un-
un var á að hlýða.
Hápunktur vikunnar var Dag-
ur bókarinnar sem helgaður er
Nóbelsskáldi okkar Halldóri
Laxness og er orðinn fastur liður
í menningu okkar á afmælisdegi
hans, 23. apríl.
Ráðstefna Þjóðarbókhlöðunn-
ar snart vitund hinna öldruðu.
Þeirra var kannski mest gleðih
að lifa þá stund að Sjálfstætt fólk
var valin sem bók aldarinnar.
Skáld meðal stærstu skálda al-
heims á þessari öld. Aldraðir
muna tímana tvenna í bók-
menntaumræðu fyri’ á öldinni. Því var þeim stundin heilög, sem alltaf
höfðu hrifist. Það hefur kannski fleirum farið svo, að tár sóttu í augu
þegar Auður Laxness sást taka við blómvendi - hennar hlutur er ómet-
anlegur. Ágætir, fróðlegir fýrirlestrar höfðu verið fluttir. (Leitt að geta
ekki verið viðstödd.)
Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir í Gerðubergi 24. apríl
var til sóma þeim er að stóðu. Hún var líkt og framhald af sumargleð-
inni í Norræna húsinu, enda sami stjórnandi.
Hér voru það hinir fullorðnu er leiddu áheyrendur inn í efni og til-
veru þessarai’ bókmenntagreinar í nútímanum. Aftur kemur það að
vera aldraður og hlýða á fyrirlesara á besta starfsaldri - finna hve mikil
hlýja og heilindi gagnvart því sem börnum og unglingum er boðið upp á
í bókmenntum birtist í öllu því er þeir höfðu fram að færa.
Hringrás í mati á eigindum bókmennta og lista er eitt af undrum lífs-
ins. Sá tími er nú liðinn að sori og lægstu hvatir mannskepnunnar voru
helstu gæluefni í bama- og unglingabókum. Svo hart var að kveðið að
reynt var að ýta til hliðar þeim bókum er lögðu áherslu á siðvit í bók-
menntum sem þessum viðkvæma aldri voru ætlaðar. Þessum fyrirlesur-
um var ljóst að ekkert á að fela í lífsferlinu fyrir ungum hópi lesenda,
en skilningur og réttlætiskennd sem hér komu fram settu mark sitt á
ágæta ráðstefnu.
Skrýtið er - en einhvern veginn samhljómaði það kjarnanum í hinni
stórmerku bók Umhverfíng eftir Pál Skúlason, rektor háskólans, sem
vonandi er að allt hugsandi fólk hafi lesið - einnig aldraðir.
Askorun
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi frá Bárði G.
Halldórssyni, formanni Samtaka
um þjóðareign:
„Eftir að Samtök um þjóðar-
eign hófu umræðuna um gjafa-
kvótann og lénsveldið hafa allir
stjórnmálaflokkar lýst yfir vilja
til einhverra breytinga. Frjáls-
lyndi flokkurinn er eini flokkur-
inn sem lýst hefur yfir afdráttar-
lausri andstöðu við gjafakvótann,
enda þótt allir aðrir reyni með
ýmsu móti að kalla til sín atkvæði
þeirra sem ekki sætta sig við nú-
verandi ástand. Ég skora því á
alla þá sem stutt hafa baráttu
Samtaka um þjóðareign að styðja
Frjálslynda flokkinn í kosningun-
um núna og láta þar með í ljós
stuðning við málstaðinn. Þótt illa
hafi tekizt til um forystu og fram- -
boð flokksins að dómi margra
sem ekki vilja una núverandi fisk-
veiðistjórn - er þó alltaf sá kostur
til að kjósa flokkinn en strika yfir
frambjóðendur. Nú verða málefni
að vera ofar mönnum. Það kemur
aftur dagur. Þá má vel vera að
betur takizt til við að koma sam-
an frambærilegri forystu fyrir
frjálslyndan flokk á íslandi.
Kosningar
Kosningarnar í vor
snúast um Samfylking-
una, að sögn Sveins
Kristinssonar, og munu
verða fyrsta prófraun
þessarar miklu hreyf-
ingar fólksins.
fylkingunni geta ekki leynt
hræðslu sinni og pirringi gagnvart
málflutningi Samfylkingarinnar.
Halldór Ásgrímsson setur upp
steinandlitið og fjallar af ólund en
engum rökum um tillögur Sam-
fylkingarinnar. Davíð Oddsson,
sem hefur talið sig ósýnilegan eins
og guð almáttugan, getur ekki
leynt hroka sínum og vaxandi pirr-
ingi. Einu athugasemdirnar, sem
þessi sjálfskipaði landsfaðir lætur
frá sér eru þær að málatilbúnaður
I dag í Lyfju Hamraborg frá kl 13-1 8.
ASTMAI
Öndunarmælingar á staðnum
Sérfræðingar veita upplýsingar um astma og
notkun allra helstu astmalyfja
*
LYFJA
- Lyf ó lágmarksveröi
Lyfja Hamraborg 11, sími 554 0102
GlaxoWellcome
Kjöriö tækifæri til aö fræöast betur
um astma, astmalyf og rétta notkun
lyfjaformanna.
•fy