Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 36

Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Margmiðlunarhönnun Næsta haust verður opnuð ný listnámsbraut í margmiðlunarhönnun í Borgarholtsskóla í Reykjavík. María Hrönn Gunnarsdóttir frétti að þetta væri í fyrsta sinn sem íslensk ungmenni fá tækifæri til —————————— - - ■ - 7 ' - ' að nema þessi fræði á einum og sama staðnum. A sama stað er einnig í boði nám við félagsþjónustubraut. N ámsbraut í marg- miðlunarhönnun 0 Góður undirbúningur fyrir listahá- skóla eða aðra sértæka skóla. 0 Kennt verður í einum 32 manna bekk. Tækja- og hugbúnaður er dýr. Margmiðlunarhönnun er skilgreint innan lista- sviðs nýju námskrár- innar ásamt myndlist, almennri hönnun og listiðnhönn- un,“ segir Hlynur Helgason, yfir- maður námsbrautarinnar, og bætir við að skólinn hafi fengið foiTnlegt leyfi nú í mánuðinum til að bjóða upp á þessa nýju námsleið. Náminu er deilt niður á þrjú ár og líkur því með listaframhalds- skólaprófi. Þeir nemendur sem áhuga hafa geta hæglega bætt við sig eins árs bóknámi þar sem þeir leggðu stund á almennar náms- greinar og tækju að því loknu stúd- entspróf. Námið í margmiðlunar- hönnuninni veitir ekki almenn rétt- indi inn í háskóla heldur sértæk réttindi inn í listaháskóla og aðra sérskóla þar sem margmiðlun eða sérgreinar innan hennar eru kenndar. Námið myndi t.d., að sögn Hlyns, nýtast vel sem undir- búningur fyrir nám í grafískri hönnun, ljósmyndun og kvik- myndagerð auk margmiðlunarinn- ar. Fjölbreytt viðfangsefni Margmiðlunamámið skiptist í al- mennan kjama sem nemendur taka með nemendum annarra brauta, fóg þar sem listir og menn- ing em kenndar, sjónlistir og að lokum sérgreinar margmiðlunar- hönnunar. Sérgreinamar skiptast í verklega áfanga, bóklega áfanga og frjálst val. Markmiðið er að veita nemendum almenna undirstöðu í skilningi á menningu, listum og tjáningarmöguleikum mannsins, undirstöðu teikningar, lita- og formfræði og merkingar og mark- aðsfræði. Þá verður fjallað um miðlana í sögulegu samhengi og út frá virkni þeirra í samfélaginu. í verklega hluta námsins kljást nem- endur við tæknina með gagnrýnið GARÐSLÖNGUR SLÖNGUTENGI GARÐÚÐARAR ÚÐAKÚTAR ÞÓR HF Reykjavík - Akuroyri Reykjavík: Ármúta 11 -Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - Simi 461-1070 viðhorf til miðlanna og þess efnis sem flutt er um þá að leiðarljósi, eins og segir í bæklingi sem nýbúið er að prenta um námið. I þessum hluta námsins geta nemendur hvort heldur sem er sérhæft sig innan ákveðins sviðs margmiðlun- arinnar eða aflað sér þekkingar á þeim öllum. „Við reiknum með að þeir nemendur sem vilja sérhæfa sig geti farið í fyrirtæki og fengið þar bæði aðstoð og gagnrýni. Þar fá þeir einnig að kynnast iðnaðar- tækjum sem eru auðvitað mun stærri en þau sem við verðum með,“ segir Hlynur. Nemendur af öðrum námsbraut- um geta tekið allt að 24 einingum í valáfanga innan margmiðlunar- hönnunar en 140 einingar þarf til stúdentsprófs. Hlynur segir að þekking og fæmi í félagfræði, ensku, raun- greinum og skapandi hugsun komi nemendum vel en að af hálfu skól- ans sé lögð á það áhersla að nem- endumir séu ólíkir og hafi fjöl- breyttan bakgrunn. AUKIN samskipti þjóða á öllum sviðum gera vaxandi kröfur til kunnáttu og hæfni í erlendum mál- um. Samkeppnisstaða Islendinga jafnt innan lands sem utan ræðst m.a. af því, hve vel við erum í stakk búin að koma íslenskum afurðum og íslensku hugviti á framfæri við út- lendinga, hve góða þjónustu við er- um fær um að veita á erlendum málum og hve vel við þekkjum hugsunarhátt og menningu þeirra þjóða sem við eigum samskipti við. Ferðaþjónustu hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og hún krefst margvíslegra samskipta við útlendinga, þar sem hagsmunir okkar og heiður eru í veði. Best er þjónustan, mestur er sómi okkar og að líkindum er það arðvænlegast, ef þessi samskipti geta farið fram á móðurmáli þeirra útlendinga sem við eigum í samskiptum við. Þá eiga margir Islendingar, bæði einstak- lingar, félagasamtök og hið opin- bera í margvíslegum samskiptum við erlendar þjóðir. Þau viðfangs- efni sem hér um ræðir kalla á hald- góða kunnáttu og hæfni í erlendum málum, þekkingu á samskiptum þjóða og innsýn í menningu og siði viðkomandi málsvæðis. Á næsta háskólaári býður Há- skóli íslands í fyrsta sinn upp á stuttar, hagnýtar námsleiðir í fjór- um deildum: raunvísindadeild, við- skipta- og hagfræðideild, heim- spekideild og félagsvísindadeild. Auk náms í íslensku býður heim- spekideild Háskóla íslands upp á sérsniðið tungumálanám fyrir at- vinnulífið, sem er áhugaverð nýjung fyrir þá sem hafa áhuga á að stunda störf, þar sem reynir á haldgóða kunnáttu í erlendum málum. Um er að ræða nám í fimm erlendum tungumálum. Kennsla í dönsku, frönsku og spænsku hefst nú í haust, en í ensku og þýsku haustið 2000. Gert er ráð íyrir því að nem- endur hafi stúdentspróf í viðkom- andi tungumáli áður en þeir hefja námið. Um er að ræða fullt nám, en 32 nemendur Hlyni var síðastliðið haust falið fyrir hönd menntamálaráðuneytis- ins að semja margmiðlunarhluta nýrrar aðalnámskrár iyrir fram- haldsskólana, sem gengur í gildi að hluta til eða öllu leyti í framhalds- skólum á hausti komanda. Hann segir að unnið hafi verið að skipu- lagningu námsbrautarinnar í Borg- arholtsskóla síðastliðin þijú ár. Hann verður sjálfur eini kennari brautarinnar til að byrja með en eftir því sem tímar líða er gert ráð fyrir að fjórir kennai-ar verði ráðnir. Nú þegar hafa nokkrar umsókn- ir borist frá ungmennum sem hafa áhuga á margmiðlunarhönnun. Hlynur segist hafa kynnt námið á ráðstefnu um upplýsinga- og tæknimennt sem haldin var fyrir skólafólk í mars sem leið. Þar hafi því verið spáð að hann mætti eiga von á um 200 umsóknum. Kynning á þessari nýju námsleið er rétt að hefjast um þessar mund- ir m.a. með því að veggspjöld verða hengd upp í grunnskólum landsins. „Við rennum alveg blint í sjóinn með það en það verður einungis byrjað með einn 32 manna bekk. Þetta er mjög dýrt nám og við þurfum að kaupa tækja- og hug- búnað fyrir um 2'/2 til 3 milljónir á ári vegna brautarinnar. Við reikn- um með að nýtingin á þeim verði mögulegt er að taka það í áfóngum með vinnu. Stutt hagnýtt tungumálanám Námið í hverju tungumáli er skipulagt sem þriggja missera diplóm-nám og getur hentað vel ein- staklingum, sem ekki eiga þess kost að fara í langt háskólanám. Jafn- framt býður stutt nám af þessu tagi upp á vissan sveigjanleika, þar sem hægt er að tengja það námi í öðrum greinum. Þannig geta nemendur tekið diplóm-nám í einu eða fleiri tungumálum. Jafnframt fellur það svona 80-90 prósent á tímanum frá 8 til 16 þannig að með fleiri nem- endum þyrfti að kaupa annað eins af tækjum," segir hann. Áhugi er á því innan skólans að kenna margmiðlunarhönnun einnig í kvöldskóla en að sögn Hlyns verð- ur að koma í ljós hver nýtingin á tækjunum verður á kvöldin. „Það er mjög mikið að gerast í þessum fræðum núna og forrit verða sífellt aðgengilegri og ódýrari," segir hann. „Auk þess er orðið hægt að gera hluti í heimilistölvum sem fyr- vel að þörfum íslensks atvinnulífs, þar sem lítil fyrirtæki eiga oft í við- skiptum við margar þjóðir og geta ekki ráðið inn marga starfsmenn með sérhæfða tungumálakunnáttu. Fyrir slík fyrirtæki skiptir miklu að geta ráðið til sín starfsfólk, sem hef- ur mörg tungumál á valdi sínu. Þá er hægt að setja saman nám í tungumálum og t.d. nám í ferða- málafræðum eða í markaðs- og út- flutningsfræðum. Síðast en ekki síst er möguleiki á því að fá hluta náms- ins metinn til BA-náms, ef nemend- h’ fáum árum var ekki hægt að gera nema í stórum og dýrum tækjum.“ Hann á því von á að nem- endur geti unnið verkefni sín að talsverðum hluta heima hjá sér. „En við höfum boðið nemendum upp á myndbandsáfanga hér við skólann. Þeir hafa gert mun metn- aðarfyllri myndir en ætlast var til og notað tækin m.a. á kvöldin. Þetta verður því að koma í ljós.“ Vefslóð Borgarholtsskóla er http://www.ismennt.is/vefir/borg- arholtsskoli. ur kjósa að halda áfram tungumála- námi með háskólagráðu í huga. Áhersla Iögð á tjáskiptahæfni Námið er hannað með það íyrir augum að það megi nýtast sem best í störfum þar sem góð kunnátta og hæfni í erlendu máli er mikilvæg, t.d. í ferðaþjónustu, útflutnings- og innflutningsgreinum, stjórnsýslu eða í starfi félagasamtaka eða stofn- ana sem hafa samskipti við útlend- inga. Nemendur taka ákveðin grunnnámskeið með stúdentum í BA-námi, en umtalsverður hluti námsins er námskeið sem eru sér- hönnuð fyrir notkun málsins á ýms- um sviðum atvinnulífsins, t.d. ritun viðskiptabréfa, ritun fundargerða, skýrslugerð, framsetning ritaðs og talaðs máls, formlegar og óformleg- ar samræður og framsögn um af- mörkuð efni. Leitað verður eftir samvinnu við fyrirtæki er stunda viðskipti við dönsku-, frönsku- og spænskumælandi fólk í því skyni að gefa nemendum tækifæri til þess að kljást við raunhæf verkefni. Lagt er að nemendum að dvelja tímabundið í landi, þar sem tungumálið sem þau eru að læra er talað. Áhersla verður lögð á að efla á markvissan hátt hæfni nemenda til tjáskipta, m.a. með samræðum í litlum hópum og með notkun tölva og annarra hjálp- artækja. Mikil áhersla verður lögð á að nemendur fái innsýn í menn- ingu viðkomandi málsvæðis gegn- um fjölmiðla, kvikmyndir og bók- menntir. Áhersla verður lögð á að nota nýja miðla, t.d. veraldarvefinn, margmiðlunarefni, gervihnattaút- sendingar og gagnabanka. í þessu nýja námi gegnir Tungumálamið- stöð háskólans lykilhlutverki, en þar hefur verið sköpuð aðstaða fyr- ir nemendur til sjálfsnáms með að- stoð margmiðlunartölva og gervi- hnattadiska. Auður Hauksdóttir, lektor í dönsku. Margrét Jónsdóttir, lektor ( spænsku. Torfi H. Tulinius dósent ( frönsku. Nýtt nám við heimspekideild Háskóla Islands Tungumálanám fyrir atvinnulífíð Morgunblaðið/Kristinn TORFI, Auður og Margrét, tungumálakennarar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.