Morgunblaðið - 10.07.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.07.1999, Blaðsíða 40
j*40 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + AGNES LÍSBET STEFÁNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 27. júní sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Svavar og Heba Stefánsbörn og fjölskyldur þeirra. + LILJA ÞORVARÐARDÓTTIR, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis í Eskihlíð 33, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánu- daginn 12. júlí kl. 15.00. Jarðsett verður í Oddakirkjugarði. Aðstandendur. Ástkasr sonur okkar og bróðir, BJÖRN BJÖRNSSON, til heimilis í Tindaseli 1, Reykjavík, lést þriðjudaginn 6. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þórunn Jónatansdóttir, Björn Jónasson, Jón Þór, Jóhanna Kristín. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, JÓNA ÞURÍÐUR BJARNADÓTTIR, Vallargötu 14, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudaginn 8. júlí. Guðmundur Ármann Böðvarsson, Sigurleif Guðfinnsdóttir, Höskuldur Rafn Kárason og barnabörn. ! i' ’J + Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, JÓN JÓHANNESSON, Skálholtsvík, andaðist miðvikudaginn 7. júlí á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Sveinbjörnsdóttir, börn og tengdabörn. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end- urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksenti- metra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar em birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersia er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auð- veldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali em nefnd- ar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. ÁGTJSTA AMALÍA FRIÐRIKSDÓTTIR + Ágústa Amalia Friðriksdóttir fæddist á Siglufirði 9. júlí 1914. Hún lóst á Sjúkrahúsi SigluQarðar 29. júní síðastliðinn. Foreldrar henn- ar voru Friðrik Hermannsson, tré- smiður, f. á Reykj- arhóli, Fljótum 19.2. 1875 d. 15.4. 1936 og kona hans Björg Sigríður Sæ- by, húsmóðir, f. á Siglufirði 2.3. 1886, d. 11.8. 1931. Börn þeirra og systkini Ágústu eru Kristín Andrea Sæby Friðriksdóttir, f. 29.12.1906, Friðrik Steinn Frið- riksson fæddur 11.12. 1908, lát- inn, Oktovía Louisa Friðriks- dóttir fædd 21. október 1910 látin, Þorleif Valgerður Frið- riksdóttir f. 11.12. 1912, látin, Þorleif Valgerður Friðriksdótt- ir, f. 27.11. 1916, látin, Stefanía Margrét Friðriksdóttir f. 4.10. 1921, Kristinn Tómas Friðriks- son, f. 28.10. 1923, Iátinn, Her- mann Friðriksson, f. 25.2. 1925, látinn, Kjartan Friðriksson, f. 22.3.1927. Hinn 15. nóvember 1940 gift- ist Ágústa Eggert Jósepssyni frá Lögmannshlfð f. 14.5. 1906, d. 21.9. 1962. Foreldrar hans voru Jósep ísleifsson og Sigur- björg Sigurgeirsdóttir. Synir Ágústu og Eggerts eru: 1) Frið- rik Hermann Eggertsson, sím- smiður, f. 19.6. 1936. Maki; Una Matthildur Árnadóttir, f. 1.3. 1938. Börn þeirra eru: a) Ágústa Amalfa Friðriksdóttir, Ieikskólakennari, f. 18.1. 1960. Sambýlismaður hennar er Svanur Þór Eðvaldsson mat- Elsku amma, nafna og besta vin- kona mín. Ég má til með að kveðja þig með nokkrum orðum. Það er mjög sárt að hugsa til þess að þú sért farin og að við getum ekki lengur spjallað saman eins og við vomm vanar að gera. Þú kenndir mér svo margt um lífið og tilvemna. Dvöl mín hjá þér á sumrin er mér ómetanleg og það sem við brölluðum saman kem- ur oft upp í hugann og fær mig til að brosa. Þú varst merk mann- eskja í mínum augum og einnig í augum margra annarra. Ég leit upp til þín og vissi að orð þín voru sönn. Oft á tíðum tók ég þeim eins og þau væra lög og þegar á reynir þá er allt það sem þú hefur sagt mér orð að sönnu. Þú vildir alltaf fylgjast með öllu og setja þig inn í hlutina og þú varst svo góð að hlusta og gefa holl og góð ráð. Þær stundir sem við áttum sam- an munu lifa í minningunni þegar ég hugsa um þig. Elsku amma mín, ég veit að nú ertu komin á stað þar sem þér líður vel og getur fylgst með okkur og leiðbeint. Ég varð- veiti hverja stund sem við áttum saman. Elsku amma mín, hvíl þú í friði og megi guðsenglar varðveita þig; Ástar- og saknaðarkveðja. Þín Ágústa A. Sigurbjömsdóttir. Elsku amma mín, það er alltaf sárt að kveðja ástvini en það verð- ur alltaf huggun harmi gegn að geta yljað sér við fallegar minning- ar um góðar stundir með þér en þær áttum við ótalmargar. Þú varst góð og kærleiksrík mann- eskja sem alltaf reyndist mér og mínum sem klettur í hafi og var alltaf hægt að fá góða ráðgjöf hjá þér þegar hennar var þörf. Ég átti svo margar góðar stundir hjá þér sem bam og unglingur er ég dvaldi hjá þér vegna vinnu á Siglufirði yf- ir sumartímann. Ekki var hægt að vælafræðingur, f. 13. 3. 1964. Börn Ágústu Amalíu eru Friðrik Unnar, f. 1978, Gylfi, f. 1984 og Rakel, f. 1996. b) Agnes Dagný Frið- riksdóttir, dagmóð- ir, f. 23.5. 1961. Maki Lúðvík Egg- ertsson, bakari, f. 22.4. 1964. Börn þeirra; Hermann, f. 1985 og Elísabet, f. 1989. c) Eggert Friðriksson, verk- stjóri, f. 17.4. 1964. Maki Hafdís Ósk Krisljánsdótt- ir, f. 13.2. 1962. Börn þeirra; Heiða Kristín, f. 1981, Una Matthildur, f. 1984 og Friðrik Hermann, f. 1990. d) Kristín Andrea Friðriksdóttir, f. 31.10. 1966. Sambýlismaður; Jóhann Sveinsson, f. 11.10. 1969. Synir þeirra eru Jón Ámi, f. 1991 og Sveinn Andri, f. 1997. 2) Sigur- björn Víðir Eggertsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn, f. 19.7. 1948. Maki Katrín Kristjana Karlsdóttir, snyrtifræðingur, f. 23.9. 1946. Börn þeirra eru a) Vigdís Sigurbjömsdóttir, iðn- hönnuður, f. 23.6. 1966. b) Karl Georg Sigurbjömsson, héraðs- dómslögmaður og löggiltur fasteignasali, f. 22.12. 1969. Sambýliskona; Elva Rut Helga- dóttir, hjúkmnarfræðingur, f. 1.7. 1972. Barn þeirra er Katrín Kristjana, f. 9.8. 1998. c) Ágústa Amalía Sigurbjörnsdóttir, kennari, f. 15.1. 1974, unnusti Kjartan Hrafn Kjartansson, tölvunarfræðinemi, fæddur 21.2. 1974. títför Ágústu fer fram frá Siglufjarðarkirkju klukkan 14 í dag. kvarta undan því atlæti er ég bjó við þann tíma sem ég dvaldi á heimili þínu við Hvanneyrarbraut- ina enda dekraðir þú við mig á all- an hátt. Nestisbox mitt var kallað gámurinn hjá vinnufélögum mínum hjá Sigló, svo vel útilátið var inni- hald þess. Minningar mínar frá þeim tíma em minningai- sem ég mun alltaf varðveita og geyma. Ég var svo lánsamur að eiga þess kost að kveðja þig ásamt Elvu Rut áður þú kvaddir þennan heim og sýna þér dóttur mína og var það í senn gleði- og sorgarstund. Hvíl þú í friði, elsku amma. Karl Georg Sigurbjömsson. Elsku amma okkar, þú hefur kvatt okkur nokkram dögum fyrir 85 ára afmælisdaginn þinn. En amma, þú skilur eftir margar góðar minningar. Allir páskar og öll sumrin sem við dvöldum hjá þér rifjast upp og era í minningunni eins og það hafi gerst í gær. Þegar við sátum hjá þér í bakarí- inu og biðum eftir að þú værir búin að vinna, nýbökuð brauðin og kókoskúlurnar sem þú færðir okk- ur. Og amma, þú bakaðir bestu pönnukökur og bestu kart- öfluklatta í heimi. Þú varst svo mjúk og svo hlý, elsku amma. Minningamar um þig era ótelj- andi, fyrir þær eram við þakklát. Guð blessi þig, elsku amma, og takk fyrir allt. Drottinn minn og Guð minn, þú gefur lífið og þú einn getur tekið það aftur. Þú hylur það eitt andartak í leyndardómi dauðans til að lyfta því upp í ljósið bjarta, sem eilífu lífi til eilífðar gleði með þér. (KS) Ágústa, Agnes, Eggert og Kristín. Lokið hefur lífshlaupi sínu, móð- ursystir mín, Ágústa Amalía Frið- riksdóttir. Amma Gústa eins og hún var ætíð kölluð í minni fjöl- skyldu, var hinn raunveralegi hlekkur sem hélt frændfólki sínu saman. Ættarstólpi sem við eram öll stolt af. Þegar ég varð ekkja frekar ung að árum hlúði hún að mér og mínum, var alltaf tilbúin til að aðstoða og virtist finna á sér ef ástandið var erfitt, þá kom hún yfir götuna til okkar. Hún skildi sorg- ina, ung missti hún móður sína og ung varð hún ekkja með tvo syni. Eiginmaður hennar, Eggert, var sjúklingur til margra ára og annað- ist hún hann heima ásamt því að vinna úti. Amma Gústa var mjög hlýleg og glaðvær kona, ákveðin og réttlát manneskja sem gott var að vera nálægt. Hún sá ætíð eitthvað skemmtilegt við tilveruna sem við gátum hlegið dátt að. Er ég hitti hana síðast í janúar á þessu ári sá ég bæði og fann hvað af henni var dregið, þróttur hennar og lífsgleði hafði minnkað og olli það mér miklu hugarangri. Er ég talaði við hana í síma nokkram dögum fyrir andlát hennar kvaddi hún mig þannig að ekki fór á milli mála að þetta var síðasta samtal okkar. Sonum hennar, Víði og Friðrik, ásamt fjölskyldum þeirra, sendi ég, börn mín og fjölskyldur okkar samúðarkveðjur. Kæra frænka mín! Megi ljós og friður umlykja þig á nýju tUvera- stigi Þín er sárt saknað. Þegar lífsins leiðir skilja læðist sorg að hugum manna en, þá sálir alltaf finna yl, frá geislum minninganna. (H. Halldórs.) Sigurjóna Marsebil (Billa) Lúthers. Ástkær föðursystir okkar er lát- in. Með hlýhug og þakklæti í hjarta langar okkur til að minnast elsku- legrar frænku okkar í örfáum orð- um. Gæfa okkar er mikil að hafa átt samleið í lífi okkar með Gústu frænku, eins og hún var jafnan kölluð. Samgangurinn var mikill á heimili móður okkar, Mundu, á meðan hún lifði, en ekki síður eftir fráfall hennar. Hún var kærkom- inn gestur hjá okkur í gegnum tíð- ina en hún var félagslynd í sér og hafði ákaflega gaman af því að um- gangast ástvini sína. Hún Gústa var indæl kona og hugsaði alltaf vel til okkar sem og barna okkar og barnabarna. Hún fylgdist vel með öllum í fjölskyld- unni og innti okkur sífellt nýrra frétta. Við getum seint eða aldrei endurgoldið henni þá ást og hlýju sem hún bar í okkar garð og fyrir þetta eram við mjög þakklát. Gústa átti viðburðaríka ævi. Hún var ung þegar hún missti báða for- eldra sína með stuttu millibili og hjálpuðust systkinin að við að sjá um heimilið og leystu þau það vel af hendi. Síðustu fimm árin bjó hún á Skálarhlíð, Dvalarheimili aldraðra, í Siglufirði og tók hún virkan þátt í starfi aldraðra. Hannyrðir vora hennar líf og yndi en hún hafði einnig mjög gaman af lestri góðra bóka. Það mynduðust traust vin- áttubönd milli hennar og margra íbúa Skálarhlíðar sem munu sakna hennar. Elsku frænka, hvíl þú í friði, minning þín lifir. Með þakklæti fyrir langa og ánægjulega samvera í gegnum öll árin okkar með þér, kveðjum við þig með eftirfarandi Ijóðlínum sem eru svo lýsandi fyrir þig- Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öilum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Björg, Friðrik, Jóhannes Frið- riksbörn og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.