Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 45
-v
MINNINGAR
MATTHÍAS SVEINN
VILHJÁLMSSON
+ Matthias Sveinn
Vilhjálmsson
fæddist á ísafirði
hinn 9. desember
1933. Hann lést á
Fjórðungssj úkra-
húsinu á Isafirði 18.
maí síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Isafjarðarkirkju
29. maí.
Elsku afi minn. Nú
ert þú farinn frá okkur
sem elskum þig mest
og söknum þín. En þú
lifir enn í hjarta okkar um ókomna
tíð. Eftir baráttu við erfiðan
sjúkdóm þar sem þú barðist
hetjulega, eins og þér einum var
lagið, ertu nú laus frá
þjáningum þeim sem á
þig voru lagðar og við
vitum að nú líður þér
betur. Við minnumst
þín með gleði í hjarta
eins og þú mundir vilja
að við gerðum. Þú
tókst ávallt á móti
okkur með bros á vör
og kátínan var aldrei
langt undan.
Elsku amma, missir
þinn er mikill, þið afi
voruð alltaf eins og
eitt, ævifélagar eins og
alla dreymir um að
eiga.
Verum sterk eins og ávallt.
Jósef Matthías og
Margrét Ólína.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekld sem viðhengi.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk,
A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast
við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Mig langar með nokkmm orðum
að minnast og kveðja ástkæran afa
minn, Matta Villa eins og hann var
kallaður.
Eftir að ég kom inn í
fjölskylduna fjögurra ára gamall
hef ég alltaf litið á þig sem hinn
eina sanna og elskulega afa á fsó
sem alltaf varst svo góður og
áhugasamur um allt sem maður
gerði og var að stússast í. Ég man
sérstaklega eftir þegar ég vann
minn fyrsta verðlaunapening í
knattspyrnu. Þá vildi ég ólmur
komast til ömmu og afa á ísafirði
til að sýna þér verðlaunapeninginn
því þú varst mikill áhugamaður um
knattspyrnu og fyrir vikið gafst þú
mér gott klapp á öxlina.
Alltaf var gaman og mikið
tilhlökkunarefni að fara vestur þótt
ferðunum hafi fækkað síðustu ár.
Litla dóttir mín, María Lív, sem
fæddist í september síðastliðnum
naut ekki þeirra forréttinda að hitta
þig en ég veit að þú munt fylgjast
með henni og vemda hana og mun
hún kynnast þér í gegnum
minningar mínar.
En eins og amma orðaði það svo
vel við mig í símanum um daginn:
„Maður fær lífið að láni og einhvem
tímann þarf maður að skila því
aftur.“
Það er ijóst að guð hefur þurft á
góðum manni að halda í liði sínu og
eins og allir vita sem eitthvað til þín
þekkja, afi minn, er ekki hægt að fá
betri mann sér við hlið.
Elsku amma, böm og fjölskyldur
þeirra. Ég bið góðan guð að veita
ykkur styrk í þessari erfiðu sorg en
þegar á líður koma elskulegar
minningar í staðinn.
Takk, elsku afi, fyrir allt og allt.
Saknaðarkveðja.
Þinn
Ragnar.
BJARNI
KRIS TJÁNSSON
+ Bjarni Krist-
jánsson fæddist
í Reykjavík 1. aprfl
1932. Foreldrar
hans voru Kristín
Bjarnadóttir frá
Grund í Skorradal,
f. 8. mars 1902, d.
24. september 1969,
og Kristján Þor-
steinsson frá Mið-
fossum í Andakfl, f.
1. nóvember 1899,
d. 9. ágúst 1993.
Bræður Bjarna
eru Þorsteinn, f. 23.
júní 1936, og Pétur,
f. 29. desember 1944. Bjarni
kvæntist 18.2.1954 Eli'nu Magn-
úsdóttur, f. 26. mars 1929, d. 8.
febrúar 1990. Þau slitu samvist-
ir. Sonur þeirra er Kristján, f.
23. maí 1955.
Útför Bjarna fer fram frá
Fossvogskapellu í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Ég vil í örfáum orðum minnast
mágs míns Bjarna Kristjánssonar.
Fráfall hans bar fremur brátt að
eftir stutta sjúkdómslegu. Fyrir
u.þ.b. einu ári kenndi hann sér meins
sem talið var að komist hefði verið
fyrir, en því miður var ekki svo. Ég
kynntist honum fyrir 35 árum er ég
kom inn í fjölskylduna hér á Selja-
veginum. Alla tíð síðan hef ég og fjöl-
skylda mín átt góð samskipti við
hann, einkanlega eftir að við fluttum
á Seljaveginn og bjuggum við þar
ásamt honum og afa Kristjáni sem
lést fyrir nokkrum árum í hárri elli.
Aldrei bar skugga á
það sambýli. Bjami
starfaði við hin ýmsu
störf á árum áður, m.a.
á Borgarskrifstofum
Reykjavíkurborgar,
togurum, fraktskipum,
Jarðborunum ríkisins
o.fl. þar til heilsubrest-
ur gerði vart við sig er
hann varð öryrki og gat
ekki unnið lengur.
Mér fannst alltaf
blunda svolítill heims-
borgari í Bjama. Hann
vildi vera vel klæddur,
átti falleg og vönduð
föt. Hann var ávallt snyrtilegur og
jafnvel pjattaður þegar vel lá á hon-
um. Hann hafði gaman af að sitja á
kaffihúsum og spjalla við borgar-
búa. Ánægju hafði hann af myndlist
og tónlist, einkanlega djasstónlist.
Ungur kvæntist hann unnustu
sinni Elínu Magnúsdóttur, saman
eignuðust þau soninn Kristján. Þau
slitu sambúð. Kristján og faðir hans
hafa verið góðir félagar og átt marg-
ar ánægjulegar samverastundir.
Bjama var mjög annt um son sinn
og bar velferð hans fyrir brjósti.
Við fjölskyldan munum sakna
hans héðan úr þessu fjölskylduhúsi
þar sem foreldrar hans og bræður
hafa búið í nærri 70 ár.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Valdís Bjamadóttir.
TILKYNNINGAR
KEIMINISL A
Viðskiptaháskólinn í Reykjavík
Aðalsafnaðarfundur
Kársnessóknar
verður haldinn föstudaginn 11. júní kl. 17.00
í safnaðarheimilinu Borgum.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Prestur og sóknarnefnd.
Viðskiptaháskólinn í Reykjavík
Skólaárið 1999-2000
Umsóknarfrestur um skólavist er til
9. júní 1999
• Markmið skólans er að útskrifaðir nemendur
séu framúrskarandi fagmenn sem eru eftir-
sóttir í atvinnulífinu og eigi greiðan aðgang
að framhaldsnámi við erlenda háskóla.
Fjarnám
Umsóknarfrestur um fjarnám við
Viðskiptaháskólann í Reykjavík er til
9. júní 1999
• í boði eru öll námskeið fyrsta árstölvunar-
fræðideildar, alls þrjátíu einingar.
• Fyrirvari er gerður um þátttöku í einstökum
námskeiðum.
KÓPAVOGSBÆR
íbúðarhúsalóðir til
úthlutunar
Kópavogsbær auglýsir eftirtaldar lóðir
til úthlutunar:
Salahverfi — parhús:
Hásalir 6—8.
Um er að ræða parhús á tveim hæðum. Ein
innibyggð bílageymsla skal vera við hverja
íbúð. Lóðirnar eru í halla og er aðkoma að hús-
umfrá vestri inn á neðri hæð. Hámarksgrunn-
flötur hvors húss er 130 m2. (Hámarksflatarmál
220 m2.)
• Kennt er í tveimur deildum. Nám í tölvunar-
fræðideild er þriggja ára nám til BS-prófs
í tölvunarfræði. Eftir tvö ár útskrifast nem-
endur sem kerfisfræðingar VHR og býðst
þeim þá að sækja um nám á þriðja ári, sem
lýkur með BS-prófi.
• Viðskiptadeild býður upp á þriggja ára mark-
visst nám í viðskiptafræði. Nemendurút-
skrifast með BS-gráðu að námi loknu. Einnig
gefst nemendum kostur á að útskrifast eftir
tveggja ára nám með diploma í viðskipta-
fræði.
• Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdents-
prófi eða sambærilegu prófi. Við val á um-
sækjendum eru einkunnir á stúdentsprófi
lagðar til grundvallar, en einnig er tekið tillit
til þess á hvaða braut nemendur hafa
stundað nám. Sérstaklega er horfttil góðrar
undirstöðu í stærðfræði og upplýsingatækni.
Tekið er tillittil viðbótarmenntunar, starfs-
ferils og annarra upplýsinga sem fylgja um-
sókn.
• Umsækjendur verða að hafa lokið stúdents-
prófi eða sambærilegu námi.
• Einkunnir, viðbótarmenntun og starfsreynsla
verða höfð til hliðsjónar við val á nemend-
um.
• Eyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans
sem og á vefsíðunni www.vhr.is/fjamam.
• Umsóknum skal skilað til skrifstofu skólans
eigi síðar en 9. júní 1999.
• Námið hefst í lok ágúst.
Viðskiptaháskólinn í Reykjavík, Ofanleiti 2,
103 Reykjavík. Sími 510 6200. Símbréf 510 6201.
Netfang vhr@vhr.is. Vefslóð: www.vhr.is
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN
( REYKJAVlK
Vatnsendahverfi — einbýlishús.
Dimmuhvarf 27 og 29.
Um er að ræða einbýlishús á einni til tveim
hæðum. Lóð nr. 29 er um 1.550 m2 að stærð
og lóð nr. 27 er rúmlega 1.650 m2. Á henni má
einnig byggjá lítið hesthús.
Lóðirnar eru byggingarhæfar.
Umsóknareyðublöd, skipulagsskilmálar
og aðrar upplýsingar fást hjá Tæknideild
Kópavogs, Fannborg 2.
Ath! Eldri umsóknir þarf að endumýja.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Viðskipta-
háskólans í síðasta lagi 9. júní 1999.
Umsóknareyðublöð eru fáanleg á skrifstofu
VHR að Ofanleiti 2,103 Reykjavík, og á vefsíðu
www.vhr.is/umsokn.
Viðskiptaháskólinn í Reykjavík, Ofanleiti 2,
103 Reykjavík. Sími 510 6200. Símbréf 510 6201.
Netfang vhr@vhr.is. Vefslóð: www.vhr.is
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN
( REYKJAVlK
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim ^
sjálfum, sem hór segir:
Leirubakki 4, Seyðisfirði, þingl. eig. Einar Hólm Guðmundsson og
Jón Guðmundsson, gerðarbeiðendur Hótel Saga ehf. og sýslumaður-
inn á Seyðisfirði, föstudaginn 11. júní 1999 kl. 15.
Útgarður 2, Egilsstöðum, þingl. eig. Vilhjálmur Einarsson, gerðar-
beiðandi Húsasmiðjan hf., föstudaginn 11. júní 1999 kl. 14.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, á
7. júní 1999.