Morgunblaðið - 10.07.1999, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐLÐ
Höskuldur
Egilsson fædd-
ist í Reykjavík 18.
janúar 1943. Hann
lést á Landspítalan-
um 26. mars síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá
Heydalakirkju 3.
apríl.
Elsku pabbi. Að
þurfa nú að kveðja þig
hinstu kveðju, allt of
snemma, er erfltt. Það
er svo margt að segja
og minnast en samt
finnst mér ég orðlaus. Þið mamma
óluð okkur systkinin upp við mikla
ást og umhyggju sem var aldrei
spöruð. Alltaf studduð þið okkur í
því sem við gerðum og sýnduð
óspart hversu stolt þið voruð af
okkur, sama hversu lítilvægt það
var sem við gerðum. Það er ykkur
mömmu því að þakka hversu sam-
heldin fjölskylda við erum, þið
bjugguð okkur gott heimili þar sem
oft var margt um manninn og glatt
á hjalla. Þið lögðuð alltaf mikla
áherslu á að fjölskyldan kæmi sam-
’ an eins oft og tækifæri voru til. Síð-
ustu ár kom það ekki oft fyrir að við
systkinin værum öll heima á sama
tíma, einna helst um jól og áramót,
og þá varst þú alltaf í essinu þínu.
Þú varst mikið úti á sjó þegar ég
var lítil þannig að stundum var ég
feimin við þig þegar þú komst í land
ef þú varst búinn að vera lengi í
burtu. Þú talaðir oft um það þegar
ég varð eldri og gerðir góðlátlegt
grín að mér. Við vorum mjög náin,
sérstaklega eftir að ég varð eldri.
Þá fórum við oft saman að skemmta
okkur og það var alveg einstakt. Þú
hafðir nefnilega sérstakt lag á því
að hafa gaman í kringum þig, varst
léttur og hress og stutt í spaugið.
Þú sagðir alltaf að maður ætti sjálf-
ur að skapa sér skemmtunina þegar
maður vildi skemmta sér og það
gerðir þú ætíð. Þú söngst og spilað-
ir á gítar við hvert tækifæri og tón-
listin var líf þitt og yndi. Þú varst
þekktur fyrir það að vera alltaf, ef
þú mögulega gast, á öllum jazz-
skemmtunum hvar sem þær voru á
landinu, því ekki settir þú ferðalög-
in fyrir þig. Yflrleitt tókstu þátt í
þeim sjálfur og það gaf þér mestu
skemmtunina og eflaust mörgum
öðrum. Það var nefnilega svo gam-
an að sjá þig syngja, þú lifðir þig
svo inn í það. Eg man sérstaklega
eftir einu skipti sem ég var að
hlusta á þig, það var á jazzhátíð
Egilsstaða. Eg kom og heilsaði upp
á þig rétt áður en þú fórst upp á
svið, enda var ég eingöngu komin til
að hlusta á þig. Þegar
þú söngst svo lagið þitt
)VA11 of me“ eins og þér
einum var lagið horfðir
þú brosandi til mín út í
sahnn eins og þú værir
aðeins að syngja fyrir
mig en ekki fullan sal
af fólki. Svona varst
þú, lést mann alltaf
finna það hvað maður
skipti þig miklu máli.
En þrátt fyrir mikinn
áhuga þinn á jazz og
tónlist yfirleitt þá var
fjölskyldan alltaf núm-
er eitt, tvö og þrjú hjá
þér og því fengu flestir að kynnast
sem þekktu þig. Það var alltaf hægt
að leita til þín ef eitthvað var að. Þú
reyndir aldrei að taka ákvarðanir
fyrir fólk heldur sagðir aðeins
hreinskilnislega þína skoðun á mál-
inu. Ef einhvem vantaði aðstoð
varst þú reiðubúinn að veita hana ef
þú mögulega gast, ekki síst ef við
systkinin áttum í hlut. Þá komuð þið
mamma alltaf og stundum án þess
að við hefðum beðið ykkur um það.
Eins og í haust þegar ég stóð í
flutningum, þá komuð þið í heim-
sókn gagngert til að hjálpa. Það
ætlaðir þú einnig að gera í kringum
jólin þegar aðstæður hjá mér
breyttust og ég hafði mjög mikið að
gera. Þá vildir þú skella þér norður
til mín og hjálpa mér og ná í mig í
jólafrí í leiðinni.
Ég gaf ykkur mömmu einu sinni
platta sem á stóð: „Góðir foreldrar
eru til staðar þegar maður þarf á
þeim að halda“, og það voruð þið,
ætíð.
Það er alltaf gaman að skreppa
heim á Gljúfraborg því móttökumar
eru ætíð svo góðar. Það er erfitt tO
þess að hugsa að geta ekki lengur
séð þig standa á tröppunum, veif-
andi og brosandi, þegar maður
rennur í eða úr hlaði. Tilhugsunin
um að þú getir ekki verið með okk-
ur á stórum stundum í lífi okkar er
erfið. Eins og við útskriftir, þegar
bamabömin verða fleiri og til að
leiða okkur systumar upp að altar-
inu þegar við giftum okkur. Ég
hefði verið svo stolt af því að hafa
svona glæsilegan föður mér við hlið
við það tækifæri. En ég veit að þú
ert hjá okkur öllum og fylgist vel
með öllu sem við erum að gera, jafn
stoltur og þú varst alltaf.
Vegna veikinda þinna vom síð-
ustu vikumar sem við áttum með
þér mjög erfiðar fyrir okkur öll en
þrátt fyrir söknuðinn og sársauk-
ann við að missa þig verðum við að
þakka fyrir að þú skyldir ekki þurfa
að kveljast lengur. Við fjölskyldan
stöndum saman í sorginni og hugg-
MINNINGAR
um okkur við minningarnar um
yndislegan mann sem gaf okkur öll-
um svo mikið. Guð styrki þig,
mamma, og okkur öll á þessum erf-
iðu tímum.
Elsku pabbi, ég þakka þér fyrir
allt. Guð blessi minningu þína.
Þín dóttir,
Þórhildur.
Elsku pabbi, þá er stund þín upp-
mnnin, þú ert farinn frá okkur
löngu áður en eðlilegt getur talist,
rétt kominn yfir hálfrar aldar af-
mælið, 56 ára. En ég er viss um að
þér líður vel núna í hinum nýja
heimi með þeim sem þar dvelja.
Þetta var erfiður tími fyrir okkur
öll, síðasti mánuðurinn sem þú
dvaldist með okkur hérna megin,
tími ótta og óvissu.
Einhvers staðar stendur að eng-
inn veit hvað átt hefur fyrr en misst
hefur og finnst mér þau orð sannast
nú. Alltaf þótti manni sjálfsagt mál
að heyra rödd þína í símanum þegar
maður hringdi austur í ykkur
mömmu og einnig að sjá þig standa
á tröppunum fyrir utan húsið þegar
maður renndi í hlað „heima“ í sum-
arfríum. Og núna þegar maður á
ekki eftir að upplifa þessa hluti aft-
ur sé ég hvað þessi sjálfsögðu litlu
atriði skilja eftir sig stórt skarð
þegar þú ert farinn.
Lífsgleði og snyrtimennska eru
þau orð sem mér finnst lýsa þér vel.
Þú varst alltaf í góðu skapi og fyrst-
ur til ef skapa þurfti tónlist á manna-
mótum, dróst þá fram gítarinn og
spilaðir og söngst af mikilli innlifun.
Alltaf var snyrtimennskan í fyrir-
rúmi hjá þér í klæðaburði og
greiðslu, hárið alltaf eins greitt,
skipt vinstramegin og greitt yfir til
hægri og það er nú bara svo að ég
man aldrei eftir að hafa séð þig öðru-
vísi greiddan hvað þá ógreiddan.
Tónlistin átti mikið rúm hjá þér
hvort sem var í því að skapa hana
sjálfur með gítamum og raddbönd-
unum eða bara hlusta. Og tólistin þín
var jazzinn, því vart var meiri djass-
geggjara að finna en þig, sóttir flest-
ar djasshátíðir Egilsstaða og komst
oft á haustin hingað suður til þess að
taka þátt í RÚREK-djasshátíðunum.
Báðir höfum við bræður erft tónlist-
aráhugann frá þér því báðir spilum
við á hljóðfæri og er mér mjög minn-
isstætt hversu oft þú varst búinn að
hvetja mig til þess að fara að læra
trommuleik. Varst meira að segja
búinn að tala við þekktan trommu-
leikara um að taka mig í nám en
aldrei varð neitt úr því enda þótt
ekki sé öll nótt úti með það.
Elsku pabbi, ég vil þakka þér fyr-
ir allar þær góðu stundir sem við
áttum saman og bið Guð að geyma
þig vel og mig langar að kveðja þig
með orðunum sem þú kvaddir mig
svo oft með: Bless you.
Þinn sonur,
Rögnvaldur.
HÖSKULDUR
EGILSSON
SIGRÚN
KRISTJÁNSDÓTTIR
+ Sigrún Krist-
jánsdóttir fædd-
ist í Þórshöfn í
Færeyjum 27. júní
1940. Hún lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans 25.
maí siðastliðinn. Út-
för hennar fór fram
í kyrrþey 3. júní í
Keflavíkurkirkju.
Nú er tómarúm í hjarta
mínu,
Líf þitt hefur skilað hlut-
verki sínu.
Guð kallar nafn þitt
snemma,
minning þín mun aldrei þverra.
Ast og væntumþykja í þína hönd,
aldrei skal neitt rjúfa þau bönd.
Nú kveð ég þig í hinsta sinn,
megir þú finna frið, móðir mín.
Hvíl í friði elsku mamma.
Þinn sonur
Ragnar.
Leiðimar skilja en ljós okkar skín,
er liðinna daga við minnumst.
Eg þakka af hjarta mínu og hugsa til þín,
uns heima hjá Drottni við finnumst.
Elsku mamma, ég veit varla hvað
ég á að segja, þú ert farin og það er
svo mikið tómarúm í hjarta mínu að
ég átta mig varla á því. Þú varst að-
eins 58 ára gömul og í blóma lífsins
þegar þú andast og ferð frá okkur
systkinunum. Það er svo skrítið að
heyra ekki í þér eða að sjá þig meir
elsku mamma mín því þú varst vön
að koma á hverju kvöldi til mín og
ef þú komst ekki þá hringdir þú
bara tO að athuga hvemig ég og
bömin hefðum það. Það sem var
alltaf efst í huga þínum vom bömin
og bamabörnin og alltaf varst þú
tObúin til að hjálpa okkur ef þú
gast, og þú gerðir það í rauninni
aUtaf. Ailtaf varst þú brosandi og
lífsgleðin skein úr augum þínum.
Elsku mamma, þú hafðir stórt og
gott hjarta enda varst þú besta
mamma og besta amma sem ég og
bömin hefðum getað fengið. Aldrei
kvartaðir þú þó svo að þú værir
þreytt og slöpp og ef við spurðum
hvort ekki væri í lagi hjá þér þá
sagðir þú: „Jújú, ég er bara með
smá flensu" því þú vUdir ekki að við
hefðum áhyggjur af
þér.
Fljótlega eftir páska
kom svo sjokkið, þú
greinist með krabba-
mein, þetta var rosalegt
áfall fyrir okkur systk-
inin en þú brostir bara
og sagðir að við yrðum
að vera sterk því þetta
lagaðist, „ég er með
bestu læknana á ís-
landi“. Þú varst svo
bjartsýn og hugrökk, ég
dáðist að þér því svona
hugrekki finnst ekki hjá
öllum en þú hafðir nóg
af því. 19. maí veikist þú og ferð á
spítalann, þú gast ekki talað skýrt en
samt skOdum við þig. Þú hugsaðir
ekki mOdð um þig heldur hafðir þú
meiri áhyggjur af okkur. Þú reyndir
að hughreysta okkur og brostir tO
okkar og hélst í hendur okkar, elsku
hugrakka mamma okkar. Síðustu
þijá dagana sátum við systkinm tO
skiptis hjá þér og héldum í höndina á
þér og þann 25. maí varst þú tekin
frá okkur. Elsku mamma mín, ég
held að Guð hafi ekki vOjað láta þig
kveljast og því tekið þig tO sín.
Elsku mamma, það er mikOl
söknuður og mikið tómarúm en ég
veit að þú ert ekki lengur þreytt og
hefur það mun betra nú. Berta,
ömmubamið þitt, er alltaf að spyrja
hvort amma sé orðin engOl og sé
komin með vængi og Ester Inga
spyr hvenær amma komi og fyrst
hún kemur ekki hvort hún sé bara
ennþá að lúlla. Það er erfitt að út-
skýra fyrir svona litlum stelpum að
amma þeirra sé dáin en ég reyni
eins vel og ég get, elsku mamma
mín. Ég segi þeim að þú sért uppi
hjá Guði og þér líði mjög vel.
Elsku mamma, þú munt alltaf
verða í hjarta mínu og ég mun
sakna sárt allra þinna heimsókna.
Hin langa þraut er liðin
nú loksins hlaust þú friðinn
og allt er orðið rótt.
Nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem)
Elsku besta mamma mín, nú kveð
ég þig. Guð blessi minningu þína.
Þín dóttir,
Rakel.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Sparkassen ofurskákmótið
í Dortmund að hefjast
SKAK
Ilortmund
SPARKASSEN SKÁKHÁTÍÐIN
9.-18. júlí
3KÁKÁHUGAME NN eiga nú
enn eina ferðina kost á að fylgjast
með kappskákmóti þar sem sterk-
ustu skákmeistarar heims leiða sam-
an hesta sína. Sparkassen skákhátíð-
in samanstendur af fjölmörgum
skákmótum og skákviðburðum sem
sóttir eru af skákmönnum
hvaðanæva úr heiminum. Sá við-
burður sem á eftir að vekja mesta at-
hygli er stórmeistaramótið, sem átta
af sterkustu skákmeisturum heims
taka þátt í. Mótið verður í 19. styrk-
leikaflokki sem þýðir að meðalstigin
verða yfir 2700.
1. Miehael Adams........2705
2. Viswanathan Anand ..........2771
3. Peter Leko...................2699
4. Anatoli Karpov ..............2709
5. Ivan Sokolov ................2666
6. Vladimir Kramnik.............2760
7. Veselin Topalov.............2695
8. Jan Timman...................2675
Fyrsta umferð verður teíld laugar-
daginn 10. júlí og teflt verður á hverj-
um degi, nema 13. júlí. Mótinu lýkur
17. júlí. Á frídeginum tefla þeir
Kramnik og Timman fjöltefli, en dag-
inn áður en mótið hefst ætlar Karpov
að tefla kappskák við nýbakaðan
heimsmeistara tölva, Shredder.
Auk ofurskákmótsins verður hald-
ið svokallað meistaramót, sem er tíu
manna lokað mót. Þá verður einnig
haldið fjölmennt opið skákmót.
Skákhátíðin mun fá mjög mikla
umfjöllun í fjölmiðlum, en meðal ann-
ars verður sjónvarpað frá henni. Þá
verður bein útsending á skákunum í
stórmeistaramótinu á Netinu. Það er
því óhætt að segja að styrktaraðil-
amir fái töluvert fyrir sinn snúð, því
skákmót virðast vera með vinsælasta
efni á Netinu.
Politiken Cup
Sex umferðum er nú lokið á Politi-
ken Cup skákmótinu í Kaupmanna-
höfn. Árangur íslensku keppendanna
er þessi:
Róbert Harðarson.................4 v.
Stefán Kristjánsson.............4 v.
Sigurður Páll Steindórsson......3 V4 v.
Lárus H. Bjamason...............2!/z v.
Ingibjörg Edda Birgisdóttir.....2‘/2 v.
Aldís Rún Lárusdóttir...........2'A v.
Ingólfur Gíslason...............2 v.
Dagur Arngrímsson...............2 v.
Harpa Ingólfsdóttir.............2 v.
Róbert gerði jafntefli við stór-
meistarann Henrik Danielsen í
sjöttu umferð og Stefán Kristjáns-
son gerði jafntefli við alþjóðlega
meistarann Steffen Pedersen. Ingi-
björg Edda tapað fyrir Dananum
Michael Maarup (2184). Þrátt fyrir
tap fyrir þessum sterka
skákmanni er frammi-
staða Ingibjargar mjög
góð þegar tekið er tillit
til þess hve sterka and-
stæðinga hún hefur
fengið.
Landsliðsflokkur
hefst í lok ágúst
Fyrir nokkrum vikum
mun Skáksamband ís-
lands hafa ákveðið að
Landsliðsílpkkur á
Skákþingi íslands hefjist
30. eða 31. ágúst í haust.
Að þessu sinni verður
mótið haldið í Kópavogi eða í
Reykjavík. Væntanlegum keppend-
um á mótinu hefur verið sent boð um
þátttöku.
Þetta er það skákmót sem íslensk-
ir skákáhugamenn fylgjast hvað
spenntastir með og Morgunblaðið
mun birta nánari fréttir um mótið
þegar nær dregur og frekari fréttir
berast frá Skáksambandi íslands.
Reykjavfkurskákmót í mars
Samkvæmt upplýsingum frá
Áskatli Erni Kárasyni, forseta
Skáksambands Islands,
hafa dagsetningar fyrir
næsta Reykjavíkurskák-
mót nú verið ákveðnar.
Fyrirhugað er að mótið
hefjist 10. mars á næsta
ári. Tefldar verða níu
umferðir og tefld verður
ein umferð á dag þannig
að mótinu lýkur 18. mars.
Margir íslenskir skák-
menn þurfa að fá að vita
af skákmótum með góð-
um fyrirvara og því er
það ánægjulegt að þessar
upplýsingar frá Skák-
sambandinu skuli liggja
svo snemma fyrir.
Daði Orn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
Viswanathan
Anand