Morgunblaðið - 08.06.1999, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Látinna sjómanna minnst við aldahvörf á sjómannadeginum
3.600 sjó-
menn faríst
á öldinni
GUÐMUNDUR Hallvarðsson, for-
maður sjómannadagsráðs, sagði við
setningu sjómannadagsins í
Reykjavík sl. sunnudag, daginn til-
einkaðan þeim 3.600 sjómönnum
sem farist hefðu á sjó á öldinni.
Sagði hann að þrátt fyrir að dauðs-
follum á sjó hefði fækkað verulega
undanfama tvo áratugi væru slys
til sjós ennþá of mörg og meðaltals-
fjöldi slysa á ári meðal sjómanna
verið svipaður á þriðja áratug.
Sagðist Guðmundur vona að með
samstilltu átaki Slysavamaskóla
sjómanna og sjómannanna sjálfra
næðist það markmið að slys um
borð í skipum heyrðu til undan-
tekninga.
Árni Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra sagði í ávarpi sínu að lífskjör
allra sem á Islandi búa, mótuðust af
því hvemig til tækist um nýtingu
lifandi auðlinda hafsins. Stærsta
breytingin í sjávarútvegi síðustu
árin væri í því fólgin að nú þyrftum
við að stjórna fiskveiðum okkar.
Geta okkar til þess að draga físk úr
sjó væri meiri en fískistofnamir
þyldu. Því hefði reynst nauðsynlegt
að takmarka aðganginn. „í þessu
efni eru fólgnar þrjár hættur fyrir
okkur íslendinga. í fyrsta lagi er
það sú hætta að við, þrátt fyrir allt,
göngum of nærri náttúranni og
verðum íyrir þeirri ógæfu að missa
fiskistofna niður fyrir það að hægt
sé að stunda úr þeim arðsamar
veiðar. í öðm lagi sú hætta að þrátt
fyrir að okkur takist vel til með
okkar fískveiðistjórnun og sjálf-
bæra nýtingu stofnanna verðum við
blórabögglar annarra sem ekki ná
að stýra sínum veiðum. Og í þriðja
lagi að óeining og ósætti um fisk-
veiðistjórnunarkerfið geri atvinnu-
greininni ókleift að starfa og skila
arði í þjóðarbúið. Framhjá þessum
hættum getum við ekki horft og
verðum að taka á þeim hverri á
sinn hátt.“
Sagði Árni að fyrir lægi endur-
skoðun á sjávarútvegsstefnunni og
hann myndi beita sér fyrir því að sú
vinna hæfíst sem fyrst. „Eg tel að
meginmarkmið sjávarútvegsstefn-
unnar hljóti áfram að verða tví-
þætt, annars vegar ábyrg nýting
fiskistofna með langtímaafrakstur
þeirra að leiðarljósi og hins vegar
að greinin skili þjóðinni hámarks-
arði af auðlindum hafsins," sagði
Ami.
íslendingum þökkuð
bj örgunarafrek
John Prescott, aðstoðarforsætis-
ráðherra Bretlands, var sérstakur
heiðursgestur sjómannadagsins að
þessu sinni og flutti ræðu dagsins.
Þar minntist hann fyrri heimsókna
sinna til íslands, m.a. þegar hann
kom hingað til að bera klæði á vopn-
in í þorskastríði Islendinga og
Breta. Prescott minntist einnig
þeirra bresku sjómanna sem farist
hafa við íslandsstrendur og þakkaði
íslendingum frældleg björgunara-
frek sem hafí bjargað enn fleiri
Bretum frá bráðum bana. Ennfrem-
ur minntist hann þeirra íslensku
sjómanna sem farist hafa á þessari
öld. „I seinni heimsstyrjöldinni fór-
ust 380 íslenskir sjómenn, annað-
hvort við fiskveiðar eða á siglingu
með fisk til Bretlands. Breska þjóð-
in er ykkur þakklát fyrir framlag
ykkar í styrjöldinni," sagði
Prescott.
Morgunblaðið/Þorkell
JOHN Prescott, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, og Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadags-
ráðs, leggja blómsveig að leiði óþekkta sjómannsins í Fossvogskirkjugarði.
ÁRNI Mathiesen sjávarútvegsráðherra flytur ávarp.
Bjami Hafþór Helgason, fram- Norðurlands, flutti ávarp fyrir
kvæmdastjóri Útvegsmannafélags hönd útvegsmanna. Sagði hann ís-
lenskan sjávarútveg hafa tekið
gríðarmiklum framfórum á þeirri
öld sem senn er að baki, einkum á
síðustu árum hennar. Sjávarútveg-
urinn hér á landi væri hins vegar
ekki ríkisstyrktur eins og víða ann-
ars staðar. „Þetta hefur gert at-
vinnugreinina bjargálna, sem er
meira en sagt verður um sjávarút-
veg í flestum öðrum löndum. En
umhverfið í samkeppnislöndum
okkar mun breytast. Nýlega sagði
einn færasti sérfræðingur okkar
um fiskveiðistjórnun að innan 2-3
áratuga yrðu allar fiskveiðar heims
kvótastýrðar. Önnur ríki munu inn-
an skamms státa af sterkari rekstr-
areiningum í sjávarútvegi, sem
verða betur í stakk búnar til að
keppa við okkur á matvælamörkuð-
um heimsins. Þessar sömu rekstr-
areiningar hafa hingað til notið
ómældra ríkisstyrkja og þær munu
ekki sleppa af þeim hendinni ótil-
neyddar," sagði Bjarni Hafþór.
Morgunblaðið/Garðar Páll
Á HANDVERKS- og munasýningu sem haldin var í íþróttahúsinu í
Grindavík á sjómannadaginn.
Sjóarinn síkáti
í Grindavík
Grindavík. Morgunblaðið.
SJÓARINN síkáti er nafnið á sjó-
manna- og fjölskylduhátíðinni í
Grindavík. Þessi hátíð er nú orðin
föst í sessi hjá mörgum öðrum en
Grindvíkingum. Það voru Álfta-
gerðisbræður sem riðu á vaðið með
tónleikum í Grindavíkurkirkju og á
fostudagskvöldið var spilaði hljóm-
sveitin Skítamórall fyrir unga fólk-
ið í Festi. Þá var alla helgina hægt
að hlusta á sérstakt útvarp hátíðar-
innar, Laufið FM 89.5. Á laugar-
deginum var boðið upp á heilmikla
dagskrá, m.a. hefðbundin atriði
eins og siglingu, kappróður og leik-
tæki fyrir börnin frá Sprell. Þá var
opnuð mikil sýning í íþróttahúsinu
á íslensku handverki auk þess að
sýna gamla muni, fugla og fiska. Þá
opnaði Bjarni Jónsson sýningu á
bátamyndum og myndum frá sjáv-
arsíðunni í Kvennó auk þess að
halda fyrirlestur um mismunandi
árabátasmíði frá aldamótunum.
Kvöldinu lauk svo með miklu balli.
Sunnudagurinn var hefðbundinn
að mörgu leyti en þó ber þess að
geta að í stað hefðbundinna ávarpa
fulltrúa sjómanna og útgerðar-
manna tók grínistinn Karl Ágúst
Úlfsson það hlutverk að flytja bæði
ávörpin. Þessi nýbreytni féll vel í
kramið hjá áheyrendum enda mik-
ill fagmaður þar á ferðinni. Karl
Ágúst kom lítið inn á kvótakerfið
enda sagði hann að slíkt væri ekki
fyrir jafn einfaldan mann og hann
að skilja. Kaffisala var á vegum
Kvenfélagsins í Grindavík og var
sérlega vel sótt.
Mikil þátttaka í hátíðar-
höldum á Hellissandi
Hellissandi. Morgunblaðid.
SJÓMANNADAGSRÁÐ á Hell-
issandi og Rifi hélt að venju mikla
hátíð um síðustu helgi, 5. og 6. júní.
Fyrri daginn fór fram kappróður
og koddaslagur við Rifshöfn og
sótti fjöldi fólks atriðin í bh'ðviðrinu
sem hér var um helgina. Daginn
eftir hófust hátíðahöldin með sjó-
mannamessu í Ingjaldshólskirkju
en þaðan var haldið í Sjómanna-
garðinn á Hellissandi þar sem aðal-
hátíðin fór fram. Hátíðarræðu
flutti að þessu sinni Hugrún Ragn-
arsdóttir og minntist hún sjó-
mannsára föður síns, Ragnars heit-
ins Jónatanssonar, og eigin reynslu
af sjómennsku. Þá var heiðraður
aldraður sjómaður. Að þessu sinni
var það Guðmundur Sölvason á
Hellissandi. Guðmundur stundaði
lengi sjómennsku á erlendum
fraktskipum og sigldi víða um
heim. Fyrir 25 árum settist hann
að á Hellissandi og tók að stunda
sjómennsku þar meðan aldur og
heilsa leyfði. Réri hann bæði á
stærri bátunum hér en einnig á
trillu sinni. Sjómannsferill hans er
orðinn langur og er hann vel að
þessari viðurkenningu kominn.
Þá var veitt viðurkenning fyrir
björgunarafrek. Hana hlaut Sæþór
Gunnarsson, skipverji á Þorsteini,
fyrir að hafa veitt Hans ísfjörð
Guðmundssyni, stýrimanni, svo
mikilvæga aðstoð 1. september á
sl. ári að þakka má honum öðrum
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
SÆÞÓR Gunnarsson, skipverji á Þorsteini SH, fékk viðurkenningu
fyrir frækilegt björgunarafrek en hann bjargaði félaga sínum Hans
ísfjörð Guðmundssyni, stýrimanni, úr bráðri hættu á síðasta ári.
fremur fyrir að Hans fór ekki fyrir
borð þegar verið var að setja út
nótina. Festist Hans í tógi nótar-
innar og hélt Sæþór honum innan-
borðs þar til hægt var að koma
Hans til bjargar. Sýndi hann þar
ótrúlegt þrekvirki.
Að venju seldi Slysavamadeild
kvenna kaffi í félagsheimilinu Röst
og var þar húsfyllir að venju. Há-
tíðahöldunum lauk síðan með því
að útvegsmenn buðu sjómönnum
sínum til kvöldverðarboðs í Félags-
heimilinu Röst.