Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Dreifíng ehf. stefnir ríkinu fyrir ólögmæta gjaldtöku Krefur ríkið um 89 milljónir MÁLFLUTNINGUR í máli inn- flutningsfyrirtækisins Dreifingar ehf. og ríkisins fer fram í dag í Hér- aðsdómi Reykjavíkur. Stefnandi, Dreifing ehf. krefur ríkið um 89 milljónir króna fyrir ólögmæta gjaldtöku á grundvelli reglugerðar nr. 223/1987 um sérstakt jöfnunar- gjald af kartöflum og vörum unnum úr þeim, ásamt síðari breytingum og reglugerð nr. 468/1993, sem leysti hina fyrmefndu af hólmi. Dómkröfur stefnda, ríkisins, eru aðallega þær, að stefndi verði sýkn- aður af öllum kröfum stefnanda og að stefnanda verði gert að greiða stefnda málskostnað samkvæmt mati dómsins. Brotið gegn tilgangi laga Krafa Dreifingar ehf. nær yfir tímabilið júní 1988 til ágúst 1995. í stefnu Dreifingar ehf. segir að ljóst sé að með álagningu hins sérstaka jöfnunargjalds hafi verið brotið gegn tilgangi þeirra laga sem gjald- takan studdist við og farið út fyrir þau mörk sem gjaldtökunni voru sett. Þar af leiðandi hafi gjaldtakan verið ólögmæt og á stefnandi því rétt á endurgreiðslu. í stefnunni er m.a. vísað til Hæsta- réttardóms sem gekk hinn 19. des- ember 1996 þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að ráðherra hefði með reglugerðum nr. 109/1988 og 335/1989 farið út fyrir takmörk þeirr- ar heimildar sem honum hafi verið veitt og ekki virt þær kvaðir um mál- efnalegan grundvöll skattheimtu og stjómsýslu, sem gæta varð. í dómnum var staðfest að gjald- taka samkvæmt greindum reglu- gerðum var ólögmæt. Telur stefn- andi að varðandi ógildi reglugerð- anna sé dómur Hæstaréttar í greindu máli bindandi fyrir aðila í því máli sem hér er stefnt. I greinargerð lögmanns fjármála- ráðherra segir að af umræddum dómi Hæstaréttar verði ráðið að svigrúm landbúnaðarráðherra til álagningar jöfnunargjalds á fransk- ar kartöflur og vörur unnar úr þeim hafi ekki verið óheft, en ekki hafi verið á það fallist í dóminum að framsal löggjafans til ráðherra hafi farið í bága við 40. grein stjómar- skrárinnai- sbr. þágildandi ákvæði hennar, eins og þau hefðu verið skýrð. I stefnu Dreifingar ehf. segir ennfremur að með hinu sérstaka jöfnunargjaldi hafi seljendur er- lendra franskra kartaflna aðra og mun verri stöðu en seljendur ís- lenskra kartaflna. Með því að leggja mismunandi gjöld á aðila í sambæri- legri stöðu hafi setning reglugerð- anna brotið í bága við áður ólög- festa meginreglu íslensks stjóm- skipunarréttar um jafnræði borgar- anna, sbr. núgildandi 65. grein stjómarski’árinnar. Þessu mótmælir stefndi eindregið og segir að engan rökstuðning sé að finna fyrir þessari fullyrðingu í stefnunni og að ekki sé reynt að sýna fram á að jöfnunargjaldið hafi leitt til þess að stefnandi hafi borið skarðan hlut frá borði vegna álagn- ingar þess. Morgunblaðið/Björn Blöndal STÓR hluti hússins skemmdist og nemur Ijónið tugum milljóna að sögn eiganda Fiskþurrkunar. Tugmilljónatjón varð í sprengingu í Garðinum FISKVERKUNARHÚS í Garðin- um stórskemmdist í sprengingu snemma í gærmorgun. Talið er að gasleki frá gaslyftara hafi orsakað sprenginguna, en eldur braust ekki út í kjölfar hennar. Enginn var í hús- inu, sem er í Útskálum yst í Garðin- um, þegar sprengingin átti sér stað og var ekki vitað hvað gerst hafði fyrr en um fótaferðartíma í gær- morgun þegar komið var til vinnu. Tvö fyrirtæki era í húsinu sem er um tvö þúsund fermetrar að stærð. Sprengingin virðist hafa orðið í lyftarageymslu, en þar vora geymdir tveir rafmagnslyftarar og einn gaslyftari. Stór hluti hússins skemmdist og nemur tjónið tugum milljóna króna að sögn Theódórs Guðbergssonar, eiganda fyrirtækis- ins. Hann segir að 300-400 fermetr- ar af húsinu séu ónýtir. Fyrirtækið heitir Fiskþurrkun og var þar unnið við saltfiskverkun. Theódór sagði að um tuttugu manns störfuðu hjá fyrirtældnu og um tíu hjá hinu fyrirtækinu í húsinu sem einnig fæst við fiskverkun, en þar urðu miklu minni skemmdir. Theódór sagði að hráefnið í húsinu virtist hafa sloppið að mestu leyti við skemmdir. Hafist yrði handa við það í dag að loka húsinu og reynt að koma starfseminni í gang á nýjan leik. Hann sagði að það hefði verið mik- ið lán að enginn var í húsinu þegar sprengingin varð. Ef fólk hefði verið mætt til vinnu hefði öragglega orðið stórslys. Lögreglan í Keflavík hefur rann- sókn málsins með höndum. Fulltrúar tryggingafélags hússins vora á vett- vangi í gær til að meta tjónið og Vinnueftirlitið var einnig kvatt til. Rauðsíða ehf. á Þingeyri enn ekki fengið svar frá Byggðastofnun Frystihúsið selt á uppboði Hefur sex vikur til að ganga inn í tilboð Sparisjóðs Bolungarvíkur Alþingi kemur saman í dag NÝKJÖRIÐ Alþingi kemur saman í dag og hefst þingsetningarfundur kl. 13.30. Er það 124. löggjafarþingið. Að lokinni þingsetningu verður hlé til klukkan 15. Þá hefst fundur á ný með því að kjörinn verður forseti Alþingis en stjórnarflokkamir hafa náð samkomulagi um að Halldór Blöndal, fyrrverandi samgönguráð- herra, gegni því embætti. Að því loknu flytur Davíð Oddsson forsæt- isráðherra stefnuræðu sína. Fundi verður þá frestað til kl. 20.30 en þá hefjast umræður um ræðuna sem verður útvarpað og sjónvarpað. ------------------- Ekið á stúlku í Síðumúla KEYRT var á 14 ára stúlku í Síðu- múla rétt eftir hádegi í gær og var hún flutt á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, að sögn lögreglu. Stúlkan hraflaðist nokkuð og hand- arbeinabrotnaði, en eftir meðhöndl- un fór hún heim. VINNSLUHÚSNÆÐI Rauðsíðu ehf. á Þingeyri var í gær slegið Sparisjóði Bolungarvíkur á uppboði fyrir rúmar 35 milljónir króna. Rauðsíða hefur 6 vikur til að ganga inn í boðið en að sögn framkvæmda- stjóra fyrirtækisins veltur það á því hvort Byggðastofnun efnir gefið lánsloforð. Uppboðið er ekki endanlegt því Rauðsíða hefur frest til 19. júlí nk. til að ganga inn í boð Sparisjóðs Bol- ungarvíkur og eignast þannig húsið aftur. Auk sparisjóðsins gerðu Byggðastofnun, Landsbanki íslands og Fjárfestingarbanki atvinnulífsins kröfu á hendur Rauðsíðu í gær, að upphæð um 30 milljónir króna. Stjóm Byggðastofnunar ákvað fyrir skömmu að veita Rauðsíðu ehf. 100 milljóna króna lán að uppfyllt- um ákveðnum skilyrðum. Fulltrúi Rauðsíðu ehf. gekk í gær á fund for- stjóra Byggðastofnunar og lagði fram gögn varðandi lánsumsókn fyrirtækisins en að sögn Guðmund- ar Malmquist, forstjóra Byggða- stofnunar, vantar stofnunina enn gögn til að sjá hvort skilyrðin hafi verið uppfyllt og þar af leiðandi til að hægt sé að taka ákvörðun um hvort lánið verður veitt. Aðspurður hvort það væri enn möguleiki á að Rauðsíðu yrði veitt lánið sagðist Guðmundur hvorki svara því ját- andi né neitandi. Ketill Helgason, framkvæmda- stóri Rauðsíðu, segir stöðu mála óbreytta þrátt fyrir uppboðið í gær. Framtíð fyrirtækins standi og falli með láni Byggðastofnunar. „Við fór- um fram á það við Byggðastofnun 12. maí síðastliðinn að stofnunin endurskoðaði skilyrði sitt um að við- skiptabanki okkar, Sparisjóður Bol- ungarvíkur, veitti okkur 55 milljóna króna lán, samhliða veðrétti Byggðastofnunar. Smæðar sinnai- vegna treysti sparisjóðurinn sér ekki til að uppfylla þetta skilyrði. Þeir hafa hins vegar boðist til að koma að þessu með lægri upphæð. Þess í stað fengum við almenna lán- ardrottna til að skuldbreyta kröfum sínum fyrir um það bil 100 milljónir. Við báram þriggja mánaða uppgjör saman við rekstraráætlanir, eins og Byggðastofnun bað um, og það kom vel út. En meðan við höfum ekki fengið svar við því hvort stofnunin vill endurskoða þetta skilyrði getum við ekkert gert. Við höfum alfarið veðjað á lánið frá Byggðastofnun og gengið út frá því. Byggðastofnun verður að gefa okkur afgerandi svar um hvað hún ætlast til af okkur í þessu,“ segir Ketill. Ekki eðlileg afgreiðsla Egill Jónsson, foi-maður stjórnar Byggðastofnunar, segir óeðlilegt hversu lengi afgreiðsla málsins hef- ur tafist hjá Byggðastofnun. „Stjóm Byggðastofnunar á að rækja skyld- ur sínar með þeim hætti að bregðast við þegar vanda ber að höndum í byggðum landsins með svipuðum hætti og nú hefur gerst á Vestfjörð- um. Hafi ég misskilið þetta hef ég hvorki skilið hlutverk þessarar stjómar í fjögur ár, né heldur breytni hennar," segir Egill. öð í dag A ÞRIÐJUDOGUM Heimili Vala bætir íslands- og Norð urlandametið um 5 cm / Bt Englendingar og Rúmenar á HM með sigurleikjum / B16 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.