Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Ökumenn þungstíg-
ir á bensíngjöfínni
HELGIN var með rólegasta móti
hjá lögreglunni á Akureyri að öðru
leyti en því að margir ökumenn
gerðust brotlegir.
Hátt í 50 ökumenn voru teknir
fyrir of hraðan akstur um helgina á
Akureyri og í næsta nágrenni. Sá
ökumaður sem hraðast ók, var tek-
inn á 154 km hraða þar sem há-
markshraði er 90 km og var hann
umsvifalaust sviptur ökuskírteini
sínu.
Þá voru 6 ökumenn teknir fyrir
meinta ölvun við akstur og er sá
fjöldi í hærri kantinum að sögn
varðstjóra lögreglunnar. Einn
hinna grunuðu ók á annan bfl og
stakk af frá vettvangi en lögreglan
hafði hendur í hári hans.
Harður
árekstur
Harður árekstur varð á milli
tveggja fólksbifreiða á gatnamót-
um Skógarlundar og Þingvalla-
strætis á sunnudagskvöld. Öku-
maður annars bílsins þurfti að leita
til slysadeildar FSA og í gær til-
kynntu tveir farþegar hans til lög-
reglu að þeir þyrftu einnig að leita
aðstoðar slysadeildar eftir óhappið
vegna eymsla. Báðir bflarnir
skemmdust mikið og þurfti að
draga þá burtu af vettvangi.
Morgunblaðið/Kristján
Túlípanarnir litskrúðugir
SYSTURNAR Anna Gyða og
Freyja Sigurgísladætur frá
Álftanesi voru í heimsókn á
Akureyri í blíðviðrinu um
helgina. Á leið sinni um mið-
bæinn rákust þær á þessa fal-
legu túlipana sem starfsfólk
umhverfisdeildar hefur gróð-
ursett á horni Gránufélags-
götu og Glerárgötu. Túlipan-
arnir eru mjög litskrúðugir
og vekja óneitanlega mikla at-
hygli vegfarenda. Unnið er að
því af fullum krafti að prýða
bæinn og stefnt að því að
hann skarti sínu fegursta í
kringum þjóðhátíðardaginn
17. júní.
Skrautla opnuð
í göngugötu
SKRAUTLA heitir ný verslun
sem er við göngugötuna í Hafn-
arstræti númer 104. Þær Mar-
grét Jónsdóttir og systurnar
Oddrún og Bryndís Magnús-
dætur eiga og reka verslunina.
Margrét er kunn leirlistakona,
en þær systur vinna listaverk úr
mósaík og silfri. í versluninni
era til sölu handunnir munir eft-
ir listakonurnar, nytjalist,
skrautmunir og skartgripir.
Skrautla er opin alla virka daga
frá kl. 11 til 18.
Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar
VERKEFNASJÓÐUR AFE.
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjaröar
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
Verkefnasjóöi AFE.
Þeir sem eru í atvinnurekstri eða vilja hefja atvinnurekstur á
starfssvæði AFE, hafa rétt til að sækja um. Allar atvinnu-
greinar eru styrkhæfar, en ríkt tillit er tekið til framtíðar-
möguleika verkefnisins og arösemi til lengri tíma litið.
Umsóknareyðublöð, ásamt leiðbeiningablaði, fást á skrifstofu AFE,
Strandgötu 29, hjá bæjarritaranum í Ólafsfirði og á Dalvík og
sveitarstjóranum á Grenivík. Hægt er að fá eyðublöðin (tölvutæku formi
hjá sömu aðilum.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu AFE
í síma 461 2740 eða netfangi „benedikt@afe.is”
Umsóknarfrestur er til 20. júní 1999.
Öllum umsóknum verður svarað skriflega fyrir 10. júlí 1999
Morgunblaðið/Kristján
RÓÐUR var á dagskrá hátíðahalda sjómannadagsins á Akureyri að vanda og kepptu þar bæði áhafnir skipa og
landkrabbar. Stúlkurnar í sveit UA voru vígalegar að sjá þegar þær biðu eftir að röðin kæmi að þeim að róa.
Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar á sjómannadaginn
Eiga hvalir að fá að éta
þjóðina út á gaddinn?
KONRÁÐ Alfreðsson, formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar, sagði
í ávarpi sínu á Akureyri á sjó-
mannadaginn, að hvalamálið í heild
sinni færi að verða Islendingum til
skammar og lýsti jafnframt undrun
á því að þorskstofninn mældist ekki
af þeim styrk, að Hafrannsókna-
stofnun treysti sér til að leggja til
auknar veiðar á næsta fiskveiðiári.
„Ég er ekki í vafa um að það er
ekki aðeins sjómönnum undrunar-
efni að þorskstofninn mælist ekki
af þeim styrk að hægt sé að auka
veiðar. Öll vildum við sjá auknar
veiðar sem árangur af samdrættin-
um á undanförnum árum og miðað
við upplifun sjómanna af þorsk-
gengd umhverfis landið þá hefði
mátt ætla að auka ætti veiðar,“
sagði Konráð Alfreðsson í ávarpi á
Oddeyrarbryggju, þar sem hátíða-
höldin fóru fram í blíðskaparveðri á
sunnudaginn. Þetta var í 60. skipti
sem sjómannadagurinn er haldinn
hátíðlegur í höfuðstað Norðurlands.
Konráð nefndi svo að skýrsla
Hafró sýndi að hvalastofnar séu
ört vaxandi við landið „og öllum er
fullkomlega ljóst að þar fer stofn
sem heggur gríðarleg skörð í fisk-
stofna á Islandsmiðum". Konráð
bætti svo við: „Hvalamálið fer í
heild sinni að verða okkur Islend-
ingum til skammar. Er það virki-
lega svo að við höfum látið yfirlýs-
ingar öfgasinnaðra umhverfis-
verndarsamtaka svínbeygja okkur
Morgunblaðið/Kristján
Samningur um byggingu
skautahúss undirritaður
AKUREYRARBÆR hefur undir-
ritað verksamning við SJS verk-
taka ehf. um að fyrirtækið taki
að sér að hanna og byggja
skautahús yfir skautasvell á
svæði Skautafélags Akureyrar
við Naustaveg. Kostnaður við
verkið er tæpar 189 milljónir
króna.
Kostnaður við viðgerð á yfír-
borði steyptrar plötu (ísplötu) og
á endurnýtingu á hita frá kæli-
vélum, er ekki innifalinn í samn-
ingsfjárhæðinni og verður samið
um þá liði sérstaklega.
f verksamningnum er gert ráð
fyrir að skautahúsið verði hæft
til skautaæfinga um miðjan nóv-
ember nk. en að húsinu verði að
fullu iokið 1. mars á næsta ári.
Verklok, þar með lóðafrágangur,
eru áætluð 28. júlí árið 2000.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, undirritaði
samninginn fyrir hönd bæjarins
en þeir Signrgeir Arngrímsson
og Jón Trausti Björnsson fyrir
hönd SJS verktaka.
svo í duftið að við þorum okkur
hvergi að hræra gagnvart hval-
veiðum? Ætlum við að horfa upp á
það endalaust að hvalastofnarnir
fái að vaxa svo við landið að þeir
éti þjóðina á endanum út á gadd-
inn? Staðreyndin er sú að hvala-
stofnarnir þola vel veiðar og þær
eru hreint og beint nauðsynlegar
ef ekki á illa að fara. Ég skora þess
vegna á stjórnmálamenn sem eru
þessa dagana að taka sæti á Al-
þingi að taka þá ákvörðun að hefja
hvalveiðar að nýju og sýna það og
sanna að Islendingar eru fiskveiði-
þjóð sem lætur skynsemina og vís-
indin ráða en lætur ekki stjórnast
af öfgakenndum yflrborðssjónar-
miðum.“
Veiðilindin
við Leiruveg
VEIÐILINDIN heitir ný
verslun með veiðivörur en hún
er til húsa í bensínstöð og
verslun ESSO við Leiruveg.
Breytingar hafa verið gerðar á
bensínstöðinni; hraðbúð þar
sem hægt er að nálgast flestar
nauðsynjavörur hefur verið
stækkuð og vöruúrval aukið.
Veiðilindinni hefur verið
markaður ákveðinn staður inn-
an verslunarinnar og er þar
boðið upp á fjölbreytt úrval
veiðivara, m.a. frá Daiwa, Abu
Garcia, Berkley og Fenwick.
Veiðilindin verður opin í sum-
ar, frá júní til loka ágúst frá kl.
7.30 til 23.30. Á myndinni er
Björn Davíðsson starfsmaður í
Veiðilindinni.