Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
PRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 13
FRETTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
20 MANNS voru á stofnfundi raforkubænda í gær.
Landssamband raforkubænda stofnað
Yfír 200 manns
framleiða orku
LANDSSAMSAMBAND raforku-
bænda var stofnað á Hótel Sögu í
gær. Markmið félagsins er að ná
saman raforkubændum í eitt félag
og vinna að hagsmunamálum þeirra
sem m.a. felast í raforkuframleiðslu
inn á raforkunet landsmanna. Kjör-
in var þriggja manna stjórn á stofn-
fundinum. Formaður hennar er
Ólafur Eggertsson frá Porvaldseyri
undir Eyjafjöllum og meðstjórnend-
ur eru Eiður Jónsson frá Arteig í
Kelduhverfi og Þórarinn Hrafnkels-
son frá Fellabæ. 20 manns voru á
stofnfundinum.
Þórarinn sagði að menn gætu
skráð sig í sambandið sem stofnfé-
lagar fram til 1. október næstkom-
andi. Atvinnuþróunarfélögin í land-
inu starfa með sambandinu og telja
stofnfélagar málið að vissu leyti
vera þróunarverkefni.
Þórarinn sagði að sala á raforku
inn á orkunetið væri ekki höfuð-
markmið félagsins heldur það að ná
saman í ein samtök þeim mönnum
sem fást við það verkefni að fram-
leiða orku. Hann segir að yfír 200
aðilar vinni við það í dag að fram-
leiða raforku. Einn af stofnfélögun-
um á fundinum í gær framleiðir t.d.
250 kílóvött fyrir fímm bæi. Meðal-
framleiðslan er þó minni og algengt
er að menn framleiði 10-20 kílóvött
fyrir hvert heimili.
Þórarinn segir að fyrst og fremst
sé um vatnsaflsvirkjanir að ræða en
einnig framleiði menn raforku úr
gufuafli eða vindorku.
Hann segir að vonir séu bundnar
við að þónokkrir raforkubændur
geti senn farið að framleiða raforku
inn á orkunetið og mörgum sé hægt
að hjálpa til að framleiða til eigin
nota. „Við höfum einnig horft til
þess að Landsvirkjun hefur verið að
gera orkudreifínguna að sérstöku
fyrirtæki og framleiðendur eru ótal-
margir. Landsvirkjun sér um orku-
flutninginn. Þetta eru miklar breyt-
ingar sem nú eru að gerast," segir
Þórarinn.
Evrópufundur Interpol
í Reykjavík árið 2000
A 28. EVROPUFUNDI Inter-
pol, sem haldinn var í Ósló dag-
ana 2.-4. júní, var samþykkt að
þiggja boð ríkisstjórnar Islands
og ríkislögreglustjórans um að
halda Evrópufundinn árið 2000 í
Reykjavík.
Þetta er í fyrsta sinn sem svo
fjölmennur fundur lögregluyfir-
valda er haldinn á Islandi, en
búast má við að fulltrúar allra
þeirra 45 Evrópulanda sem að-
ild eiga að Interpol sæki fund-
inn í Reykjavík og gert er ráð
fyrir að fjöldi þátttakenda verði
130-150. Auk aðildarlanda frá
Evrópu situr fjöldi áheyrnar-
fulltrúa fundinn. Má þar nefna
fulltrúa frá Astralíu, Bandaríkj-
unum, Kanada, Israel, fram-
kvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, Evrópuráðinu,
Europol, samtökum um lög-
gæslu í Evrópu, samtökum um
öryggi í alþjóðlegri bankastarf-
semi, auk annarra.
Fundurinn verður haldinn
dagana 17.-19. maí að ári.
Finnur fyrir almennum skákáhuga
Kvíði ekki starfinu
ÁSKELL Örn Kárason sálfræðing-
ur er nýkjörinn forseti Skáksam-
bands íslands. í kjörinu hlaut hann
einu atkvæði meira en Hrannar B.
Amarsson. Hann segist ekki kvíða
starfinu þrátt fyrir nauman sigur,
enda telur hann enga andstöðu vera
við sig sem einstakling innan sam-
bandsins. Hann segir líka margt
framundan hjá Skáksambandinu,
tímamót eru á þessu og næsta ári.
Einnig er í undirbúningi sterkt at-
skákmót á þessu ári og hefur Gary
Kasparov lýst yfír áhuga á að mæta,
þótt ekkert sé ákveðið í þeim efn-
um.
Tímamir hafa breyst í skák-
íþróttinni á íslandi síðan að Jóhann
Hjartarson tefldi gegn Kortsnoj í
eftirminnilegu skákeinvígi, sem
þjóðin fylgdist stolt með. í dag blas-
ir við nýkjömum forseta Skáksam-
bandsins að margir af okkar helstu
stórmeistumm hafa hætt sem at-
vinnumenn og minna fer fyrir
íþróttinni í fjölmiðlum en áður.
„Samkeppni í alþjóðlega skák-
heiminum hefur aukist mikið við
atburði sem eru kenndir við fall
járntjaldsins. Fleiri skákmenn
mæta á alþjóðleg mót og verð-
launafé hefur lækkað mikið,“ segir
Askell þegar hann er spurður um
stöðu skákarinnar á Islandi í dag.
Önnur ástæða, sem hann nefnir
fyrir brotthvarfi stórmeistaranna,
er að skák sé ekki íþrótt sem menn
endist lengi í af fullum krafti. Þetta
sé tímafrek og kostnaðarsöm
íþrótt.
Askell nefnir líka að sér fínnist
sem skákin hafi lent á milli þils og
veggjar í fjölmiðlum. Hún sé ekki
talin til almennra íþrótta en hún
falli heldur ekki inn í fréttaumfjöll-
un. Hann segir að fjölmiðlaumfjöll-
un skipti miklu máli fyrir vöxt og
viðgang íþróttarinnar. „Við höfum
kannski komið illa út úr þessari
svokölluðu fjölmiðlabyltingu."
Vinsæl meðal barna
og unglinga
Hins vegar nefnir Askell að skák-
íþróttin sé mjög vinsæl í skólum og
meðal bama og unglinga. „Þar sem
skákin er hluti af skipulögðu tóm-
stundastarfi er hún oftar en ekki í
fyrsta sæti meðal barna upp að tán-
ingsaldri.“ Hann nefnir líka að
margir ungir skákmenn séu mjög
efnilegir. Vandamálið sé aftur á
móti skortur á kennurum og leið-
beinendum í gi-eininni.
„Mörg lönd eru komin mjög
framarlega í þjálfunaraðferðum.
Okkar ungu skákmenn standa sig
mjög vel í mótum á Norðurlöndun-
um en hætta gæti verið á að við
misstum af lestinni ef ekki verður
haldið vel á spöðunum. Við þurfum
að halda í okkar efnilegu skákmenn
en til þess þurfa þeir að hafa fyrir-
myndir og það getur verið erfítt ef
Strætisvagn milli bflastæða og miðborgar
Kostnaður er áætlaður
á bilinu 1,5-2 milljónir
KOSTNAÐUR Reykjavíkurborgar
við ferðir strætisvagns milli bíla-
stæða við Háskólann og miðborgar
er áætlaður 1,5-2 milljónir króna.
Boðið verður upp á þessa þjónustu
á virkum dögum í sumar út ágúst.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri upplýsti þetta á fundi
borgarstjórnar í gær í framhaldi af
gagnrýni Kjartans Magnússonar,
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins,
á þá ráðstöfum Strætisvagna
Reykjavíkur að leggja niður leið 1
sem ekið hefur Þingholtin.
Kjartan taldi það ranga forgangs-
röðun að auka þjónustu við notend-
ur einkabíla í stað þess að leggja
áherslu á að gera almenningssam-
göngur að raunhæfum valkosti.
Hann kvaðst ekki andsnúinn þess-
ari nýju þjónustu við miðborgina en
taldi rangt að leggja niður leið 1 og
draga þar með úr þjónustu við íbúa
í Þingholtum.
3 farþegar á leið 1
Helgi Pétursson, borgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans og formaður
stjórnar SVR, kvaðst hafa áhyggj-
ur af rekstrarvanda SVR og sagð-
ist vilja veita borgarbúum sem
besta þjónustu fyrir skikkanlegt
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
ÁSKELL Örn Kárason, nýkjörinn forseti Skáksambands íslands
við eigum ekki stjömur í iþróttinni
og fjölmiðlaumfjöllun er lítil,“ segir
Áskell.
Sýnir styrk hreyfingarinnar
Það eru spennandi tímar
framundan að mati Áskels. Þrjú
stórafmæli eru framundan, Skák-
samband Norðurlanda, sem er elsta
alþjóðlega skáksambandið, heldur
upp á 100 ára afmæli sitt 23. ágúst á
þessu ári, Alþjóðlega skáksamband-
ið (FIDE) verður 75 ára og á næsta
ári er stórafmæli hjá Taflfélagi
Reykjavíkur. Einnig kom Áskell inn
á fyrirhugað atskákmót síðar á
þessu ári. Hugmyndin er að halda
mjög sterkt mót ef nægt fjármagn
fæst og hefur ekki minni spámaður
en Kasparov lýst yfir áhuga á að
mæta.
Aðspurður um átök innan skák-
sambandsins segir Áskell að það sé
ekki til að hafa áhyggjur af. „Auð-
Dilbert á Netinu
mbl.is
vitað eru skiptar skoðanir innan
hreyfingarinnar en ég tel það sýna
styrk hennar." Hann segist ekki
kvíða því að mæta andstöðu innan
hreyfingarinnar þrátt fyrir nauman
meirihluta.
„Ýmsir sáu vænni kost í stöðunni
en það er ekkert sem ég tel and-
stöðu við mig persónulega," segir
Áskell. Framundan eru nú margvis-
leg verkefni, s.s mót í mörgum ald-
ursflokkum sem Skáksambandið
skipuleggur, og Áskell segist horfa
bjartsýnn fram á veginn þrátt fyrir
erfiða fjárhagsstöðu Skáksam-
bandsins, menn verði bara að taka
höndum saman.
Skólavörðustíg 21 a,
101 Reykjavlk.
Sími/fax 552 1220
y Negro
\LLTAf= EITTH\SA£> rjÝT~T
Nelfang:
blanto@iln.is
Veffang:
www.blanco.ehf.is
verð. Helgi sagðist vilja sjá tillög-
ur frá Kjartani, sem einnig situr í
stjórn SVR, varðandi lausn á
rekstrarvanda fyrirtækisins. Taldi
hann ljóst að 46% aukning á bíla-
innflutningi á fyrsta ársfjórðungi
hlyti að hafa áhrif á rekstur SVR.
Hann sagði hverja akstursleið
SVR kosta 12 milljónir króna í
rekstri og of dýrt væri að halda úti
einni leið fyrir 3 farþega að jafn-
aði.
Þessu andmælti Kjartan og sagði
fjölda farþega á leið 1 vera sex í
hverri ferð, sem væru þrjár á
klukkustund 10 tíma á dag.
Tricity Bendix
Þurrkaii
• Einfaldur en
mjög öflugur
• Tekur 5 kg.
af þurrþvotti
• Snýr í báðar áttir
• Krumpuvöm
• Tvö hitastig
24.900 kr.
■ y v
... . WÓ:' '
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000