Morgunblaðið - 08.06.1999, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 08.06.1999, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ HtagtuiMiifeife STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. OPNARI ÁRNASTOFNUN EINS OG FRAM kemur í viðtali við nýjan forstöðumann Árnastofnunar, Véstein Ólason, í Lesbók Morgunblaðs- ins sl. laugardag, er hlutverk stofnunarinnar í eðli sínu tví- þætt. „Annars vegar er hún safn sem geymir menningar- verðmæti og hlutverk stofnunarinnar er að hlúa að þeim verðmætum og varðveita þau sem best. Hinn meginþáttur starfseminnar snýr að rannsóknum á íslenskri bókmennta- og menningarsögu og íslenskri tungu þar sem handritin sjálf eru þungamiðjan." Þessu tvíþætta hlutverki hefur safnið sinnt með ágætum frá stofnun. Öðru hverju hafa þó heyrst gagnrýnisraddir um að safnið sé ekki nægilega opið, að almenningur hafí ekki átt nægilega greiðan aðgang að safninu, að það hafi ef til vill lagt meiri áherslu á varðveislu handritanna en að gera þau aðgengileg fyrir almenning. A allra síðustu árum hefur orðið nokkur breyting á þessu og safnið verið opnað meira. Ráðinn hefur verið sérstakur safnakennari og staðið hefur verið betur að sýningarhaldi. í viðtalinu við Véstein kemur fram að hann hyggist leggja aukna áherslu á þennan þátt enda sé það mikilvægt fyrir allt starf á stofnuninni sem byggist á opinberum fjárframlögum. „Við viljum að sjálfsögðu að sem flestir séu sammála okkur um það að hér séu þeir dýrgripir sem mikilvægt er fyrir þjóðina að hirða um,“ segir Vésteinn. Ber að fagna þessu. Einnig hefur stofnunin verið gagnrýnd fyrir að leggja of þunga áherslu á vísindalegar útgáfur handrita sem kosti bæði mikinn tíma og fjármagn. Æskilegt væri að lögð yrði meiri áhersla á að koma á framfæri sem mestu því efni sem varðveitt er í safninu á aðgengilegu formi. Þó að þar væri ekki um að ræða strangvísindalegar útgáfur gætu þær orð- ið fræðimönnum og öðrum til gagns og gamans. Ljóst má vera að hér eru möguleikar upplýsingatækninnar miklir og er ánægjulegt að þegar er hafín vinna við að taka stafrænar ljósmyndir af handritasafninu sem fara beint inn á Netið. En vonandi mun stofnunin einnig nýta sér möguleika Nets- ins til þess að koma einföldum textaútgáfum á framfæri. HIÐ NYJA HLUTVERK SOLANAS MEÐ Maastricht - samkomulaginu voru lögð drög að því að stefna aðildarríkja ESB í alþjóðamálum yrði sam- ræmd í ríkara mæli en verið hefur. Það hefur gengið mis- jafnlega eins og kom í ljós í Bosníu-deilunni. ESB-ríkjunum og ekki síður viðsemjendum þeirra hefur þótt óþægilegt að ekki væri hægt að ganga að talsmanni þeirra í þessum mál- um vísum. Samskipti ESB við önnur ríki hafa að hluta til verið í höndum framkvæmdastjórnarinnar, en hún er skip- uð embættismönnum, ekki stjórnmálamönnum. Þá hefur utanríkisráðherra þess ríkis, sem fer með formennsku ráð- herraráðsins hverju sinni, gegnt veigamiklu hlutverki. Þar sem formennskan skiptir um hendur tvisvar á ári hefur þar að auki verið myndað þríeyki ráðherra, þar sem einnig koma við sögu ráðherra þess ríkis er síðast gegndi for- mennsku og ráðherra þess ríkis er taka mun við for- mennsku. Þetta fyrirkomulag hefur hins vegar þótt óþjált og ruglingslegt. Það er því rökrétt skref, að ESB skipi fulltrúa er verður talsmaður og andlit þess út á við á sviði utanríkis- og varn- armála og sér að auki um að sameina stefnuna inn á við. Hefur Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, fallizt á að taka starfíð að sér. Solana hefur verið farsæll í starfí sínu hjá NATO og tekið úrlausn erfíðra deilumála föstum tökum. Fróðlegt verður að sjá hversu fús aðildarríkin verða til að láta af hendi forræði í þessum málaflokkum. Sætta stóru ríkin innan ESB, t.d. Bretland og Frakkland, sig við að full- trúi frá Brussel sjái um mikilvægar viðræður en ekki þeirra eigin ráðherrar? Til þessa hafa einungis Bandaríkin getað tekið að sér framkvæmd hernaðaraðgerða svo sem í Kosovo og írak, hreinlega vegna þess að ekkert annað ríki í heim- inum hefur til þess burði. Verða ESB-ríkin reiðubúin að standa við áformin um að efla sameiginlegar varnir sínar með þeim gríðarlega kostnaði er það hefur í för með sér? Alla vega er Solana rétti maðurinn til að taka að sér þetta veigamikla starf og móta það í upphafi. John Prescott, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, heimsótt „Þú blekkir ekki' endur með ímynd JOHN Prescott, aðstoðarforsætisráðherra Brei John Prescott, aðstoðar- forsætisráðherra Breta, ------------7---------- heimsótti Island um helgina og flutti m.a. hátíðarávarp í tilefni sjómannadagsins í Reykjavík. Davíð Logi Sigurðsson hitti Prescott að máli og fékk hann til að segja sér frá fyrri heimsókn hans til --7-------------------- Islands, og stöðunni í breskum stjórnmálum. JOHN Prescott, aðstoðarfor- sætisráðherra Bretlands, sagði að það væri sér sérstakt ánægjuefni að koma nú tU ís- lands í annað skipti en hingað kom Preseott undir lok landhelgisdeilna Breta og íslendinga árið 1976. Prescott, sem jafnframt er ráðherra byggða-, umhverfis- og samgöngu- mála, var sérstakur heiðursgestur á Hátíð hafsins, sem haldin var hátíð- leg í fyrsta skipti um helgina um allt land, og flutti ávarp á sjómannadag- inn í Reykjavík. Prescott segir um fyrri heimsókn sína til Islands að sér hefði einfald- lega þótt sem landhelgisdeilan væri í óefni komin, en viðræður forsætis- ráðherra landanna tveggja um lausn deilunnar höfðu farið út um þúfur. Prescott, sem var þingmaður fyrir sjávarbæinn Hull, segir að hann hafi ákveðið að við svo búið mætti ekki lengur una. „Eg hafði verið til sjós og óttaðist því mjög að einhver myndi láta lífíð í þessum átökum - í þessum heldur kjánalegu deilum semþó ógn- uðu lífi og limum sjómanna. Eg trúði því hins vegar að fínna mætti lausn á deilunni." Prescott segir að sér hafí virst sem rök fslendinga væru svipuð þeim og Bretar sjálfir héldu fram varðandi ol- íu í hafinu og taldi hann að ná mætti markmiðum um verndun þessara auðlinda best með því að fela einstök- um þjóðríkjum yfirráð yfir þeim. Þessi afstaða aflaði Prescott engra sérstakra vinsælda heimafyrir en hann segir þó hafa komið á daginn að þetta hafi reynst besta lausnin. „Ég kom til íslands, hitti forsætis- ráðherra ykkar [Geir Hallgrímsson], dómsmálaráðherra [Ólaf Jóhannes- son] og utanríkisnefnd þingsins. Við börðum saman plagg, sem við töldum viðunandi niðurstöðu, og á endanum reyndist þetta samkomulag grund- völlur þeirrar sáttar sem seinna náð- ist.“ Bætir Prescott því reyndar við að hann telji að þetta samkomulag hafi verið örlítið betra en það sem seinna náðist. Prescott kom hins vegar ekki til íslands með leyfi og blessun breskra stjórnvalda og hann hafði í raun ekk- ert umboð til að semja fyrir bresku stjórnina. „Það er gaman að segja frá því að forsætisráðherra ykkar hringdi í mig og sagði við mig að rík- isstjórn íslands gæti fellt sig við þann samning sem ég hafði náð við utanríkisnefnd Alþingis. Og ég held að þeir hafi síðan sagt hið sama við [James] Callaghan [þá utanríkisráð- herra] sem var, að ég held, allt annað en ánægður yfir því að óbreyttur þingmaður skyldi hafa náð samkomu- lagi sem íslenska ríkisstjórnin var til- búin til að sætta sig við.“ Þetta samkomulag var síðan sett út af borðinu um nokkra stund, að sögn Prescotts, eða þar til Callaghan varð forsætisráðherra nokkrum vik- um síðar þegar Harold Wilson sagði af sér og Anthony Crosland, sem var þá þingmaður fyrir Grimsby og í rík- isstjórninni, varð utanríkisráðherra. „Ég sagði honum að í plöggum utan- ríkisráðuneytisins mætti finna sam- komulag sem nú yrði bara að dusta rykið af og binda endahnútinn á, sem hann síðan gerði og kom þar með í höfn samningum við íslendinga.“ Gerðist það síðan næst, að sögn Prescotts, að Callaghan sendi skeyti til allra NATO-ríkjanna og tilkynnti að samkomulagið sem hann hafði náð við íslendinga væri í raun á vegum breskra stjórnvalda. Aðspurður um það hvort hann hefði ekki litið á niðurstöðuna sem ákveðinn sigur fyrir sig persónulega kvaðst hann aðallega hafa verið ánægður yfir því að hafa getað stuðl- að að farsælli lausn deilunnar. Ollu máli skipti að bundinn hafði verið endi á deilur sem þróast höfðu þannig að lífí og limum sjómanna, hvort sem þeir voru breskir eða íslenskir, var hætta búin. „Það eru sterkar taugar milli landa okkar,“ segir Prescott, „og hið svo- kallaða „þorskastríð" breytti þar engu um. Það urðu aldrei nein illindi milli fólksins heima í Hull og íslensku sjómannanna vegna þessa stríðs, við vorum einfaldlega ósammála um þetta mál og áttum í deilum um það.“ Átján löng ár í stjórnarandstöðu Prescott var kjörinn á breska þing- ið árið 1970 og á því langan feril að baki í stjórnmálum. Verkamanna- flokkurinn fór með völdin í Bretlandi árin 1974-1979 en þá gerðist það að íhaldsflokkurinn, undir stjórn ,járn- frúarinnar" Margaret Thatcher, komst til valda á nýjan leik eftir sigur í þingkosningum. Átján löng ár í stjórnarandstöðu tóku við hjá Verka- mannaflokknum. „Það er frá því að segja að þrátt fyrir áðurnefnda árekstra okkar Callaghans þá bauð hann mér um þetta leyti að verða fulltrúi Bret- lands í framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins. Ég gaf honum hins vegar afsvar og sagðist vilja ná markmiðum mínum í breskum stjórnmálum.“ Prescott segist vitaskuld ekki hafa átt von á því að við tækju átján löng ár í stjórnarandstöðu, „en á hinn bóg- inn fékk ég tækifæri til að leggja mitt af mörkum til að umbylta Verka- mannaflokknum í þann flokk sem hann er í dag, og þannig leggja grunninn að frábærum kosningasigri okkar fyrir tveimur árum og þeim mikla stuðningi sem við enn njótum.“ Þingkosningamar í Bretlandi árið 1997 mörkuðu þáttaskil því þá lauk loks löngu valdatímabili íhaldsmanna og Prescott og félagar fengu tækifæri á riýjan leik til að láta að sér kveða. „Ég held að það sem um hug minn fór fyrir tveimur áram hafi verið sú hugsun að loksins væri færið komið til að láta verkin tala og hrinda stefnumálunum í framkvæmd. Og ég held að okkur hafi tekist á þessum tveimur árum að standa við um 60% af ákvæðum þeirrar stefnuskrár sem við settum fram fyrir kosningarnar í hitteðfyrra, og skoðanakannanir sýna við njótum enn álíka mikils fylgis og í upphafi, sem er afar óvenjulegt þegar um er að ræða ríkisstjórn sem setið hefur í tvö ár.“ Prescott viðurkennir að sterk staða ríkisstjórnarinnar hafi mikið með vin- sældir Tonys Blairs að gera en segir að það skipti þó einnig máli að Verka- mannaflokkurinn hafi staðið við þau loforð sem hann gaf kjósendum fyrir kosningarnar og stýrt Bretlandi af festu. ímynd í stað innihalds? Aðspurður um þá gagnrýni að hinn „nýi“ Verkamannaflokkur leggi meiri áherslu á ímynd sína en markvissa stefnumörkun segir Prescott að menn gefi merkimiðunum „gamli“ og „nýi“ Verkamannaflokkurinn of mik- inn gaum. „Hugtakið „nýji“ Verkamanna- flokkurinn á rætur sínar að rekja til
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.