Morgunblaðið - 26.05.1999, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 61
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
FORRÁÐAMENN Hraunborgar með nokkrum styrkþegum.
Hraunborg
afhendir styrki
safnsins verða opnar alla virka daga kl. 9-17.___
BYGGÐASAFNIÐ í GÖRÐUM, AKRANESI: Opiö kl.
13.30- 16.30 virka daga. Slmi 431-11255.______
FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, LotlskeytastöSinnl
v/Suðurgötu: Opið á þriöjud., fimmtud. og sunnud. frá
kl. 13-17. Tekiö er á mðti hðpum á öðrum tímum eftir
samkomulagi.___________________________________
FRÆÐASETRIÐ í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
sími 423-7651, bréfsími 423-7809. Opiö alla daga kl. 13-
17 og eftir samkomulagi._______________________
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sum-
ar frá kl. 9-19.______________________________
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, ReyKjavík. Opið
þriðjud. og miðvikud. kl. 16-19, flmmtud. kl. 17-21, fóstud.
og laugard. kl. 16-18. Sími 561-6061. Fax: 652-7670.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun HafnarQarðar
opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18.____
KJARVALSSTAÐIR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safna-
leiðsögn kl. 16 á sunnudögum.__________________
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.-fímmtud. kl. 8.15-22, fóst. kl. 8.15-19. Laugd.
9-17. Sunnud. kl. 11-17. Handritadeild er lokuð á laug-
ard. og sunnud. S: 526-5600, bréfs: 525-5615._
USTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötn 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.___________
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Höggmyndagarður-
inn er opinn alla daga. Safnið er opið laugardaga og
sunnudaga frá kl. 14-17,_______________________
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsaiir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega ki. 11-17, lokað
mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið-
sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið
þriðjud.-föstud. kl. 13-16. Aögangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is___________________________
LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12-18 nema mánud. _________________________
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17. Tekið á
móti gestum skv. samkomulagi. Upplýsingar í síma 653-
2906._________________________________________
UÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið
alla daga frá kl. 13-16. Simi 563-2530._______
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. í sumar
verður opið á sunnud., þriöjud., fimmtud. og laugard.
milli kl. 13 og 17.____________________________
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með mii\jagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is._______________________
MINJASAFN RAFMAGNSVEITU Reykjavíkur v/rafstöð-
ina v/Elliðaár. Opið sunnudaga kl. 15-17 eöa eftir sam-
komulagi. S. 567-9009._________________________
MINJASAFN SLYSAVARNARFÉUGS (SLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 13-16. Hægt er að panta á öðrum
timum í síma 422-7253._________________________
MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI: Aíalslræti 68 er lokaí (
vetur vegna uppsetningar nýrrar sýningar sem opnuð
verður sumarið 1999. S. 462-4162, bréfs: 461-2562.
ÍÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI verður opið tramvegis á
sunnudögum kl. 14-16 í vetur. Að auki geta gestahópar og
bekkjardeildir skóla haft samband viö safnvörð i sima 462-
3550, sem opnar þá fúslega samkvæmt nánara umtali.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 569-9964. Opiö virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tima eftir samkomulagi._______________
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630.__
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30- 16.____________________________________
NESSTOFUSAFN, Yfir vetrartímann er safnið einungis
opið samkvæmt samkomulagi._____________________
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
fírði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Simi 555-4321.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16.____________________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfiröi, er
opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17 og eftir sam-
komulagi fyrir skólancma og aðra hópa. S: 565-4242,
bréfs. 565-4251. ____________________________
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS
HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard.
_ frá kl. 13-17. S. 581-4677.____________________
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl.ls: 483-1165, 483-1443.__________________
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR: Handritasýning opin
þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14-16 til 14.
mai.___________________________________________
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Sími 431-5566.__________
SÖGU- OG MINJASAFN Slysavarnafélags íslands,
Garðlnnm: Opið um helgar frá kl. 13-16._______
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema
mánudagakl. 11-17. _________________________
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til föstu-
daga kl. 10-19. Laugard. 10-15._______________
USTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl.
14- 18. Lokað mánudaga.______________________
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ Á AKUREYRI: Lokaö í vetur
nema eftir samkomulagi. Simi 462-2983.________
NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
_ arfrákl. 11-17.________________________
ORÐ DAGSINS ___________________
Reykjavík síml 551-0000._________________________
Akoreyri s. 462-1840.
SUNDSTAÐIR ______________________________________
SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19.
Breiöholtslaug er opin v.d. kl. 6.60-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl.
8-22. Kjalarneslaug opin mán. og flmmt. kl. 11-15. þri.,
mið. og föstud. kl. 17-21.________________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin mád.-fóst. 7-21. Laugd. og
sud. 8-18. Sölu hætt hálftlma fyrir lokun._____
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun. _
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-fóst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll HafnarQarðar: Mád.-
fóst. 7-21. Laugd. 8-12. Sud. 9-12.____________
VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
6.30- 7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18.__
SUNDLAUGIN í GRINDAVÍKiOpið alla virka daga kl. 7-
21 ogkl, 11-15 um helgar. Slml 426-7655.______
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-8.30 og 14-22,
helgar 11-18.__________________________________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-fóstud. kl.
7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16.
SUNDLAUGIN í GARÐI: Opin mán.-föst. kl. 7-9 og 15.30-
21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
• og sunnud. kl. 8-18. Slmi 461-2532.____________
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-Bst. 7-
20.3Q. Laufiard. og sunnud. kl. 8-17.30._______
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád. Kst. 7-
21, laugd. ob sud. 9-18. S: 431-2643.__________
BLÁA LÓNID: Opið t.d. kl. 11-20, helwr kl. 10-21.
ÚTIVISTARSVÆÐI
FJOLSKYLDU- OG HÍISDYRAGARDURINN cr opinn alla
daga kl. 10-18. Kafflhúsid opið á sama tima. Slmi 5757-800.
SORPA
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.16. Endur-
vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar
á stórhátíðum. Aö auki veröa Ánanaust, Garðabær og
Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 520-
2205.
KIWANISKLÚBBURINN
Hraunborg í Hafnarfirði hefur
samþykkt eftirtalda styrki og voru
þeir afhentir í Kiwanishúsinu,
Helluhrauni 22, fyrir skömmu.
1. íþróttafélagið Fjörður
íþróttagallar, framhaldsverkefni að
endumýja æfingargalla félagsins.
Lagt til að verkefninu verði sinnt á
þessu og næsta starfsári, áætluð
þörf 30 gallai’ og nú úthlutað í
verkefnið 70.000 kr.
2. Hjálparbeiðni frá umdæminu
um styrk til bágstaddra í Kosovo
þar sem Kiwanisklúbburinn þar
hefði umsjá með verkefninu 50.000
kr.
3. Kiwanis-umdæmið
v/mai-kmiðanefndar styrkur til
Hringsins 200 kr. á félaga þ.e. x 35 =
7.000 kr.
4. Öldrunarsamtökin Höfn,
göngubretti fyrir heimilisfólkið á
Sólvangsvegi 103 40.000 kr.
5. Fjölskyldan á Langeyrarvegi 9
sem missti hús og innbú 100.000 kr.
6. Bömum flóttamanna sem flutt
hafa til bæjarins færð reiðhjól og
hjálma (óuppgert).
7. Eining er klúbburinn með í
sameiginlegu styrktarverkefni
Kiwanisklúbbanna í Hafnarfirði,
Hraunborgar, Eldborgar og
Sólborgar um að færa
forskólabömum í Hafnarfirði
reiðhjólahjálma og veifur samtals til
421 bams, styrktaraðilar auk
klúbbanna em Hafnarfjarðarbær 80
þúsund, Hópbílar 70 þúsund,
Islandsbanki 80 þúsund og Sjóvá-
Almennar 80 þúsund, samtals 310
þúsund kr. Heildarkostnaður
804.122 þannig að á klúbb era
164.707 kr.
í desember ‘98 var úthlutað úr
styrktarsjóði Hraunborgai’ styrkjum
að upphæð 550.000 kr. þannig að á
starfsári klúbbsins er búið að
samþykkja styrki að upphæð um 1
milljón.
■ AÐALFUNDUR S.Í.B.S. deildar-
innar á Vífilsstöðum verður haldinn
fimmtudaginn 27. maí kl. 20.30 á
Vífilsstaðaspítala. Fyrst verða
venjuleg aðalfundarstörf, fyrirlest-
ur um ómskoðun frá ýmsun sjónar-
homum verður fluttur af Sigurði V.
Sigurjónssyni, læknir, Kristín Sæ-
dal Sigtryggsdóttir, óperusöng-
kona, syngur einsöng við undirleik
Þóru Fríðu Sæmundsdóttur og loks
verða kaffiveitingar. Fundarstjóri
verður Jóna Valgerður Höskulds-
dóttir.
Gengið og siglt á
milli hafna
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð og siglingu í
kvöld, miðvikudagskvöld, milli
gömlu hafnarinnar og Sundhafnar.
Farið verður frá Hafnarhúsinu kl. 20
og gengið með ströndinni inn á
Laugamestanga og og þaðan inn í
Klettagarða í Sundahöfn. Þar verður
val um að ganga til baka eða sigla
með s/b Skúlaskeiði út fyrir Laugar-
nestanga og um Engeyjarsund inn í
Gömlu höfnina að Miðbakka. Allir
era velkomnir í ferðina.
Tdnleikar Lög-
reglukórsins
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Lög-
reglukórs Reykjavíkur verða í Sel-
tjamameskirkju í kvöld og annað
kvöld kl. 20 bæði kvöldin.
Lögreglukórinn verður 65 ára á
þessu ári og nýlega kom út geisla-
plata með kómum. Stjómandi er
Guðlaugur Viktorsson.
■ AÐALFUNDUR Ilollvinafélags
námsbrautar í þjúkrunarfræði við
Háskóla Islands verður haldinn í Eir-
bergi, húsnæði námsbrautarinnar,
miðvikudaginn 26. maí nk. og hefst
kl. 17. Dagskrá: Skýrsla stjómar,
reikningar félagsins kynntir og bom-
ir upp til samþykktar, steftiumörkun
og starfsáætlun fyrir næsta starfsár,
kjör formanns og tveggja meðstjóm-
enda í stjóm til eins árs, breytingar á
stofnski’á og starfsreglum félagsins,
val á fulltrúa í úthlutunamefnd
vegna rannsóknarstyrks félagsins og
önnur mál.
I stjóm Hollvinafélags námsbraut-
ar í hjúkranarfræði era Vilborg Ing-
ólfsdóttir formaður, Kristín Bjöms-
dóttir ritari og Margrét Blöndal
gjaldkeri. Starfsemi félagsins hefur
farið ört vaxandi og era nýir félags-
menn sérstaklega boðnir velkomnir á
fundinn.
Mismunandi
hugmyndir um
námskrár
V
BARRY Franklin, aðstoðardeildar-
stjóri kennara- og félagsþjónustu-
deildar Háskólans í Michigan, held-
ur opinberan fyrirlestur á vegum
Rannsóknarstofnunar Kennarahá-
skóla íslands fimmtudaginn 27. maí
kl. 16.15. Fyrirlesturinn nefnist:
Mismunandi hugmyndir um
námskrár - Hvað má lesa út úr
rannsóknum um námskrár og
námskrárfræði?
I fyrirlestrinum verður beitt til-
tekinni sagnfræðilegri aðferð til að
greina hvaða röksemdafærsla kem-
ur fram í því orðfæri sem notað er
þegar fjallað er um rannsóknir á
sviði námskrárfræða síðustu áttatíu
árin. Þessi greining verður einnig
notuð til að varpa ljósi á hvað rann-
sóknimar segja um núverandi stöðu
námskrárfræða. Sjónum verður
einkum beint að hlutverki námskrár
sem tæki til félagslegrar stjómunar.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku í stofu M-201 í aðalbyggingu
Kennaraháskóla íslands við Stakka-
hlíð og er öllum opinn.
LEIÐRÉTT
Rangt nefndur ^
í FRÉTTATILKYNNINGU í
sunnudagsblaðinu síðasta um nýtt
apótek í Grafarvoginum var Elís
Örn Hinz, lyfjafræðingur, rang-
nefndur. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Myndabrengl
í GREIN um Stuttmyndadaga í
Reykjavík á bls. 73 í laugardagsblað-
inu, varð myndabrengl og era hlut-
aðeigendur beðnir velvirðingar á því.
Efsta myndin var úr Deginum eftir, ,
en auk Karls Inga Karlssonar, era
Atli Erlendsson og Jón Dal Krist-
björnsson höfundar þeirrar stutt-
myndar. Miðmyndin var úr stutt-
myndinni Verðlaunabikarinn efitr
G.H.Ö og M.H.Í, og neðsta myndin
úr Póstur í óskilum eftir Jón Asgeir
Gestsson og Guðmund Pálsson.
HVITASUNNUHELGIN var
annasöm hjá lögreglu þar sem
talsvert var að gera í umferðar-
málum auk þess sem skemmtana-
iðnaðurinn tók sinn toll af lög-
gæsluverkefnum. Alls sinnti lög-
reglan rúmlega 600 verkefnum
um helgina.
Mældist á 141 km hraða á
Breiðholtsbraut
Höfð voru afskipti af 79 öku-
mönnum vegna hraðaksturs og
vora nokkrir þeirra vel yfir há-
markshraða, t.d. var ökumaður
stöðvaður eftir að hafa mælst aka
á 141 km hraða á Breiðholtsbraut.
Þá voru 19 ökumenn stöðvaðir
vegna grans um ölvun við akstur.
Auk þess vora sjö ökumenn kærð-
ir vegna aksturs á nagladekkjum.
Lögreglu var tilkynnt að öku-
maður æki gegn einstefnu á
Skólavörðustíg að morgni laugar-
dags. Hann var stöðvaður
skömmu síðar og reyndist nauð-
synlegt að færa hann í handjám
og á lögreglustöð til að ræða við
hann. Hann er grunaður um ölvun
við akstur. Lögreglu var tilkynnt
um bifreið inni í trjágróðri í Gufu-
neskirkjugarði og kom í Ijós að
unglingspiltur hafði tekið fjöl-
skyldubifreiðina traustataki en
pilturinn hefur ekki ökuréttindi.
Skemmdir urðu á bifreið, gróðri
og ljósastaur. Það vora þrjú tilvik
þessa helgi þar sem höfð voru af-
skipti af ökumönnum sem ekki
höfðu ennþá öðlast réttindi til
aksturs.
Ökumaður á bifhjóli datt af
hjóli sínu og lenti á öðru bifhjóli
við Geirsgötu að kvöldi fóstudags,
en nauðsynlegt reyndist að flytja
ökumenn beggja hjóla á slysa-
deild. Þá varð umferðarslys á
Úr dagbók Lögreglunnar
Annasöm hvíta-
sunnuhelgi
Háaleitisbraut við Bústaðaveg
síðdegis á laugardag er þrír bílar
lentu saman. Alls voru sex ein-
stakhngar fluttir á slysadeild en
ekki voru áverkar taldir alvarleg-
ir. Umferðarslys varð á Hrísateig
við Sundlaugaveg að morgni
sunnudags er bifreið og strætis-
vagn lentu saman. Ökumaður bif-
reiðar slasaðist á höfði og fjórir
farþegar hlutu ýmis meiðsli.
Hnífstunga í miðbænum
Lögreglumenn veittu athygli
ungri stúlku sem sat grátandi í
bifreið í Fossvoginum. I ljós kom
að hún hafði sætt árás af hendi
sambýlismanns. Konan var flutt á
slysadeild til aðhlynningar. Nauð-
synlegt reyndist að senda mikinn
fjölda lögreglumanna til að ná
tökum á slagsmálum sem brutust
út í Tryggvagötu við Naustin að
morgni laugardags. Þar sló æstur
og ölvaður maður til fólks. Er ver-
ið var að handtaka hann reyndu
félagamir að hindra handtökuna.
Að kvöldi laugardags var til-
kynnt um hnífstungu við veitinga-
stað í miðborginni. Karlmaður var
fluttur á slysadeild með minni-
háttar áverka á brjóstkassa. Ekki
er vitað um árásarmann. Tveir
menn tókust á í miðborginni að
morgni sunnudags. Þeir féllu í
götuna og komu þá að þrír piltar
og ein stúlka og hófu að sparka til
þeirra, m.a. í höfuð og líkama. Sex
aðilar voru fluttir á lögreglustöð
vegna málsins og einn fluttur á
slysadeild til aðhlynningar. Þá var
ráðist að eldri blaðburðarkonu að
morgni sunnudags. Arásaraðilar
vora þrír karlar og ein kona. Auk
hótana voru konunni veittir
áverkar á höfði og eru árásaraðil-
arnir ófundnir.
Brotist inn í 17 geymslur
Lögreglu hafa borist tilkynn-
ingar um þjófnað á veskjum úr
búðarkörfum í verslunum og er
borgurum bent á að sýna aðgæslu
og skilja ekki eftir verðmæti
þannig að þau freisti fingra-
langra.
Brotist var inn í 17 geymslur í
húsnæði í miábænum. Ekki er vit-
að hvemig var farið inn í húsið og
ekki ljóst hversu miklu var stolið
þar sem ekki hefur tekist að ná til
allra eigenda.
Brotist var inn í bílskúr á Háa-
leitisbraut og stolið þaðan
nokkram verðmætum, meðal ann-
ars skotvopnum. Rannsókn hefur
staðið yfir um helgina og voru
tveir menn úrskurðaðir í gæslu-
varðhald vegna málsins til 10.
júní.
Þá var brotist inn í fyrirtæki í
miðbænum á mánudag og stolið
talsverðu verðmæti, bæði fatnaði
og rafeindatækjum. Brotist var
inn í sölutum í Breiðholti á mánu-
daginn, en farið hafði verið í
gegnum kjallara hússins og upp
um lúgu á gólfi. Einn aðstandanda
sölutumsins varð var við innbrot-
ið og reyndi að hlaupa uppi þjóf-
ana án árangus.
Tveir 19 ára piltar vora hand-
teknir eftir að hafa kastað ölglasi í
lögreglubifreið sem ók framhjá
þeim. Þrír 14 ára piltar vora tekn-
ir fyrir að skemma eigur með því
að úða á þær með málningu.
Höfð voru afskipti af ungmenn-
um í miðborginni og vora fjögur
flutt í athvarf lögreglu, ÍTR og
Félagsþjónustu þar sem foreldrar
sóttu þau. Þá vora einnig höfð af-
skipti af ungmennum í úthverfum
borgarinnar og voru þau flutt á
hverfastöðvar lögreglu þangað
sem þau vora sótt. Mikilvægt er
að brýna fyrir foreldrum að vii’ða
gildandi útivistarreglur en þó er
vakin athygli á breyttum tíma frá
1. maí sl.
Féii af þaki Kringlunnar
Unglingspiltur slasaðist er
hann féll niður tvo metra af þaki á
verslunarmiðstöðinni i Kringl-
unni. Hann reyndist fótbrotinn og
var fluttur á slysadeild. Lögreglu-
menn verða oft vitni að undarleg-
um tilburðum einstaklinga til að
vekja á sér athygli oftast í þeim
tilgangi að heilla hitt kynið. Ekki
verða allir þessir tilburðir til ár-
angurs og t.d. var karlmaður
handtekinn að morgni mánudags í
miðborginni. Hann hafði fundið
sig knúinn til að sýna karl-
mennsku sína á þann hátt að bera
sig að ofan, berja í stöðumæla og
míga utan í hús. Hann var fluttur
einn og yfirgefinn í fangahús lög-
reglu þar sem hann dvaldi nætur-
langt.
f rr.