Morgunblaðið - 10.07.1999, Side 53

Morgunblaðið - 10.07.1999, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 53*.. FÓLK í FRÉTTUM STÚLKURNAR frá Eistlandi eru fimar með hringina. DANS og gleði í fyrirrúmi í gær þegar Ofurkrakkarnir sýndu í Kringlunni. Fimleikahópurinn fljúgandi í Háskólabíói Ofurkrakkar æfa ánægjunnar vegna AÐ VERÐUR kátt á hjalla í Háskólabíói í dag og á morg- un þegar hinn ótrúlegi fim- leikahópur „Fljúgandi, danskir of- urkrakkar“ koma fram. Lone Godb- ersen, framkvæmdastjóri hópsins, kom til landsins með hópn- um í gær ásamt syni sínum Lars sem er Ofurkrakki þótt hann sé orðinn 21 árs. „Flestir í hópnum eru á aldrinum 8-17 ára en einu sinni var strákur með okkur þar til hann varð 27 ára. Þá kom hann til mín og sagði: „Lone, ég verð að hætta, ég er ekki lengur krakki. Svo er ég líka að fara að gifta mig“. En þjálfarar hópsins eru flestir fyrrum Ofur- krakkar svo að hann þurfti ekki að kveðja hópinn al- veg,“ sagði Lone sem var þreytt eftir flugið því hópur- inn var að koma frá hátíð í Halifax á Nova Scotia. „Við héldum tíu sýningar á jafnmörgum dögum. í hópnum eru 44 krakkar en bestu 23 eru með okkur í för núna svo að sýningin hér á íslandi verður alveg frábær." Einnig eru með í för fimm fimleikastúlkur frá Eistlandi og þjálfari þeirra, Mall Kalve. Hóparn- ir sýndu báðir í Halifax og því var tilvalið að þeir kæmu saman hingað til lands. Ofurkrakkamir hafa ferðast víða um heim og þykja fimleikafólk á heimsmælikvarða. Þau eru öll bú- sett í Árósum og því óhjákvæmilegt að velta fyrir sér hvaða ástæður liggi á baki því að svo margir færir fimleikamenn séu frá sama bænum. „Það er hefð fyrir fimleikum í Árós- um,“ segir Lars sem hefur verið Of- urkrakki frá því hann var sjö ára. „í fimleikafélaginu okkar eru um 700 manns. Eg held að málið sé að við keppum aldrei. Við látum krakkana aldrei keppa og það virðist skila sér í mun betri árangri. Það er nóg fyr- ir þau að hugsa um að læra og að reyna að sýna framfarir. Ef þau væru að keppa líka myndi það trufia þau. Ef einhver dettur í atriði hjá okkur missar hann engin stig. Það er allt hluti af sýningunni." Sýning Ofurkrakkanna er engin venjuleg fimleikasýning heldur vel útfærð og lífleg skemmtiat- riði þar sem krakkamir syngja, dansa og leika listir. „Við höldum um 30 sýningar á ári og höfúm farið víða. Þetta er í fyrsta skipti sem við komum til f slands og við hlökkum til að sýna ykkur hvað í okkur býr,“ sagði Lo- ne sem er mjög stolt af krökkunum sínum. Sjálf hef- ur hún verið í fimleikum frá blautu bamsbeini. „Krökk- unum finnst þetta rosalega gaman. Við pössum að þau æfi aðeins í 6-7 klukkustund- ir á viku svo að þau verði ekM leið,“ bætti hún við. í Eistlandi er því öðm vísi farið, að sögn Mall. „Við æfum oftar og keppum enda emm við ekki skemmtikraftar eins og Ofúrkrakk- amir,“ sagði hún. íslenskar fim- leikastúlkur úr Stjömunni munu líka koma fram á sýningunni í Há- skólabíói um helgina. „Þetta verður alþjóðleg og spennandi sýning," sagði Lone að lokum með bros á vör. Sýningamar hefjast kl. 14:30 báða dagana. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins LONE og Lars Godbersen frá Danmörku og Mall Kalve frá Eistlandi. Ö\^turgalmn Snúðjuvegi 14, C/(ópavqgi, sími 587 6080 Dans- og skemmtistadur í kvöld leika Hilmar Sverrisson og Anna Vilhjálms Opið frá kl. 22—3 Næturgalinn — alltaf lifandi tónlist Qt!ðiLe t SuM iD/er áMcD NaidSI •7í bikar aðeins Austurstræti 20 Suðurlandsbraut 56 íslenskur gæða rjómaís eftir sér- uppskrift McDonald’s. Fitu- og sykurminni en gengur og gerist. Þrjár sósur: Heit súkkulaði, heit karamellu eða köld jarðarberja. Litlir bílar - Stórir bílar - Ódýrir bílar - Dýrir bílar Verö frá 40.000.- til 4.000.000.- • Lánamöguleigar til allt aö 5 ára • Tökum notaöa bíla upp í notaða Opiö virka daga kl. 9 - 18 og laugardaga kl. 12 - 17 BÍLAHÚSIG (í húsi Ingvars Helgasonar og Bflheima) Sævarhöfða 2-112 Reykjavfk Síman 525 8096 - 525 8020 • Símbréf 587 7605

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.