Morgunblaðið - 10.07.1999, Page 19

Morgunblaðið - 10.07.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 19 Fjármálaráðherra Geir H. Haarde um skattareglur fyrirtækja Fjölmargir tvísköttunar- samningar í farvatninu stærri markaði en þar er átt við að gengi hlutabréfa fyrirtækja er ekki eins breytilegt vegna viðskipta með hlutabréfín eins og þegar markaður- inn var enn minni. „Ami Oddur hefur stundum talað um tímabilin fyrir og eftir IS-öld í þessu sambandi," segir Styrmir, „en það er mikið til í því að Búnaðarbankinn og IS-15 hafi dýpk- að íslenskan hlutabréfamarkað.“ Þeir félagar eru sammála um að spennandi tímar séu framundan á ís- lenskum hlutabréfamarkaði. „Heild- arstærð markaðarins er um 200 milljarðar og hann fer stækkandi,“ segir Arni Oddur. „Innkoma stórra fyrirtækja á markaðinn, eins og flug- félagsins Atlanta mun hafa mikið að segja. Búnaðarbankinn telur flugfé- lagið vænlegan fjárfestingarkost og keypti um 20% eins og kunnugt er. IS-15 hefur lýst miklum áhuga á hlutabréfunum og á næstu dögum verður gengið frá sölu mikils meiri- hluta þeirra. Kaupendur, auk IS-15, verða lífeyrissjóðir og verður gengið frá sölunni í næstu viku,“ segir Arni Oddur. „Það eru allir mjög jákvæðir gagnvart innkomu Atlanta á mark- aðinn og margir hafa lýst áhuga á að kaupa hlutabréf í félaginu, við þurf- um því ekki að leita að kaupendum,“ segir Andri. „Eg myndi kaupa öll bréfin ef ég gæti,“ segir Styrmir, „en ég ætla að reyna að fá sem mest.“ Atlanta verður 10% af eignasafni ÍS-15 19% af eignasafni ÍS-15 er nú í DeCODE og um 10% koma til með að verða í Atlanta. „Þetta eru hvort tveggja áhættusamar fjárfestingar en kaupverð er hagstætt og útlit fyr- ir góða ávöxtun,“ segir Styrmir, en félagamir gefa ekki meira upp að sinni. Aðspurðir um íramtíðarútlitið hvað varðar einkavæðingu Lands- símans og bankanna segjast þeir all- ir sammála um að hraða beri einka- væðingu og víða þurfi að hagræða í rekstri. „Það er ekki eftir neinu að bíða með að klára sölu á FBA, Landsbankanum, Búnaðarbankan- um og hefja sölu á Landssímanum," segir Ámi Oddur. „FBA og Búnað- arbankinn sýna nú metafkomu og ríkisstjórnin á að nýta það góða and: rúmsloft sem ríkir á markaðnum. í fyrri hluta hlutafjárútboðs bankanna var mikil eftirspum og hún ætti enn að vera til staðar.“ „Sameining og hagræðing sjávar- útvegsfyrirtækja er óhjákvæmileg á næstu árum,“ segir Styrmir. „Sjáv- arútvegsfyrirtæki era hátt í 20% af eignasamsetningu IS-15 og við höf- um trú á botnfiski fremur en upp- sjávarfiski. Að mínu mati er Sam- herji best rekna útgerðarfélagið á landinu og því eru hlutabréf í því fyrirtæki 12% af eignasafni ÍS-15.“ Styrmir hefur mikla trú á forstjóra Samherja, Þorsteini Má Baldvins- syni, ekki síst vegna þess að Þor- steinn Már á sjálfur hlut í Sam- herja. Gengi hlutabréfa i fjármálafyrirtækjum of hátt Styrmir ræðir einnig um hluta- bréfasafn Olíufélagsins sem m.a. samanstendur af bréfum í sjávarút- vegsfyrirtækjum eins og Básafelli og Vinnslustöðinni í Vestmannaeyj- um. „Ég tel að stjórn Olíufélagsins liggi á miklum fjármunum sem nýt- ist hluthöfum því ekki. Ég hef trú á olíufélögunum, þau hafa verið að lækka kostnað og bæta framleiðni. Ef ég væri forstjóri Olíufélagsins myndi ég selja hæstbjóðanda bréf Olíufélagsins í Vinnslustöðinni eða gera skipti á bréfum í Vinnslustöð- inni og öflugu sjávarútvegsfyrirtæki sem yrði til. Eg veit fyrir víst að mörg sjávarútvegsfyrirtæki hafa hug á að fjárfesta í Vinnslustöðinni,“ segir Styrmir. Fjármálafyrirtæki era fyrirferðar- lítil í ÍS-15. „Gengi hlutabréfa í þeim er of hátt og það sama á við um upp- lýsingatæknifyrirtæki. Það gerir það að verkum að IS-15 telur það ekki vænlegan kost að fjárfesta í þessum tegundum fyrirtækja í dag þrátt fyr- ir að þetta séu vel rekin fyrirtæki," segir Styrmir. „Það er alltaf hollt að hafa í huga að það er munur á góðu hlutabréfi og góðu hlutafélagi." Sjóð- stjórinn þarf að huga að framtíðinni og það er hans tilfinning að vöxtur líftæknifyrirtækja verði mestur til lengri tíma litið. FJÁRMÁLARÁÐHERRA, Geir H. Haarde, segir að skattalegt um- hverfi fyrirtækja á íslandi sé stöðugt að breytast í takt við þá þróun sem er að verða í viðskiptum og rekstri á heimsvísu. Fram kom í umfjöllun um skattamál fyrirtækja í alþjóðlegum rekstri, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, að íslenska skattkerfið hefur að mörgu leyti farið halloka í samanburði við skatt- kerfi í nágrannaríkjunum hvað varðar skattareglur fyrirtækja. Sér- staklega er á það bent að íslensk stjómvöld hafa staðfest tiltölulega fáa tvísköttunarsamninga við önnur ríki og geti það gert skattbyrði ís- lenskra fyrirtækja í alþjóðlegum rekstri þyngri en fyrirtækja sem skráð era erlendis. „Skattamál fyrirtækja er eitt af því sem stöðugt er verið að vinna með hér í ráðuneytinu," sagði ráð- STOFNAÐ hefur verið nýtt fyrir- tæki í ferðaþjónustu á íslandi, Bók- unarmiðstöð Islands ehf., og er það í eigu Samvinnuferða/Landsýnar. Bókunarmiðstöð Islands mun starf- rækja nýtt gagnvirkt bókunar- og upplýsingakerfi, sem ferðamenn og aðilar í ferðaþjónustu geta nýtt sér. Kerfið annast milligöngu um við- skipti milli kaupenda og seljenda vöra og þjónustu og geta viðskipta- vinir greitt fyrir með greiðslukorti. Einnig geta ferðamenn sótt fjöl- breyttar upplýsingar um Island í gagnagrunninn. „Þetta er gagnagrunnur fyrir ís- lenska ferðaþjónustu sem hefur margar boðleiðir,“ segir Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri Bók- unarmiðstöðvar íslands. „í fyrsta lagi má nálgast granninn gegnum Netið, í öðra lagi í gegnum kerfí sem kallast „sölustjórinn" og er bókunarkerfi fyr- ir þjónustuaðila, og í þriðja lagi mun- um við setja upp útstöðvar þar sem viðskiptamenn geta sjálfir bókað þjónustu eða nálgast upplýsingar. Við áætlum að setja upp þessar útstöðvar FBA lýsir áhyggjum af þróun á inn- lendum skuldabréfamarkaði undan- farið og því sem nefnt er minnkandi seljanleiki spariskírteina ríkissjóðs í nýrri mánaðarskýrslu bankans sem út kom á fimmtudag. Fram kemur að frá því í byrjun september á síð- asta ári hafi Seðlabankinn hækkað stýrivexti sína í þrígang og jafn- framt sett lausafjárkvöð á bindi- skyldar stofnanir. Einnig er bent á uppkaup ríkissjóðs á ríkisskulda- bréfum sem hófust í október á síð- asta ári og nema nú um 8 milljörð- um króna. FBA telur að þessar ráð- stafanir ríkisvaldsins hafi grafið undan trausti markaðsaðila á inn- lendum markaði með spariskírteini. Seljanleiki skuldabréfa er sam- kvæmt skilgreiningu FBA „mæli- kvarði á það hversu auðvelt er að kaupa/selja verðbréf á markaðsvirði þannig að verðið hreyfist hóflega við töluverð viðskipti". Fram kemur að seljanleiki er sá mælikvarði sem horft er mest til þegar lagt er mat á herra í samtali við Morgunblaðið í gær. „I dag vora til dæmis fulltrúar hér frá Portúgal og hefur þegar ver- ið gengið frá tvísköttunarsamningi milli landanna sem undirritaður verður á næstunni. Einnig hefur ver- ið gengið frá samningi við Rússland og í farvatninu era fjölmargir samn- ingar við önnur ríki, til dæmis Spán.“ Geir segir að ýmislegt annað sé til skoðunar í sambandi við skatta- mál fyrirtækja. „Reyndar vill þannig til að í dag skipaði ég nefnd sem ætlað er að vera ráðuneytinu til ráðgjafar um mótun skattareglna og tengd mál. Hópurinn er skipaður fulltrúum utan ráðuneytisins og er þannig viðbót við það starf sem hér fer fram innan veggja. í honum er fólk sem þekkir vel til í atvinnulífi hér á landi og mun verða okkur hér í ráðuneytinu til halds og trausts." Af öðram viðfangsefnum nefnir víða um land í framtíðinni." Bókunar- miðstöð Islands hefur gert samning við upplýsingamiðstöð ferðamála í Reykjavík um víðtækt samstarf um bókunarkerfið og gagnagranninn sem það byggir á. Kristján segir að fyrirtækið hafi marga aðra samninga það hversu þróaðir einstakir verð- bréfamarkaðir era. „Skorti seljan- leika dregur það úr trúverðugleika á markaðnum og skapar markaðs- aðilum óvissu," segir meðal annars í skýrslunni. í skýrslunni kemur fram að frá því að ríkissjóður tilkynnti fyrst um uppkaup á ríkisskuldabréfum hafi stórlega dregið úr veltu með spari- skírteini og ríkisbréf á Verðbréfa- þingi Islands og hafi seljanleiki, mældur sem hlutfall veltu af mark- aðsvirði, minnkað í sama hlutfalli og veltan. Einnig kemur fram að mun- ur á kaup- og söluávöxtun á helstu markflokkum spariskírteina á VÞI hafi aukist mikið og að líka hafi dregið úr heildarfjárhæð fram- lagðra kaup- og sölutilboða á degi hverjum. FBA bendir á að þróunin á mark- aði með spariskírteini sé í andstöðu við þá þróun sem átt hefur sér stað í viðskiptum með húsbréf, en þar hef- ur heildarfjárhæð framlagðra kaup- Geir lög um virðisaukaskatt sem sérstök nefnd hefur haft til athug- unar í ljósi tíu ára reynslu af virðis- aukaskatti hér á landi. Hann segir einnig að til greina komi að endur- skoða löggjöf um eignaskatta á fyr- irtæki en að ekkert hafi verið ákveðið í því efni. „Enn eitt dæmi um það sem líta þarf vandlega á era kaupréttarsamningar starfsfólks á hlutabréfum í fyrirtækjum. Ég hef áður sagt að móta þurfi skýrar regl- ur um slíkar ráðstafanir og tel að ekki eigi að vera mjög erfitt að finna lausn á því máli. Menn þurfa fyrst og fremst að koma sér saman um útfærslu." Geir vildi ekki nefna hvenær búast mætti við því að hugsanlegar breyt- ingar yrðu leiddar í lög en sagði að í ráðuneytinu væra nokkur framvörp til athugunar sem tengdust löggjöf og reglugerðum á sviði skattamála í undirbúningi og sé stefnt að þvi að setja upp „sölustjórann“ í öllum upp- lýsingamiðstöðvum ferðamála hér á landi. Bókunarmiðstöðin er nú þegar orðin aðgengileg á Netinu og er slóð- in www.discovericeland.is og sölutilboða á VÞÍ verið að aukast og bil milli kaup- og söluávöxtunar að minnka. Ennfremur hafi átt sér stað mikið flökt á gildi vísitalna spariskírteina en ekki sé hægt að greina sömu þróun í viðskiptum með húsbréf. Af öllu þessu dregur FBA þá ályktun að spariskírteini gegni ekki eins veigamiklu hlutverki nú og áð- ur og séu húsbréf í auknum mæli farin að gegna því hlutverki sem spariskírteini gegndu áður. Þó er þess getið að um allan heim sé vaxtaferill ríkisskuldabréfa, með mislangan binditíma, grannur að allri annnarri verðlagningu á vaxta- markaði. „Húsbréf munu aldrei geta gegnt þessu hlutverki. Þessi þróun hægir því á áframhaldandi framþróun á innlenda vaxtamarkað- inum, að mati FBA,“ segir í skýrsl- unni og er sú ósk jafnframt látin í Ijós að ríkissjóður leiti, í samráði við markaðsaðila, leiða til að endur- vekja traust þeirra á vaxtaferlinum. sem ætlunin væri að leggja fyrir þingið á næsta vetri eða síðar. Um þær tilraunir sem fram fara á vettvangi Evrópusambandsins og OECD og lúta að samræmingu skattareglna sagði Geir að eins og mál horfðu við nú væri þess langt að bíða þar til þær færa að bera telj- andi árangur. „Hins vegar er eðli- legt að við fylgjum almennri réttar- þróun á þessu sviði í heiminum og búum jafnframt okkar skattkerfi þannig úr garði að það sé aðlaðandi og vinveitt atvinnurekstri og ný- sköpun. Hér á landi hefur margt verið gert í því skyni að laga starfs- skilyrði atvinnulífs að þeirri þróun sem er að verða heiminum og við munum halda áfram þeirri aðlögun á næstunni. Við ætlum okkur að vera í fararbroddi meðal ríkja heims á næstu öld,“ sagði fjármála- ráðherra. Starfsfólki fækkar um 40 hjá Tæknivali „STARFSMENN Tæknivals verða 280 talsins hinn 1. september, en þeir voru 320 í apríllok. Þetta er því fækkun um 40 rnanns." Þetta segir Árni Sigfússon, framkvæmdastjóri Tæknivals, í samtali við Morgunblaö- ið og bætir við að þessari fækkun starfsfólks hafi verið náð eftir fjórum leiðum. „í fyrsta lagi hefur fyrirtækið veriö að selja frá sér verkefni, og þeim hefur fýlgt fólk sem hefur þá um leiö hætt störfum hjá Tæknivali. í öðru lagi hefur verið auðvelt að aðstoða fólk viö að fá önnur störf, enda er ekki atvinnuleysi í tölvugeiranum. í þriðja lagi hafa menn sagt upp störf- um og loks hefur mönnum verið sagt upp. Þessar fjórar leiðir hafa gengiö mjög vel í góðu samkomulagi við þá sem í hlut eiga, og eru engin eftirmál af þessum breytingum, sem er ánægjulegt. Mér er mjög annt um þaö, en þetta eru það miklar breyt- ingar og þaö mikil uppstokkun aö ekki væri óeölilegt aö búast við öðru," segir Árni. Hann segir að þessi fækkun starfsfólks sé liöur í endurskipulagn- ingu á rekstri Tæknivals, en vill ekki tjá sig frekar um aðra þætti endur- skipulagningarinnar. „Ég myndi gera það á betri tíma. Við erum að fara yfir þetta og það eru mjög margir þættir sem litið er til. Sá tími fer að nálgast aö viö getum skýrt frá þessu í nánari atriöum. Þetta veröur að hafa sinn gang,“ segir Árni Sigfús- son að lokum. ------------- Landsbankinn tekur 12,3 milljarða lán LANDSBANKI íslands hf. hefur samið um lántöku á alþjóðamarkaði aö fjárhæö 162 milljónir evra sem svarar til 12,3 milljarða króna. Upp- haflega var miðað við að taka lán að fjárhæð 100 milljónir evra, en vegna mikils áhuga fjárfesta á lánamarkaöi varð endanleg upphæð lánsins 162 milljónir evra. Umsjón með lántökunni haföi Bankgesellschaft Berlin í London, en aðrir umsjónarbankar voru Bayer- ische Hypo- und Vereinsbank AG, Dresdner Bank Luxembourg S.A. og San Paolo IMI Group, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Lands- bankanum. Nýr gagnagrunnur fyrir ferðaþjónustu hér á landi Annast milligöngu um við- skipti með vörur og þjónustu Kristján Damelsson: “Stefnum að því að setja „sölustjórann" upp í öllum upplýsingamiðstöðvum ferðamála hér á landi." FBA lýsir áhyggjum af markaði með spariskírteini

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.