Morgunblaðið - 08.06.1999, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
PRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 51
líknandi og gjafmild. Þú gerðir
aldrei kröfur til annarra né tróðst
öðrum um tær. Pá var þér ógjamt
um að mæla fólki illt á bak.
Já mamma mín. Nú man ég það,
að þú vilt ekki neina ræðu. Eg hlýt
því að láta staðar numið.
Eg kveð þig hrærður, mamma
mín. Eg kveð þig líka þakklátur
fyrir allt. Ég hef alltaf notið þín að
góðu og mun gera. Ég veit, að
hversu marga syndapoka sem ég
kann að burðast með, þegar ég
kem fyrir dómarann, þá mun ég
njóta þess að þú varst móðir mín.
Líklegast e'r þó, að þú verðir þá
þar komin til þess að kippa ein-
hverjum þessara syndapoka á þitt
eigið bak ef þú mátt og getur, þú
sem alltaf varst skjól og skjöldur.
Vertu svo Guði geymd, mamma
mín.
Þinn,
Helgi.
í dag er til moldar borin elsku-
leg vinkona okkar, Ingibjörg
Helgadóttir, eða Imba eins og hún
var oftast kölluð.
Við áttum því láni að fagna að
eiga Imbu og Kristján sem ná-
granna um alllangt skeið þar sem
þau bjuggu í sama húsi og við í
Mýrarholti 14 í Ólafsvík.
Imba og mamma voru ákaflega
góðar vinkonur og voru þær tíðir
gestir hjá hvor annarri og sam-
skipti þeirra sérstaklega góð. Það
var oft gaman að fylgjast með
þeim. „Morsið“ þeirra var ein-
stakt. Annaðhvort bankaði
mamma í gólfið eða Imba bankaði
í loftið með kústskafti. Þessar at-
hafnir táknuðu að nú væri næði
fyrir þær að hittast og eiga saman
góða stund yfir kaffibolla. Því var
oft setið í eldhúsinu heima hjá
okkur og spjallað. Imba var ekki
fyrir það að trana sér fram en
samt átti hún athygli okkar
óskipta.
Imba var afar myndarleg kona,
hávaxin með mikið og fallegt hár.
Fléttan hennar var svo falleg. Það
var auðvelt að þykja vænt um
Imbu eins góð og gefandi og hún
var. Hún var barngóð og gaf oft
ungviðinu gott í munninn og marga
sokkana prjónaði hún sem ófáir
nutu góðs af. Hún var létt í lund,
hjálpsöm, vel gefin og jákvæð.
Hversu lítið sem gert var fyrir
hana þá var hún afar þakklát og
svaraði ætíð „Guð laun“. Einkenni
Imbu var rólyndi hugans og æðru-
leysi.
Það var oft glatt á hjalla í Mýr-
arholtinu þegar framkvæmd voru
ýmis sameiginleg verkefni með
Imbu svo sem við sláturgerð þar
sem keppirnir fylltu á annað
hundraðið. Þá var Imba sérlega í
essinu sínu og virkilega gaman að
vera nálægt henni. Oft var dansað
og lagið tekið þar sem hún söng og
kunni manna mest af fallegum
söng- og ljóðatextum.
Arin liðu og við uxum úr grasi og
hleyptum heimdraganum. Nú voru
samvistimar í formi heimsókna en
Imba hélt áfram að vera hluti af
okkar tilveru.
Enn liðu árin og halla tók undan
fæti hjá Imbu og þá dvaldi hún á
dvalarheimilinu í Borgarnesi en
þangað sagðist hún alltaf ætla að
fara og enda ævikvöldið, á heima-
slóðum. Heimsóknir okkar til
hennar á dvalarheimilið hefðu mátt
vera tíðari en svona er það í hvers-
dagslegu amstri að það sem máli
skiptir á það til að gleymast. En
þegar við hittum hana þar eða ann-
ars staðar bar hún sig vel og sagði
alltaf að sér liði vel. Imba gerði
engar kröfur og undi glöð við sitt.
Þetta er að mörgu leyti góður eig-
inleiki sem margir mættu hafa
meira af.
Það er okkur heiður að hafa átt
Imbu að sem samferðakonu og
góðan vin. Minningin um góða
konu lifír.
Við vottum öllum aðstandendum
Imbu okkar dýpstu samúð.
Systkinin frá Mýrarholti 14,
Ólafsvík.
GISLI
EINARSSON
+ Gísli Einarsson
fæddist í Kjarn-
holtum í Biskups-
tungum 2. septem-
ber 1932. Hann lést
á heimili sínu í
Kjarnholtum 30.
maí síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Skálholtskirkju
5. júní.
Kveðja frá Samtök-
um sunnlenskra
sveitarfélaga
Fallinn er frá Gísli Einarsson,
fyrrverandi oddviti Biskupstungna-
hrepps. Gísli var atkvæðamikill
sveitarstjórnarmaður um áratuga-
skeið og gegndi fjölmörgum trúnað-
arstörfum á þeim vettvangi, bæði
fyrir sveitunga sína og Sunnlend-
inga alla. Hann var m.a. formaður
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
um skeið og gegndi ávallt mikil-
vægu hlutverki þar sem sunnlenskir
sveitarstjórnamenn komu saman.
Þar nýttust ákaflega vel eðliskostir
hans og lífsreynsla. Allur málflutn-
ingur hans einkenndist af skynsam-
legri yfirvegun og hógværð en jafn-
framt ákveðni.
Fyrir öll þessi störf og langa sam-
ferð þakka sunnlenskir sveitar-
stjórnamenn Glsla Einarssyni, um
leið og þeir votta eftirlifandi eigin-
konu hans og fjölskyldu dýpstu
samúð.
Þorvarður Hjaltason.
Enn ganga vörðumar yfír heidina
þótt leiðin sé fáforul
og ekki margir
sem telja sig þurfa leiðsagnar
þangað sem fórinni er heitið
Þær þokast upp úr dalbotninum
feb sig meðfram gilskorningum
stika svo fram klifið
og stefna rakleitt inn í þokubakkann
Þær kæra sig koUóttar
þótt úr þeim hrypji
steinn og steinn
því erindið er brýnt:
að varða leið
Það er ekki þeirra að ákveða
hverjir fylgja þeim
en þeir sem vilja leiðsögn
eiga að vita hvar þær er að finna
(Njörður P. Njarðvík)
Þetta Ijóð kemur mér fyrst í hug
er ég hugsa um vin minn Gísla Ein-
arsson sem nú er fallinn frá langt
um aldur fram. Ég
kynntist Gísla fyrst er
ég starfaði með honum
og fleiri góðum mönn-
um í undirbúnings-
nefnd fyrir stofnun
Héraðsnefndar Ames-
inga á mínum fyrstu
árum í sveitarstjórn.
Hvemig hann tók mér
þar og studdi sem
klettur og leiðbeindi
mér sem vörður eftir
að ég varð oddviti
sömu nefndar fæ ég
seint þakkað. Ég ætla
ekki að rekja feril
Gísla, það munu aðrir mér færari
gera, en ég vil fá að þakka honum af
alhug fyrir að hafa verið sá maður
sem ég fékk að kynnast og starfa
með í tíu ár. Mig hafði dreymt um
að geta notið lengur samvista við
Gísla. Hann átti eftir að sýna mér
sveitina sína betur, því fátt var eins
skemmtilegt og ferðast og skemmta
sér með Gísla.
Innilegar samúðarkveðjur okkar
Bárðar til eiginkonu, bama og ann-
arra aðstandenda svo og til allra
sveitunga Gísla á þessari sorgar-
stund.
Sigríður Jensdóttir.
Það var einhver ólýsanlegur lífs-
kraftur, sambland af góðmennsku,
lífsgleði og kímni, ásamt ómældri
virðingu fyrir öllu sem lifir, sem
gerðu þennan mann einstakan.
Hann gat með róandi nærvem
undið ofan af yfirspenntum borgar-
búa, eða með iðandi lífsgleði í söng
og sögum fært menn upp í hæstu
hæðir gleðinnar.
Hann var gæfumaður í lífi og
starfi, naut trausts og virðingar, og
ráðagóður þeim sem til hans leit-
uðu.
Við hjónin urðum þeirrar gæfu
aðnjótandi að verða sumarbústaðar-
eigendur í túnfætinum hjá þeim
hjónum Gísla og Ingibjörgu og höf-
um notið vináttu þeirra og fjölskyld-
unnar.
Fráfall hans fyrir aldur fram er
okkur, sem öðmm sem hann
þekktu, mikill harmur.
Nú er komið að kveðjustund, þeg-
ar vorsins sonur er lagður til hinstu
hvfldar.
Minningin um hinn ljúfa dreng
Gísla Einarsson mun lifa.
Við vottum Ingibjörgu, börnum
og öðrum aðstandendum samúð.
Guð gefi þeim styrk í þeirra miklu
sorg.
Valdimar Harðarson,
Guðný Linda Magnúsdóttir.
ÞOREY BJORK
INGVADÓTTIR
+ Þórey Björk
Ingvadóttir
fæddist á Akureyri
27. október 1966.
Hún lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsi
Akureyrar 16. maí
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Akureyrar-
kirkju 21. maí.
Okkur langar til að
minnast vinkonu okkar,
hennar Þóreyjar Bjark-
ar, með örfáum orðum.
Það er erfitt að hugsa til þess að
þú sért farin, en það er líka huggun
að vita að nú ertu hjá Guði og þér líð-
ur vel og ert laus frá þeim þrautum
sem þú þurftir að líða síðustu árin.
Við George minnumst allra
ánægjustundanna sem við áttum
saman hér úti þegar þú varst hjá
okkur í fríum þínum, og á hátíðum
þá var mikil gleði hjá vinunum, eða
allir tónleikarnir sem við fórum sam-
an á, við minnumst glaðværðarinnar
sem fylgdi þér inn á
okkar heimili.
Oft vorum við bara
tvær og lásum bækur
sem við fengum að
heiman eða bara spjöll-
uðum saman um lífið og
tilveruna, en alltaf ríkti
gleði í návist þinni.
Elsku vinkona, við
vitum að þú ert þar sem
ljósið skfri skærast og
þér líður vel.
Við munum alltaf
minnast þín og þökkum
þér samfylgdina kæra
vinkona.
Far þú í friði
friður Guð þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði
Guð þér nú fylgi
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt
(V. Briem)
Foreldrum, ættingjum og vinum
vottum við okkar dýpstu samúð.
Nanna Ragna og George
Michael Vollman, N.Y.
Jón Viktor sigrar
á Skákþingi
Hafnarfj ar ðar
SKAK
Skákfclag Hafnar-
f jarðar
SKÁKÞING
HAFNARFJARÐAR 1999
4.-6. júní 1999
JÓN Viktor Gunnarsson sigr-
aði á Skákþingi Hafnarfjarðar
1999. Mótið var minningarmót
um Freystein Þorbergsson og
var þáttur í Bikar-
keppninni í skák.
Sigurbjöm Bjöms-
son varð í öðm sæti
og hreppti jafnframt
titilinn Skákmeistari
Hafnarfjarðar. Sig-
urbjöm hefur nú
unnið þennan titil
fjögur ár í röð. Sig-
urður Páll Stein-
dórsson varð í þriðja
sæti með 5 vinninga.
Úrslit urðu annars
þessi:
1. Jón Viktor
Gunnarsson 6 v.
2. Sigurbjöm
Björnsson ðVá v.
3. Sigurður Páll
Steindórsson 5 v.
4.-6. Stefán Kristjánsson 4V4 v.
Þorvarður Fannar Ólafsson
4‘/2 v. Ólafur ísberg Hannes-
son 414 v.
7.-10. Vigfús Óðinn Vigfússon 4 v.
Torfi Leósson 4 v. Hjörtur
Þór Daðason 4 v. Ólafur
Kjartansson 4 v.
11.-16. Ingibjörg Edda Birgisd.,
Helgi Egilsson, Knútur Birg-
ir Otterstedt, Sævar Bjama-
son, Haraldur Magnússon,
Birgir Þór Magnússon 3 v.
o.s.frv.
Margar bráðskemmtilegar
skákir vom tefldar á mótinu,
þar sem fórnað var á báða bóga,
eins og lesendur skákþáttarins
munu fá að sjá á næstunni.
Mótið var haldið í félagsheim-
ili Skákfélags Hafnarfjarðar.
Þátttakendur vom 19 og leita
þarf mörg ár aftur í tímann til
að finna viðlíka þátttöku á Skák-
þingi Hafnarfjarðar. Ekki er að
efa að það hefur haft úrslitaá-
hrif að mótið var þáttur í Bikar-
keppninni í skák, sem hófst með
Meistaramóti Hellis í febrúar.
Næsta mót í Bikarkeppninni er
Boðsmót Taflfélags Reykjavík-
ur sem hefst á miðvikudaginn.
Viðurkenningar til ungra
skákmanna hjá Helli
Nýlega veitti Taflfélagið Hell-
ir ungum skákmönnum viður-
kenningar fyrir þátttöku í ung-
lingastarfi félagsins í vetur.
Veittar vom viðurkenningar
fyrir þrjú atriði: Mætingu á æf-
ingar, árangur á æfingum og
mestar framfarir sl. vetur.
Viðurkenningu fyrir bestan
árangur fengu þeir Eiríkur
Garðar Einarsson (59 stig),
Gústaf Smári Bjömsson (43 stig)
og Atli Freyr Kristjánsson (14
stig).
Viðurkenningu fyrir besta
mætingu á unglingaæfingar
fengu: Eiríkur Garðar Einars-
son (29 mætingar), Hafliði Haf-
liðason (27 mætingar), Anna
Lilja Gísladóttir (26 mætingar),
Atli Freyr Kristjánsson, Hall-
dór Hallsson og Oddur Sigur-
jónsson (25 mætingar).
Mestar framfarir í vetur
sýndu þau Anna Lilja Gísladótt-
ir, Benedikt Öm Bjamason,
Halldór Heiðar Hallsson, Hjört-
ur Ingvi Jóhannsson og Vil-
hjálmur Atlason.
Gert verður hlé á unglingaæf-
ingum Hellis í sumar, en þær
hefjast aftur í september.
Boðsmót TR 1999
Boðsmót Taflfélags Reykja-
víkur, sem er hluti af Bikar-
keppninni í skák,
hefst miðvikudag-
inn 9. júní kl. 19:30.
Tefldar verða sjö
umferðir eftir Mon-
rad-kerfi með um-
hugsunartímanum
lVz klst. á 30 leiki
og síðan Vz klst. til
að ljúka skákinni.
Umferðir verða á
mánudögum, mið-
vikudögum og
föstudögum og
hefjast ávallt kl.
19:30. Mótinu lýkur
miðvikudaginn 23.
júní. Góð verðlaun
em í boði.
Mótið gefur stig í Bikar-
keppninni í skák sem taflfélög á
höfuðborgarsvæðinu standa að.
Þátttökugjald er 2.000 kr. fyrir
16 ára og eldri, en 1.400 kr. fyr-
ir 15 ára og yngri. Hægt er að
skrá sig í mótið í síma 568 2990
eða með tölvupósti: tr@sim-
net.is
Hraðskákkeppni
taflfélaga
Taflfélagið Hellir stendur nú
í fimmta skipti fyrir Hraðskák-
keppni taflfélaga á Suðvestur-
landi. Sem fyrr taka 8 lið þátt í
keppninni. Hafa sömu félög
verið með frá byrjun, enda er
keppnin mjög vinsæl meðal fé-
laganna.
Yfirdómari keppninnar er
Ólafur S. Asgrímsson, alþjóð-
legur skákdómari. Hann sér
jafnframt um að draga liðin
saman fyrir hverja umferð.
Nú er búið að draga saman í
átta liða úrslit og er röðun sem
hér segir (fyrra liðið á heima-
velli):
Tf. Garðabæjar - Tf. Reykjanesbæjar
TR - Taflfélag Kópavogs
Hellir - Skákfélag Selfoss og nágr.
Sf. Hafnarfjarðar - Taflfélag Akraness
Atta liða úrslitum lýkur fyrir
15. júní. Frá því að keppnin var
haldin í fyrsta skipti hafa TR og
Taflfélagið Hellir skipst á um að
sigra í keppninni:
1995. Taflfélag Reykjavíkur
1996. Taflfélagið Hellir
1997. Taflfélag Reykjavíkur
1998. Taflfélagið Hellir
Skákmót á
næstunni
Tilkynningar um skákmót og
aðra viðburði sendist til umsjón-
armanna skákþáttar Morgun-
blaðsins. Tölvupóstfangið er
dadi@vks.is. Einnig má senda
annað efni og athugasemdir við
skákþættina á sama póstfang.
9.6. Boðsmót TR
16.6. Guðmundar Amlaugss.-mótið
25.6. Hellir. Jónsmessumót (kl. 22)
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
Jón Viktor
Gunnarsson
Enski boltinn á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= EITTHV'AÐ NYTT