Morgunblaðið - 10.07.1999, Side 13

Morgunblaðið - 10.07.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 13 FRÉTTIR Framkvæmdasljóri RANNIS sat ráðstefnur OECD og UNESCO Nýr þjóðfélags- samningur vísinda og samfélags „MENN eru orðnir mjög meðvitaðir um það að vísindi og tækni eru drif- kraftur breytinga og framfara," sagði Vilhjálmin- Lúðvíksson, framkvæmda- stjóri Rannsóknarráðs íslands, í sam- tali við Morgunblaðið, en hann sótti tvær ráðstefnur um vísindi og tækni í lok júnímánaðar. Önnur ráðstefnan var á vegum OECD-ríkjanna í París, og var Vilhjálmur þar ásamt Bimi Bjamasyni menntamálaráðherra, en hin ráðstefnan var á vegum Menning- armálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í Búdapest. „Menn gera sér grein fyrir því að upplýsingatæknin og líftæknin opna nýja möguleika en auðvitað fylgja þessu líka vandamál," sagði Vilhjálm- ur. Að sögn Vilhálms kom það mjög skýrt fram á ráðstefnunum að fjár- festing í þekkingu skilaði langmest- um þjóðfélagslegum arði. Hann sagði að þetta hefði tvennt í för með sér, annars vegar það að þær þjóðir sem væm vel á vegi staddar með fjárfest- ingu í menntun og rannsóknum keyrðu hratt fram, en hins vegar að þær sem væm lakar settar drægust aftur úr. Áhyggjur af vaxandi misvægi norðurs og suðurs Á Búdapest-ráðstefnunni höfðu menn áhyggjur af vaxandi misvægi á milli norðurs og suðurs. Því var kall- að mjög eftir því sem menn kölluðu nýjan þjóðfélagssamning vísinda og samfélags til þess að laga þessi vandamál, en ekki síður til að sjá til þess að vísindi og þekking yrðu fyrst og fremst notuð í friðsamlegum til- gangi og til hagsbóta. Til að koma í veg fyrir að ákveðin lönd dragist enn meira aftur úr, komu fram hugmynd- ir um að tengja saman stofnanir í þróunarlöndunum við stofnanir í iðn- ríkjunum, til að auka samvinnu og flæði þekkingar. Þá var einnig rætt um að beina þróunaraðstoð sérstak- lega að þekkingarsviðinu, þar sem það skilar mestum þjóðfélagslegum arði. Vilhjálmur sagði að á fundinum í París hefði verið ákveðið að búa til samráðsvettvang (Global Sicence Forum) til þess að skipuleggja al- þjóðasamvinnu rannsóknarverkefna og fjárfestingu til rannsókna á al- þjóðavísu. Hann sagði að þannig mætti tryggja þekkingarflæði á milli manna og landa og stuðla að enn frekari samvinnu á þessu sviði. Gagnabanki um líffræðilega íjölbreytni Líftæknin er komin miklu skemmra í hagnýtingu en upplýs- ingatæknin og því var tekin ákvörðun um að búa til gagnabanka um líf- fræðilega fjöibreytni, sem þýðir að upplýsingar um tegundir, stofna og erfðaefni verða aðgengilegar fyrir allar þjóðir OECD, að sögn Vil- hjálms. Hann sagði að þetta kæmi m.a. til með að hafa það í för með sér að hægt yrði að tengja saman hag- nýtingarmöguleika við tiltekna erfða- eiginleika, því til yrði einhvers konar markaður fyrir þekkingu á erfðaefn- um lífvera og þar með auðveldaði þetta viðskipti á þessu sviði, sem og þekkingarsamskipti á heimsvísu. Nokkuð var fjallað um tortryggni almennings gagnvart líftækninni, og sagði Vilhjálmur að í því sambandi hefði t.d. verið rætt um erfðabreytt matvæli. Nokkurrar tortryggni gætir meðal almennings á því sviði sagði hann, en flestir vísindamenn eru hins vegar sammála um að erfðabreytt matvæli komi ekki til með að skapa nein vandræði. Minni tortryggni virð- ist gæta meðal almennings í notkun líftækni í læknisfræðilegum tilgangi. „I framhaldi af þessu veltu menn fyrir sér trúnaðarsambandi vísind- anna og almennings og menn voru sammála um að auka þyrfti umræðu og viðræður vísindasamfélags og þjóðfélags tíl þess að auka traust al- mennings á vísindunum." Á báðum fundunum komu fram áhyggjur af minnkandi áhuga ung- menna á náttúruvísindamenntun, sérstaklega ef miðað er við þörfina og fyrirsjánleg atvinnutækifæri á því sviði. Vilhjálmur sagði að menn kenndu skólakerfmu að hluta til um það hvemig ástandið væri, því í auknum mæli þyrfti að veita börnum skilning á umhverfi sínu í gegnum raunvísindaþekkingu. Varðandi stöðu vísinda- og tækni- mála hér á landi sagði Vilhjálmur að Islendingar þyrftu að herða sig enn frekar í alþjóðasókninni og að verið væri að vinna að auknum samskipt- um við Bandaríkin á sviði þekkingar en að samvinnan við Evrópulöndin hefði reynst árangursrík. Hann sagði að bæta mætti þróunarsamvinnuna við aðrar þjóðir á ýmsa vegu, t.d. væri hægt að fylgja alþjóðlegum heimsóknum ráðherra betur eftir á vísindasviðinu. Fyrsta skóflu- stunga að nýju íbúðar- hverfi ODDVITI Bessastaðahrepps, Guðmundur Gunnarsson, tók í fyrrdag fyrstu skóflustungu að Hólmatúni. Það er nafn íbúðarsvæðis í landi Traðar, Deildar og Landakots. Ætlun- in er að reisa 58 íbúðarhús á svæðinu, 23 einbýlishús, 9 rað- hús, 8 keðjuhús og 18 parhús. Ármannsfell hf. og Bygginga- félagið tilfarsfell hf. sjá um framkvæmdirnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg GUÐMUNDUR Gunnarsson, oddviti Bessastaðahrepps, tekur fyrstu skóflustunguna. www.landsbanki.is Nú er kærleiksklinkiö oröiö 8 milljonir króna V- Nú er kærleiksklinkiö sem landsmenn söfnuöu til stuönings langveikum börnum orðið að 8 milljónum króna. Umhyggja, félag langveikra barna, og Landsbanki Islands hf. villja llk þakka þjóöinni þann stuðning sem langveik börn munu njóta meö tilvist þessa sjóös. w Landsbankin n ViW Op ð t'ra 9 tti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.