Morgunblaðið - 02.07.1999, Side 58
58 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
»
» ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími 551 1200
Sýnt i Loftkastatanum kt. 20.30:
RENT — Skuld — söngleikur e. Jonathan Larson
LAU. 3/7 nokkur sæti laus. SÍÐASTA SÝNING LEIKÁRSINS.
GLEÐILEGT SUMAR
Miðasala Þjóðleikshússins lokar vegna sumarleyfa frá og með 1. júlí.
Opnar aftur f. september.
Sala áskriftarkorta auglýst í lok ágúst.
FOLK I FRETTUM
5 LEIKFELAG <
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
A SIÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á hálfvirði.
Stóra svið kl. 20.00:
Litlá kujttÍHýstutítik
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
í kvöld fös. 2/7, ath. kl. 21.00,
lau. 3/7, uppselt,
sun. 4/7, aukasýning.
fim. 8/7,
fös. 9/7,
lau. 10/7.
n í svui
Egilsbúð Neskaupstað
í kvöld fös. 2/7
Herðubreið Seyðisfirði
Lau. 3/7.
Forsala á aðrar sýningar í síma
568 8000
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýn-
ingu sýningardaga.
Simapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
ISLENSKA OPERAN
__iliii
IS'AjSjUjjJjj
Gamanleikrit l leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
Fös 2/7 kl. 20 uppselt
Fös 9/7 kl. 20 örfá sæti
Lau 10/7 kl. 20 örfá sæti
Fös 16/7 kl. 20
Lau 17/7 kl. 20
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 10
tisMlta
lau. 3/7 kl. 20.30 nokkur sæti laus
Síðasta sýning leikársins
HIRÐFÍFL HENNAR HÁTIGNAR
Uppselt. Aukasýn. 15., 16. 17. og 18.7
Miðasala i s. 552 3000. Opið virka daga kl.
10 — 18 og fram að sýningu sýningardaga.
Miðapantanir allan sólarhringinn.
.' Negro
Skólavörðustíg 21 □
101 Reykjavík
Sími/fox 552 1220
Netfong:
blanco@ttn.is
Vetfnng:
www.blonco.ehl.is
5 30 30 30
Mðasala epin trá 12-18 og tram að sýringu
sýrtngariaBa. Orið Irá 11 lyrtr háteririeMiiiið
HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00
Mið 30/6 UPPSELT
Rm 1/7 UPPSELT
Fös 2/7 örfá sæti iaus
Mið 7/7 örfá sæti laus
Rm 8/7 örfá sæti laus
Fös 9/7 örfá sæti laus
n i
SNÝRAFTVR
Fos 9/7 kl. 23.00 í sölu núna
Lau 10/7 kl. 23.00 I sölu núna
Sun 11/7 kl. 23.00 I sölu núna
Mið 14/7 kl. 23.00 I sölu núna
Rm 15/7 kl. 23.001 sölu núna
TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA!
20% aföláttu- af mat fyrir leikhúsgesti I Iðrió.
Boröapantanir í sima 562 970Ö.
Stuðmenn á ferð um landið
Hljómsveit
landið undir
an í fyrirrú:
dóttir kynn
sögu á
jafnframt
Frírh
M
þes
v ið
n Stuðmenn herjar nú á
/ígorðinu „Snyrtimennsk-
ni“. Birna Anna Björns-
sér ýmsa sem koma við
su ferðalagi og ræddi
Stuðmannninn Jakob
ann Magnússon.
JAKOB Frímann Magnússon
Morgunblaðið/Ásdís
Snyrtimennskan í fyrirrúmi
Vesturgötu 3 HilMttVJmMkHUM
f kvöld fös. 2/7 kl. 22
Tilraunaeldhúsið/ Jaguar og
Big band Brutal.
Lau. 3/7 kl. 21.00
Blái engillinn
Sif Ragnhildardóttir syngur lög
Marlene Dietrich
Seremónfumeistari:
Arthúr Björgvin Bollason.
Miðapantanir I símum
551 9055 og 551 9030.
„ÞESSI síðasta yfírreið Stuðmanna
á öldinni er um margt sérstök,“ seg-
ir Jakob Frímann sem verður með
Stuðmönnum á Blönduósi í kvöld og
í flugskýlinu á Borgarnesi annað
kvöld. „Við erum að vísitera staði
sem við höfum ekki komið á áður og
reynum að gera öllum byggðarlög-
um jafnhátt undir höfði hvort sem
þau eru stór eða smá. Við göngum
undir hinu sígilda vígorði „Snyrti-
mennskan í fyrrirrúmi“ sem er búið
að setja í form þessa græna hers
sem gengur um byggðarlögin og
tekur ærlega til hendi og er það
verkefni svona ákveðin blanda af
gamni og alvöru."
Jarðsamband
Græni herinn er búinn til af fólki á
hverjum viðkomustað Stuðmanna
sem tekur að sér ákveðið verkefni,
gengur í það og klárar. Dæmi um
slíkt er gróðursetning, brúarsmíð, að
gera upp gömul hús og að verki
loknu er haldin skemmtun fyrir her-
inn og um kvöldið er öllum boðið á
Stuðmannaball.
Takið þið Stuðmenn sjálfír þátt í
störfum Græna hersins?
„Já, já, að sjálfsögðu. Það er mjög
ánægjulegt og það myndast ákveðið
jarðsamband við að vinna svona
verk.“
Er ekki líka gaman að fá að kynn-
ast fólkinu á stöðunum sem þið
heimsækið á þennan hátt?
„Ekki síður, þetta er allt önn-
ur nálgun en að mæta bara rétt fyr-
Skemmtari, píur
og rokkari
ÞAÐ eru ýmsir sem leggja Stuð-
mönnum lið og koma fram á
skemmtunum þeirra. Stundum
troða óvæntir gestir upp og þá
jafnvel heimamenn á viðkomu-
stöðum þeirra. Samkvæmt frekar
áreiðanlegum heimiidum eru þó
ákveðnir aðilar yfirleitt á staðn-
um og meðal þeirra eru Ulfur
skemmtari, Gógómeyjamar Abba
og Dabba og Addi rokk sem er
uppáhaldsrokkari Jakobs
Frímanns og vina hans úr æsku.
„tílfur kemur fram með sína
einstöku dagskrá sem er flutt á
litinn farandskemmtara sem
hann ber með sér í skjalatösku,"
segir Jakob Frímann. „tír þessu
batteríknúna apparati framkall-
ar hann afar skemmtilega tónlist
sem hefur hlotið frábærar við-
tökur.“
Það er haft eftir Dj
Rassaprump að gógópíumar
Abba og Dabba séu algjörar
skvísur og rosalega sætar. Þær
dansi ósvikinn gógódans og séu
alveg æðislegt krydd í sýninguna.
„Stundum dúkkar líka upp með
okkur einn elsti og þróttmesti
rokkari landsins, Addi rokk,“ seg-
ir Jakob Frímann. Hann hefur
reyndar komið fram með okkur
áður, meðal annars i Atlavik þeg-
ar Ringo Starr kom þar fram með
okkur.
Ringo þótti mikið til Adda
koma því hann er slíkt heljar-
menni að burðum. Hann tyllti
meðal annars hnakkanum á eld-
húskoll sem hafði verið komið fyr-
Morgu„bIa^agn Sjgur
enknunu apparati síhu.
ir á sviðinu, iljunum svo á annan
eldhúskoll og spennti sjg á milli
þessara tveggja kolla. í miðju lagi
hjá okkur Stuðmönnum sagði
hann svo við gítarleikarann:
„Stattu ofan á bijóstkassanum á
mér!“ og gítarleikarinn steig með
rafmagnsgítarinn ofan á bijóst-
kassann á honum. Svo sagði hann
við bassaleikarann „Stígðu nú upp
á magann á mér!“ og hann gerði
það og þannig flutti hljómsveitin
heilt lag, með Adda spenntan á
milli tveggja kolla og hann blés
ekki úr nös.“
ir miðnætti, stinga í sam-
band og vera síðan farinn."
Hreinleiki og snyrtimennska
Mikið er lagt í leikmynd og bún-
inga; er einhver sérstök hugmynd á
bakvið það?
„Já, Stuðmannaþátturinn í þessu
er nánari útfærsla á meginvígorðinu,
„Snyrtimennskan í fyrirrúmi“. Það
birtist okkur í tveimur útgáfum bæði
fyrir og eftir hlé á böllunum. Fyrst
sjáum við risavaxið tandurhreint
baðherbergi þar sem hljómsveitin er
í miklum snyrtipinnastíl og svo mæt-
ir hljómsveitin aftur til leiks og þá er
áfram tenging við hreinleikahug-
myndina með heiðbláum himni og
hverum fyrir framan og aftan okkur
og erum við klædd í íslensk glæsiföt
og glitklæði."
Af hverju þessi ofuráhersla á
hreinleika og snyrtimennsku?
„Kannski gætu einhverjir haldið að
við værum með eitthvað sérlega
slæma samvisku og værum að reyna
að þvo hendur okkar áður en öldin
væri öll, en það er nú kannski ekki
endilega það. Tilfallandi slagorð hafa
orðið okkur innblástur í gegnum tíð-
ina og „Snyrtimennskan í fyrirrúmi“
er fyrsta slagorð Stuðmanna."
Gamalt stef gengur aftur
„Þetta er í rauninni það sem við
lögðum upp með, auðvitað með tung-
una út í kinn því hljómsveitin var
stofnuð á hippatímanum þegar snyrtí-
mennskan var í sjálfu sér látin lönd og
leið. Við höfum reynt að vera á skjön
við þann tíðaranda sem er í gangi
hverju sinni. Þannig að þegar við
komum fram á hápunkti hippatíma-
bilsins vel snyrtir, vatnsgreiddir með
bindi, flytjandi lagið „Honey Will You
Marry Me“ ofan í hippamussumar og
sýrurokkið sem þá var í gangi, gátu
menn ekki annað en spennt bæði augu
og eyru. Þá var „Snyrtimennskan í
fyriiTÚmi“ sagt sem grín, enda hefur
hljómsveitin aldrei tekið sig alvarlega.
Nú tökum við upp þetta slagorð enda
er heihnikið svigrúm til að gantast
með allt sem heitir pjatt og pjátur."
Þannig er gamalt stef í raun að
ganga aftur nú í lok aldarinnar og
Jakob vitnar í Keith Richards sem
sagði að í hverjum manni byggi
ákveðið grunnstef sem hann væri
svo að útfæra meira og minna alla
ævina. Þó vill Jakob ekki meina að
hann geti orðað þeirra grunnstef ná-
kvæmlega en segir þó að þetta mátu-
lega glaðbeitta og kærulausa vígorð
nálgast það vel. Stefið sé útfært með
því sem gerist á sviðinu og ekki síður
með því sem gerist á vígvelli græna
hersins sem sé mikilvægur hluti af
heildarhugmyndinni.
Ferðin hófst í byrjun júm' og lýkur
henni í lok ágúst. Þá verður aðeins ein
uppákoma eftir á öldinni hjá Stuð-
mönnum, sjálf aldamótahátíðin í
Laugardal, sem hefur verið í bígerð í
fimm ár. „Eftír það fer hljómsveitin í
kærkomið frí,“ segir Jakob, „tíl að
endumýja sig og endurmeta og endur-
hlaða, enda stofnuð endur fyrir löngu.“
Leikmyndin rúllar og
ég varð plötusnúður
RAGNAR Kjartansson hannaði
mikla og veglega leikmynd og
búninga fynr sýningu Stuð-
manna. „Ég fór með þeim í vor til
að fylgjast með því að allt væri í
góðu lagi með leikmyndina og
æxlaðist það þannig að ég varð
plötusnúður. Það þarf svo sem
ekkert að fylgjast mikið með leik-
myndinni lengur, hún rúllar bara,
þannig að ég kem fram sem
plötusnúðurinn Dj Rassiprump."
Dj Rassiprump spilar í upphafi
skemmtunarinnar. „Ég legg
áherslu á svona sillýbillý tónlist,
það er skemmtilega skrýtin tón-
list sem er gaman að dansa við.
Svo er ég líka með míkrafón og
tala við fólkið, það er æðislega
gaman. Þetta er í raun eins og
þegar plötusnúðarnir voru ein-
hverjir gæjar sem voru í rosalegu
stuði og mér skilst að þetta sé
ennþá til úti á Mallorca.“
En þetta er bara heimilislegt
hjá mér, kannski svolítið öðruvísi
tónlist en fyrst og fremst bara
skemmtun og stuð. Ég spila alls
konar tónlist, allt frá rokki til
þýskrar klámmyndatónlistar.
Stóri draumurinn er svo að fá
að spila í útlöndum, á þessum
stóru flottu skemmtistöðum eins
og eru þarna á Benidorm hef ég
heyrt, eins á Mallorca og fleiri
sumarleyfisstöðum þar sem er
virkileg stemning. Maður hefur
heyrt að þetta sé alveg brjálað
þarna erlendis. Það er allavega
draumurinn og hver veit nema að
Stuðmenn séu stökkpallurinn til
Benidorm.“
Morgunblaðið/Ásdís
DJ Rassiprump makindaiegur í sólinni.