Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 41
PENINGAMARKAÐURINN
FRÉTTIR
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Gengi evrunnar
áfram lágt
Eldri borgarar
álykta um sveigj
anleg starfslok
Hlutabréf á mörkuöum í Evrópu
hækkuðu nokkuð í verði í gær í kjölfar
mikilla verðhækkana á Wall Street á
föstudag, en þá hækkaði Dow Jones-
hlutabréfavísitalan um 136 punkta,
eða 1,3 prósent. Evran hélt hins veg-
ar áfram að vera veik vegna þess að
dregið hefur úr bjartsýni manna á að
Kosovo-deilan leysist bráðlega eftir
að samningamenn Serba neituðu að
skrifa undir friðarsamkomulagið sem
stjórnvöld í Belgrad höfðu fallist á.
Gengi evrunnar gagnvart jeni, dollara
og pundi hefur þannig aldrei verið
lægra og fór evran niður í 1,026 doll-
ara í viðskiptum á evrópskum gjald-
eyrismörkuðum fyrir hádegi í gær.
Síðdegis hækkaði gengi evrunnar þó
nokkuð eftir að tölur sem vitna um
batnandi efnahag evrurikjanna voru
birtar. Evrópsk ríkisskuldabréf urðu
einnig fyrir áhrifum vegna áhyggna af
afdrifum friðarsamkomulagsins um
Kosovo. í London hækkaði FTSE-
hlutabréfavísitalan um 0,8 prósent og
olli hækkað verð bréfa í fjarskiptafyr-
irtækjum mestu þar um. Verð bréfa í
fyrirtækinu Vodafone hækkaði um 4,5
prósent og bréf i Energis hækkuðu
um 4,8 prósent eftir að heyrðist að
Deutsche Telekom hefði gert kauptil-
boð í fyrirtækið. í Þýskalandi hækk-
uðu hlutabréf í Deutsche Telekom um
2,6 prósent. Lyfjafyrirtæki hækkuðu
sömuleiðis í verði. Þannig hækkaði
verð hlutabréfa í Glaxo Wellcome um
2,1 prósent og SmithKline Beecham
um meira en þrjú prósent. Xetra DAX-
hlutabréfavísitalan í Frankfurt hækk-
aði um 1,7 prósent og í París hækk-
aði CAC-vísitalan um 1,38 prósent.
STJÓRN Félags eldri borgara í
Reykjavík og nági’enni hefur sent
frá sér ályktun þar sem hvatt er til
þess að umræða verði vakin á
sveigjanlegum starfslokum að nýju
með það að markmiði að þau taki til
aldursins 64 tii 74 ára. Jafnframt
segir í fréttatilkynningu að stjórn
félagsins hafi fylgst með athygli
með þeim launahækkunum sem
kjaradómur hafi úrskurðað ráðherr-
um, alþingismönnum og öðrum
embættismönnum, og treysti hún
því að ný ríkisstjórn og Alþingi taki
tillit til þeirra og bæti til muna kjör
þeirra úr röðum aldraðra sem verst
eru settir.
í ályktun félagsins, sem var send
stjórnsýslu og atvinnurekendum,
segir að sveigjanleg starfslok eldri
borgara hafi verið til umræðu frá
því Landlæknisembættið tók málið
upp fyrir 10 árum. Það hafi síðan
verið tekið fyrir á Alþingi og allir
þingflokkar samþykkt þingsálykt-
unartillögu um að ríkisstjórn tæki
sveigjanleg starfslok á aldrinum 64
til 74 ára til athugunar. Nefnd hafi
Fundur um
fæðing-arorlof
BHM, BSRB og kennarafélögin
efna til sameiginlegs fundar með
fulltrúum úr stjórnum og samninga-
nefndum um fæðingarorlof miðviku-
daginn 9. júní kl. 9.30 og er ráðgert
að fundinum ljúki á hádegi.
Að undanfórnu hafa fulltrúar of-
angreindra samtaka unnið að sam-
eiginlegri stenfumótun um fæðing-
arorlof og verður hún rædd og tekin
til hennar afstaða á fundinum.
Fundurinn fer fram að Grettis-
götu 89, Reykjavík.
verið skipuð, en málið síðan dagað
uppi.
I ályktuninni eru dregin fram eft-
irfarandi rök fyrir sveigjanlegum
starfslokum: „Ævilíkur hafa aukist
verulega. Samhljóða niðurstöður
rannsókna á íslandi (R-stöð Hjarta-
verndar), Danmörku, Svíþjóð,
Englandi og Bandaríkjunum leiða í
ljós að fólk á aldrinum 50-75 ára er
líkamlega og andlega hressara en
jafnaldrar þeirra voru fyrir 20-30
ámm. Nýgengi og dánartíðni vegna
kransæðasjúkdóma og æðabilunar í
heila hafa lækkað um 35-40%.
Dregið hefur úr tíðni lungnaþembu
og slitgigtar.
Orsakir þessa eru m.a. eftirfar-
andi: Bætt almenn lífskjör manna,
hátt hlutfall fólks stundar nú reglu-
lega líkamsrækt, reykingar hafa
minnkað verulega og góður árangur
hefur náðst varðandi forvamir og
lækningu krabbameins, hjarta-,
æða- og lungnasjúkdóma.
Samkvæmt niðurstöðum danski-a
rannsókna er andlegt ástand eldra
fólks betra en áður. Fólkið reiknar
og leysir hugræn vandamál betur
en áður.“
í ályktuninni segir að hér á landi
starfi fleiri við launuð störf á aldrin-
um 65 til 70 ára en í nágrannalönd-
um, en réttur fólks til starfa eftir 67
ára aldur sé mjög rýrður.
„Starfslok við 67 ára aldur gegn
vilja viðkomandi leiða oft til ein-
angrunar, kvíða, ótímabundinnai-
hrörnunar og jafnvel ótímabærrai-
innlagnar á stofnun,“ segir í álykt-
uninni. „Andleg og líkamleg virkni
leiðir til betri lífsgæða. Við skorum
þvi á yður að gefa starfsfólki yðar á
aldrinum 67 til 74 ára, sem hefur
hug á áframhaldandi vinnu, kost á
a.m.k. hlutastarfi."
ELÍSABET Hermannsdóttir
fráfarandi formaður Hringsins
(t.v.) ásamt nýjum formanni,
Borghildi Fenger.
Nýr formað-
ur Hringsins
AÐALFUNDUR Hringsins var
haldinn nýlega í Blómasal Hótels
Loftleiða. Á fundinum urðu for-
mannaskipti í félaginu, Elísabet
Hermannsdóttir lét af for-
mennsku eftir átta ára starf.
Elísabetu voru færðar þakkir fyr-
ir störf hennar í þágu félagsins.
Starf félagsins var blómlegt á
liðnu starfsári. Auk hefðbundinn-
ar ijáröflunar bárust áheit og
gjafir frá ýmsum aðilum. Verk-
stjórasamband íslands færði fé-
laginu 1.000.000 kr., Verkstjóra- .
félagið Þór 400.000 kr., styrkur
frá NN 800.000 kr., Barnaheill
styrktarmót 125.000 kr., Paul
Newmann 1.723.132 kr. og aðrar
gjaflr 422.000 kr. Félagið veitti
ýmsa styrki á árinu m.a. til
sjúkra barna auk tækjagjafa til
Barnaspítalans.
Stjórn félagsins fyrir næsta
starfsár er þannig skipuð: Borg-
hildur Fenger formaður, Áslaug
Valsdóttir varaformaður, Unnur
Einarsdóttir gjaldkeri, Ragnheið-
ur Sigurðardóttir ritari og Gréta ->
Sigurjónsdóttir meðstjórnandi. í
varastjórn sitja: Laufey Gunnars-
dóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Sig-
ríður Þorsteinsdóttir og Sjöfn
Hjálmarsdóttir.
---------------
Námskeið í
almennri
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst fimmtudaginn
10. júní kl 19. Kennsludagar verða
10., 14. og 15. júm'. Kennt verður fi'á
kl. 19-23. Námskeiðið telst vera 16
kennslustundir og verður haldið í
Fákafeni 11, 2. hæð. Þátttaka er
heimil öllum 15 ára og eldri.
Meðal þess sem verður kennt á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði og
hjálp við bruna, beinbrotum og
blæðingum úr nára.
Önnur námskeið sem haldin eru
hjá Reykjavíkurdeildinni fjalla um
sálræna skyndihjálp, slys á börnum
og móttöku þyrlu á slysstað. Einnig
verður boðið upp á námskeið fyrir
barnfóstrur. Reykjavíkurdeild RKÍ
útvegar jafnframt leiðbeinendur til
að halda ofangreind námskeið fyrir
þá sem þess óska. ,
------*-M------
Kjördæmisráð-
stefna í haust
SAMFYLKINGIN á Vestfjörðum
hélt fund á Hótel ísafirði þriðjudag-
inn 1. júní sl. Á fundinum var kosin
fimm manna nefnd til að undirbúa
kjördæmisráðstefnu Samfylkingar-
innar og stofnun formlegra stjórn-
málahreyfingar.
Stefnt er að því að kjördæmisráð-
stefnan verði haldin um mánaða- •»
mótin ágúst/september í haust. Með
tilliti til fyrirhugaðra breytinga á
kjördæmaskipaninni var samþykkt
að bjóða þingmönnum Samfylking-
arinnai- á Vesturlandi og Norður-
landi vestra að sitja ráðstefnuna.
í undirbúningsnefndinni eiga
meðal annarra sæti tveir fulltrúar
ungliðahreyfingarinnar Atlas.
VIÐMIÐUNARVERÐ Á HRÁOLÍU frá 1. janúar 1999
Hráolia af Brent-svæðinu í Norðursjó, dollarar hver tunna
lö,UU r
17,00 " 1 | \/1
16,00 " fc
15,00 - r
14,00 “ y
13,00 ~ f
12,00 - /V. /
11,00 “ / Vv \nr^ V
10,00 ~
9,001 Byggtágög Janúar num frá Reuters Febrúar Mars April Maí Júní
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA
07.06.99 Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (kíló) verð (kr.)
ALLIFt MARKAÐIR
Annar afli 93 93 93 165 15.345
Blálanga 48 48 48 67 3.216
Gellur 284 256 261 60 15.640
Grálúða 60 60 60 95 5.700
Hlýri 85 80 82 202 16.485
Karfi 67 20 65 2.749 178.067
Keila 69 68 68 971 66.319
Langa 121 64 108 723 78.090
Lúða 375 197 308 454 139.822
Skarkoli 123 100 112 4.963 553.526
Skata 117 117 117 4 468
Skrápflúra 45 45 45 102 4.590
Steinbítur 90 50 81 8.758 705.766
Sólkoli 128 124 125 605 75.440
Ufsi 77 20 66 11.975 787.393
Undirmálsfiskur 118 99 109 6.133 665.602
Ýsa 267 95 198 8.792 1.742.558
Þorskur 164 100 139 33.621 4.682.186
AUSTFJARÐAM. FÁSKRÚÐSFIRÐI
Skarkoli 100 100 100 105 10.500
Steinbítur 73 73 73 210 15.330
Sólkoli 124 124 124 236 29.264
Ufsi 20 20 20 5 100
Undirmálsfiskur 99 99 99 130 12.870
Þorskur 129 100 117 694 81.233
Samtals 108 1.380 149.297
FMS Á ÍSAFIRÐI
Hlýri 85 85 85 29 2.465
Karfi 20 20 20 59 1.180
Lúða 300 300 300 20 6.000
Ufsi 50 49 49 1.355 66.869
Ýsa 267 239 259 2.342 605.782
Þorskur 141 136 139 11.794 1.643.140
Samtals 149 15.599 2.325.436
FAXAMARKAÐURINN
Gellur 284 256 261 60 15.640
Ufsi 59 59 59 267 15.753
Ýsa 159 95 147 346 50.855
Þorskur 142 136 137 2.248 307.212
Samtals 133 2.921 389.460
FISKMARKAÐUR AUSTURLANDS
Steinbítur 61 61 61 61 3.721
Þorskur 101 101 101 335 33.835
Samtals 95 396 37.556
FISKMARKAÐUR BREIÐAFJARÐAR
Blálanga 48 48 48 67 3.216
Hlýri 80 80 80 83 6.640
Langa 108 108 108 131 14.148
Lúða 316 197 296 110 32.523
Skarkoli 123 123 123 442 54.366
Skrápflúra 45 45 45 102 4.590
Steinbítur 70 70 70 140 9.800
Sólkoli 124 124 124 264 32.736
Ufsi 74 74 74 158 11.692
Þorskur 136 112 129 1.386 179.279
Samtals 121 2.883 348.990
FISKMARKAÐUR DALVÍKUR
Lúða 365 365 365 7 2.555
Steinbítur 72 72 72 1.547 111.384
Sólkoli 128 128 128 105 13.440
Undirmálsfiskur 104 104 104 3.973 413.192
Ýsa 200 161 183 458 83.722
Þorskur 146 136 137 11.545 1.579.702
Samtals 125 17.635 2.203.996
FISKMARKAÐUR SUÐURL. ÞORLÁKSH.
Ufsi 65 65 65 939 61.035
Þorskur 160 160 160 850 136.000
Samtals 110 1.789 197.035
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA
Annar afli 93 93 93 165 15.345
Grálúða 60 60 60 95 5.700
Hlýri 82 82 82 90 7.380
Karfi 50 50 50 25 1.250
Keila 69 . 68 68 971 66.319
Langa 121 86 108 586 63.558
Steinbítur 86 62 84 5.616 471.295
Ufsi 77 61 72 5.067 366.344
Undirmálsfiskur 118 118 118 2.030 239.540
Ýsa 193 100 167 3.824 637.499
Þorskur 154 154 154 606 93.324
Samtals 103 19.075 1.967.554
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (kíló) verð (kr.)
FISKMARKAÐUR VESTFJ. PATREKSF.
Steinbítur 79 79 79 782 61.778
Ufsi 53 53 53 96 5.088
Ýsa 266 229 247 950 234.204
Samtals 165 1.828 301.070
FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA
Karfi 51 51 51 159 8.109
Ufsi 74 54 62 2.721 169.627
Þorskur 164 141 152 612 92.895
Samtals 78 3.492 270.632
FISKMARKAÐUR VOPNAFJARÐAR
Lúða 375 375 375 13 4.875
Skarkoli 122 102 110 4.011 442.895
Steinbítur 50 50 50 51 2.550
Ýsa 199 140 169 642 108.286
Samtals 118 4.717 558.606
FISKMARKAÐUR ÞORLÁKSHAFNAR
Þorskur 141 141 141 145 20.445
Samtals 141 145 20.445
FISKMARKAÐURINN HF.
Karfi 50 50 50 22 1.100
Langa 64 64 64 6 384
Ufsi 67 67 67 1.290 86.430
Ýsa 140 140 140 8 1.120
Þorskur 154 148 151 3.150 476.721
Samtals 126 4.476 565.755
FISKMARKAÐURINN í GRINDAVIK
Karfi 67 67 67 2.484 166.428
Lúða 324 297 309 304 93.869
Skarkoli 113 113 113 405 45.765
Steinbítur 90 50 85 351 29.909
Ufsi 65 65 65 55 3.575
Ýsa 95 95 95 222 21.090
Þorskur 150 150 150 256 38.400
Samtals 98 4.077 399.036
HÖFN
Skata 117 117 117 4 468
Ufsi 40 40 40 22 880
Samtals 52 26 1.348
VIÐSKIPTI Á KVÓTAÞINGI ÍSLANDS
7.6.1999
Kvótategund Viðskipta- Vlóskipta- Hasta kaup- Lagsta sfilu- Kaupmagn Sðlumagn Veglfi kaup- Veglð sfilu Sfðasta
magn (kg) verð (kr) tilboö (kr). tilboð (kr). ettir(kg) eftir (kg) verö (kr) verfi (kr) meðalv. (kr)
Þorskur 71.434 107,95 107,50 107,95 77.900 13.566 105,09 107,95 108,00
Ýsa 2.500 47,70 26,00 46,39 100.000 98.776 26,00 48,06 48,05
Ufsi 6.000 26,45 25,60 25,90 43.355 83.397 25,60 26,02 25,56
Karfi 21.500 41,66 41,66 0 43.627 41,66 39,54
Steinbítur 669 21,00 23,01 117.031 0 19,60 19,61
Úthafskarfi 32,00 125.000 0 32,00 32,00
Grálúða 92,20 23.306 0 92,07 91,47
Skarkoli 23.902 50,26 50,51 46.688 0 48,04 46,97
Langlúra 38,00 2.000 0 38,00 36,50
Sandkoli 20.000 16,00 16,13 144.566 0 13,89 13,64
Skrápflúra 12,66 150.029 0 12,20 11,75
Loðna 0,10 1.891.000 0 0,10 0,10
Humar 426,00 2.000 0 426,00 427,50
Úthafsrækja 2,00 0 431.665 2,79 3,37
Rækja á Flæmingjagr.130.00022,00 22,00 6.000 0 22,00 32,00
Ekki voru tilboð í aðrar tegundir