Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Fjölmörg börn semsótt hafa smíðavelli Reykjavíkurborgar háðu keppni í óhefðbundnum íþróttagreinum í gær
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Fyrstu Smíðaleikarnir
KRAKKAR sem starfað hafa
á smíðavöllum Iþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur í
sumar gerðu sér glaðan dag í
gær. Þau flykktust í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn
þar sem fyrstu Smíðaleikarn-
ir voru haldnir. Bömin
kepptu í ýmsum óvenjulegum
íþróttagreinum á borð við
naglaboðhlaup. Að sögn Sig-
urðar Más Helgasonar, um-
sjónarmanns smíðavalla
bama í Reykjavík, komu á
annað hundrað barna á aldr-
inum átta til tólf ára á leikana
sem vom afar líflegir.
Þrettán smíðavellir em í
borginni, þar á meðal einn á
Kjalamesi. Tveir leiðbein-
endur era á hverjum velli og
kenna bömunum rétt hand-
brögð við smíðamar. Astæðu
þess að Smíðaleikarnir vora
haldnir má rekja til þess að
einn leiðbeinendanna stakk
upp á því að bömin kepptu í
greinum sem tengjast vinnu
þeirra á smíðavöllunum.
Leikamir era eins konar
uppskeruhátíð barnanna.
Hraði og vandvirkni
Hátíðin í gær hófst með
grillveislu um hádegið. Þá tók
keppnin við. I keppnisgreinun-
um reyndi á hraða og vand-
virkni bamanna. Þau söguðu í
kapp við tíma og fengu refsi-
stig ef ekki var sagað beint.
Við verkið notuðu þau tommu-
stokk og vinki]. I naglaboð-
hlaupinu þurftu krakkamir að
reka þriggja tommu nagla í
kubb og gæta þess að hann
bognaði ekki. Þriðja keppnis-
greinin var kassabílarall. Böm
af smíðavellinum við Selja-
skóla vora hlutskörpust þegar
árangur í keppnisgreinunum
þremur var lagður saman.
Fjölmargir krakkar læra
til verks á smíðavöllum borg-
arinnar, stelpur og strákar.
„í Hlíðunum til dæmis era 10
ára stelpur með kofa sem ég
gæti verið montinn af að hafa
smíðað,“ sagði Sigurður Már.
Hann brýnir fyrir fólki að
umgangast vellina með virð-
ingu. Skemmdarverk era af
og til unnin á kofunum, þó
hefur það sjaldnar gerst í
sumar en í fyrra. Þá þurfti að
loka einstaka völlum vegna
slæmrar umgengni.
„Mér hefur þótt það vera-
lega mikils virði þegar for-
eldrar bamanna og jafnvel
afar og ömmur koma á smíða-
vellina og hjálpa aðeins til,“
sagði Sigurður Már. Hann
hvetur ættingja krakkanna til
að koma á vellina og fylgjast
með starfi þeirra.
Ljósmynd/Helena Stefánsdóttir
Laugardalur
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar og sjö kórar sem starfa í bænum gefa út hljómdisk
Heimild um mann-
líf í Mosfellsbæ
Mosfellsbær
ÞAÐ hlýtur að teljast sér-
stakt að í 5.500 manna
bæjarfélagi starfí sjö kór-
ar. Sú er raunin í Mos-
fellsbæ. Kórarnir gáfu
nýlega út geisladisk
ásamt Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar. Diskurinn
ber nafnið I Mosfellsbæ.
Birgir D. Sveinsson,
stjórnandi hljómsveitar-
innar, segir von þeirra
sem að útgáfunni standa
að hljómdiskurinn verði
þegar frá líður góð heim-
ild um mannlíf í Mosfells-
bæ.
„Birgir hefur verið að-
aldrifkrafturinn í að koma
þessu í kring,“ sagði Guð-
mundur Ómar Óskarsson
í samtali við Morgunblað-
ið. Guðmundur sljórnar
Barnakór Varmárskóla og
Kirkjukór Lágafellssókn-
ar. Hinir kórarnir eru
Álafosskórinn, Vorboðar,
Mosfellskórinn, Reykja-
lundarkórinn, og Karla-
kórinn Stefnir.
Guðmundur segir kór-
ana hafa unnið nokkuð
saman á undanförnum ár-
um og sungið með lúðra-
sveitinni. Fyrir tveimur
árum eða svo kviknaði sú
hugmynd að gefa út
geisladisk með þeirri tón-
list og bæta einhveiju við,
að sögn Guðmundar.
Mikill fjöldi fólks
á öllum aldri
Mosfellingurinn Helgi
R. Einarsson samdi titil-
lag disksins við ljóð
Höskuldar Þráinssonar,
sem einnig er úr Mosfells-
bæ. Lagið var samið sér-
staklega fyrir útgáfuna.
Kórarnir sjö sameinast og
syngja þetta lag, auk fjög-
urra annarra, saman við
undirleik Skólahljómsveit-
arinnar. Guðmundur telur
líklegt að á fjórða hund-
rað manns hafi tekið þátt
í þeim tónistarflutningi.
„Þetta var heilmikið
fyrirtæki. Það var mikið
mál að stilla saman alla
þessa strengi," sagði Guð-
mundur. Hann segir að
diskinum hafi verið ætlað
að sýna þverskurð af líf-
legu tónlistarlífí Mosfells-
bæjar og álítur að ágæt-
lega hafí tekist til.
Tónlistarfólkið sem
fram kemur á diskinum er
á öllum aldri, að sögn
Guðmundar. „Ætli það
megi ekki segja að það sé
frá átta ára til áttræðs,"
sagði Guðmundur að lok-
um.
Diskurinn er til sölu í
Varmárskóla í Mosfells-
bæ.
-
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
GUÐMUNDUR Ómar Óskarsson
stjórnar hér Barnakór Varmár-
skóla á tónleikum.
HLJÓMDISKINN prýðir yfirlits-
mynd af Mosfellsbæ.