Morgunblaðið - 10.07.1999, Page 26
26 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 f 1 1 MORGUNBLAÐIÐ
1
1
•19
IEIKUR UM FISK
Fiskur hefur veríð mikilvæg fæða á Islandi
frá upphafí byggðar og fáar þjóðir borða
----------------------7------------------
jafnmikinn físk og við Islendingar. Neysla
okkar á físki hefur þó minnkað á undan-
förnum áratugum. Samkvæmt upplýsing-
-----------------7-----------------------
um frá Hagstofu Islands hef-
ur fískneysla (magn á íbúa)
minnkað á síðustu fjörutíu ár-
um úr 63 kg niður í tæp 45 kg á ári. Þessi
minnkun er óhagstæð þróun fyrir heilsu-
farið í landinu. Fjórða grein af sex frá
Rannsóknastofnun fískiðnaðarins um físk.
■
FISKUR er ákjósanleg fæða
fyrir margra hluta sakir.
Það sem menn hafa verið
hvað mest uppteknir af er
fískifítan, en fita sjávardýra er frá-
bugðin fitu landdýra hvað varðar
mýkt fitunnar. Fiskifita er einnig
um margt frábrugðin mjúkri
jurtafitu, því í fiskifitu er að finna
langar ómettaðar fitusýnir, sem
ekki er að finna í jurtaolíum, en þær
eru gjaman kallaðar EPA og DHA
og tilheyra báðar ómega 3-fitusýru-
flokki. Ómega 3-fitusýrur lýsisins
hafa töluvert verið rannsakaðar á
Islandi og víðar og gefa niðurstöður
þeirra rannsókna tilefni til að halda
að lýsi geti styrkt ónæmiskerfi Uk-
amans og þannig aukið viðnám hans
gegn utanaðkomandi sýkingum.
Fleiri rannsóknir sem gerðar hafa
verið á EPA og DHA benda margar
til að áhrif þeirra á heilsufar sé mun
víðtækara. Þannig geti þær haft já-
kvæð áhrif á blóðfitu, samloðun
blóðflagna, blóðþrýsting, liðagigt,
sóríasis, ristilbólgu, asma, ónæmi og
jafnvel þunglyndi. Fólk sem þjáist
af þunglyndi hefur mælst með
minna magn DHA í frumuhimnum
en þeir sem ekki þjást af þunglyndi.
DHA-fitusýran hefur einnig verið
tengd gáfum, enda er hún sérlega
mikilvæg á fósturskeiði þegar heili
fósturs er að þróast.
Mikilvægi próteina
Prótein er aðal byggingareíni lík-
amans. Það er því mikilvægt að fá
prótein daglega úr fæðunni. Gæði
próteina eru mjög misjöfn en það er
háð amínósýrusamsetningu prótein-
anna. Fiskur er próteinrík fæða og
prótein hans gæðaprótein þar sem
fiskprótein innihalda fjölmargar lífs-
nauðsynlegar amínósýrur sem eru í
hagstæðum hlutföllum hvað varðar
þarfir mannslíkamans. Þurrkaður
fiskur eins og t.d. harðfiskur er ein
sú próteinríkasta afurð sem hægt er
að fá. I honum er hlutin- próteina
um og yfir 70% af þyngd.
Offita
Hér áður fyrr gekk lífsbaráttan út
á það að hafa nóg í sig og á. Við þurf-
um ekki að líta lengra en á endur-
minningar ömmu eða langömmu til
að lesa um skort fólks á góðum mat. I
dag hefur þetta snúist við. Daglega
verðum við að gæta að okkur á að
borða ekki of mikið. Offita er vaxandi
vandamál á Islandi og víða annars
staðar og er nauðsynlegt að gefa því
meiri gaum. Eitt af lykilorðum við
lausn offituvandans er að neyta mat>
ar sem er næringarríkur en orkulítill
og er það ágæt lýsing á fiski og þá
ekki síst mögrum fiski. í þessu sam-
hengi skiptir að sjálfsögðu máli
hvemig matreiðslu er háttað. Til er
ijöldinn allin- af fiskuppskriftum þar
sem bragðgæði eru mikil sem og
næringargildi en orka i lágmarki.
Fiskur - „ojbara“
Það sem veldur hinsvegar áhyggj-
um er viðhorf bama til fisks. Hér þarf
að vinna mikla vinnu því viðhorf
bama og unglinga gagnvart fiski er
afar neikvætt Hverju um er að
kenna er ekki gott að segja en í þessu
samhengi skiptir viðhorf foreldra og
uppalenda gífurlegu máli. Með auknu
vinnuálagi á fjölskyldur minnkar sá
tími sem fólk getur og vill eyða í mat-
reiðslu sem aftur hefur í íor með sér
vaxandi kröfur á að matur sé fullbú-
inn og einungis eftir að hita hann.
Vegna þessa hefur hlutur skyndibita-
fæðis aukist verulega en þar hafa
pizzm- og hamborgarar ráðið rílgum.
Ef fólk er að hugsa um tíma þá er það
mikill misskilningur að það taki
styttri tíma að panta pizzu en að elda
sér góðan fiskrétt. Fisk þarf ekki að
elda nema í 10 mínútur í suðu en 20
mínútur í ofni. Einhvem tíma tekur
að undirbúa réttinn en þar geta böm-
in verið þátttakendur og matseldin
verið hin besta samvemstund í stað
þess að þau horfi á myndband/sjón-
varp eða séu í tölvuleik.
Bætiefni í fiski
Fiskur er næringarrík fæða.
Hann er t.d. auðugur af snefilefnun-
um selen og joði. Joð er m.a. mikil-
vægt efni fyrir eðlilega starfsemi
skjaldkirtils. Afleiðingar joðskorts
er stækkun skjaldkirtils en það er
hörgulsjúkdómur sem enn er vel
þekktur meðal nágrannaþjóða okk-
ar. Afleiðingarnar em ofvaxinn
skjaldkirtill. Selen er mikilvægt
varnarefni í líkamanum og vinnur
Fróðleikspunktar:
• neysla á fiski fer minnk-
andi hér á landi
• sjávarfang er ríkt af
ómega 3-fitusýrum
• ómega 3-fitusýrur draga
úr líkum á hjarta- og
æöasjúkdómum
• boröum fisk a.m.k.
þrisvar í viku
• uppskriftir aö fiskréttum
er að finna á heimasíðu
Rf; www.rfisk.is
náið með E-vítamíni sem einnig er
mikilvægt varnarefni (andoxunar-
efni). Þessi efni hamla þránun/öldr-
un og geta þannig komið í veg fyrir
óæskileg efnahvörf sem stuðla að
myndun hvarfgjarnra efna og geta
verið upphaf að myndun krabba-
meinsvaldandi efna. I feitum fiski er
einnig að finna töluvert af D-
vítamíni. D-vítamín hefur mörgum
mikilvægum hlutverkum að gegna í
líkamanum en eitt af þeim er að
stuðla að nýtingu kalks og draga
þannig úr líkum á beinþynningu.
Kalk er ekki í miklu magni í fiski
nema þeim sem neytt er með bein-
um eins og t.d. í og beinkröm barna.
Kalk er ekki í miklu magni í fiski
nema þeim sem neytt er með bein-
um eins og t.d. sardínum, en úr þeim
fáum við talsvert af kalki auk D-
vítamíns svo framarlega sem bein-
garðurinn er borðaður lika.
Borðum meiri fisk
Eins og fram hefur komið hér að
ofan er fiskur tvímælalaust ein sú
hollasta matvara sem völ er á. Raun-
verulega er fiskur lúxusvara sem við
eigum eftir að átta okkur betur á í
framtíðinni. Fisk ættum við ekki að
borða sjaldnar en 3 sinnum í viku.
Matvælaframleiðendur og þá ekki
síst fiskframleiðendur munu verða að
stunda markvissa vöruþróun til að
standa undir kröfum neytenda sem
eru að verða; „Hollan og góðan mat á
stuttum tíma“.
100 Draumstafir
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Mynd/Kristján Kristjánsson
DRAUMUR mætir nýjum tíma.
ÞETTA ER hundraðasti pistill
Draumstafa og því langar mig að
leita til dreymenda um drauma þá
er birst hafa og ráðningar þeirra.
Hvort þær hafi gengið eftir,
hvemig ráðningamar komi fyrir
og hvort þær séu nægilega skýrar
og skilmerkilegar. Hvað betur
megi fara í framsetningu og svo
framvegis. Þá fýsir mig að fá í
safnið drauma fólks sem ekki hafa
birst hér eða annars staðar, bæði
drauma sem komið hafa fram og
aðra drauma ásamt ráðningu
draumfróðra. Þessir draumar geta
veríð af öllum toga og mismerki-
legir að mati manna, en allir
draumar eru áhugaverðir og gam-
an væri að koma upp vísi að
draumasafni sem hægt væri að
hafa á netinu (veraldarvefnum) öll-
um til afnota. Þessir draumar
gætu orðið uppistaðan í vef um
draumferðir manna fyrr og síðar,
þetta yrði einskonar gagnabanki
um innra líf landsmanna, það líf
sem nóttin geymir.
Draumar „Álfs“
1. Eg og sambýliskona mín vor-
um á ferðalagi. Leiðin lá upp á
heiði sem ekki sást upp á úr fjar-
lægð. Við höfðum gert okkur
ákveðnar hugmyndir um hvemig
heiðin eða allar heiðar litu út, en
hún reyndist miklu fallegri en við
ætluðum og við vorum alveg dol-
fallin er þama opnaðist fallegur
heimur. Á heiðinni var vatn og lit-
urinn á því tær og fallegur - túrk-
isblár og ísjakar flutu á vatninu.
AUt var stillt og kyrrt.
3. Ég er einn staddur á sviði,
eins og á útihátíð. Ég sit rólegur
þarna á meðan grasflötin fyllist af
fólki og þar á meðal er sambýlis-
kona mín. Inn á sviðið kemur
hljómsveitin „Kolrassa krókríð-
andi“, fjórar stelpur og tveir
strákar. Öll vom þau látlaust
klædd, flest í þykkum peysum.
Þarna fannst mér kominn annar
maðurinn í draumi 2. Hann segir
mér að ég verði að fara og tala við
Gísla Magnússon píanóleikara
(hann kenndi mér í æsku) en pass-
aðu þig á í hvaða peysu þú ert, því
Gísli er viðkvæmur fyrir því.
Sambýliskona mín kemur þá og
tekur í höndina á mér og leiðir mig
í burtu eins og við séum að fara
heim. Við göngum með fólkinu
sem var á sviðinu fram hjá heið-
inni. Við lítum hvort á annað og í
þöglu samþykki ákveðin að segja
ekki frá heiðinni. Ég er að vand-
ræðast yfir þessu með peysuna og
sambýliskona mín segir að ég skuli
hringja í Gísla og spyrja um þetta.
Ég hringi og sonur hans svarar og
segir að það megi ekki trufla Gísla
því hann sé orðinn svo gamall, ég
skil soninn samt þannig að ég
megi heimsækja hann. Ég kem að
húsi Gísla og er enn að grufla yfir
þessu með peysuna sem er blá og
svört og finn að ég er kominn í
tímaþröng að taka ákvörðun. Ég
tek skyndiákvörðun að fara úr
peysunni og vera nakinn að ofan.
Ég er inni í íbúðinni og horfi aftan
á kollinn á Gísla, hann snýr sér við
og er jafn ungur að sjá og þegar
hann kenndi mér fyrir 37 árum.
2. Við vorum komin niður af heið-
inni og göngum á gangstétt, sonur
minn (16 ára í dag) 3-4 ára er með
okkur. Það ganga tveir menn hin-
um megin á götunni í gagnstæða
átt. Annar er rónalegur útlits og
heldur á hárbandi hippa. Hinn er
bara venjulegur, mér finnst ég
þekkja hann (annar tónlistarmaður-
inn af sviðinu). Sonur minn bendir á
mennina og segir „maðurinn kyssti
mig“. Mér verður illa við og spyr
hvor þeirra af ótta við að það hafi
verið róninn en létti þegar hann
segir að það hafi verið hinn maður-
inn og ég skildi að maðurinn hafði
bara verið að sýna honum blíðuhót.
Ráðning
Draumamir lýsa þér sem manni
sem hingað til hefur farið á léttu
nótunum gegnum lífið og ekki haft
miklar áhyggjur af morgundegin-
um eða stefnu í lífinu (hugmyndin
um að allar heiðar væru eins).
Þessi léttleiki tilveru þinnar virðist
hafa dregið úr stefnufestu og því
að marka hæfileikum þínum
ákveðinn farveg. Draumarnir gefa
í skyn að þú og undirvitund þín
séuð orðin nokkuð sammála að nú
sé nóg komið af gutli og best sé að
herða beislið. Fyrsti draumurinn
lýsir ákveðinni hæð, fegurri en orð
fá lýst eða með öðrum orðum hæfi-
leikum þínum sem þú hefur pakk-
að niður um skeið en sem þú vakn-
ar nú upp fyrir. Draumar tvö og
þrjú lýsa svo erfiðleikum þínum
við að ákveða hvernig þú takir af
skarið og berir þig að við að láta
drauminn og draumana rætast. I
draumi þrjú sem þú setur fyrr en
draum tvö, ertu að marka þér
rétta leið. Þar kemur fram að það
sé ekki feimni sem hafi aftrað þér,
heldur kannski að finna sátt (nafn-
ið Gísli merkir sátt) við menning-
arheima, þér virðist nefnilega hafa
verið í nöp við ytri birtingarmynd
hæfileika þinna. í draumi tvö ertu
kominn að niðurstöðu og sáttur við
það sem áður var ósættanlegt
(maðurinn var bara að sýna hon-
um blíðuhót).
•Þeir lesendur sem fá
tlrauma swa birta og ráðna sendi
þá með fullu nafni, fæðingardegi
og ári ásamt heimilisfangi og dul-
nefni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaði
Kringlunni 1
103 Reykjavfk
Einnig má senda bréfín á netfang:
krifrifiixnet. is