Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 66
86 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
I
30 ára reynsla
Hljóðeinangrunargler
GLERVERKSMIÐJAN
Samverk
Eyjasandur 2 • 8SO Hella
» 487 5888 • Fax 487 5907
öj[ðr„Att9fl
SMIÐJUVEGI 30
SÍMI5871400
Bílavarahlutaveislun
& bílaverkstæði
• Bónvörur
• Hreinsiefni
• Aukahlutir
A 8-20 MÁNUDAGA-FÖSTUDAGA
110-16 LAUGARDAGA
HYUNDAI - MITSUBiSH! - NISSAN - SUBARU - TOYOTA - VOLKSWAGEN
Stöðnun er dauði
SKAR Guðjónson saxófón-
leikari hefur verið stór þáttur
í „improve groove“-kvöldun-
um á veitingastaðnum rex síðustu
tvo mánuðina. Óskar hefur spunnið
þar á tenór- og sópransaxófón með
mörgum af fremstu plötusnúðum
landsins svosem Alfred more, Mar-
geiri, Árna Einari og Andrési.
Plötusnúðarnir hafa lagt Óskari til
takta og bassalínur úr flestum
kimum elektrónískrar tónlistar.
I kvöld er væntanlegur til lands-
ins frá London maður að nafni Matt-
hew Anderson. Sá er mikill gúrú í
drum & bass fræðum og ákaflega
fær hljóðblandari. Matthew spilar
með Óskari á rex í kvöld og Óskar
sló á þráðinn til hans til að hita hann
upp fyrir kvöldið.
- Hæ Matthew þetta er Óskar.
„Sæll Óskar hvemig hefur þú
það?“
- Ég hef það fínt. Mig langar til
að heyra aðeins um þinn tónlistar-
lega bakgrunn, svona til að fá til-
fínningu fyrir því hverju ég má bú-
ast við frá þér á morgun?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÓSKAR Guðjónsson spjallaði
við Matthew Andersson um tón-
leikana á rex í kvöld.
„Já ég hef verið að plötusnúðast
siðan ég var unglingur. Eg byrjaði á
ferðadiskóteki 1987. Þá spilaði mað-
ur pönk og diskó jöfnum höndum.
laprairie
I SWITZERLAND
Andlitsmeðferðir
Lúxus í húðsnyrtingu
Einstök áhrif
Tafarlaus árangur
KYNNING
í dag, fimmtudag.
Spennandi nýjungar
Fagleg ráðgjöf
Vertu velkomin
Snyr/is/ofon
jKancfý
Laugavegi 15, sími 552 1511
Andi New Order sveif yfir vötnum.
Síðan kom ,Acid house“ um ‘89 og
maður teygaði það drjúgt. Árið 1991
spilaði ég í „rave“ partíum víða og
tók þátt í danstónlistarsprengjunni í
Bretlandi. Tveimur árum síðar byrj-
aði danstónlistin að klofna og það
mynduðust tveir meginstraumar
sem hafa hlotið ýmis nöfn en við get-
um kallað þá „hardcore" sem er
harðari og hraðari endinn og „hou-
se“ sem er mýkra og melódískara.
Eg lent á harða endanum og drum &
bass dæmið er þar inní, ef menn
vilja endilega vera að skilgreina, þú
skilur hvað ég er að fara.“
- Já já svona tónlistarsagnfræði.
En hvað ertu aðgera núna?
„Eg er að spila á Movement og
Plastik people og á fleiri klúbbum.
Ég spila núna djassaða drum & bass
tónlist, sem er frekar svalt ef ég á að
vera hreinskilinn."
- Hvað lýsh■ djass og drum & bass
tónlist best?
„I drum & bass er allt leyfilegt.
Það er frelsið sem tengir þessar
stefnur samar, miklu frekar en að
þær hljómi á einhvern hátt líkt. Þeg-
ar djass og drum & bass mætast er
samt eins og það sé eitthvað sem
smelli, einhver tilfinning. Hvað
finnst þér annars, er eitthvað vit í
því sem ég er að segja?“
- Já það er heilmikið vit í þessu.
Hlustarðu mikið á hefðbundinn
jass?
„Já já ég geri það, Miles Davies,
John Coltrane og Ornette Coleman.
Hvernig tónlist heldurðu að Davies
og Coltrane væru að gera í dag?
Kannski drum & bass? Já maður
drum & bass.“
- Undirbýrðu þig eitthvað fyrir
svona kvöld eins og á fímmtudaginn?
„Nei ekki beint, ég reyni bara að
nema stemminguna og spila útfrá
því. Hvernig fólk mætir annars á
þessi kvöld, er fólk opið fyrir nýjum
hlutum.“
- Já ég myndi segja það, ég hef
fengið rosalega mikið útúr því að
spila þarna, það er frekar svalt lið
sem mætir og það er óhætt að gefa
þeim eitthvað skemmtilegt. En Matt
hvernig verður dagskráin upp-
byggð?
„Hefðbundin, held ég, fyrst rólegt
og svo sjáum við hvað gerist, þetta
gæti alveg endað í miklu stuð dóti.“
-Einmitt, heyrðu Matt eitthvað
að lokum?
„Já ég hlakka til að koma og spila.
Allir sem eitthvað geta eiga að koma
að hlusta á okkur á rex. Eg vona að
við getum komið fram með eitthvað
nýtt, fólk á alltaf að láta ögra sér,
stöðnun er dauði.“
Margir litir
og gerðir
ÚTILÍF
Glæsibæ
símar 581 2922 og 553 0350