Morgunblaðið - 10.07.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 15
AKUREYRI
Blómin
vökvuð
SYSTKESflN Harpa og Davíð
Kárí Kárabörn voru í heimsókn
hjá ömmu sinni á Grenivík nú á
dögunum. í sóUnni sem hefur
verið á Norðurlandi undanfarið
þornar moldin og blóm og tré
þurfa á vætu að halda. Harpa
tók sig því tíl og vökvaði fyrir
ömmu sína og Dagur Kári að-
stoðaði eftir þörfum. Þess má
geta að húsið í baksýn heitir
Sólgarðar og virðist bera nafn
sitt með rentu nú um stundir,
að minnsta kosti meðan sdlin
skín.
Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Akureyrar
Andstaða við sölu hluta-
bréfa bæjarins í UA
FULLTRÚRAR minnihlutans í bæjarstjórn Akureyrar, Framsóknar-
flokks og Lista fólksins, eru andvígir því að Akureyrarbær selji hluta-
bréf sín í Útgerðarfélagi Akureyringa. Bæjarráð samþykkti á fimmtu-
dag að vísa tillögu Kristjáns Þórs Júlíussonar bæjarstjóra þess efnis að
bréfin verði seld til afgreiðslu bæjarstjórnar, sem kemur saman til fund-
ar 20. júlí næstkomandi. Akureyrarbær á um 20% hlut í félaginu að
nafnvirði 183,6 milljónir króna og er andvirði þeirra um 1,2 milljarðar
um þessar mundir.
Morgunblaðið/Ásdls
Sigfríður Þorsteinsdóttir, Fram-
sóknarflokki, sagði að sér fyndist
tímasetningin einkennileg, það væri
skrýtið að taka ákvörðun um svo
stórt mál þegar bæjarstjórn væri í
sumarfríi. „Mér finnst þessi tillaga
sýna fram á að fjármálastjórn meiri-
hlutans er ekki í nægilega góðu
horfi, hann hefur keyrt framúr áætl-
unum meira en góðu hófi gegnir,"
sagði Sigfríður. Hún sagði að það
væri ekki bara að skorti fé til fram-
kvæmda, heldur myndi sú staða sem
uppi væri hjá lífeyrissjóði bæjarins
koma mönnum í koll síðar. Þess sæj-
ust nú þegar merki að sjóðurinn ætti
ekki fyrir sínum skuldbindingum.
Kjölfesta í bæjarfélaginu
Sigfríður benti einnig á að 6 mán-
aða uppgjör ÚA væri væntanlegt
innan tíðar og spurning væri hvaða
áhrif það hefði á gengi hlutabréfa.
„Svo þykir mörgum nauðsynlegt að
bærinn hafi einhver áhrif í félaginu,
eigi einhvern hlut til að tryggja
hagsmuni sína, því þetta fyrirtæki er
ein af kjölfestunum í bæjarfélaginu,"
sagði Sigfríður. Þá sagði hún að ekki
lægi fyrir hvað gera ætti við það fé
sem fengist með sölunni, en það
myndi vissulega skipta einhverju
máli.
Oddur Helgi Halldórsson á Lista
fólksins kvaðst alltaf hafa verið á
móti því að selja hlutabréf bæjarins í
ÚA og fyrir því væru margar ástæð-
ur, m.a. tilfinningalegar. Fyrirtækið
væri sprottið upp úr öðrum jarðvegi
en önnur félög í bænum, þetta væri
stór vinnustaður og mikilvægt að
bærinn hefði mann í stjórn þess.
Fjölmargir Akureyringar ættu hlut í
félaginu og ætti bærinn að hugsa um
þeirra hagsmuni með því að eiga
bréfin áfram.
Hlutur bæjarins hefur vaxið
Hann taldi betra fyrir Akureyrar-
bæ að taka lán til framkvæmda en að
selja hlutabréfin. „Við sjáum hvað
hlutur bæjarins hefur vaxið frá því
við seldum síðast. Nú fáum við meira
fyrir 20% hlut í félaginu en við feng-
um fyrir þau 30% sem við seldum
fyrir fáum misserum," sagði Oddur.
Hann bjóst jafnvel við að gengi bréf-
anna myndi hækka enn frá því sem
nú er.
Oddur Helgi kvaðst ekki hræddur
yið að Burðarás næði meirihluta í
ÚA. „Félagið er stórt og öflugt og
það verður ekkert rifið upp með rót-
um héðan. Umræður af því tagi eru
bara í líkingu við Rússagrýluna,"
sagði hann.
Ef til sölu bréfanna kemur vildi
Oddur fá að hafa áhrif á hvað gert
yrði við peningana og taldi nauðsyn-
legt að þeir yrðu notaðir í tengslum
við atvinnulífið. „Ég óttast hins veg-
ar að meirihlutinn muni nota pening-
ana í rekstur, byggingar skólamann-
virkja og annað slíkt," sagði Oddur.
Samningur um veitingasölu í safnaðarheimili
Beinist ekki að Bautanum
SIGURÐUR Arnfmnsson hjá
Veislubakstri segir að gagnrýni sín
á samning sóknarnefndar Akureyr-
arkirkju. og Bautans um veitinga-
þjónustu í safnaðarheimilí Akureyr-
arkirkju beinist alls ekki að Bautan-
um. Sigurður og fleiri veitingamenn
á Akureyri hafa gagnrýnt fram-
kvæmd samningsins, ekki hafi verið
rætt við fleiri aðila í veitingaþjón-
ustu í bænum þegar samningurinn
var gerður. „Eg hef ekkert út á
Bautann að setja, fyrirtækið veitir
góða þjónustu og starfsfólkið er af-
bragðsgott. Gagnrýni mín beinist
einungis að sóknarnefnd og því
hvernig vinnubrögð voru viðhöfð við
gerð samnings um veitingaþjónustu
í safnaðarheimilinu," sagði Sigurð-
ur.
Islenski
safnadag-
urinn í
Eyjafirði
í TILEFNI af íslenska safnadeginum
hafa söfn í Eyjafirði tekið höndum
saman og ætla að bjóða upp á fjöl-
breytta dagskrá. íslenski safnadagur-
inn er ætlaður til þess að vekja áhuga
á íslenskum söfhum og þeirri starf-
semi sem fer þar fram, segir í frétta-
tilkynningu. Safhadagurinn verður
næstkomandi sunnudag, 11. júlí.
Meðal þess sem söfhin bjóða upp á
er að Skralli trúður kemur í heimsókn
i Nonnahúsið á Akureyri kl. 13:30. í
Minjasafninu mun Eyþór Ingi Jóns-
son sjá um orgelieik og Hadda sýnir
vefnað í kljásteinavefstað milli 14 og
16. Þá verða einnig sýndir þjóðdansar
miffi 16 og 17.
í gamla bænum á Laufási verða
bakaðar lummur í tilefni dagsins og
þar verður þjóðdansaflokkur á ferð kl.
15. Við byggðasafnið Hvol á Dalvík
verður bryddað upp á ýmsu og kaffi
og pönnukökur verða á boðstólum.
A Sigurhæðum, Húsi skáldsins,
verður opið frá kl. 13.30 til 17.30 á
morgun. Á heila tímanum, kl. 14, 15,
16, og 17, verður flutt dagskrá um
,,Akureyrarskáld" lífs og liðin.
Önnur söfn sem taka þátt í safiia-
deginum eru Iðnaðarsafnið á Akur-
eyri, Listasafnið á Akureyri og Safna-
safnið á Svalbarðsströnd.
TILKYNNING TIL
HLUTDEILDARSKÍRTEINISHAFA
ÆVISJÓÐSINS HF.
Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni og
felur ekki í sér tilboð um kaup eða sölu verðbréfa.
Athygli eigenda hlutdeildarskírteina Ævisjóðsins hf. er vakin
á því að á aðalfundi félagsins þann 24. mars 1999 voru gerðar
breytingar á samþykktum félagins. Breytingarnar snúa að
því að fjárfestingastefnum Innlendra skuldabréfa - löng
og Innlendra skuldabréf - skammtíma var breytt á þann
veg að eingöngu skuli fjárfest í innlendum verðbréfasjóðum
sem starfa skv. lögum númer 10/1993. Frekari upplýsingar
og afrit af samþykktum félagins má nálgast hjá Fjárvangi hf.,
Laugavegi 170,105 Reykjavík.
F.h. Ævisjóðsins hf.
Lífvöröur ehf.
rrrr»-
FJÁRVANGUR
uccm vtRBBRtrftrYRifiiftii
Laugavegur 170, sfmi 540 5060, fax 540 5061, www.fjarvangur.is