Morgunblaðið - 26.05.1999, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 37
MENNTUN /■
Morgunblaðið/Ásdís
VIÐBRÖGÐ fólks við náms-
brautinni hafa verið góð.
Ahugi og
metnaður
„VIÐ finnum fyrir miklum áhuga og
deildin hefur komið vel út í innra
mati,“ segir Kristján Ari Arason en
hann er umsjónarmaður félagsþjón-
ustubrautar í Borgarholtsskóla.
Námsbrautin er ný starfsbraut sem
ætluð er þeim sem hafa áhuga á að
starfa að uppeldis- og tómstunda-
málum og innan félagsþjónustunnar
og vilja afla sér góðrar grunnmennt-
unar á skömmum tíma. Markmiðið
er að námið sé sniðið að þörfum at-
vinnulífsins jafnt sem og nemend-
anna sjálfra. Einingar sem þeii’
vinna sér inn innan brautarinnar
nýtast þeim einnig, hafi þeir hug á
áframhaldandi námi síðar meir hvort
sem það yrði í Borgarholtsskóla eða í
öðrum íramhaldsskóla.
Námið í félagþjónustubrautinni er
til tveggja ára auk fjögurra mánaða
starfsþjálfunar. Brautskráðir nem-
endur fá ekki löggild starfsréttindi
en þeir fá aukna fagvitund, eins og
Kristján Ari kemst að orði. „Fólkið
stundar námið vegna áhuga og
metnaðar og það lítur ekki á þessi
störf sem millibilsástand," segir
hann. Það er því ástæða til að ætla
að minna los verði á þessum starfs-
kröftum en reynslan hefur verið
hingað til með ófagmenntað starfs-
fólk t.d. í skólum og félagþjónustu.
„Þetta er starfsnám sambærilegt
við hefðbundið iðnnám,“ segir Krist-
ján Ari enn fremur. „Það eru ekki
nema fá ár síðan leikskólakennara-
og þroskaþjálfanám var á framhalds-
skólastigi. Eftir að þau voru færð yf-
ir á háskólastig hefur myndast tóma-
rúm og það er gríðarlegur skortur á
fólki með grunnmenntun á þessu
sviði.“
Samstarf við faghópa og
fræðsluyfirvöld
„Við fórum af stað með þessa
braut að ósk menntamálaráðuneytis-
ins fyrir þremur árum,“ segir Kríst-
ján Ari og bætir við að hún sé í anda
nýju framhaldsskólalaganna um að í
framhaldsskólum sé boðið upp á
stuttar starfsnámsbrautir. „Þetta
var þróunarverkefni og okkur var
uppálagt að búa til starfsnám fyrir
félags- og uppeldisgeirann. Við þjálf-
um t.d. fólk til starfa hvort heldur
sem er í leikskóla, grunnskóla,
heimaþjónustu, öldrunarþjónustu
eða jafnvel löggæslu. Nemendur
brautarinnar eru fjölbreyttur hópur
fólks á aldrinum sextán ára til sex-
tugs, jafnt konur sem karlar.“
Þá er verið að ganga frá samningi
við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur um
að skólaliðar og stuðningsfulltiúar í
grunnskólum fái menntun við sitt
hæfi á félagsþjónustubrautinni.
Einnig hafa svæðisskrifstofur um
málefni fatlaðra sýnt áhuga á þessari
menntun og að sögn Kristjáns Ara
liggur fyrir að gera samning um
starfsþjálfun fyrir nemendur braut-
arinnar.
„Við erum í góðu samstarfi við
ýmsa faghópa og munum í samræði
við þá skipuleggja námskeið og end-
urmenntun sem hingað til hefur ver-
ið skipulögð af stéttarfélögunum
sjálfum og ekki nýst fólki til eininga
T)g áframhaldandi náms. Þar njótum
við góðs af því merka brautryðjenda-
starfi sem t.d. Sókn og önnur stétt-
arfélög hafa unnið á undanfómum
árum.“
Og Kristán Ari bætir við: „Við
leggjum ríka áherslu á námsgreinar
eins og uppeldi og þroska, tóm-
stundir og samskipti, hagnýta sálar-
fræði, líkamsfræði og hreyfifræði,
fötlunarfræði og öldrunarfræði.“
Hatpumt
WWH7109T GENERAL
ELECTRIC ÞVOTTAVÉL
•4,5 kg »1000 snúninga
liíljcí' l*r
TL52PE HOTPOINT ÞURRKARI
•5 kg •m/barka *veltir í báðar áttir.
General Electnc
ÖT
TFG20JRX GENERAL EL^....^
AMERÍSKUR ÍSSKÁPUR með
klakavél og rennandi vatni
•h:170, b: 80,d: 77,5 »491 lítra.
Hotpoint
Hotpuint
DF23PE HOTPOINT UPPÞVOTTAVÉL
• 12 manna »8 kerfi •b:60,h:85,d:60.
TC 72 PE HOTPOINT ÞURRKARI
•6 kg »barkalaus *m/rakaskynjara
•veltir í báðar áttir.
IHl
HEKLA
LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 569 5770
AÐRIR SÖLUAÐILAR: Heimskringlan Kringlunni •Rafmætti Miðbæ, Hafnarfirði »K Á Selfossi Austurvegi 3, Selfossi 'Verslunin Vík Egilsbraut 6,
Neskaupstað »Reynisstaðir Vesturvegi 10, Vestmannaeyjum *K.Þ. Smiðjan Garðarsbraut 5, Húsavík •Jókó Furuvöllum 13, Akureyri *Verslunin Hegri
Sæmundargötu 7, Sauðárkróki *Verslunin Straumur Silfurgötu 5, ísafirði «Rafstofan Egilsgötu 6, Borgarnesi »Hljómsýn Stillholti 23, Akranesi.