Morgunblaðið - 02.07.1999, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Washington Post fjallar ítarlega um flug rússneskra sprengjuvéla við Island
Bandarísk stjórnvöld gera
lítið úr flugi vélanna
ÞESSAR myndir voru teknar af rússnesku sprengjuflugvélunum
þegar þær flugu umhverfis ísland siðastliðinn fostudag.
Morgunblaðið/Sverrir
LÖGREGLUMANNI sem bar að
tókst að róa bamið eftir að
hann hafði náð til þess.
Barn skilið
eftir í bíl
LÖGREGLAN greip til þess ráðs
að brjóta rúðu í bíl í gær til þess að
koma komabami til hjálpar sem
skilið hafði verið eftir í bíl á bfla-
stæði við Hús verslunarinnar í
Kringlunni.
Tilkynnt var til lögreglu að há-
grátandi komabam væri í læstum
bfl við húsið á þriðja tímanum í gær.
Að sögn lögreglu var það rautt og
þrútið og leið greinilega illa er lög-
reglumaður kom á vettvang. Þar
sem ekki náðist í forráðamann bfls-
ins greip lögreglan til þess ráðs að
brjóta rúðu í afturdyrum tfl að kom-
ast inn í bflinn og róa bamið.
Skömmu seinna bar móður þess að.
Að sögn varðstjóra hjá lögregl-
unni í Reykjavík era mál af þessu
tagi litin alvarlegum augum. Fer af-
rit af skýrslu lögreglumanns um at-
vikið til forvamadeildar lögreglunn-
ar sem tekur ákvörðun um hvort
eitthvað verði aðhafst frekar í mál-
inu.
-----------------
Afnám tollfrjálsrar
verslunar innan ESB
Eykur hugsan-
lega veltu hér
FREKAR ER reiknað með að
verslun í Fríhöfninni í Keflavík auk-
ist en hitt, í kjölfar afnáms fríversl-
unar innan Evrópusambandsins.
Nú geta þeir sem ferðast milli landa
ESB ekki lengur keypt virðisauka-
skatts- og tollfrjálsan vaming í flug-
höfnum.
Að sögn Guðmundar Karls Jóns-
sonar, forstjóra Fríhafnarinnar á
Keflavíkurflugvelli, verða áhrif
breytingarinnar hverfandi fyrir Is-
lendinga. „En ef áhrifin verða ein-
hver, vona ég að þau felist í aukinni
sölu,“ segir hann.
Guðmundur Karl segist gera ráð
fyrir að þeir sem ferðist frá löndum
ESB til landa utan sambandsins
geti verslað tollfrjálst sem áður.
„Þeir fá þá annað og væntanlega
lægra verð en þeir sem ferðast inn-
an ESB,“ segir Guðmundur. Hann
segist þó ekki vita hvemig fyrir-
komulagið verður í flughöfnunum.
„Ég veit ekki hvort reknar verða
tvær búðir í hverri flughöfn, ein fyr-
ir þá sem ferðast innan ESB og
önnur fyrir þá sem fara til landa ut-
an sambandsins,“ segir hann.
MICHAEL A. Hammer, talsmaður
þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna,
segir að bandarísk stjómvöld telji
flug tveggja rússneskra sprengju-
flugvéla inn fyrir íslenskt loftvam-
arsvæði vera léttvægt atvik sem
ekki kalli á nein sérstök viðbrögð af
þeirra hálfu. Á forsíðu Washington
Post í gær er ítarlega fjallað um
flug sprengjuflugvélanna og því
haldið fram að þetta hafi ásamt
fleiru vakið spurningar meðal
bandarískra hermálayfirvalda um
hvort Boris Jeltsín, forseti Rúss-
lands, sé að missa tökin á rássneska
hemum.
Tvær rássneskar sprengjuflug-
vélar af gerðinni Tupolev TU-95MS,
svokallaðir Bimir, flugu inn fyrir
loftvarnarsvæði Islands sl. föstudag
eins og fram hefur komið í Morgun-
blaðinu. Þetta gerðist á sama tíma
og vamaræfing NATO, Norður-
Víkingur, stóð yfir. F-15-orrustu-
þotur frá vamarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli flugu í veg fyrir vélamar
og fylgdust með ferðum þeirra.
Rússnesku vélarnar komu úr norð-
austri og flugu réttsælis kringum
landið. Bandarísku flugvélamar
fylgdu þeim út fyrir loftvarnar-
svæðið.
Tvær rássneskar sprengjuflug-
vélar af gerðinni TU-140 Blackjack
flugu einnig meðfram strandlengju
Noregs í síðustu viku. Flugvélar
voru sendai- á móts við þær en ráss-
nesku vélarnar vora famar áður en
þær náðu til þeirra.
Hluti af heræfingu Rússa
Þessar ferðir rássnesku
sprengjuflugvélanna era hluti af
umfangsmestu heræfingu sem ráss-
neski herinn hefur staðið fyrir í tíu
ár, en hún ber heitið Vestrið ‘99. í
henni tóku þátt um 50.000 hermenn
úr fimm herdefldum og þijár deildir
sjóhersins. I æfingunni tóku þátt
þrjátíu herskip, fjórir kafbátar, þar
á meðal einn kjamorkukafbátur,
auk herflugvéla sem staðsettar era
á skipum og á landi. Heræfingin fór
fram dagana 21.-26. júní.
Itarlega er fjallað um flug
sprengjuflugvélanna í Washington
Post í gær, auk þess sem frétt birt-
ist um málið á Reuters. Blaðið segir
að þetta flug hafi valdið nokkram
áhyggjum meðal ráðamanna í
Washington og vakið vangaveltur
um hvort Jeltsín, forseti Rússlands,
hafi fulla stjóm yfir hemum. Málið
er sett í samhengi við innrás 200
manna rússnesks herliðs í Kosovo
fyrir tveimur vikum og áform um
víðtækar hemaðaraðgerir Rússa í
héraðinu. Blaðið telur af samtölum
sínum við öryggissérfræðinga og
embættismenn í Washington að
þessir atburðir kunni að vera merki
um að rássneskir herforingjar óttist
áætlanir NATO í kjölfar sigursins
yfir Serbum. Einnig sé hugsanlegt
að herinn sé að reyna að auka vin-
sældir sínar hjá almenningi og
hækka framlög til hermála.
í Washington Post er þess sér-
staklega getið að rússnesku
sprengjuflugvélamar hafi verið það
nálægt Bandaríkjunum að þær
hefðu getað skotið flugskeytum til
landsins. Fram kemur í blaðinu að
vélamar hafi skotið flugskeytum á
skotmörk í suðurhluta Rússlands.
Léttvægt atvik
Michael A. Hammer, talsmaður
þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna,
vildi ekki gera mikið úr flugi rúss-
nesku sprengjuflugvélanna þegar
Morgunblaðið leitað eftir viðbrögð-
um hans í gær.
„Að okkar mati er hér um her-
fræðilega léttvægt atvik að ræða.
Þetta fellur ekki undir ákvæði um
tilkynningaskyldu samkvæmt
START I-samningnum. Viðbrögð
vamarliðsins vora í samræmi við
vinnureglur þegar svona kemur
upp. Þetta olli okkur ekki sérstök-
um áhyggjum. Að okkar mati er
þetta hvorki mikilvægt atvik út frá
herfræðilegu sjónarmiði né hefur
það neina pólitíska þýðingu.“
Hammer sagði enga leið fyrir sig
að segja fyrir um hvort búast mætti
við fleiri ferðum rássneskra
sprengjuflugvéla inn fyrir íslenska
loftvamarsvæðið. „Við höfum verið
með reglulegar heræfingar á Norð-
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði við síðari um-
ræðu um ársreikning Reykjavíkur-
borgar 1998 á fundi borgarstjómar
í gær að skýrsla borgarendurskoð-
unar um ársreikninginn gæfi tilefni
til að gleðjast, í henni fælist stað-
festing á stjómunarárangri sem
margir virtust ekki skilja og hefðu
tilhneigingu til að gera h'tið úr í um-
ræðum um fjármál borgarinnar.
Vitnaði hún í orð skýrslunnar þar
sem segir að með nýja bókhalds- og
upplýsingakerfmu Agresso hefði
borgarsjóður nú fengið öflugt verk-
færi til stjómunar, kerfi sem ætti
að geta stuðlað að hagkvæmni og
góðri þjónustu við borgarbúa.
Borgarstjóri sagði einnig mikfl-
vægt það mat borgarendurskoðun-
ar að rammafjárhagsáætlunin væri
mikilvægt stýritæki. „Ég lít svo á að
hér sé fengin staðfesting á því að
stýritækin til að koma í veg fyrir
„hömlulausa útgjaldaþenslu" borg-
arinnar séu nú fengin,“ sagði borg-
arstjóri meðal annars. Hún gerði í
upphafi ræðu sinnar orð oddvita
sjálfstæðismanna í borgarstjóm,
Ingu Jónu Þórðardóttur, við fyrri
umræðu og í samtali við Morgun-
ur-Atlantshafi, t.d. Norður-Víking
og fleiri æfingar. Rússneskar flug-
vélar hafa ekki flogið yfu- þetta
svæði í heilan áratug. Það er í sjálfu
sér merkilegt. Ég veit ekki hvort
Rússar fyrirhuga að fljúga yfir
þetta svæði í náinni framtíð.“
Hammer kvaðst telja víst að sam-
töl hefðu átt sér stað milli herfor-
ingja í bandaríska og rássneska
flughernum vegna ferða rássnesku
sprengjuflugvélanna. Málið væri
hins vegar engan veginn það stórt
að það kallaði á diplómatískar við-
ræður milli landanna.
í Washington Post eru vangavelt-
ur um hvort Jeltsín, forseti Rúss-
lands, hafi fulla stjóm á rássneska
hemum. Vísað er til flugs sprengju-
vélanna við ísland og herferðar 200
rássneskra hermanna inn í Kosovo í
síðasta mánuði. Hammer sagði að
Clinton, forseti Bandaríkjanna,
hefði rætt við Jeltsín fyrir viku. Á
fundinum hefði Jeltsín fullvissað
blaðið nokkrum dögum síðar, að
umtalsefni. Þar sagði Inga Jóna
meðal annars að það væru blekk-
ingar hjá borgarstjóra að halda því
fram að gott samræmi væri milli
áætlunar og ársreiknings, ljóst væri
að gjöld árið 1998 hefðu vaxið um
6,2% og samræmið væri fólgið í því
að fjárhagsáætluninni væri breytt
reglulega allt árið.
Gagnrýndi andstöðuna
Ingibjörg Sólrán sagði þetta
rangt hjá borgarfulltráanum „og ég
er satt að segja búin að fá mig
fullsadda af því að borgarfulltráar
minnihlutans skuli ábyrgðarlaust og
í sífellu tönnlast á því að ég stundi
blekkingar og sjónhverfingar með
tölur,“ sagði borgarstjóri. Hún
sagði unnt að staðhæfa að allir
stóru málaflokkarnir hefðu staðist
áætlun en athygli vektu mikil frávik
hjá embætti borgarverkfræðings og
borgarskipulagi. Hún sagði launalið
hafa farið talsvert fram úr áætlun
hjá borgarskipulagi og sagði hún
aðlögunarsamninga BHM hafa ver-
ið dýra. Það sama virtist vera uppi á
teningnum hjá borgarverkfræðingi,
rekstur skrifstofu, starfsmanna og
bandarísk stjómvöld um að hann
héldi um stjómtaumana.
Engin lög voru brotin
Talsmaður rássneska flughersins
sagði í samtali við AP-fréttastofuna
að rássnesku sprengjuþotumar
hefðu ekki farið inn fyrir landamæri
íslands í fimmtán klukkustunda æf-
ingaflugi á föstudag. Engin lög
hefðu verið brotin. Flug þotnanna
hefði verið hluti af heræfingum
rássneska hersins. Æfingarnar
hefðu verið haldnar á sjó á hlut-
lausu svæði og þær tilkynntar fyrir-
fram. Talsmaðurinn gerði lítið úr
frétt Washington Post. Ekkert
óeðlflegt væri við að bandarískar
orrustuvélar fylgdu sprengjuflug-
vélunum tveimur umhverfis loft-
vamarsvæði íslands. „Slíkt er al-
gengt þegar um er að ræða flugvél-
ar sem eru í nágrenni við mörk loft-
vamarsvæða og ekkert óeðlflegt
gerðist í þessu tilfelli."
bókhalds hefði þar farið 12% fram-
úr áætlun og rekstur húsnæðis
25,2% framúr áætlun.
Nokkrir borgarfulltráar Sjálf-
stæðisflokksins gagnrýndu ársreikn-
inginn og sagði Inga Jóna Þórðar-
dóttir að hallarekstur borgarinnar
væri enn veralegur. Það væri reynd-
in þrátt fyrir að 8,8 milljarðai' á
verðlagi síðasta árs hefðu verið tekn-
ir út úr fyrirtækjum borgarinnar fra
árinu 1994. Júlíus Vífill Ingvarsson
sagði að skuldir borgarinnar hefðu
hækkað milli áranna 1997 og 1998
um 5,3 milljarða og 4,4 milljarða frá
árinu 1996. Hækkun áranna 1994 til
1998 væri alls 14,6 milljarðar sem
þýddi að skuldir borgarinnar hefðu
hækkað um 8 milljónir króna á dag
að meðaltali frá því að Reykjavíkur-
listinn tók við stjórn borgarinnar.
í bókun borgai'fulltráa Sjálfstæð-
isflokksins segir m.a. að þrátt fyrir
10% hækkun skatttekna milli ára á
föstu verðlagi héldu skuldir borgar-
innar áfram að aukast. Peningaleg
staða, sem sýndi hæfni borgarinnar
til að standa við greiðsluskuldbind-
ingar, hefði og versnað verulega.
Þetta væri áhyggjuefni og snúa yrði
frá hallarekstri borgarsjóðs.
Borg-arstjóri lýsir ánægju með skýrslu borgarendurskoðunar
Ársreikningurinn staðfest-
ing’ á stj órnunarárangri