Morgunblaðið - 10.07.1999, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 23
NEYTENDUR
Verðkönnun NS og ASÍ-félaga á höfuðborgarsvæðinu á gistingu á Vestfjörðum
Allt að 227% munur á
gistingu í uppbúnu rúmi
Hvað kostar gistingin á gistiheimilum
og hótelum á Vestfjörðum?
Gististaðir
Uppbúið rúm
fyrir einn
Uppbúin rúm
fyrir 2
2ja m. herb.
Svefnpoka-
pláss
í rúmi
Morgun-
verður
Aðgangur
að
eldhúsi
Finnabær, Bolungarvík 1.500 kr. 2.600 kr. 950 kr. 700 kr.
Farfuglaheimilið, Önundarfirði 1.950 kr. 3.900 kr. 1.450 kr. 600 kr. já
Bjarkarholt, Barðaströnd 2.200 kr. 4.400 kr. 1.200 kr. 600 kr. já
Breiðavík, Barðaströnd 1.600 kr. 3.200 kr. 1.300 kr. 700 kr. já
Stekkjarból, Patreksfirði 2.400 kr. 3.200 kr. 1.300 kr. 700 kr. já
Borgarbraut, Hólmavík 2.280 kr. 3.600 kr. 1.250 kr. já
Torfnes, ísafirði 4.900 kr. 6.900 kr. 1.700 kr. 800 kr.
Gistih. Áslaugar, ísafirði 3.300 kr. 4.600 kr. 2.000 kr. 850 kr. já
Gistih. Erlu, Patreksfirði 3.000 kr. 5.000 kr. 1.200 kr. 500 kr.* (*M. v. innif. í gist.)
Reykjanes v. ísafjarðardjúp 3.100 kr. 4.600 kr. 1.400 kr. 700 kr.
Hamraborg, Tálknafirði 2.500 kr. 3.800 kr. 1.250 kr. 600 kr. já
Skrúðhamrar, Tálknafirði 3.000 kr. 4.500 kr. 1.200 kr. 500 kr.
Staðarskáli, Hrútafirði 3.600 kr. 4.900 kr. 1.400 kr. 740 kr.
Gistiheimilið Norðurfirði 1.300 kr. já
Hótel Laugarhóll, Bjarnarfirði 2.500 kr. 5.000 kr. 1.500 kr. 750 kr. já
Hótel Djúpavík, Djúpuvík 3.700 kr. 4.800 kr. 1.400 kr. 750 kr.
Hótel ísafjörður, ísafirði Hótel Flókalundur, Barðastr. Hótel Bjarkalundur, Barðastr. Hótel Edda, Núpi, Dýrafirði 8.800 kr. 5.800 kr. 4.000 kr. 4.100 kr. 10.600 kr. 8.300 kr. 5.100 kr. 5.200 kr. 1.500 kr. 1.500 kr. 1.450 kr. Innifalinn 750 kr. 700 kr. 750 kr.
&
Eitt hótel allan
ársins hring
MINNST kostar gisting á gisti-
heimili í uppbúnu rúmi fyrir einn
1.500 krónur í Finnabæ í Bolungar-
vík en dýrust er hún á 4.900 krónur
í Torfnesi á Isafirði. Það munar því
allt að 227% á gistingu fyrir ein-
stakling í uppbúnu rúmi á gisti-
heimili á Vestfjörðum.
Þetta kemur fram í verðkönnun á
gistiheimilum á Vestfjörðum sem
Samstarfsverkefni Neytendasam-
takanna og ASÍ félaga á höfuðborg-
arsvæðinu létu gera nýlega.
Þá kom í ljós að morgunverður er
einungis innifalinn á einu gistiheim-
ili og einu hóteli en hann kostar
annars aukalega á bilinu 500-850
krónur.
Um símakönnun var að ræða og
ekki var því lagt mat á gæði aðbún-
aðar né þjónustustig sem er mjög
mismunandi eftir stöðum. Að sögn
Agústu Yrar Þorbergsdóttur, verk-
efnisstjóra samstarfsverkefnisins,
bjóða einungis tveir staðir upp á
herbergi með baði, Ferðaþjónustan
Reykjanesi við ísafjarðardjúp og
Staðarskáli Hrútafírði. Þá segir hún
að hótel verði að hafa 75% her-
bergja með baði tO að geta kallað
sig Hótel og hún bendir á að Hótel
Laugarhóll og Hótel Djúpuvík
standist ekki þær kröfur og falli því
undir gistiheimili.
Aðstaðan mismunandi
Aðstaðan á gistiheimilunum er
mismunandi. Að sögn Agústu er
gistihúsið Finnabær í Bolungarvík
rekið samhliða veitingastað, baðað-
staðan er á sömu hæð og gistiher-
bergin og einnig er boðið upp á
setustofu með sjónvarpi. Hjá Far-
fuglaheimilinu (Youth Hostel) Ön-
undarfirði er baðaðstaða í boði og
aðeins þeir sem eru í svefnpokagist-
ingu fá aðgang að eldhúsi.
„Bjarkarkot á Barðarströnd er
með baðaðstöðu á sömu hæð og
herbergin, setustofu með sjónvarpi
en svefnpokapláss er á dýnum í
skólastofum fyrir hópa. Aðgangur
er að eldhúsi. Breiðavík Barða-
strönd er með baðaðstöðu á sömu
hæð og flest herbergin, setustofu
með sjónvarpi, aðgang að eldhúsi
og geta gestir látið þvo af sér. A
Stekkjabóli Patreksfírði er baðað-
staða á sömu hæð og gistiherberg-
in, setustofa með sjónvarpi og boð-
ið upp á aðgang að eldhúsi. Hjá
gistihúsinu Borgarbraut Hólmavík
er baðaðstaðan á sömu hæð og
gistiherbergin, boðið er upp á
þvotta- og eldhúsaðstöðu og svefn-
pokapláss á dýnum.“
Ágústa segir að á sumargisti-
staðnum Torfnesi ísafírði sé veit-
ingarstaður rekinn samhliða gisti-
heimilinu. Baðaðstaða er á sömu
hæð og gistiherbergin, setustofa
með sjónvarpi, tjaldstæði og svefn-
pokapláss er í skólastofum.
„Hjá Gistiheimili Áslaugar er
baðaðstaðan á sömu hæð og her-
bergin, setustofa er með sjónvarpi
og aðgangur að eldhúsi. Hjá gisti-
heimili Erlu á Patreksfirði er bað-
aðstaðan á sömu hæð og gistiher-
bergin og setustofan með sjón-
varpi.
Reykjanes við Isafjarðardjúp er
með veitingastað samhliða gisti-
heimilinu, baðaðstaða er á sömu
hæð og herbergin, mörg herbergi
eru með baði og setustofan er með
sjónvarpi. Einnig eru í boði tjald-
stæði og sumarhús.
Hjá Hamraborg Tálknafirði er
baðaðstaðan á sömu hæð og her-
bergin, setustofan er með sjónvarpi
og aðgangur er að eldhúsi og til
þvotta. Hjá Skrúðhömrum á
Tálknafírði er veitingastaður í
tengslum við gistiheimilið, baðað-
staðan er á sömu hæð og herbergin
og setustofan er með sjónvarpi.
I Staðarskála Hrútafirði er veit-
ingastaður rekinn samhliða gisti-
heimilinu, öll herbergi eru með baði
og þar eru líka sameiginlegar setu-
stofur og þvottaaðstaða.
Gistiheimilið Norðurfirði býður
baðaðstöðu og aðgang að eldhúsi
svo og svefnpokapláss á dýnum.
Hótel Laugarhóll Bjarnarfirði rek-
ur veitingastað í tengslum við
gistiheimilið. Setustofan er með
sjónvarpi og baðaðstaða í sundlaug
við hliðina á gistiheimilinu. Svefn-
pokapláss á dýnum er í boði fyrir
hóga.
Á Hótel Djúpuvík er rekinn veit-
ingastaður í tengslum við gistiheim-
ilið, baðaðstaða er á sömu hæð og
herbergin og setustofan er með
sjónvarpi."
Ágústa segir að þegar komi að
hótelum sé Hótel Isafjörður eina
Hótelið sem er rekið allt árið.
„Hótel Flókalundur er opið 25. maí
til 12. september og Hótel Edda,
Núpi, er opið frá 17. júní til 31.
ágúst.
„Einnig bjóða gistiheimilin upp á
svefnpokapláss á dýnum þar sem
allt að 25 manns eru í hverju her-
bergi/stofu og er það ódýrari gist-
ing en svefnpokapláss í rúmi.“
Hún segir að á öllum stöðum séu
kynningarbæklingar um afþrey-
ingu, verslun og þjónustu.
7 W / w//‘ %
ékSF/y .
að þad þarf 2,5 kg af að feo///nn af Nescafé
kaff'baunum til þess að feosfar ade/ns um 10 kr
bua til 1 kg. af Nescafe.
gardagar
lau. 10.00-18.00
KRINGMN