Morgunblaðið - 10.07.1999, Page 20
20 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
VERIÐ
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Uthafskarfakvótinn að klárast
Ekkert skip á
Reykj aneshrygg
ÚTHAFSKARFAKVÓTI íslend-
inga á Reylqaneshrygg fer nú að
klárast en alls hafa Islendingar
veitt tæp 40 þúsund tonn á svæðinu
á þessu ári, samkvæmt upplýsing-
um frá Fiskistofu. Heildarút-
hafskarfakvótinn er á þessu ári 153
þúsund tonn en þar af er hlutur Is-
lendinga 45 þúsund tonn. Þemey
RE er aflahæsti togarinn á Reykja-
neshrygg á þessari vertíð með um
2.351 tonn, Baldvin Þorsteinsson
EA hefur fengið 2.347 tonn og
Örfírisey RE um 2.319 tonn. Ekkert
íslenskt skip var að veiðum á
Reykjaneshrygg í gær, samkvæmt
upplýsingum Tilkynningaskyldunn-
ar, en Sjóli HF og Klakkur SH voru
þar síðast fyrr í vikunni. Afli var þá
orðinn mjög dræmur, allt niður í 60
kíló á togtímann.
Marsnákur, slóans
gelgja og laxsíld
Ýmiskonar „mslfiskur“, hefur
undanfarnar vikur reynt mjög á
þolrif sjómanna á Reykjaneshrygg.
Um er að ræða nokkrar tegundir
smáfisks sem kemur í trollið í
miklu magni og þyngir trollið svo
að það sekkur til botns. Tegundirn-
ar em ónýtanlegar með öllu, enda
heita þær fremur ógeðfelldum
nöfnum á borð við marsnákur, sló-
ans gelgja og laxsfld. A myndinni
má sjá skipverja á togaranum
Klakki SH hreinsa dekkið af þess-
um ófögnuði.
Ályktun frá áhöfn
Sléttaness IS
ÁHÖFN frystitogarans Sléttaness
ÍS hefur sent íbúasamtökunum
Ataki á Þingeyri eftirfarandi álykt-
un:
„Við í áhöfn Sléttaness viljum lýsa
undmn okkar á þeirri ákvörðun
framkvæmdastjóra Básafells, Svans
Kristjánssonar, að selja Sléttanesið
þar sem skipið er búið að skila jafnri
afkomu, alls 837 milljónum króna
síðan það var sett á flakafrystingu í
endaðan febrúar 1998. Við skomm á
stjóm Básafells, bæjarstjóm Isa-
fjarðarbæjar og aðila sem hlut eiga
að máli að endurskoða afstöðu sína
til sölu skipsins og leita annarra
leiða til að minnka skuldir félagsins,
þar sem ekki einungis fjöldi fjöl-
skyldna í byggðarlaginu muni missa
atvinnu sína, heldur mun fólkið
einnig láta frá sér bestu tekjulind-
ina. I Ijósi atvinnuástandsins í fjórð-
ungnum, þó sérstaklega á Þingeyri,
skomm við á ríkisvaldið að koma til
aðstoðar og laga leikreglur þjóðfé-
lagsins þannig að fólk eigi jafnan
rétt til búsetu og atvinnu. Það var
nú einu sinni þannig að fólkið í sjáv-
arþorpunum skapaði útgerðunum
kvóta „allra landsmanna“.“
Lægra verð á fískmörkuðum
Verð á
lækkað
VERÐ á þorski og steinbít hefur far-
ið lækkandi á fiskmörkuðum á Vest-
fjörðum að undanförnu. Er um allt
að 15% lækkun að ræða á þorski.
Fiskverðið er engu að síður 10-15%
hærra en það var á sama tíma á síð-
asta ári
Arnar Bárðarson hjá Fiskmarkaði
Vestfjarða segir að ástæðuna sé að
finna í stöðugu framboði síðastliðna
mánuði. „Frystigeymslur fisk-
vinnsluhúsanna era að fyllast.
Einnig hafa sumarfrí starfsmanna
þau áhrif að framleiðni er ekki eins
mikil.“
þorski
um 15%
Amar segir enga ástæðu til að ótt-
ast um að þetta sé frambúðarástand.
„Þetta lagast þegar það fer að gera
almennilega brælu. Menn verða líka
að hafa það hugfast að lækkun á sér
yfirleitt stað á þessum árstíma og að
verðið á þorski er þrátt fyrir allt 10-
15% hærra en það var fyrir ári.“
Allt að 90 vestfirskir smábátar
færðu sig yfir til Skagastrandar fyrir
helgina vegna frétta um ævintýran-
leg aflabrögð. Nú virðist sem botn-
inn sé dottinn úr þeim veiðum og era
bátarnir smám saman að snúa á
heimaslóðir.
Átök Indverja og Pakistana í Kasmír-háraði
Pakistanstjórn hvetur
skæruliða til að hörfa
Islamabad, Karg-il. AFP.
RÍKISSTJORN Pakistans og þar-
lend hermálayfirvöld lýstu því yfir
í gær að þau myndu fara þess á leit
við skæmliða er berjast í nafni
Pakistan í Kasmír-héraði að þeir
legðu sitt af mörkum til að stöðva
átökin í héraðinu. Yfirhershöfð-
ingjar flughers, landhers og her-
flota Pakistana sögðust styðja
frumkvæði Nawaz Sharifs, forsæt-
isráðherra landsins, sem miðar að
því að finna friðsamlega lausn á
deilunni í Kasmír og að reyna að
hafa áhrif á skæraliðana. Hins veg-
ar sögðust þeir virða hugdirfsku
skæruliðanna og styðja sjálfstæðis-
baráttu Kasmír-búa af pakistönsk-
um ættum.
Leiðtogar skæraliðahreyfing-
anna sögðust í gær hafna algerlega
tilmælum Pakistana um að hverfa
frá indverska hluta Kasmír. „Stríð
okkar hefur ekki verið háð með það
að markmiði að hörfa, heldur til að
sækja,“ sagði Fazalur Rehman
Khalil, talsmaður Harakatul Muja-
hideen-skæruliðasveitarinnar.
Stjórnmálaskýrendur í Pakistan
töldu að yfirlýsing pakistanskra
ráðamanna benti til að þeir ætluðu
sér að biðja skæraliða um að
hverfa frá vígstöðvum þeim á Kar-
gil-svæðinu er þeir náðu í sókn
sinni inn í indverska hluta Kasmír í
síðasta mánuði. Þá er talið að
Nawaz Sharif muni ávarpa þjóðina
í dag og lýsa yfir fyrirætlunum sín-
um.
Indverjar ná tangarhaldi
á vígstöðvum í Batálik
í yfirlýsingu stjórnvalda kom
einnig fram ánægja með samkomu-
lag Sharifs og Bill Clintons Banda-
ríkjaforseta sem náðist í Was-
hington sl. sunnudag þar sem fram
kom afstaða Pakistana vegna stöðu
mála í Kasmír-deilunni. Hafa
Pakistanar þvertekið fyrir að þeir
sjái skæraliðasveitum í héraðinu
fyrir vopnabúnaði eða að þeir
styðji þá með pólitískum hætti.
Indversk hermálayfirvöld lýstu
því yfir í gær að hersveitir Ind-
verja í Kasmír hefðu unnið stórsig-
ur í baráttu sinni við skæraliða-
sveitir í héraðinu eftir að þær náðu
undir sig vígstöðvunum í Batalik.
„Síðustu boðflennunum í Batalik
hefur verið sparkað út og við höf-
um náð valdi á markalínunni á öllu
þessu svæði,“ sagði Krishan Pal,
ofursti í indverska hernum.
Miklir bardagar hafa geisað í Ba-
talik síðustu daga og hafa stríðandi
fylkingar lýst miklu mannfalli
gagnaðilanna og áfangasigram alla
vikuna. Sagði Pal að á næstunni
mundu skæraliðar þeir sem enn
era á svæðinu verða hraktir á brott.
„Herinn hefur hert á aðgerðum sín-
um er miða að því að reka skærulið-
ana út og er það nú eingöngu
spuming um tíma hvenær við
hreinsum land okkar algerlega.“
■bQbínk {, vHm. “ ui
;; ' 'E v V v ^
Reuters
INDVERSKUR lögreglumaður í Srinagar í Kasmír reynir að halda aftur af andstæðingi sameiginlegrar
Kasmír-yfirlýsingar Nawaz Sharifs, forsætisráðherra Pakistans, og Bills Clintons Bandaríkjaforseta.
Fleiri hermenn sendir á átakasvæðið í Kólumbíu
Elta uppi skæruliða
í grennd við Bogotá
Bogotá. Reuters.
HER Kólumbíu sendi í gær liðs-
auka til fjalla í nágrenni Bogotá til
að elta uppi marxíska uppreisnar-
menn sem höfðu undirbúið árás á
kólumbísku höfuðborgina. Um 78
manns biðu bana í átökunum í
fyrradag.
Heimildarmenn í hemum sögðu
að um þúsund sérsveitarhermenn
hefðu leitað að uppreisnarmönnum
á fjöllum nálægt bænum Gutierrez,
um 25 km sunnan við Bogotá.
Átökin í fyrradag vora hin mann-
skæðustu frá því í janúar þegar
Andres Pastrana, forseti Kólumbíu,
hóf friðarviðræður við Byltingarher
Kólumbíu (FARC). Þetta vora
einnig hörðustu átökin sem blossað
hafa upp svo nálægt höfuðborginni í
manna minnum.
Skærahemaður uppreisnar-
mannanna hefur kostað 35.000
manns lífið síðustu tíu árin en ekki
hefur komið til mannskæðra átaka í
Bogotá. Ekki var talin hætta á því
að átökin breiddust út til fátæktar-
hverfa í höfuðborginni þótt upp-
reisnarmennimir njóti þar mikils
stuðnings. Einnig var talið ólíklegt
að uppreisnarmennimir hygðu á
allsherjarárás á Bogotá, sem er
með sjö milljónir íbúa.
„Geta ekki náð Bogotá
á sitt vald“
Bardagarnir benda hins vegar til
þess að mjög erfitt verði að koma á
friði í landinu og að leiðtogar FARC
hafi ekki gefið upp þá von að geta
einhvem tíma ráðist á höfuðborg-
ina, tekið völdin í sínar hendur með
valdi og stofnað sósíalískt ríki.
„Uppreisnarmenn FARC geta
ekki náð Bogotá á sitt vald en þeir
vilja grípa til ýmissa hermdarverka
til að ráðamennirnir verði við öllum
kröfum þeirra í friðarviðræðunum,“
sagði Femando Tapias, yfirhers-
höfðingi Kólumbíu.
Talsmaður hersins sagði að um
40 sérsveitarhermenn og 38 upp-
reisnarmenn hefðu fallið í bardög-
unum í fyrradag. Ekki mun hafa
komið til átaka í gær.
Uppreisnarher FARC er skipað-
ur 17.000 skæruliðum og talið er að
hann hafi náð um 40% dreifbýlisins
á sitt vald. FARC er með nokkra
skæruliða í borgunum, en þeir hafa
einbeitt sér að sprengjuárásum,
mannránum og njósnum.
Nokkrir af foringjum FARC hafa
þó sagt að þrátt fyrir friðarviðræð-
umar undirbúi hreyfingin enn
„fyrstu stórsóknina" með það að
markmiði að ná borgunum á sitt
vald.
Flestir Kólumbíumenn era van-
trúaðir á að FARC vflji undirrita
friðarsamning en efast einnig um að
uppreisnarmennimir geti komist til
valda, ef marka má nýlegar skoð-
anakannanir.
„Uppreisnarmennirnir era ein-
faldlega orðnir að óaldarflokki
hryðjuverkamanna, sem ráðast á
vamarlausa bæi á nætuma og ræna
fólki á daginn,“ sagði Alfonso
Lopez, fyrrverandi forseti landsins,
í viðtali við dagblaðið E1 Espectador
í gær.