Morgunblaðið - 10.07.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 21
Telja hollustu sólbaðs
veigameiri en hættur þess
London. The Daily Telegraph.
HÓPUR virtra fræðimanna hefur
komið heilbrigðisforkólfum í
mikið uppnám með því að hafna
þeirri fullyrðingu að fólk eigi
skilyrðislaust að forðast sóiböð í
sumarfrfinu. Þeir eru ekki að
halda því fram að sóibað sé ekki
óhollt, því ekki er deilt um að
það eykur hættuna á húðkrabba-
meini. Hins vegar segja þeir að
hollusta sólbaðs kunni, þegar á
heildina sé iitið, að vega þyngra
en óhollustan.
Faraldursfræðingar segja að
aðvaranir um hættu á húð-
krabbameini komi í veg fyrir að
fólk njóti ljúfra stunda í sólinni
sem auki á hamingju þess, gefi
því meira af D-vítamíni og geti
jafnvel dregið úr hættunni á
kransæðasjúkdómum.
Fjöldi húðkrabbameinstillfella
hefur aukist í Bretlandi, og deyja
um 1.200 manns árlega af völd-
um illkynja sortuæxla. Farald-
ursfræðingarnir halda því hins
vegar fram, að þessi dánartíðni
sé lág miðað við fjölda dauðsfalla
af völdum algengustu dánaror-
sakanna.
„Vísbendingar eru um að
möguleg heilsubót af sólbaði
kunni að vega þyngra en marg-
umrædd hætta á húðkrabba-
meini,“ segja fræðingarnir í
grein í The British Medical Jo-
urnal. „ Andleg áhrif þess að
njóta minna sólarljóss kann vel
að vega þyngra en sú tiltölulega
Iitla áhætta, sem fylgir því að
fara í sólbað, í mörgum tilfell-
um.“
Margra ára
starf í hættu
En heilbrigðisforkólfar eru
síður en svo ánægðir með grein
faraldursfræðinganna.
Christopher New, framkvæmda-
sljóri upplýsingaherferðar
breska heilsufarsupplýsingaráðs-
ins um húðkrabbamein, sagði það
hafa tekið mörg ár að fá fólk til
að endurmeta viðhorf til sólbaðs.
„Okkur er þessi umdeilda grein
mikil vonbrigði. Það eru veikar
vísbendingar henni til stuðnings
og hætt við að hún geri að engu
Reuters
árangur af margra ára upplýs-
ingastarfi."
Höfundar greinarinnar í The
British Medical Journal, prófess-
or George Davey Smith og pró-
fessor Stephen Frankel, segja að
jafnvel þótt það dragi úr hætt-
unni á sortuæxlismyndun að vera
minna í sól muni áhrifin á heild-
ardánartíðni vera hverfandi.
1995 létust 697 karlar og 698
konur í Englandi og Wales af
völdum húðkrabbameins. „Jafn-
vel öflug herferð myndi væntan-
lega einungis koma í veg fyrir fá
dauðsföll."
Til samanburðar segja höfúnd-
arnir að 1995 hafi 139 þúsund
manns látist af völdum
kransæðasjúkdóma og vísbend-
ingar séu um að sólbað dragi úr
hættunni á hjartaáfalli. Vegna
þess hve þessi tala sé miklu
hærri mætti vænta þess að ein-
ungis lítilvæg, jákvæð áhrif af
sólböðum gætu lækkað dánar-
tíðni af þessum völdum verulega.
En Jean King, yfirmaður upp-
lýsingaþjónustu breska krabba-
meinsfélagsins, sagði: „Við erum
ekki að segja fólki að setjast að
neðanjarðar, en húðkrabbamein
er andstyggilegur sjúkdómur
sem dregur til dauða fólk á þrí-
tugs og fertugsaldri. [Greinin] er
alls ekki til bóta. Upplýsingar til
almennings um þetta efni hafa
verið skýrar og eindregnar og
við ættum að gæta þess að grafa
ekki undan þeim. Eg tel að [höf-
undar greinarinnar] hafi ekki
fundið nærri nógu sterkar vís-
bendingar til þess að geta sagt
að heilsubót af sólbaði vegi
þyngra en skaðsemin."
Hættulegast að sólbrenna
Ekki er deilt um að sólbað eyk-
ur hættuna á húðkrabbameini.
Talið er að hættulegast sé að sól-
brenna, sérstaklega á barnsaldri,
og slitrótt sólbað, til dæmis þeg-
ar fólk, sem vinnur innandyra,
fer í frí og liggur í sólbaði í hálf-
an mánuð. Slitrótt sólbað er talið
auka hættuna á sortuæxlismynd-
un um 70%, en sólbruni tvöfaldi
hættuna. Rannsóknir á sólbruna
og krabbameini hafa verið um-
deildar vegna þess að fólk, sem
fengið hefur húðkrabba, er lík-
legra til að muna eftir því að
hafa sólbrunnið.
Ekki er að fullu ljóst með
hvaða hætti sólbruni veldur ill-
kynja sortuæxlum. Sumu fólki er
hættara, til dæmis þeim sem eru
rauðhærðir og freknóttir, en
þáttur arfgengrar eðlishneigðar
er ekki fyllilega kunnur. Eitt af
því sem erfitt hefur reynst að út-
skýra, er að fólki sem vinnur ut-
andyra í sólskini virðist vera síð-
ur hætt við því að fá sortuæxli.
Féll
500 fet
Hamilton. AP.
VEÐUR var gott og vart ský á
himni þegar vél bandaríska
Continental-flugfélagsins, flug
númer 743 lenti skyndilega í
ókyri'ð og féll fimm hundruð
fet. í farþegaklefanum fór mat-
arvagn upp í loft, farþegar
tóku að biðjast fyiir og böm
grétu. „Ég sá fólk í loftköstum
... upp og niður. Ég sá mann
kastast yfir sætisbak," sagði
Diana Munoz, farþegi frá
Newark í Bandaríkjunum, þeg-
ar vélin var lent heilu og
höldnu í Hamilton á Bemiúda
síðdegis á fimmtudag, og hlúð
var að þeim farþegum sem
höfðu slasast.
Um borð voru 159 manns, og
16 slösuðust alvarlega, flestir á
höfði eða hálsi, og voru lagðir á
sjúkrahús. 45 urðu fyrir minni
háttar meiðslum. Vélin er af
gerðinni Boeing 737-800 og var
á leið frá Newark til Puerto
Rico. Hún var í um 29 þúsund
feta hæð skammt suður af
Bermúda þegar hún missti
skyndilega hæð, með fyrr-
greindum afleiðingum, en
komst fljótt aftur upp í fyrri
flughæð. Smávægilegar
skemmdir urðu á flugvélinni.
UUP heldur
kostum opnum
Belfast. AF, AFF.
FRAMKVÆMDARÁÐ stærsta
flokks sambandssinna á Norður-ír-
landi (UUP) lýsti því í gær yfir að til-
lögur sem bresk og írsk stjórnvöld
lögðu fram fyrir viku, um hvernig
staðið verði að myndun heimastjórn-
ar á Norður-írlandi og afvopnun
Irska lýðveldishersins (IRA), væru í
grundvallaratriðum ósanngjarnar en
ekki er þó útséð um hvort UUP mun
hafna tillögunum. Skoðanakönnun
sem birt var í gær sýndi að 53% mót-
mælenda á N-írlandi eru andsnúin
hugmyndum Blairs og Aherns.
Yfirlýsing hundrað og tíu manna
framkvæmdaráðs UUP er fyrstu
formlegu viðbrögð flokksins frá því
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
Iands, og Bertie Ahern, forsætisráð-
herra írlands, lögðu tillögur sínar
fram eftir maraþonviðræður í Belfast.
Gerir framkvæmdaráð UPP þá kröfu
að IRA byrji „án tafar“ að afvopnast
eigi Sinn Féin að fá að taka sæti sín í
heimastjórninni. Forystumenn UUP
munu hins vegar funda aftur á mið-
vikudag í næstu viku, kvöldið áður en
mynda á heimastjórnina skv. tillögum
Blairs og Ahems, til að meta stöðuna
og taka afstöðu í málinu. Halda þeir
fram að þeim tíma öllum dyrum opn-
um.
Ljóst er hins vegar að mikil and-
staða er meðal flokksmanna við til-
lögumar og John Taylor, varaleiðtogi
UUP, var ómyrkur í máli áður en
fundur framkvæmdaráðsins hófst í
gær. Hann gagnrýndi Bertie Ahem,
forsætisráðherra írlands, harkalega
fyrir orð sem hann lét falla í fyrra-
kvöld en Ahern kvaðst þá telja að
Sinn Féin og IRA væm tvenn ótengd
samtök, en sambandssinnar hafa
ávallt litið á Sinn Féin og IRA sem
tvær hliðar á sömu mynt. Sagði Ta-
ylor einungis 4% líkur á að UUP
legði blessun sína yfir tillögurnar.
Óraníumenn fá enn eitt
bannið f hausinn
Mikil óánægja er meðal Óraníu-
manna í Belfast eftir að nefnd, sem
starfar á vegum breskra stjórnvalda,
tilkynnti í fyrrakvöld að Óraníumenn
fengju ekki að efna til samkomu í
Ormeau-garðinum í Belfast að lokn-
um skrúðgöngum Óraníureglunnar í
borginni á mánudag, en þá nær
göngutíð reglunnar árlegu hámarki.
Óraníumönnum hafði áður verið
bannað að ganga um hverfi kaþólskra
á Lower Ormeau-götunni og til að
lýsa óánægju sinni með bannið hugð-
ust þeir efna til mikilla mótmæla í Or-
meau-garðinum. Kom fram í úrskurði
„göngunefndarinnar" að nýjar fyrir-
ætlanir Óraníureglunnar væru jafn-
vel enn líklegri til að skapa vandræði.
Pinochet fái
kostnað greiddan
London. Reuters.
RÍKISSJÓÐUR Bretlands á að
greiða hluta málsvarnarkostnaðar
Augustos Pinochets, fyrrverandi ein-
ræðisherra Chile,
samkvæmt úr-
skurði æðsta
dómstóls Bret-
lands, lávarða-
deildarinnar, í
fyrradag.
Dómarar lá-
varðadeildarinn-
ar gátu ekki
greint frá því
hversu mikill
kostnaðurinn er þar sem lögfræðing-
ar Pinochets hafa ekki enn lagt fram
alla reikninga sína. Talið er þó að
reikningarnir geti numið sem svarar
tugum ef ekki hundruðum milljóna
króna.
Dómararnir úrskurðuðu að breski
ríkissjóðurinn ætti að greiða máls-
varnarkostnað Pinochets vegna
tvennra fyrstu réttarhalda lávarða-
deildarinnar sem fóru fram í nóvem-
ber og desember.
Breskur dómstóll úrskurðaði í
október að handtaka Pinochets
vegna framsalsbeiðni Spánverja
hefði verið ólögmæt en lögfræðingar
Spánverja áfrýjuðu þeim úrskurði til
lávarðadeildarinnar. Dómarar henn-
ar hnekktu úrskurðinum í nóvember
en lávarðadeildin varð að taka málið
upp að nýju eftir að einn dómaranna
var sakaður um hlutdrægni í málinu.
„Dómaramir komust að þeirri nið-
urstöðu að það væri ekki Pinochet að
kenna að málinu var áfrýjað," sagði
breskur embættismaður þegar hann
útskýrði úrskurðinn.
Samkvæmt úrskurðinum á Pin-
ochet sjálfur að greiða málsvarnar-
kostnaðinn vegna þriðja réttarhalds-
ins sem hefst í september.
Augusto
Pinochet
Lambalæri á
franska vísu
Að þessu sinni buðu Ragnhildur
Kjeld og Stanislas Bohic,
landslagsarkitekt vinum sínum í
mat. Þau elduðu lambalæri á
franska vísu sem heppnaðist alveg
frábærlega og gimilegt tómatsalat
Stanislas fullkomnaði máltíðina.
Gestgjafamir: Ragnhildur Kjeld
og Stanislas Bohic
Hvítlaukurinn er afhýddur og ri/junum stungið í lœrið. Kryddinu
er blandað ( rauðvínið og lœnð látið liggja í leginum í kœli
að minnsta kosti ( sólarhring. Gott er að snúa þv( af og til.
Lœrinu er pakkað vel inn ( álpappír og grillað á vœgum hita
ofarlega ( ofni (1 1/2 klst. Snúið lœrinu öðru hvoru.
Hráefni Uppskriftin er fyrir 6 manns
Lambalæri
rauðvín eftir smekk (má vera óáfengt)
ferskt timian (1 búnt saxað)
hvítlaukur eftir smekk
birkisalt
rósapipar
Tómatsalat a la Stan:
10 tómatar skomir í sneiðar
2 skalotlaukar
1 búnt fersk steinselja
1 dl ólífuolía
1/2 dl rauðvínsedik
1 tsk Dijon sinnep
birkisalat
rósapipar
1-2 tsk ítölsk hvítlauksblanda frá Pottagöldrum
bakaðar kartöflur
hvítlaukssósa (köld)
grillaðir sveppir og laukar
gott brauð, t.d. snittubrauð.
Rauðvín: Torres Gran Coronas
Gestir: Þórdís ÁgústsdóUir, Hulda Gestsdóttir, Guðrún Kristín Einarsdóttir,
Viktor Emil Gauvry, Hulda Valsdóttir, Friðrík Bohic.
K
í SLENSKIR
SAUÐFJARBÆNDUR