Morgunblaðið - 02.07.1999, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Flugmódelfélag Reykjavikur hefur fengið úthlutað athafnasvæði fyrir starfsemi sína
JÓN V. Gfslason, Krisfján Antonsson, Kristján Friðþjófsson, Pétur Jóhannsson, Daði Rúnar Pétursson, Björn Þórður
Jónsson, Þórarinn Valgeirsson, Guðni Brynjar Sigfússon og Bjarki Magnússon innan um flugmódclin.
Búa nánast á umferðareyju við Vesturlandsveginn
Stöðugur
titringur
og hávaði
Morgunblaðið/Jóra
HJÓNIN Sigurður Sigurðarson og Halldóra Einarsdóttir.
EINS og á umferðareyju. Vesturlandsvegurinn liggur nú ofan við húsið í Grafarholti, en neðan við
það verður í allt sumar unnið við að gera göng undir veginn með tilheyrandi hávaða og titringi.
Grafarholt
í GRAFARHOLTI búa hjón-
in Sigurður Sigurðarson dýra-
læknir og Halldóra Einars-
dóttir, en við hús þeirra ríkir
hálfgert umsátursástand
þessa dagana. Fyrir neðan
húsið er unnið við að gera
göng undir Vesturlandsveg-
inn og er því vegurinn tekinn í
sveig upp fyrir íbúðarhús
þeirra og niður á veginn aftur.
Þetta leiðir til þess að lóð
þeirra hjóna hefur breyst í
hálfgerða umferðareyju þar
sem gífurleg umferð rennur
látlaust framhjá og fyrir neð-
an húsið eru stórfelldar vega-
framkvæmdh-.
Sigurður og Halldóra vilja
þó ekki kvarta og taka fram-
kvæmdunum af stöku jafnað-
argeði. Þau segjast þó vera
farin að hlakka til haustsins
þegar framkvæmdum lýkur,
því umferðin sé talsvert meiri
en þau bjuggust við.
A verstu tímunum sé þetta
samfelld bílalest framhjá
húsinu og eilífur titringur
inni í húsinu. Síðan nötri allt
þegar verið sé að valta fyrir
neðan húsið. Halldóra, sem
er heima við flesta daga, seg-
ir einnig að mikið ryk fylgi
umferðinni og framkvæmd-
unum og að til lítils sé að þvo
gluggana, því það setjist á þá
ryk jafnóðum.
Hún brosir þegar hún er
spurð hvort hún sé ekki orðin
þreytt á látunum og segir að
það þýði ekkert að vera að
pirra sig á þessu. Þetta sé
auðvitað rask en það hafi ekk-
ert upp á sig að vera að fást
um það. Þetta sé jafnvel ekk-
ert verra en við margar um-
ferðargötur í borginni.
Þau hjónin segja að þau hafi
átt gott samstarf við verktaka
og aðra sem að framkvæmd-
unum standa. Þeir hafi gert
allt sem þeir gátu til að draga
úr ónæðinu vegna fram-
kvæmdanna og að þeim hafi
verið kynnt málið vei áður en
vinnan hófst.
Morgunblaðið/Ásdís
KRISTJÁN Antonsson flýgur vél sinni.
I sjöunda himni
í Gufunesi
Grafarvogur
NÝSTOFNAÐ félag áhuga-
manna um módelflug, Flug-
módelfélag Reykjavíkur
fékk nýlega úthlutað svæði í
Gufúnesi undir starfsemi
súia. Þorvaldur S. Þorvalds-
son, skipulagsstjóri Reylq'a-
víkurborgar, segir stefnt að
því að Gufunes verði smám
saman lagt undir almenn-
ingsíþróttir af ýmsum toga.
Farið er að móta svæðið;
planta og laga til.
Jón V. Gíslason er for-
maður Flugmódelfélags
Reykjavíkur og segir hann
félagsmenn í sjöunda himni
yfír úthlutuninni. Áhuga-
menn um módelflug í
Reylyavík höfðu lengi að-
stöðu á Geirsnefi en misstu
hana fyrir nokkrum árum.
Þeim hefur nú loks verið
fengið svæði til svifflugs,
þyrluflugs og mótorflugs
innan marka borgarinnar
sem nýtast á til frambúðar.
Áður nýttu margir þeirra
aðatöðu Þyts í Kapellu-
hrauni í Hafnarfírði til
flugs auk svæða sem þeir
töldu sig mega og geta
flogið á.
Flugmódelfélagið hefur
þegar hafíð starfsemi í
Gufúnesi og vinnur ásamt
Þjónustumiðstöð Reykjavík-
urborgar að því að útbúa
aðstöðuna. Félagsmenn
Flugmódelfélags Reykjavik-
ur eru undir eftirliti í Gufú-
nesi og fylgja öryggisregl-
um sem félagið setur þeim.
Bækistöðvar félagsins verða
í Gufúnesbæ
Borgarskipulag Reykja-
víkur vinnur að gerð skipu-
lags fyrir Gufunes en getur
ekki lokið því fyrr en
Sundabraut verður endan-
lega hönnuð. Svæði Flug-
módelfélags Reykjavíkur
mun því væntanlega taka
einhveijum breytingum en
félagið útbýr nú bráða-
birgðaaðstöðu ásamt Þjón-
ustumiðstöðinni. Borgin
leggur til vinnu við að slá
lendingarflatir og útvegar
bekki og borð. Jón lýsir
mikilli ánægju með hennar
þátt.
Flugmódelfélagið er í
samstarfi við félagsmiðstöð-
ina í gamla Gufúnesbænum.
Þar er fyrirhugað að félagið
hafi bækistöðvar í framtíð-
inni. Jón bendir á að Flug-
módelfélag Reykjavíkur sé
opið öllum fbúum höfuð-
borgarsvæðisins og hvetur
fólk til að fara í gönguferð
um Gufúnesið og fylgjast
með fíuginu sem þegar er
hafíð.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og nágranni um KR-svæðið
Samstarf þarf um
mótun stefnu
Vesturbær
BORGARYFIRVÖLD og
KR þurfa að starfa sam-
eiginlega að því að móta
framtíðarstefnu um þróun
Knattspyrnufélags
Reykjavíkur í Vesturbæn-
um, að sögn Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra. Hún segist
vera sér meðvitandi um
þrengslin sem félagið býr
við og segir borgina hafa
liðkað til með því að gera
sparkvelli víða í Vestur-
bænum til að gefa yngri
flokkum KR færi á að at-
hafna sig. Þrátt fyrir þetta
lýsa KR-ingar áhyggjum
sínum yfír skorti á gras-
völlum til æfínga fyrir
yngri liðsmenn félagsins.
Borgarstjóri nefnir að
gerðir hafi verið vellir við
Skildinganes, Starhaga og
Sörlaskjól. Þá hefur verið
samþykkt að gera annan völl
við Starhaga og gera KR-
ingum kleift að æfa á lóð
Vesturbæjarlaugarinnar.
Þetta telur Ingibjörg að létti
álagi af aðalvellinum sem
KR-ingum finnst of mikið.
„Þetta breytir því ekki
að þeir eru orðnir innilok-
aðir,“ sagði Ingibjörg um
vanda KR-inga. Ef þeir
hyggjast vera áfram í Vest-
urbænum sér borgarstjóri
ekki fyrir sér aðra lausn en
að þeim verði fundinn stað-
ur á uppfyllingu. Engar
hugmyndir um slíkt eru þó
komnar á umræðustig.
Ingibjörg býr í námunda
við völl Knattspymufélags
Reykjavíkur í Frostaskjóli.
Hún þekkir því af eigin
raun bílastæðavandann sem
myndast þegar félagið leik-
ur heimaleiki. Hún segist
alltaf hafa litið svo á að rétt
væri að láta það yfir sig
ganga að bílar flæddu yfir
allt við þessa atburði. Þann
vanda verði aldrei hægt að
leysa og fleiri íþróttafélög
glími við hann en KR.
„Það verður aldrei hægt
að ganga þannig frá íþrótta-
svæðunum að unnt sé að
fullnægja bflastæðaþörfinni
sem heimaleilqum fylgir,“
sagði borgarstjóri.
Morgunblaðið/Jim Smart
PILTAR úr 4. flokki KR á æfíngu við Háskólann.
Leikskóla
mótmælt
Kópavogur
KÓPAVOGSBÆ hafa borist
mótmæli vegna leikskóla við
Álfatún.
Mótmælin bárust í kjölfar
auglýsingar á skipulagstillögu
þar sem einkareknum leikskóla
er fenginn staður í íbúðarhús-
næði við götuna. íbúamir gera
athugasemdir við umferðarmál
og eru ósáttir við að íbúðarhús-
næði verði breytt í stofoun.
Mótmælin eru til meðferðar
hjá skipulagsneftid Kópavogs.
Hindranir
lækkaðar
Laugardalur
TIL stendur að endurgera
Reykjaveg í Laugardalnum og
verða nýjar hraðahindranir
lagðar á veginn.
Hindranirnar sem fyrir
voru þóttu í hærra lagi. Nýju
hraðahindranirnar verða 10
sentimetra háar í samræmi
við venju.