Morgunblaðið - 10.07.1999, Side 27

Morgunblaðið - 10.07.1999, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 27 GERT að styrju, einu elsta sjávardýri veraldar. Kavíar í liættu Ofveiði, smygl og mengun hafa gengið svo nærri styrjustofninum að alls óvíst er um framtíð rússneska kavíarsins. Eru sumar tegundir þegar horfnar af markað- inum. Steingrímur Sigurgeirsson kynnti sér málið. SÖLTUÐ og þroskuð styrjuhrogn, kavíar, hafa löngum verið einhver þekktasta sælkerafæða veraldar, tákn um munað og auðæfi. Heim- ildir um kavíarát má jafnvel finna í ritum Rabelais frá fyrri hluta sext- ándu aldar. Það var hins vegar ekki fyrr en á þriðja áratug þessar- ar aldar að fyrirmenni í vesturhluta Evrópu kynntust hinum rúss- neska kavíar, sem almennt er tal- inn vera sá besti. Þau eru kannski ekki ýkja falleg, þessi gráleitu hrogn, en borin fram á klaka með blinis-pönnukökum og sýrðum rjóma eru þau guðdómleg. Ár- gangskampavín eða vodka eru al- mennt talin vera einu drykkjar- föngin sem eigi við þessa fæðu. Nú eru hins vegar blikur á lofti í kaví- arheiminum og alls óvíst hvort í framtíðinni verði hægt að njóta þessara eftirsóttu fiskhrogna. Ástæðan er sú að ástand styrju- stofnsins í Kaspíahafi er slíkt að alls óvíst er hvort að hann muni nokkurn tímann ná sér. Styrjan er með elstu dýrategundum veraldar og hefur upprani hennar verið rak- inn 250 milljónir ára aftur í tímann. Er hákarlinn eina sjávardýrið sem á sér lengri sögu. Alls eru til 29 styrjustofnar og sjá þrír þeirra heiminum fyrir kavíar að mestu. Sjaldgæfust og dýrust eru hrognin úr beluga-styrjunni, en beluga hef- ur einungis verið um 2% af heildar- veiðinni. Hinar tvær tegundirnar, sem eru minni en beluga-styrjan, era oscietra (ossetra) og sevruga. Yfirleitt um 50 punda fiskar. Þrátt fyrir að beluga-hrognin séu dýrast era það þó sevraga-hrognin sem talin era vera bragðbest. Veiðiþjófar og mengun Styrjan er hins vegar viðkvæm fisktegund og hefur síðasti áratug- ur líklega verið sá erfiðasti í 250 milljóna ára sögu tegundarinnar. Era nær aEir styrjustofnar taldir í útrýmingarhættu. Að miklu leyti má rekja þetta til upplausnar Sov- étríkjanna. Á Sovéttímanum var hart eftirlit með styrjuveiðum og sjávarútvegsráðuneytið hafði ein- okun á kavíarsmarkaðnum. Með hruni Sovétríkjanna hrundi eftirlit- ið og veiðiþjófar og smyglarar fengu nánast frítt spilrúm. Mengun Sovéttímans hefur að sama skapi haft alvarleg áhrif. Rússneski markaðurinn var í rúst. Skipulag í molum og gæðaeftirlit ekkert. Mik- ið af því sem selt hefur verið sem rússneskur kavíar á síð- astliðnum áram er eitt- hvað allt annað. Á sama tíma fóru Iranar að gefa kavíarframleiðslunni meiri gaum, en hún hafði lengi verið litin hom- auga þar í landi, enda mun kavíarát bannað samkvæmt kóraninum. Þegar klerkarnir áttuðu sig á því að kavíar væri næstmikilvægasta gjaldeyristekjulind þjóðarinnar ákváðu þeir hins vegar að breyta um stefnu. Er íranski kavíariðnað- urinn nú til fyrirmyndar og yfir- leitt öruggari kaup í írönskum kav- íar. Veiðibann sett á Rússar hafa undanfarið unnið að því að bæta stöðu mála. Veiðar á beluga hafa verið bannaðar og ver- ið er að byggja upp eftirlitskerfí og annað skipulag í kringum kavíar- framleiðsluna. Vart er hægt að úti- loka að bann verði sett á veiðar fleiri tegunda. Ekki hefur hins veg- ar enn tekist að koma böndum á ólöglegar veiðar og smygl. Þrátt fyrir að 50 milljónum styrjuseiða sé árlega sleppt í Volgu lenda fisk- amir flestir í netum veiðiþjófa áður en þeir ná kavíarþroska. Telja sumir að kreppa muni ríkja á kaví- armarkaðnum næsta áratuginn með tilheyrandi himinháu verði. Fáir aðrir en Iranar geta boðið upp á þessa eftirsóttu vöra. Franska styrjan í Gironde-ánni hvarf í stríðinu og þótt margir líti vonaraugum til Kína er kavíarút- flutningur þaðan ekki mikill enn. Margir era því farnir að binda von- ir við styrjueldi, sem víða hafa ver- ið gerðar tilraunir með, með góð- um árangri. Kavíar úr eldisstyrju hefur kannski ekki sama róman- tíska yfirbragð og rússneskur kaví- ar en ekki er ólíklegt að kavíar- neytendur verði að láta það duga í náinni framtíð. Sælkerinn pifand 2’“1 i ómissandi með grillkjötinu Opið sunnudaga frá 12-17 Alltaf von ágóðuf Kjúklfngalæft ^Kjúkiingavæng ORK.fNAi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.