Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Hestamótin í algleymingi
Unga fólkið
atkvæðamikið
✓
I mörg horn er að líta hjá hestamönnum
þessa dagana. Vertíð hestamótanna
stendur sem hæst um þessar mundir og
um helgina og í síðustu viku voru haldin
mót hjá Geysi í Rangárvallasýslu þar sem
um var að ræða 50 ára afmælismót, Sörli
með gæðingamót sitt í Hafnarfirði og
Hörður í Mosfellsbæ hélt mót á Varmár-
bökkum. Auk þess voru héraðssýningar í
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ÞEIM var víða útdeilt verðlaunum til hestamanna um helgina og hér hafa keppendur í A-flokki gæðinga hjá
Herði fengið sín laun eftir spennandi keppni, sigurvegarinn Askur og Guðmar Þór lengst til vinstri.
Skagafírði og á Suðurlandi. Valdimar
Kristinsson stiklar hér á stóru í þessari
fjölbreyttu mótaflóru.
í TILEFNI afmælis Geysis var
gerður dagamunur í mótahaldi fé-
lagsins. Lífleg kvöldvaka í lok
móts á laugardag og ræktunarbú
sýndu afrakstur af starfinu síð-
ustu árin. Þá voru á kappreiðum
mótsins vígðir nýir rásbásar sem
eru í eigu Rangárbakka s.f. sem
eiga og reka mótssvæðið á Gadd-
staðaflötum.
Keppt var í flokkum áhuga- og
atvinnumanna og stóð efstur í A-
flokki atvinnumanna Kjarkur frá
Asmúla sem Erlingur Erlingsson
sýndi, en í B-flokki sigraði Hasar
frá Búð sem Hallgrímur Birkisson
sýndi, en báðum þessum hestum
verður teflt fram í úrtöku fyrir HM
sem haldin verður um miðjan mán-
uðinn.
Athygli vakti á mótum hjá bæði
Sörla og Herði hversu atkvæða-
miklir ungu knapamir voru. Hjá
Sörla var Dam'el Ingi Smárason
með sigurhestinn í B-flokld, Síak
frá Þúfum. Var Daníel valinn knapi
mótsins en glæsilegasti gæðingur-
inn var valinn nýja stjaman Þytur
frá Kálfhóli sem sló vel í gegn á
móti Fáks á dögunum. Elsa Magn-
úsdóttir sýndi Þyt að þessu sinni
en hún gerði sér lítið fyrir og
keypti klárinn eftir mótið hjá Fáki.
Þá verðlauna Sörlamenn hæst
dæmdu hryssu gæðingakeppninn-
ar með Toppsbikamum og hlaut
hann að þessu sinni Fluga frá
Breiðabólstað sem einnig er í eigu
Elsu.
Harðarmenn skiptu félagsmóti
sínu þannig að yngri flokkamir
verða um næstu helgi. Þetta gerði
það að verkum að unga fólkið fékk
gott tækifæri til að spreyta sig í
keppni við hina eldri og vora þar
atkvæðamiklir Sigurður S. Pálsson
á Hugi frá Mosfellsbæ, en þeir
sigraðu í B-flokki áhugamanna, og
Kristján Magnússon kom Hrafnari
frá Hindisvík í þriðja sætið og báð-
ir vora þeir í úrslitum í A-flokki
áhugamanna.
Guðmar Þór Pétursson kom
heldur ekki bónleiður til búðar en
hann reið Nökkva frá Tunguhálsi
II til sigurs í B-flokki og Aski frá
Keldudal í A-flokki. I A-flokki
áhugamanna sigraði Þula frá Bark-
arstöðum sem Þorvaldur J. Krist-
insson sýndi.
Eins og sjá má á úrslitum hér í
hestaþættinum náðust góðir tímar
í kappreiðum hjá Sörla og Geysi en
vekringarnir eitthvað þyngri á sér
á Varmárbökkum. Börkur frá
Akranesi, sem Alexander Hrafn-
kelsson sat, skeiðaði 150 metrana á
14,35 sekúndum og Freymóður frá
Efstadal var í miklum ham hjá
Loga Laxdal og rann 250 metrana
á 21,63 sekúndum og er þetta gott
veganesti íyrir Loga í úrtökuna
síðar í mánuðinum. Báðir þessir
tímar náðust hjá Sörla.
AÐEINS ein hryssa, Gjöf frá Sauðárkróki, var sýnd í fjögurra vetra
flokki á Vindheimamelum og hlaut hún þokkalega einkunn, Guðmund-
ur Sveinsson, sem heldur í hryssuna, sýndi hana í dómi.
Skráningu í úrtökuna lokið
Margir kallaðir
en fáir útvaldir
SKRÁNINGU er lokið fyrir úrtök-
una fyrir heimsmeistaramótið þar
sem fimm af sjö liðsmönnum verða
valdir. Mikil spenna hefur ríkt um
það hveijir munu taka þátt og á
hvaða hestum. Alls skráði 31 knapi
sig til leiks með 41 hest og era þar
að sjálfsögðu flestir af fremstu
knöpum landsins um þessar mundir.
Það vekur kannski mesta athygli
að Albert Jónsson er nú skráður til
leiks en hann var í íslenska liðinu
sem keppti á Evrópumeistaramót-
inu í Austurríki 1975 og hefur ekki
reynt að komast í EM/HM lið síðan.
A þesu móti varð hann öllum á
óvart, og sjálfum sér mest, meistari
í hlýðniæfingum B eins og það hét
þá. Ekki hyggur Albert á frama í
þeirri grein að þessu sinni því hann
er skráður með tvo hesta, Prins frá
Úlfljótsvatni í tölt og fjórgang og
Krapa frá Akureyri í fimmgang, tölt
og gæðingaskeið. Og nú er að sjá
hvort þessi snjalli knapi muni eiga
gott „come back“ í íslenska liðið.
Af öðram knöpum má nefna að
gömlu jaxlamir Sigurbjörn Bárðar-
son og Reynir Aðalsteinsson verða
með í leiknum. Sigurbjörn með
Djákna frá Litla-Dunhaga í tölti,
fjórgangi og fimi og Byl frá Skáney
í fimmgangi, tölti, 250 metra skeiði
og gæðingaskeiði. Reynir verður
með Dropa frá Refsstöðum í fímm-
gangi, tölti og gæðingaskeiði. Þórð-
ur Þorgeirsson, sem nú er í keppn-
isbanni, mætir með Hnoss frá Ytra-
Dalsgerði í 250 metrana og Kjark
frá Asmúla í skeiðið, fimmgang og
slaktaumatölt. Þórður er heppinn
því keppnisbanni hans lýkur daginn
áður en keppnin hefst.
Þá er annar „gamall“ landsliðs-
maður, Tómas Ragnarsson, að
reyna fyrir sér eftir 16 ára hlé. Er
hann skráður með Hlyn frá For-
sæti í tölt og fjórgang og Hyllingu
frá Korpúlfsstöðum í fimmgang,
slaktaumatölt og skeiðgreinarnar.
Þá verður Asgeir Svan með yfir-
burðafjórgangarann Farsæl frá
Amarhóli eins og alltaf hefur staðið
til, að hans sögn.
Aðrir keppendur era Alexander
Hrafnkelsson með Prins frá Hvít-
árbakka, Atli Guðmundsson með
Soldán frá Ketilsstöðum og Mökk
frá Búlandi, Auðunn Kristjánsson
með Baldur frá Bakka. Baldvin Ari
Guðlaugsson mætir með Geysi frá
Dalsmynni og Tuma frá Skjaldar-
vík, Daníel Jónsson með Eril frá
Kópavogi, Einar Ö. Magnússon
með Glampa frá Kjarri, Elías Þór-
hallsson með Vála frá Nýjabæ,
Guðmar Þór Pétursson með
Nökkva frá Tunguhálsi og Ask frá
Keldudal. Guðmundur Einarsson
verður með Ótta frá Miðhjáleigu,
Gunnar Arnarsson með Breka frá
Efri-Brú, Hallgrímur Birkisson
með Hasar frá Búð, Helgi Leifur
Sigmarsson með Fleyg frá Hörgs-
hóli og Garp frá Hofsstöðum, Hug-
rún Jóhannsdóttir með Blæ frá
Sigluvík, Logi Laxdal með Frey-
móð frá Efstadal, Olil Amble með
Kjark frá Horni, Páll Bragi
Hólmarsson með Isak frá Eyjólfs-
stöðum, Sigrún Brynjarsdóttir með
Þrist frá Syðra-Fjalli, Sigfús
Brynjar Sigfússon með Garp frá
Vestra-Geldingaholti, Sigurður
Sigurðarson með Prins frá Hörgs-
hóli, Sigurður Matthíassson með
Glað frá Sigríðarstöðum og Dem-
ant frá Bólstað, Sveinn Ragnars-
son með Reyk frá Hoftúni, Sölvi
Sigurðarson með Gand frá Fjalli,
Vignir Jónasson með Klakk frá
Búlandi, Vignir Siggeirsson með
Ofsa frá Viðborðsseli, Þórður Þor-
bergsson með Börk frá Gamla-
Garði.
Ekki er að efa að keppnin, sem
stendur yfir í fjóra daga, verður
æsispennandi. Frammistaða kepp-
enda áður skiptir litlu eða engu
máli. Það er dagsform hests og
reynsla knapanna sem vegur
þyngst á metunum og á vel við mál-
tækið sem segir að margir séu kall-
aðir en fáir útvaldir. Úrtakan hefst
með knapafundi 15. júní en keppnin
hefst daginn eftir. Hlé verður gert
föstudaginn sextánda en keppni
lýkur sunnudaginn 20. júní.
ÚRSLIT
Hestamót Sörla í Hafnarfirði
A-flokkur gæðinga
1. Víma frá Neðri-Vindheimum, eig.:
Jón V. Hinriksson, kn.: Adolf Snæ-
bjömsson, 8,38
2. Þytur frá Kálfhóli, eig.: Elsa Magn-
úsdóttir og Pjetur N. Pjetursson, kn.:
Elsa Magnúsdóttir, 8,30
3. Bylgja frá Svignaskarði, eig.: Sig-
urður Adolfsson, kn. í fork.: Auðunn
Kristjánsson, kn. í úrsl.: Logi Laxdal,
8,29
4. Mímir frá Sandhól, eig.: Þorvaldur
Kolbeinsson og Margrét Vilhjálms-
dóttir, kn.: Þorvaldur Kolbeinsson,
8.27
5. Sorti frá Kjörseyri, eig. og kn.:
Snorri Dal, 8,20
B-flokkur gæðinga
1. Seiður frá Sigmundarstöðum, eig.
og kn.: Daníel I. Smárason, 8,63
2. Síak frá Þúfum, eig.: Þórður K. Kri-
stjánsson og Elma Cates, kn.: Adolf
Snæbjörnsson, 8,58
3. Freyja frá Neskaupstað, eig.: Elsa
og Pjetur, kn.: Logi Laxdal, 8,39
4. Stjami frá Efstadal, eig.: Páll H.
Guðmundsson, kn.: Atli Guðmunds-
son, 8,38
5. Fluga frá Breiðabólstað, eig.: Elsa
og Pjetur, kn.í fork.: Logi Laxdal, kn.
í úrsl.: Sigríður Pjetursdóttir, 8,26
Ungmenni
1. Valur frá Litla-Bergi, eig. og kn.:
Hinrik Þ.Sigurðsson, 8,43
2. Tyson frá Búlandi, eig.: Smári Ad-
olfsson, kn.: Daníel I. Smárason, 8,14
3. Kóngur, eig.: Kristín Ó. Þórðardótt-
ir og Þórður K. Kristjánsson, 8,08
Unglingar
1. Háfeti frá Undirfelli, eig.: Jón V.
Hinriksson, kn.: Kristín M. Jónsdótt-
ir, 8,42
2. Gnýr frá Langholti, eig. og kn.:
Perla D. Þórðardóttir, 8,28
3. Blossi frá Árgerði, eig. og kn.: Mar-
grét Guðrúnardóttir, 8,26
4. Dröfn frá Staðarhúsum, eig.: Þor-
steinn Eyjólfsson, kn.: Eyjólfur Þor-
steinsson, 8,25
5. Hljómur frá Gunnarsholti, eig. og
kn.: Ingibjörg Sævarsdóttir, 7,91
Börn
1. Arvakur frá Sandhól, eig.: Margrét
Vilhjálmsdóttir og Þorvaldur Kol-
beinsson, kn.: Rósa B. Þorvaldsdóttir,
8.28
2. Fengur frá Skammbeinsstöðum,
eig.: Sandra L. Þórðardóttir og Þórð-
ur K. Kristjánsson, kn.: Sandra L.
Þórðardóttir, 8,18
3. Rúbín frá Ögmundarstöðum, eig.
Theódór Ómarsson og fj., kn.: Ómar
Á. Theódórsson, 8,12
Pollar
1. Freyr frá Sandhól, eig. Margrét og
Þorvaldur, kn.: Birkir R. Þorvaldsson
2. Júpiter frá Litla-Garði, eig.: og kn.:
Jón B. Smárason
3. Kúlu-Brúnn, kn.: Skúli Þór
Unghross
1. Elding frá Hóli, eig.: Haraldur Þor-
geirsson, kn.: Jón P. Sveinsson
2. Fjöður frá Hólavatni, eig.: Elsa og
Pjetur, kn.: Elsa Magnúsdóttir
3. Rák frá Þverá, eig.: Smári Adolfs-
son, kn.: Daníel I. Smárason
4. Venus frá Hafnarfirði, eig.: Elsa og
Pjetur, kn.: Sigríður Pjetursdóttir
5. Jafar frá Hrólfsstöðum, eig.: Sig-
urður Ævarsson, kn.: Hinrik þ. Sig-
urðsson