Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 31
Morgunblaðið/Hávar
HAMRAHLÍÐARKÓRINN lauk vel heppnuðu söngferðalagi um Prag
með óvæntri heimsókn í boð til íslenska ræðismannsins.
Fundur borgarstjóra menningarborga í Prag
Hefur mikla þýðingu
fyrir framtíðina
Prag. Morgnnblaðið.
BORGARSTJÓRAR Menningarborga Evrópu hittust á fundi í Prag.
INGIBJORG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sat fund borgarstjóra
Menningarborga Evrópu í Prag í
síðustu viku. Fundinum lauk á
sunnudag. Að sögn Ingibjargar
Sólrúnar hafa menningarborgirnar
með sér náið samstarf og borgar-
stjórarnir hafa hist reglulega með-
an á undirbúningi menningarársins
hefur staðið. „I gegnum þetta sam-
starf hafa myndast tengsl við borg-
ir og svæði í Evrópu sem við höfum
ekki haft mikil samskipti við fram
að þessu. Hingað til hafa samskipt-
in beinst að Norðurlöndunum og
öðrum löndum Norður-Evrópu en
nú hafa opnast möguleikar á ýmiss
konar samstarfi í framtíðinni."
Ingibjörg Sólrún sagði að á
fundinum hefði verið ákveðið að
Reykjavíkurborg tæki að sér for-
ystuna í samstarfi menningarborg-
anna á miðju næsta ári og sam-
starfsfundur menningarborganna
yi'ði haldinn í Reykjavík í ágúst ár-
ið 2000. „Það er auðvitað mikilvægt
fyrir okkur að leiða þetta flókna og
mikla samstarf á þeim tíma þegar
menningarárið stendur sem hæst,“
sagði Þóiunn Sigurðardóttir
stjómandi Reykjavíkur menning-
arborgar 2000. „Við þurfum á öllu
okkar að halda og ríflega það til að
fullt tillit sé tekið til okkar sjónar-
miða. Reyndar tel ég að það hafí
tekist og að staða okkar sé mjög
góð hvað þetta varðar.“
Samhliða fundi borgarstjóranna
héldu stjómendur Menningarborg-
anna 2000 með sér samráðsfund og
að sögn Þórunnar Sigurðardóttur
var merkasti árangur þess fundar
að samkomulag hefur náðst um
stofnun sameiginlegs kórs allra
borganna sem stjómað verður af
Þorgerði Ingólfsdóttur og kemur
hann fyrst fram í Reykjavík á
gamlárskvöld 1999. „Þetta er stór
áfangi fyrir okkur að ná fullri sam-
stöðu um þetta verkefni. Reyndar
höfðu allar borgimar lýst yfir þátt-
töku nema ein, Brussel, en nú lýstu
þeh' yfir þátttöku sinni og við telj-
um þetta mikinn sigur.“
Hamrahlíðarkóririn
í Prag
Kórinn ber heitið Voices of
Europe og verður skipaður 10
söngvumm frá hverri borg, 90
manna kór og trompið sem Island
spilaði út var þátttaka Bjarkar
söngkonu, en hún mun koma fram
með kórnum á gamlárskvöld og
síðan á aðaltónleikum kórsins sem
haldnir verða 26. ágúst árið 2000 í
Hallgrímskirkju í Reykjavík.
Samtímis fundi stjórnenda
Menningarborganna hefur Hamra-
hlíðarkórinn verið á söngferðalagi í
Prag og næsta nágrenni borgar-
innar undanfarna daga við góðan
orðstír. Ferð kórsins er í boði
Karlsháskólans í Prag sem er ein
elsta menntastofnun Evrópu,
stofnaður á 15. öld. Að sögn Þor-
gerðar Ingólfsdóttur stjórnanda
kórsins hefur ferðin gengið eins og
í sögu, móttökur verið frábærar og
kórinn komið fram við ýmis ólík
tækifæri. „Hápunktur ferðarinnar
var þegar við sungum í hátíðasal
Karlsháskólans en þar er and-
rúmsloft aldagamallar menningar
og mennta næstum áþreifanlegt."
Þorgerður sagði það sérstaklega
ánægjulegan endapunkt á vel
heppnuðu ferðalagi að fá fréttirnar
af samkomulagi Menningarborg-
anna um Evrópuraddakórinn.
„Þetta er afskaplega spennandi
verkefni og ánægjulegt að heyra að
allar borgimar verða með,“ sagði
Þorgerður.
Hamrahlíðarkórinn gerði það
ekki endasleppt, því í boði sem
Þórir Gunnarsson, ræðismaður Is-
lands í Prag, hélt borgarstjóra í lok
heimsóknar hennar til borgarinnar
kom kórinn óvænt fram og söng
fyrir viðstadda klæddur þjóðbún-
ingum. I stuttri tölu sem borgar-
stjórinn hélt við þetta tilefni kom
fram að kórinn væri framúrskar-
andi fulltrúi Reykjavíkurborgar á
erlendri grund, „því við teljum
okkur Reykvíkinga auðvitað eiga
mest tilkall til ykkar,“ sagði borg-
arstjórinn.
Fj óræringurinn
í Prag
Islendingar gera það ekki enda-
sleppt í Prag þessa dagana því í
gær var opnaður við mikla viðhöfn
Alþjóðlegi fjóræringurinn hér í
Prag. Fjóræringurinn vai' fyrst
haldinn fyrir aldarfjórðungi og er
stærsta sýning sem haldin er í ver-
öldinni á verkum leikmyndahönn-
uða í leikhúsum um víða veröld. Að
sögn skipuleggjenda hátíðarinnar
hafa þátttakendur aldrei verið
fleiri og skipta tugum frá öllum
heimshornum. Hátíðin er haldin í
gríðarstórri sýningarhöll frá síð-
ustu öld, Iðnaðarhöllinni svoköll-
uðu og er sýningarsvæðið á mörg
þúsund fermetrum í þremur sam-
tengdum skálum. Þarna gefur að
líta sýnishorn þess helsta sem unn-
ið hefur verið í leikmyndahönnun í
veröldinni á undanfórnum árum,
ásamt sérstökum kynningum á lífs-
ferli margra af þekktustu leik-
myndahönnuðum aldarinnar.
Einnig er sérstök deild á sýning-
unni helguð leikhúsarkitektúr og
gefur þar að líta fróðlegar hug-
myndir arkitekta um hvernig leik-
hús nýi-rar aldar gætu Mtið út.
Fulltrúar Islands á sýningunni
eru þrír leikhúslistamenn frá
Hafnarfjarðarleikhúsinu, þau
Hilmar Jónsson leikstjóri, Finnur
Arnar Arnarson leikmyndahönnuð-
ur og Þórunn María Jónsdóttir
búningahönnuður.
Stór sýning á
verkum Errós í
Jeu de Pomme
Mörg verkanna
frá Listasafni
Reykjavíkur
VERK Errós verða í haust sýnd í
Jeu de Pomme-safninu í París, en
safnið telst í hópi virtari listasafna
borgarinnar. I Jeu de
Pomme-safninu eni
jafnan haldnar einka-
sýningar á verkum ein-
stakra listamanna og
eru um sex yfirlitssýn-
ingar á ári hverju. I
haust bætist Erró því í
hóp listamanna á borð
við César og Armand.
Sýningin í Jeu de
Pomme er mikill vegs-
auki fyrir Erró og segir
hann þetta álíka heiður
og að vera boðið að
sýna í Louvre-safninu.
Ekki var gengið frá
dagsetningu sýningar-
innar fyrr en í síðustu
viku og hefur því að sögn Errós ekki
enn verið gengið endanlega frá
hvaða verk verði sýnd. Hann segir
þó að ekki verði um að ræða yfirlits-
sýningu á ferli sínum, en sér finnist
ákveðinn jarðarfararblær á slíkum
sýningum.
Erró segir að þó endanleg verka-
skrá liggi ekki fyrir þá séu engu síð-
ur komin drög að því þema sem
verði ríkjandi. A sýningunni verða
um 70 verk og kemur stór hluti
verkanna frá Listasafni Reykjavík-
ur. Áhersla verður lögð á stórar
myndir sem eru allt að 13 metrar að
lengd og segir Erró forstöðumann
Jeu de Pomme og skipuleggjanda
sýningarinnar, Daniel Abadi, leggja
nokkurn þunga á pólitískar myndir
sínar, auk listasögumynda og stóru
Pol Pot-myndarinnar sem hann
vann fyrir nokkrum árum. Þema
sýningarinnar, sem nær yfir alla
átta sali safnsins, verður að sögn
Errós líklega „l’image de sieclé“,
eða mynd aldarinnar og er um að
ræða yfirlit yfir sl. 40-50 ár.
Að sögn Errós selur Jeu de
Pomme-safnið oft á tíðum sýningar
sínar til fleiri landa og segir hann
því góðar líkur á að sýning sín muni
fara víðar. Sýningarnar ferðist um
heiminn í allt að tvö til þrjú ár, til
jafn fjarlægra heimsálfa og Suður-
Ameríku og Asíu. Erró segir sex
sýningar safnsins vera á slíku ferða-
lagi þessa stundina.
Fyiirvari sýningarinnar er stutt-
ur að sögn Errós, þar sem yfirieitt
séu sýningar á borð við þessa undir-
búnar allt að tvö ár
fram í tímann. Hann
segir hins vegar að þar
sem hann hafi undan-
farið verið með mikið af
stórum sýningum í
austur-Evrópu þá sé
gott skipulag á mynda-
safni sínu. „Þetta er
mjög auðvelt fyrir mig
því allt er svo vel skipu-
lagt út af þessum sýn-
ingum sem eru búnar
að vera undanfarin ár.
Svo hjálpar það til að
mikið af myndunum er
heima.“
Að sögn Errós hefur
Abadi haft hug á að
sýna verk hans í nokkurn tíma. En
Abadi lét í ljós þá ósk þegar hann
kom með Erró í heimsókn til Islands
til að skoða verk hans. „Ég kom með
hann heim fyrir nokkrum árum til
að skoða myndirnar og hann sagði
að við sýndum þetta einhvern tím-
ann í Jeu de Pomrne," segir Erró.
Hann bætir við að þetta hefði getað
gerst á næsta ári eða þarnæsta en
segist ánægður með að það verði í ár
því að það sé gaman að geta endað
öldina með sýningunni.
Sýniiig Errós stendur yfir dagana
25. október til 2. janúar á næsta ári.
-----------------------
Afmæli og
heimasíða
GUNNAR Dal rithöfundur og heim-
spekingur fagnar um þessar mundir
50 ára rithöfundarafmæli, en fyrsta
bók hans, Vera, kom út árið 1949.
Eftir hann liggja 58 bækur, ýmist
frumsamdar eða þýddar.
í tilefni þessa hefur verið opnuð
heimasíða skáldsins á veraldarvefn-
um í samvinnu við Aco-Apple. Net-
fangið er www.gunnardal.is.
Erró
vinsæli MlBMÆ íAlbufeira
$ur verið til sölu fyrir áhugasama.
Nánari upplgsingar verða gefnar í síma:
milli klukkan 14 og 15 að íslenskum tíma
næstu daga.
Sýnishorn úr söluskrá
. Bílasala, gömul og virt, mjög góð inni- og útiaðstaða. Góð
viðskiptasambönd. Frábært tækifæri fyrir alvöru bílasala til að
eignast alvöru bílasölu.
. Sérhæfð bílaleiga til sölu. Er með útleigu á húsbílum og húsvögnum.
Starfar aðeins yfir sumarmánuðina. Góð sambönd við erlendar
ferðaskrifstofur. Er á netinu.
. Lítil falleg og þekkt sælkeraverslun í miðborginni til sölu.
Einstakt tækifæri fyrir huggulegt fólk sem vill eignast notalegt
framtíðarfyrirtæki.
. Framköllunarþjónusta, Ijósmyndavöruverslun, Ijósmyndastúdíó og
innrömmun, allt á einum stað og mikil umsvif. Skapandi fyrirtæki
með mikla tekjumöguleika.
Spennandi dæmi sem selst vegan veikinda.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVE R I
SÍMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.